Morgunblaðið - 23.11.1978, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 23.11.1978, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1978 Bankamálaráðherra á Alþingi: Laun Seðlabankastjóra hin sömu og hæstaréttardómara Laun SoAIahankastjóra oru hin sömu ojí hæstaréttardómara, eða kr. 002.815.00 á mánuði, að viðbættum 10% til formanns bankastjórnar. Við þessi laun bætist þóknun fyrir setu í bankaráði scm er hin sama og bankaráðsmanna eða kr. 27.170.00 á mánuði. Risna Seðlahankastjóra var undanfarin ár kr. 150.000.00 á ári en er nú kr. 200.000.00. Bifrciðahlunnindi þcirra eru hin sömu og ráðherra að öðru leyti en því að hankastjórar aka bifreiðum sínum sjáifir. Þá er þess að geta að ríkisbankar hafa allt frá árinu 1952 greitt öllu starfsfólki sínu árleua launauppbót, sem hefur jafnxilt 1/12 árslauna eða desemberlauna. Greiðslan Kenjfur á móti þeirri yfirvinnu, sem fellur til við að Ijúka nauðsynleKum aftjreiðslum og verkefnum daKsins. Þetta kom fram í svari Svavars Gestssonar, bankamálaráðherra, í svari við fyrirspurn frá Stcfáni Jónssyni (Abl) í Sameinuðu þingi í fyrradag. Þá kom fram í svari ráðherra að á kostnaðarreikning vegna gesta- móttöku á árinu 1977 vóru færðar 17.3 m. kr. Var þar einkum um að ræða kostnað við móttöku er- lendra gesta, nefnda og fulltrúa, vegna samninga um lántökur fyrir bankann, ríkissjóð og aðra opin- bera aðila, svo og við móttöku fulltrúa alþjóðastofnana. Hér er einnig talinn kostnaður vegna fundahaida, reglulegra funda með innlánsstofnunum og ársfundar bankans. I eigu Seðlabankans eru þrjár bifreiðar, sem nýttar eru til skoðunarferða bankaeftirlits- manna í inniánsstofnanir víðs vegar um landið, til seðlaflutninga í 18 seðlage.vmslur bankans utan Reykjavíkur og til eftirlitsferða endurskoðenda bankans, sem f.vlgjast með seðlabirgðum í þess- um geymslum og til ýmissa snúninga fyrir bankann í Reykja- vík. Einn bifreiðastjóri starfandi í þjónustu bankans og sinnir alhliða störfum við akstur, sem almennir starfsmenn bankans annast og að hluta. Laun bankastjóra Landsbanka íslands eru kr. G31.fi20.00 og miðuð við laun hæstaréttardóm- ara að frádregnum 20 þúsundum á mánuði. Greidd eru tvöföld laun í desember. Fyrir setu á fundum bankaráðs fengu bankastjórar greitt (nóvember) kr. 21.170.00. Risna ársins 1978 er kr. 2fi0.000.00. Bifreiðakjör eru hin sömu og hjá ráðherrum án þess að bankastjórar hafi þó sérstaka bifreiðarstjóra. Gestamóttaka í reikningum bankans 1977 nam 22 m. kr. — sem svarar 0.85'/ af heildarkostnaði við rekstur. Inni í þeirri töiu er kostnaður vegna erlendra aðila, sem hingað komu til móta og fundahalds. Bankinn á 11 bifreið- ar, sem m.a. eru nýttar til flutninga á skjölum milli Re.vkja- víkur, Grindavíkur, Keflavíkur og Sandgerðis, svo og milli Selfoss, Stokkseyrar, Eyrarbakka, Þor- lákshafnar og Aratungu. Enn- fremur milli afgreiðslustaða bank- ans í Reykjavík. Loks til afurða- eftirlits um land allt. Bankastjóralaun í Útvegsbanka íslands eru kr. fi.31.fi20.00. auk launa fyrir setu i bankaráði, kr. 27.170.00 á mánuði. Um kaup og rekstur bifreiða gilda sömu reglur og um ráðherra. Þá fá þeir greiddan símakostnað. Laun bankastjóra Útvegsbanka lúta sömu viðmiðun og