Morgunblaðið - 13.12.1978, Page 1

Morgunblaðið - 13.12.1978, Page 1
32 SÍÐUR 286. tbl. 65. árg. MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. íran: Að minnsta kosti 40 manns hafa fallið og um 600 særzt í harðvítugum götubardögum í Isfahan, næststærstu borg írans, í gær og í dag. í borginni eru fimm sjúkrahús, og eru þau öll troðfull af særðu fólki, sem margt er í lífshættu, að því er haft var eftir áreiðanlegum heimildamönnum úr hópi lækna í kvöld. Að því er næst verður komizt féllu yfir 20 manns í mikilli skothríð hersins eftir að til átaka kom að loknum útifundi ofsatrúarmanna í borginni í gær, en andstæðingar stjórnar Reza Pahlevi keisara segja að þar hafi hundruð fallið fyrir vélbyssum hermanna. Yfirvöld í Isfahan hafa ekki viljað kannast við að fleiri en sex hafi fallið í þessum átökum. Orðrómur er á kreiki um það í Isfahan að í ráði sé að loka fyrir rafstraum í borginni til að firra frekari vandræðum. Sjónarvottar að átökunum þar segja, að her- menn hafi vaðið um göturnar í gær og í dag, neyðandi vegfar- endur til að lýsa yfir hollustu við keisarann. Fregnir eru af ofbeldi víðar í landinu, en hvergi eins alvarlegum og í Isfahan. Rólegt er nú á yfirborðinu í Teheran, enda eru hermenn og lögregla þar við hvert fótmál. trúa í borginni og hafði hann þá sögu að segja, að enn heyrðist skothríð, en þó væri bardögum að linna. Sjötíu og fimm manns hafa látið lífið í átökum í Iran frá því að sorgarmánuður Shiita hófst 2. desember, en frá því að óöldin byrjaði í landinu í ársbyrjun hafa 1300 fallið. Hermenn eru hvarvetna á verði i helztu borgum írans. og snúa bökum saman. Mynd þessi er frá Teheran. þar sem ástandið er venju fremur rólegt þessa stundina. enda eru herlög og útgönguhann þar í gildi. Rhódesía: Glfurlegt tjón í olrabruna eft- ir sprengjutilræði skæruliða Mikið mannfall í bar- dögum í Isfahan í gær Teheran, 12. desember. AP Óstaðfestar fregnir eru af því að áhlaup hafi verið gert á bækis- stöðvar SAVAK, öryggislögregl- unnar í Isfahan, og hafi byggingin verið lögð í rúst. I kvöld náðist samband við erlendan sendifull- AÐ ÓSK Goldu Meir voru engar lofræður haldnar við útför hennar, sem gerð var í Jerúsalem í dag. Athöfnin var látlaus og fór virðu- lega fram. en við kveðjuathöfn. sem fram fór í Knesset og aðeins stóð í fimmtán mínútur. voru lesnir kaflar úr ræðum Goldu Meir. Var inntak þeirra sá boðskapur, sem Goldu Meir var hugleiknari en flest annað. — að sá dagur mætti upp renna að ísraelsmenn gætu lifað í firði við Araba. Sex hershöfðingjar og tveir hátt- settir lögregluforingjar báru kist- Sajisbury, 12. des. Reuter. AP. SLÖKKVILIÐ. herlið og lögregla börðust í dag upp á líf og dauða við eldhafið í stærstu olíubirgða- stöð Rhódesíu, þar sem þjóðernis- sinnaðir skæruliðar hafa sprengt una síðasta spölinn, en Goldu Meir var búið leg í heiðursgrafreit á Herzl-fjalli. . Meðan á athöfninni í Knesset stóð kom skýfall, sem stóð allt þar til kistan var látin síga niður í gröfina, en þá rofaði skyndilega til. Var það mál manna við athöfnina að himinn- inn væri að gráta Goldu , en meðfram veginum frá Knesset til Herzl-fjalls var óslitin röð af fólki með svartar regnhlífar. Margt stórmenna var við útförina, meðal annarra Henry Kissinger, Lillian Carter og Cyrus Vance. fjölmargar sprengjur frá því í gærkvöldi í hatrömmustu sókn sinni frá því að bardagar hófust í landinu fyrir sex árum. Birgða- stöðin er í Salisbury og er kvölda tók loguðu eldarnir enn í aðeins þriggja kflómetra fjarlægð frá miðborginni. en svart reykský grúfir yfir borginni. Gífurlegt eignatjón hefur hlotizt af elds- voðanum. en auk þess hafa milljónir lítra af eldsneyti farið forgörðum. og er það tjón ekki sízt alvarlegt fyrir hráðabirgða- stjórnina. sem á við að búa viðskiptabann fjölmargra ríkja. Að minnsta kosti 11 eldsneytis- geymar hafa sprungið. en skæru- liðahreyfingar Mugabes og Nkomos hafa báðar kannazt við að bera ábyrgð á skemmdarverk- um þessum. Nkomo hélt því fram í dag. að margir hefðu látið lífið í aðgerðum þessum. en yfirvöld í Rhódesíu hafa vísað á bug þeirri staðhæfingu. Hernaðaryfirvöld í Salisbury telja að skæruliðar hafi skotið eldflaugum að birgðastöðinni. en þangað hefur eldsneyti verið smyglað víða að um S-Afríku þrátt fyrir viðskiptabannið. Fregnum ber ekki saman um hversu mikið eldsneyti hafi eyði- lagzt í brunanum. Hin opinbera fréttastofa landsins heldur því fram að birgðastöðin sé gjörónýt og allt eldsneyti sem þar hafi verið Kaíró. 