Morgunblaðið - 24.11.1978, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1978
15
Boeing-málí
Egyptalandi
Hanne Rasmussen, frá dönsku ræðismannsskrifstofunni í Colombo, kom og
færði Harald Snæhólm körfu með gladiólum í sjúkrahúsið í Colombo, en þar -
sem eitt Norðurland hefur hvorki sendiherra né ræðismann sinna fulltrúar
hinna þegnum þess þegar tilefni er til. (AP - símamynd).
Brezhnev hef ur í
hótunum við Breta
Kaíró, 23. nóvember. AP.
TVEIR fyrrverandi ráð-
herrar í egypzku stjórn-
inni og þrír háttsettir
starfsmenn egypzka flugfé-
lagsins voru í dag ákærðir
fyrir að hafa þegið mútur
frá bandaríska flugvélafyr-
irtækinu Boeing.
Helmy Shams, fyrrverandi
tæknilegur ráðunautur flugfélags-
ins, var ákærður fyrir að hafa
þegið 125.000 dollara í mútur frá
Boeing í sambandi við sölu á
fjórum Boeing 707 þotum til
félagsins 1972. Málið hefur verið í
rannsókn í tvö ár vegna greinar
sem birtist í egypzku blaði.
Abdullah Marzeban fyrrverandi
varaforsætis- og efnahagsráð-
Fiskveiðiviðræður
Norðmanna:
Samkomulag
ekki í s jónmáli
Osló — 23. nóvember
— frá Jan Erik Lauré,
frrttaritara Morgunblaðsins
I fiskveiðisamningum Norð-
manna við aðrar þjóðir gengur
hvorki né rekur um þessar
mundir. Viðræðum þeirra Jens
Evensens hafréttarmálaráðherra
og hins sovézka starfsbróður
hans, Ishkovs, lauk f Moskvu í
gær án þess að samkomulag
tækist. og í Briissel lauk fundum
hjá EBE með sama hætti. Á
báðum stöðum var þó eining um
að halda samningaumleitunum
áfram.
I Moskvu tókst ekki að þoka í
samkomulagsátt deilunni um það
hvort Sovétmönnum væri skylt
eða ekki að tilkynna Norðmönnum
um aflamagn á norsku verndar-
svæðunum við Svalbarða. Sovét-
mönnum væri skylt eða ekki að
tilkynna Norðmönnum um afla-
magn á norsku verndarsvæðunum
við Svalbarða. Sovétmenn vísa
harðlega á bug því að Norðmenn
hafi rétt til að fylgjast með
aflanum, en um þessar mundir er
um að ræða 134 sovézka togara,
sem veiða á þessum slóðum.
Boðaður var nýr fundur i Ósló um
áramót, um leið og því var lýst yfir
að viðræðurnar í Moskvu hefðu
verið gagnlegar.
Managua — 23. nóvember. AP.
ERLENDU sáttasemjararnir,
sem um þessar mundir reyna að
miðla málum milli Somoza, for-
seta Nicaragua, og andstæðinga
hans, hafa lagt til að gengið verði
til þjóðaratkvæðis um það hvort
Somoza skuli verða áfram við
völd. Segja áreiðanlegir
heimildarmenn trúlegt að
atkvæðagreiðslan færi fram þeg-
ar í janúar n.k., fallist deiluaðilar
á slíka meðferð málsins.
Sáttnefndin, sem verið hefur í
Nicaragua að undanförnu, er
skipuð fulltrúum stjórna Banda-
ríkjanna, Guatemala og
Dómíníkanska lýðveldinu.
Sandinista-hreyfingin segir að
þjóðaratkvæðagreiðsla sem þessi
hafi enga þýðingu, — Somoza
mundi aðeins útnefna einhvern
annan fulltrúa fjölskyldu sinnar
til að setjast á valdastól, en
Somoza-ættin hefur nú verið við
völd í landinu í 44 ár samfleytt.
Andstæðingar hans krefjast þess
að hann hverfi úr landi umsvifa-
laust, en forsetinn situr fast við
herra og Ahmed Nouh fyrrverandi
flugmálaráðherra voru ákærðir
fyrir að bera ábyrgð á stórfelldum
afglöpum sem hefðu kostað ríkið
13.2 milljónir dollara.
