Morgunblaðið - 13.12.1978, Side 1
32 SÍÐUR
286. tbl. 65. árg.
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
íran:
Að minnsta kosti 40 manns hafa fallið og um 600 særzt í harðvítugum götubardögum
í Isfahan, næststærstu borg írans, í gær og í dag. í borginni eru fimm sjúkrahús, og
eru þau öll troðfull af særðu fólki, sem margt er í lífshættu, að því er haft var eftir
áreiðanlegum heimildamönnum úr hópi lækna í kvöld.
Að því er næst verður komizt féllu yfir 20 manns í mikilli skothríð hersins eftir að til
átaka kom að loknum útifundi ofsatrúarmanna í borginni í gær, en andstæðingar
stjórnar Reza Pahlevi keisara segja að þar hafi hundruð fallið fyrir vélbyssum
hermanna. Yfirvöld í Isfahan hafa ekki viljað kannast við að fleiri en sex hafi fallið í
þessum átökum.
Orðrómur er á kreiki um það í
Isfahan að í ráði sé að loka fyrir
rafstraum í borginni til að firra
frekari vandræðum. Sjónarvottar
að átökunum þar segja, að her-
menn hafi vaðið um göturnar í
gær og í dag, neyðandi vegfar-
endur til að lýsa yfir hollustu við
keisarann.
Fregnir eru af ofbeldi víðar í
landinu, en hvergi eins alvarlegum
og í Isfahan. Rólegt er nú á
yfirborðinu í Teheran, enda eru
hermenn og lögregla þar við hvert
fótmál.
trúa í borginni og hafði hann þá
sögu að segja, að enn heyrðist
skothríð, en þó væri bardögum að
linna.
Sjötíu og fimm manns hafa látið
lífið í átökum í Iran frá því að
sorgarmánuður Shiita hófst 2.
desember, en frá því að óöldin
byrjaði í landinu í ársbyrjun hafa
1300 fallið.
Hermenn eru hvarvetna á verði i helztu borgum írans. og snúa bökum
saman. Mynd þessi er frá Teheran. þar sem ástandið er venju fremur
rólegt þessa stundina. enda eru herlög og útgönguhann þar í gildi.
Rhódesía:
Glfurlegt tjón í olrabruna eft-
ir sprengjutilræði skæruliða
Mikið mannfall í bar-
dögum í Isfahan í gær
Teheran, 12. desember. AP
Óstaðfestar fregnir eru af því að
áhlaup hafi verið gert á bækis-
stöðvar SAVAK, öryggislögregl-
unnar í Isfahan, og hafi byggingin
verið lögð í rúst. I kvöld náðist
samband við erlendan sendifull-
AÐ ÓSK Goldu Meir voru engar
lofræður haldnar við útför hennar,
sem gerð var í Jerúsalem í dag.
Athöfnin var látlaus og fór virðu-
lega fram. en við kveðjuathöfn. sem
fram fór í Knesset og aðeins stóð í
fimmtán mínútur. voru lesnir
kaflar úr ræðum Goldu Meir. Var
inntak þeirra sá boðskapur, sem
Goldu Meir var hugleiknari en flest
annað. — að sá dagur mætti upp
renna að ísraelsmenn gætu lifað í
firði við Araba.
Sex hershöfðingjar og tveir hátt-
settir lögregluforingjar báru kist-
Sajisbury, 12. des. Reuter. AP.
SLÖKKVILIÐ. herlið og lögregla
börðust í dag upp á líf og dauða
við eldhafið í stærstu olíubirgða-
stöð Rhódesíu, þar sem þjóðernis-
sinnaðir skæruliðar hafa sprengt
una síðasta spölinn, en Goldu Meir
var búið leg í heiðursgrafreit á
Herzl-fjalli.
. Meðan á athöfninni í Knesset stóð
kom skýfall, sem stóð allt þar til
kistan var látin síga niður í gröfina,
en þá rofaði skyndilega til. Var það
mál manna við athöfnina að himinn-
inn væri að gráta Goldu , en
meðfram veginum frá Knesset til
Herzl-fjalls var óslitin röð af fólki
með svartar regnhlífar.
Margt stórmenna var við útförina,
meðal annarra Henry Kissinger,
Lillian Carter og Cyrus Vance.
fjölmargar sprengjur frá því í
gærkvöldi í hatrömmustu sókn
sinni frá því að bardagar hófust í
landinu fyrir sex árum. Birgða-
stöðin er í Salisbury og er kvölda
tók loguðu eldarnir enn í aðeins
þriggja kflómetra fjarlægð frá
miðborginni. en svart reykský
grúfir yfir borginni. Gífurlegt
eignatjón hefur hlotizt af elds-
voðanum. en auk þess hafa
milljónir lítra af eldsneyti farið
forgörðum. og er það tjón ekki
sízt alvarlegt fyrir hráðabirgða-
stjórnina. sem á við að búa
viðskiptabann fjölmargra ríkja.
Að minnsta kosti 11 eldsneytis-
geymar hafa sprungið. en skæru-
liðahreyfingar Mugabes og
Nkomos hafa báðar kannazt við
að bera ábyrgð á skemmdarverk-
um þessum. Nkomo hélt því fram
í dag. að margir hefðu látið lífið í
aðgerðum þessum. en yfirvöld í
Rhódesíu hafa vísað á bug þeirri
staðhæfingu.