12. desember. AP Reuter IIÁTTSETTUR stjórnarerindreki í Kaíró skýrði frá því í gærkvöldi að Sadat forseti og Cyrus Vance utanrikisráðherra Bandaríkj- anna hefðu orðið ásáttir um að leggja fyrir ísraelsstjórn nýja tillögu ti) lausnar þeim ágreiningi. sem stæði í vegi fyrir friðarsamningunum í Miðaustur- löndum. Vance leggur málið fyrir Menachem Begin forsætisráð- herra ísraels er hann kemur til Jerúsalem á morgun. en egypzki heimildarmaðurinn taldi horfur á að hinar nýju tillögur yrðu til þess að samningaviðræður Egypta og ísraelsmanna drægjust enn á langinn. enda þótt síðar kæmi í ljós að þetta væri eina samningaleiðin úr því sem komið væri. Að fundi sínum með Sadat loknum vildi Vance ekkert segja um samkomulagshorfur, annað en að þær væru nú betri en áður og að í sjónmáli væri lausn helztu ágreiningsatriða, sem varða tíma- setningu sjálfstjórnar Palestínu- araba á vesturbakka Jórdan-ár- innar og á Gaza-svæðinu, svo og forgang samkomulagsins gagnvart samningum Egypta við Arabaríki. hafi eyðilagzt, en fréttamenn á staðnum eru þeirrar skoðunar að aðeins þriðjungur birgðanna sé ónýtur. Yfirvöld meta tjónið á níu milljónir bandaríkjadala, eða 3,2 milljarða íslenzkra króna. Þegar í morgun mynduðust biðraðir við bensínafgreiðslur í Salisbury, en sums staðar var reynt að standa gegn hamstri með því að selja þriggja lítra hámarksskammt. Að loknum fundi með Begin fer Vance aftur til Egyptalands, og er þessa stundina ekki útlit fyrir að hann fari heim til Bandaríkjanna í bráð. Carter forseti sagði í dag, að þótt samningar yrðu ekki undir- ritaðir fyrir 17. desember eins og ákveðið var í Camp David, þýddi það ekki að friðarsamningar væru úr sögunni á næstunni. Nýr SALT- samningur Washiniíton. Moskvu. 12. desember. AP. STJÓRNIR Bandaríkjanna og Sovétríkjanna kunngjörðu sam- tímis í kvöld að viðræður. sem jafnvel yrðu lokaviðraður um nýjan SAI.T-samning. færu fram í Genf dagana 21. og 22. desember næstkomandi. Utan- ríkisráðherrar rikjanna. Cyrus Vance og Andrei Gromyko. verða í forsvari á fundunum. en síðan er fyrirhugaður fundur þeirra Carters og Brezhnevs, þar sem SALT-samningur II verður undirritaður. Svíþjóð: Sundman ekki í framboð næst Stokkhólmi, 11. desember 1978. Frá Önnu Bjarnadóttur. fréttaritara Mhl. SÆNSKI rithöfundurinn og þingmaðurinn Per Olof Sund- man féll út af framboðslista Miðílokksins til þingkosning- anna 1979 á flokksfundi sí. laugardag. Ilann hafði áhuga á þriðja eða fjórða sæti á listan- um, en í atkvaðagreiðslu tap- aði hann báðum sætunum. Þriðja sæti hlaut Elvy Osson, fyrrverandi húsnæðisráðherra, með 174 atkvaðum gegn 45, og fjórða sa-ti hlaut Elis Anders- son, byggingaverkamaður, með 140 atkvæðum gegn 74. Sund- man þáði ekki sjötta sætið á listanum. sem uppstillingar- nefnd flokksins hafði ætlað honum. Ástæðan fyrir því, að Sund- man fékk ekki sæti ofar á listanum, er sögð vera sú, að hann hefur ekki tekið mikinn þátt í almennum flokksstörfum vegna annarra anna. Hann hefur starfað mikið á sviði menningarmála og á t.d. sæti í útvarpsráði. Mestan tíma hafa þó störf hans á vegum Norður- landaráðs tekið, en fyrir störf sín þar er Sundman Islending- um að góðu kunnur. Hann er nú meðal annars formaður menn- ingarmálanefndar ráðsins. Per Olof Sundman Ákvörðun flokksins kom Sundman á óvart, en hann sættir sig við hana sem lýðræð- islega ákvörðun. í framtíðinni ætlar hann að leggja aðal- áherzlu á ritsmíðar sínar og hefur í huga að skrifa bók um Alfred Nobel, sem hann segir vera einn af merkustu sonum Svíþjóðar. Engar ræður við útför Goldu Meir Jerúsalem. 12. desember. Reuter. Mióausturlönd: Tillögur sem draga undirritun á langinn lagðar fyrir Begin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.