Auk þeirra voru ákærðir fyrr-
verandi stjórnarformaður flugfé-
lagsins, Abdel Hamid Mahmoud,
fyrir afglöp, og skipulagsstjórinn,
Ahmed Basraa, fyrir vísvitandi
tjón sem hann hafi valdið al-
mannahagsmunum.
Shams er sakaður um að hafa
þegið múturnar fyrir að birta
villandi skýrslu þar sem hvatt var
til kaupa á flugvélunum, sem voru
dýrari en félagið þurfti og lang-
fleygari. Ráðherrarnir eru sam-
sakaðir um að hafa samþykkt
endurgreiðslu á lánum 1972 þótt
þeir hafi vitað að dollarinn væri á
niðurleið.
Veður
víða um heim
Akureyri +5 akýjaó
Amatardam 13 akýjaó
Apana 18 akýjaó
Barlín 12 akýjaó
BrUaaal 12 rigning
Chicago 6 rfgning
Frankfurt 7 rigning
Ganf 8 akýjaó
Helainki 5 akýjaó
Jóhanneaarb. 23 akýjað
Kaupmannahöfn 13 heióakírt
Liaaabon 8 heiðakirt
London 15 heiðakírt
Loa Angelea 15 rigning
Madrid 13 léttakýjað
Malaga 20 léttakýjað
Miami 26 akýjað
Moakva 4 rigning
New York 4 rigning
Óaló 8 heiöakírt
Palma 18 léttakýjað
Paria 13 akýjað
Reykjavík +3 léttakýjað
Róm 15 heiðakírt
Stokkhólmur 11 akýjað
Tel Aviv 22 heiðakírt
Tókýó 15 akýjaó
Vinarborg 11 léttakýjað
sinn keip og segist ekki fara fet
fyrr en kjörtímabili hans ljúki,
sem er árið 1981. Somoza hefur
reyndar boðizt til að aflétta
útgöngubanni og ritskoðun, en
andstæðingar hans láta sér fátt
um slík tilboð finnast og krefjast
þess að þriggja manna herfor-
ingjastjórn verði fengin í hendur
stjórn landsins næstu þrjú árin.
Lundúnum — 23. nóvember. — AP.
BREZK stjórnvöld skýrðu
frá því í dag, að Leonid
Brezhnev, forseti Sovét-
ríkjanna, hefði sent James
Callaghan, forsætisráð-
herra Breta, tilskrif, þar
sem hann varar Breta við
að selja Kínverjum Harr-
ier-orrustuþotur, sem hef ja
Callaghan
sig nánast lóðrétt til flugs.
Kínverjar vilja fá keyptar
30 slíkar þotur og er
brezka stjórnin tekin að
ráðfæra sig við bandamenn
sína um möguleika á því að
verða við þeim óskum.
Enn er ekki vitað hvort Brezhn-
ev hefur snúið sér til fleiri stjórna
á Vesturlöndum í sömu erinda-
gjörðum, en í Lundúnum telja
menn ekki ósennilegt, að svo sé. I
bréfinu varar Brezhnev við „afleið-
ingunum" ef Bretar hefji sölu á
hergögnum til Kína, en nánar er
ekki vitað um efni bréfsins, að
öðru leyti en því að The Daily
Telegraph heldur því fram í dag,
að þar komi fram afdráttarlaus
hótun um að samskipti Bretlands
og Sovét muni versna svo um
muni, ef af viðskiptum þessum
verði.
Brezka stjórnin hefur þegar
brugðizt hin versta við þessum
afskiptum Sovétmanna, og búizt er
við því að Caílaghan muni brátt
senda Brezhnev harðort svarbréf.
David Owen utanríkisráðherra
sagði í Neðri málsstofunni í dag,
að ekki kæmi til mála að Bretar
létu þriðja ríki, hvert sem það svo
kynni að vera, hafa áhrif á
Moskvu, 23. nóvember. Reuter.