bankastjóra Landsbanka. Risna fyrir líðandi ár hefur verið ákveðin kr. 2G0.000. Kostnaður við gestamóttöku 1977 nam tæpum tveimur milljónum króna. Hér er aðallega um að ræða móttöku á gestum frá viðskipta- bönkum erlendis, bankaráðsfundi ofl. Útvegsbankinn á tvo bíla. 1 Nýttir til skjalaflutninga milli aðalbanka og útibúa á höfuð- borgarsvæðinu og reiknistofnunar bankanna í Kópavogi. Ennfremur til mynt- og seðlaflutninga, matar- flutninga frá eldhúsi í aðalbanka til útibúa, eftirlits í útibúum og birgðaeftirlits víðs vegar um land. Laun bankastjóra Búnaðar- banka eru hin sömu og í Lands- banka og Útvegsbanka. Ennfrem- ur þóknun fyrir setu á bankaráðs- fundum. Risna bankastjóra er kr. 150.000.00 á ári. Afnotagjaid af síma er greitt. Sömu reglur gilda um bifreiðahlunnindi og hjá öðr- um bankastjórum. Risna bankans árið 1977 nam kr. 530.000.-. I þeirri upphæð er innifalin móttaka vegna Búnaðar- þings. Bankinn á fjórar bifreiðar, sem notaðar eru til sendiferða milli aðalbanka, Seðlabanka, reiknistofu, flutningastöðva og útibúa i Reykjavík og á Suður- landi. Varaþingmaður Halldór Blöndal (S) tók sæti á Alþingi í fýrradag sem fyrsti varaþingmaður þingmanna Sjálfstæðisflokks í Norðurlandi eystra, en Jón G. Sólnes er farinn utan í opinberum erindum. Gunnar Thoroddsen: Framkvæmda- sióður öryrkia Aðflutningsgjöld af litasjónvörpum: 1000 milljón- ir króna 1978 FUNDUR var í Sameinuðu þingi í fyrradag. fyrirspurnafundur, og svöruðu ráðhcrrar ýmsum fyrir- spurnum. Svavar Gestsson. við- skipta- og bankamálaráðherra, svaraði fyrirspurn frá Stefáni Jónssyni (Abl) um laun og hlunn- indi ríkisbankastjóra. sem birt er f Mbl. í dag. efnislega. Menntamála- ráðherra svaraði fyrirspurn um útbrciðslu sjónvarps frá Alexander Stefánssyni (F) sem nánar verður gert grein fyrir á þingsíðu Mbl. síðar. Útgerð ísafoldar Þá svaraði sjávarútvegsráðherra fyrirspurn frá Stefáni Jónssyni (Abl) varðandi útgerð Isafoldar. I svari hans kom m.a. fram að staðið hefði verið við öll skilyrði, sem sett vóru fyrir útgerð þessa útlenda skips á loðnuveiðar, þ.e. að skipið lyti íslenzkum lögum og reglum, skips- höfn væri íslenzk, og afla væri landað í vinnsiuhafnir fjarri veiði- stað, til að tefja ekki löndun íslenzkra skipa. Skipið hefði og greitt í loðnusjóð og útflutnings- gjöld, en í engu notið íslenzks sjóðakerfis. Afli þess hefði komið' ýmsum fjarlægum vinnsluhöfnum frá veiðistað hverju sinni til góða. Veiði þessi var leyfð skv. lögum frá Alþingi og gildir út þetta ár. Ekki taldi ráðherra hyggilegt að fram- lengja leyfið. Sjónvarpsframkvæmdir I svari menntamálaráðherra um sjónvarpsdreifingu kom m.a. fram að aðflutningsgjöld af litasjónvörpum á þessu ári væru komin yfir milljarð króna. Hins vegar hefðu aðeins verið flutt inn 23 svart-hvít sjónvörp. Ellert B. Schram (S) gagnrýndi að aðeins hefði verið notaðar 550 m.kr. af þessum tekjum, eða um helming- ur, til framkvæmda Ríkisútvarps/- Sjónvarps. Þessar tekjur væru áætl- aðar 800 m. kr. í fjárlagafrumvarpi nú en hins vegar aðeins 350 m. kr. þar til framkvæmda Sjónvarpsins. Hér þyrfti breyting tii að koma. Vesturlínu seinkar Þá svaraði orkuráðherra fyrir- spurn frá Þorvaldi G. Kristjánssyni um vesturlínu. Urðu