Hernaðaryfirvöld í Salisbury
telja að skæruliðar hafi skotið
eldflaugum að birgðastöðinni. en
þangað hefur eldsneyti verið
smyglað víða að um S-Afríku
þrátt fyrir viðskiptabannið.
Fregnum ber ekki saman um
hversu mikið eldsneyti hafi eyði-
lagzt í brunanum. Hin opinbera
fréttastofa landsins heldur því
fram að birgðastöðin sé gjörónýt
og allt eldsneyti sem þar hafi verið
Kaíró. 12. desember. AP Reuter
IIÁTTSETTUR stjórnarerindreki
í Kaíró skýrði frá því í gærkvöldi
að Sadat forseti og Cyrus Vance
utanrikisráðherra Bandaríkj-
anna hefðu orðið ásáttir um að
leggja fyrir ísraelsstjórn nýja
tillögu ti) lausnar þeim
ágreiningi. sem stæði í vegi fyrir
friðarsamningunum í Miðaustur-
löndum. Vance leggur málið fyrir
Menachem Begin forsætisráð-
herra ísraels er hann kemur til
Jerúsalem á morgun. en egypzki
heimildarmaðurinn taldi horfur á
að hinar nýju tillögur yrðu til
þess að samningaviðræður
Egypta og ísraelsmanna
drægjust enn á langinn. enda þótt
síðar kæmi í ljós að þetta væri
eina samningaleiðin úr því sem
komið væri.
Að fundi sínum með Sadat
loknum vildi Vance ekkert segja
um samkomulagshorfur, annað en
að þær væru nú betri en áður og að
í sjónmáli væri lausn helztu
ágreiningsatriða, sem varða tíma-
setningu sjálfstjórnar Palestínu-
araba á vesturbakka Jórdan-ár-
innar og á Gaza-svæðinu, svo og
forgang samkomulagsins gagnvart
samningum Egypta við Arabaríki.
hafi eyðilagzt, en fréttamenn á
staðnum eru þeirrar skoðunar að
aðeins þriðjungur birgðanna sé
ónýtur. Yfirvöld meta tjónið á níu
milljónir bandaríkjadala, eða 3,2
milljarða íslenzkra króna. Þegar í
morgun mynduðust biðraðir við
bensínafgreiðslur í Salisbury, en
sums staðar var reynt að standa
gegn hamstri með því að selja
þriggja lítra hámarksskammt.
Að loknum fundi með Begin fer
Vance aftur til Egyptalands, og er
þessa stundina ekki útlit fyrir að
hann fari heim til Bandaríkjanna í
bráð. Carter forseti sagði í dag, að
þótt samningar yrðu ekki undir-
ritaðir fyrir 17. desember eins og
ákveðið var í Camp David, þýddi
það ekki að friðarsamningar væru
úr sögunni á næstunni.
Nýr SALT-
samningur
Washiniíton. Moskvu.
12. desember. AP.
STJÓRNIR Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna kunngjörðu sam-
tímis í kvöld að viðræður. sem
jafnvel yrðu lokaviðraður um
nýjan SAI.T-samning. færu
fram í Genf dagana 21. og 22.
desember næstkomandi. Utan-
ríkisráðherrar rikjanna. Cyrus
Vance og Andrei Gromyko.
verða í forsvari á fundunum. en
síðan er fyrirhugaður fundur
þeirra Carters og Brezhnevs,
þar sem SALT-samningur II
verður undirritaður.
Svíþjóð:
Sundman ekki
í framboð næst
Stokkhólmi, 11. desember 1978.
Frá Önnu Bjarnadóttur.
fréttaritara Mhl.
SÆNSKI rithöfundurinn og
þingmaðurinn Per Olof Sund-
man féll út af framboðslista
Miðílokksins til þingkosning-
anna 1979 á flokksfundi sí.
laugardag. Ilann hafði áhuga á
þriðja eða fjórða sæti á listan-
um, en í atkvaðagreiðslu tap-
aði hann báðum sætunum.
Þriðja sæti hlaut Elvy Osson,
fyrrverandi húsnæðisráðherra,
með 174 atkvaðum gegn 45, og
fjórða sa-ti hlaut Elis Anders-
son, byggingaverkamaður, með
140 atkvæðum gegn 74. Sund-
man þáði ekki sjötta sætið á
listanum. sem uppstillingar-
nefnd flokksins hafði ætlað
honum.
Ástæðan fyrir því, að Sund-
man fékk ekki sæti ofar á
listanum, er sögð vera sú, að
hann hefur ekki tekið mikinn
þátt í almennum flokksstörfum
vegna annarra anna. Hann
hefur starfað mikið á sviði
menningarmála og á t.d. sæti í
útvarpsráði. Mestan tíma hafa
þó störf hans á vegum Norður-
landaráðs tekið, en fyrir störf
sín þar er Sundman Islending-
um að góðu kunnur. Hann er nú
meðal annars formaður menn-
ingarmálanefndar ráðsins.
Per Olof Sundman
Ákvörðun flokksins kom
Sundman á óvart, en hann
sættir sig við hana sem lýðræð-
islega ákvörðun. í framtíðinni
ætlar hann að leggja aðal-
áherzlu á ritsmíðar sínar og
hefur í huga að skrifa bók um
Alfred Nobel, sem hann segir
vera einn af merkustu sonum
Svíþjóðar.
Engar ræður við
útför Goldu Meir
Jerúsalem. 12. desember. Reuter.
Mióausturlönd:
Tillögur sem draga
undirritun á langinn
lagðar fyrir Begin