HÆSTIRÉTTUR Sovétríkjanna
vísaði í dag frá áfrýjunarmáli
andófsmannsins Álexanders
Pódrabíneks, sem í ágúst s.l. var
dæmdur til fimm ára útlegðar
fyrir að gefa í skyn að sovézk
stjórnvöld misbeittu geðlækning-
um í þvi skyni að halda andófi
gegn alræðisstjórninni í skefjum.
Áður en Pódrabínek var hand-
tekinn starfaði hann í tengslum
við sovézku Helsinkinefndina, sem
samskipti þeirra við Kínverja eða
utanríkismál sín yfirleitt. Bretar
hefðu mikinn hug á nánari sam-
skiptum við Kína, og varnarmál
hlytu að koma þar við sögu. Bréf
Brezhnevs barst til Lundúna rétt
eftir að varaforsætisráðherra
Kína, Wang Chen, var farinn
þaðan, en Callaghan er sagður
hafa tjáð honum þá skoðun sína,
að enda þótt Bretum væri umhug-
að um að auka viðskipti sín við
Kínverja, vildu þeir ekki að
hergögn yrðu mestur hluti þess
varnings, sem þeir seldu tit Kína.
Kveikti ísér
Ilelsinki — 23. nóvember. — AP.
MAÐUR nokkur, um það bil
þrítugur að aldri, skvetti yfir
sig benzíni í borginni Turku í
Finnlandi í dag. Bar hann
síðan eld að. en slökkviliðinu á
staðnum tókst að ráða niður-
lögum eldsins. Var maðurinn
síðan fluttur skaðbrenndur í
sjúkrahús.
Lögreglan hefur ekki gefið
upp nafn mannsins og segist
ekki vita hvað honum hafi
gengið til með þessu tiltæki.
sem er hið fyrsta af því tagi í
Finnlandi.
fylgist náið með vanefndum Sovét-
stjórnarinnar á mannréttinda-
ákvæðum Helsinki-sáttmálans.
Pódrabínek tók saman skýrslu um
meðhöndlun á andófsmönnum í
geðsjúkrastofnunum í Sovétrí’.j-
unum, og var hún síðan gefin ut á
vegum Amnesty International
vestan járntjaldsins.
Pódrabínek mun afplána dóm
sinn í Síberíu eða á öðrum
afskekktum stað innan landamæra
Sovétríkjanna.
Hætta flugsamgöngur milli Bret-
lands og SAS-landa um áramót?
Lundúnum — 23. nóv.
— Reuter.
VERÐI nýr loftferða-
samningur milli Bret-
lands og Norðurland-
anna þriggja, sem aðild
eiga að SÁS-ílugfélag-
inu, ekki undirritaður
fyrir áramótin, eru
horfur á því að allar
flugsamgöngur milli
SAS-landanna og Bret-
landseyja leggist niður.
að því er brezka við-
skiptaráðuneytið skýrði
frá í dag.
Samningurinn, sem
kveður á um takmarkað-
an fjölda flugferða í
viku hverri á þessum
flugleiðum, var upphaf-
lega undirritaður árið
1952, en staðið hefur í
samningaþófi um endur-
nýjun hans frá því í maí
á þessu ári. Hafa SAS-
menn viljað einskorða
farþegaflutninga milli
Bretlands annars vegar
og Danmerkur, Noregs
og Svíþjóðar hins vegar,
við SAS og British Air-
ways, sem er ríkisrekið
félag, en slík tilhögun
mundi útiloka félög í
eigu einkaaðila, svo sem
Dan Air, British
Caledonian og British
Midland. Bretar vilja
hins vegar ekki fallast á
slíka einokun, og er haft
eftir áreiðanlegum
heimildarmönnum í
Bretlandi, að SAS-menn
hafi nú í fyrsta sinn frá
því að samningaviðræð-
ur hófust látið bilbug á
sér finna. Bretarnir hafa
lagt að SAS-mönnum að
finna leiðir til að lækka
flugfargjöld á umrædd-
um leiðum, en þau eru
meðal hinna hæstu í
veröldinni.
I>jódaratkvædi
um Somoza?
Pódrabínek neit-
ad um ad áfrýja