hávaðaum- ræður um það mál og sökuðu stjórnarandstöðuþingmenn núverandi ríkisstjórn um að ætla að bregðast fyrirheitum um að ljúka vesturlínu fyrir árslok 1979. Tóku ekki færri en 8 þingmenn til máls. Gunnar Thoroddsen, fv. félags- málaráðherra. tók þátt í umræðu á Alþingi nýverið um fram- kvæmdasjóð ijryrkja. þingmál flutt af Jóhiinnu Sigurðardóttur (A). Ilonum fórust svo orði „Ég tel ástæðu til að þakka hv. flm., 12. þm. Reykv., fyrir að hafa hreyft þessu mikilvæga máli og fyrir ítarlega og fróðlega fram- söguræðu fyrir frv. Málefni ör- yrkja eða þroskaheftra eru svo mikilvæg, að þar þarf auðvitað að gera á mörgum sviðum betur en gert hefur verið hingað til. Þetta frv. hefur samkv. grg. það höfuðmarkmið að tryggja ákveð- inn tekjustofn til sérkennslu, .samkv. áætlun, sem gerð hefur verið í samræmi við grunnskóla- lög, og þar er mikil fjárþörf fyrir hendi. Það er ljóst að sérkennsla þroskaheftra er eitt þeirra vanda- mála sem ekki hefur enn fengist viðhlítandi lausn á og langt fra því, eins og kemur skýrt fram í grg. þessa frv. Ymis önnur vanda- mál, sem snerta þroskahefta, þarf einnig að leysa. Eftir stjórnkerfi okkar falla vandamál öryrkja eða þroska- heftra aðallega undir þrjú rn., menntmrn., heilbr.- og trmrn. og félmrn., og í rauninni er sinn þátturinn undir hverju þessara rn. Eittaf því, sem brýn nauðsyn er að gera skipulagslega séð, er að koma hér á sem bestu samstarfi og samráði. í því skyni hafa á Gunnar Thoroddsen. undanförnum árum verið settar nefndir á laggirnar. Nú síðast mun það hafa verið á s.l. vori, að ákveðið var í samráði við Lands- samtökin Þroskahjálp að skipa nefnd með fulltrúum frá þessum þrem rn. og frá Þroskahjálp til þess að gera till. um heildarlöggjöf um vandamál þroskaheftra. Það er rétt að það komi einnig fram, að sú er yfirlýst skoðun Landssamtak- anna Þroskahjálpar og eindregin ósk þeirra samtaka, að yfirstjórn þessara mála sé í höndum félmrn. Ég sé á þessu frv., að hv. flm. virðist vera sömu skoðunar, því að það kemur fram að þótt hér sé um að ræða kennslu- og fræðsiumál öryrkja að verulegu leyti, þá leggur hv. flm. til að þessi mál heyri fyrst og fremst undir félmrn. Mér er ekki kunnugt um hvað líður Einkasala ríkis- ins á olíuvörum? Endurskoðun pingskaparlaga Gils Guðmundsson (Abl). Ingvar Gíslason (F). Bragi Sigurjónsson (A) og Friðjón Þórðarson (S) hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um kosningu átta manna þingnefnd- ar, tveggja frá hverjum þingflokki, til að endurskoða gildandi lög um þingsköp Alþingis. Skal nefndin leggja niðurstöður sínar fyrir Al- þingi svo fljótt sem við verður komið. I greinargerð segir að samkomu- lag hafi orðið milli forseta Alþingis og formanna þingflokka að leggja þessa málsmeðferð til. Gildandi þingskaparlög eru frá 1972. Endurskipulagning olíusölu í landinu Árni Gunnarsson (A) og Gunnlaugur Stefánsson (A) hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um skipun 5 manna nefndar til að gera tillögur um endurskipulagningu á innflutningi á olíuvörum og dreifingu þeirra um landið. Æskilegt er, segir í tillögunni, að nefndin beini einkum athygli sinni að eftirfarandi atriðum: 1) Hugsanlegri einkasölu ríkisins á olíuvörum, 2) Sameiningu olíufélaganna, 3) Aðhaldi í rekstri félaganna og meira frjálsræði í olíuinnflutningi, er gæti aukið á samkeppni. Ríkisábyrgð á launum við gjaldprot Árið 1974 vóru sett lög um ríkisábyrgð á launakröfum á hendur vinnuveitanda, sem úrskurðaður hefur verið gjaldþrota. Nú hefur Ólafur R. Grímsson (Abl) flutt frv. til laga um breytingu á þessum lögum, þessefnis, að þessi ábyrgð nái einnig til bóta, sem vinnuveitanda hefur verið gert skylt að greiða vegna örorku eða dauðsfalls af völdum vinnuslyss. Ahugaleikfélög og leikhópar Fram.hefur verið lagt frumvarp til laga um breytingu á leiklistarlögum, þessefnis, að auk ákvæða um stuðn- ing „til leiklistarstarfsemi áhuga- leikfélaga“, í IV. kafla, 2. gr., komi „til annarrar leiklistarstarfsemi". I greinargerð er talað um þörf á að styrkja „ýmsa sjálfstæða leikhópa", sem stofnaðir hafi vérið eða séu í uppsiglingu. starfi þessarar nefndar, en vænti þess, að tillagna frá henni sé að vænta áður en langt um líður, vegna þess að þegar hún var skipuð lá þegar fyrir veruleg vinna bæði af hálfu nefndar, sem áður hafði verið skipuð, og einnig frá Þroskahjálp um hvernig þessum málum skyldi í heild skipað. Varðandi fjáröflun samkv. þessu frv. vil ég ekki á þessu stigi taka afstöðu til þeirra leiða sem þar er á bent. En þó þykir mér ástæða til að minnast nokkuð á mismunandi skoðanir sem fram hafa komið í þessum umr. um það hvort eigi að veita fé í fjárlögum áf almennum ríkissjóðstekjum til slíkra mála eða leita til markaðra eða sér- stakra tekjustofna. Það er rétt, að það væri ákaflega æskilegt ef hægt væri að afla fjár úr ríkis- sjóði, af almennum ríkissjóðstekj- um, til nauðsynjamála eins og þessara. En reynslan bendir til þess, að oft verða nauðsynjamál að bíða allt of lengi ef á að fara þessa leið eingöngu. Þess vegna hefur oft verið gripið til markaðra tekju- stofna, sérstaklega til að þoka fram líknar-, mannúðar- og menn- ingarmálum. Ég fullyrði að mörg slík mál hafa verið leyst eða a.m.k. hefur þeim þokað betur áfram en ella, vegna þess að ákveðnir hafa verið sérstakir markaðir tekju- stofnar til þeirra. Sum þessara mála hafa þurft að bíða árum saman eftir því að Alþ. sinnti þeim nægilega við afgreiðslu fjárlaga. Þegar slíkt hefur ekki tekist hefur verið gripið til hinna mörkuðu tekjustofna. Ég get nefnt það sem dæmi, að slysavarnr Islands væru í lakara ástandi en þær nú eru, ef ekki hefði verið fyrir mörgum árum gripið til markaðs tekju- stofns fyrir Slysavarnafélagið. Ég held einnig að málefni fatlaðra og þroskaheftra væru enn verr á vegi stödd en þau nú eru, ef ekki hefði notið við markaðra tekjustofna. Þess vegna held ég að ekki sé rétt að útiloka hina mörkuðu tekju- stofna, því að reynsla okkar a.m.k. tvo síðustu áratugi hefur áþreifan- lega sannað að þeir hafa verið nauðsynlegir oft og tíðum til þess að leysa mikil vandamál, sérstak- lega á sviði félagslegra umbóta, líknar- og mannúðarmála. Ég skal ekki fara frekar út í efni þessa frv. nú — það kemur væntanlega til þeirrar n. sem ég á sæti í — en ég vildi láta þessar aths. koma fram strax um leið og ég ítreka að hv. flm. á þakkir skilið fvrir að hafa hrevft þessu merka máli.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.