Morgunblaðið - 14.12.1978, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978
Sumar- og haustvertíð loðnusjómanna lýkur á miðnætti:
Skipstjórahlutur á
Sigurði 22,2 millj.
f DAG er síðasti dagur loðnuveið-
anna fyrir áramót, en loðnubann
gengur í gildi á miðnætti í nótt og
stendur fram til 10. janúar. Aflinn
er nú orðinn um 495 þúsund lestir
og er útflutningsverðmæti hans um
15,4 milljarðar króna. Reikna má
með að um 7.4 milljarðar fáist fyrir
mjölið, sem unnið er úr loðnunni og
um 8 milljarðar fyrir lýsið.
Aflaverðmætið komið upp úr sjó
er um 8 milljarðar króna. Aflahæsta
skipið á sumar- og haustvertíðinni er
Sigurður RE, sem kominn er með um
20 þúsund tonn af loðnu á tímabil-
inu. Hásetahluturinn á Sigurði er því
um 6.5 milljónir króna og skipstjóra-
hluturinn 22.2 milljónir. Það skal þó
tekið fram að 2 skipstjórar eru um
hlutinn og hásetarnir hafa fæstir
Þingflokkur Alþýðuflokksins:
Frumvarp eda
ekki frumvarp?
verið á allan veiðitímann og fá því
ekki alla fyrrnefnda upphæð.
Um 20 skip hafa fengið meira en
10 þúsund tonn á vertíðinni, en
liðlega 50 skip hafa verið á veiðunum
meira og minna frá því að þær
hófust í júlí. Á skipi, sem aflað hefur
10 þúsund lestir er hásetahluturinn
3.6 milljónir króna, en skiptakjörin
eru ekki þau sömu hjá öllum
flotanum.
Bræla hefur verið á loðnumiðun-
um síðan um helgi og allur desem-
bermánuður verið erfiður vegna
veðráttunnar. I gær var flotinn
ýmist inni á höfnum á Vestfjörðum
eða á leið til heimahafna.
Hlýindin að undanförnu um allt land hafa lumað á ýmsu og m.a. hefur
það verið að gerast síðustu daga að ýmis sumarblóm í görðum hafa
sprungið út eins og ekkert sé og komið fram í miðjan desember. Þessa
mynd tók Emilía í gær af húsmóður í Hlíðunum sem var rétt að ljúka
við að taka vænan vönd af stjúpmæðrum úr garði sínum og við höfum
einnig fregnað af sams konar á Húsavík. Þá vitum við til þess, að
Eyjamenn voru að taka upp kartöflur í gær, en það mun fátítt að unnt
sé að taka kartöflur beint í jólamatinn.
Þingmenn úr öllum flokkum:
FLOKKSSTJÓRN Alþýðu
flokksins og þingflokkur
koma saman til fundar í
kvöld til að ræða efnahags-
málin. Innan þingflokksins
hafa farið fram miklar um-
ræður um efnahagsmálin og
unnar upp ýmsar tillögur,
sem mönnum í gær bar ekki
Gjald fyrir pylsu-
vagna ákveðið
120 ÞÚSUND króna gjald þurfa
eigendur nýsamþykktra pylsu-
vagna að greiða til borgarsjóðs á
ári samkvæmt ákvörðun meiri-
hlutans í horgarstjórn.
Hins vegar þurfa þeir að greiða
240 þúsund krónur til viðbótar ef
þeir ætla að selja pylsur á kvöldin.
Gjald þetta var kynnt í borgarráði
í fyrradag.
saman um, hversu langt væru
komnar.
„Þingflokkurinn hefur unnið
mjög ítarlegt frumvarp um efna-
hagsmál, sem verður tekið til
umræðu á þessum fundi," sagði
einn af forystumönnum Alþýðu-
flokksins í samtali við Mbl.
„Frumvarpið felur í sér að hætt
verði við þriggja mánaða póli-
tíkina og í hennar stað tekin upp
ítarleg heildarstefna fyrir allt
næsta ár.“ Sagði þessi forystu-
maður, að á fundinum yrði
ákveðið, hvernig þingflokkurinn
ætti að standa að baráttunni fyrir
þessari efnahagsstefnu. Einn af
þingmönnum Alþýðuflokksins bar
hins vegar á móti því í samtali við
Mbl. að nokkurt frumvarp lægi
fyrir. „Það hafa farið fram stöðug-
ar alvarlegar umræður um efna-
hagsmálin í þingflokknum og á
þessum fundi verður rætt um
fjárlögin í heild í sínum stóra
ramma," sagði hann.
Þannig hækka
fasteign agjöld
DÆMI um hækkun lóðarleigu og fasteignaskatts 1979 samkvæmt
samþykkt borgarstjórnar Reykjavíkur frá 7. desember 1978.
Miðað er við 42% meðalhækkun fasteignamats milli ára, þótt
vitað sé að hækkun húsamats sé vfða verulega miklu meiri í
ýmsum hverfum.
Fjölbýlishúsið:
Kaplaskjólsvegur 53 (íbúð af stærri gerð)
Fasteignamat lóðar ’79: 976.000 og íbúðar 9.158.000-
1978. Lóðarleiga: Fasteignarskattur: 996- 27.150-
1979. Lóðarleiga (0,145%) 1.414-
Fasteignaskattur (0,5%) 45.790-
Hækkun milli ára 68,64%
Sparnaður í fjármálakerfinu
Sameining stofnana — fækkun starfsmanna — hófsemd 1 byggingum
ALLIR meðlimir f járhags- og
viðskiptanefndar efri deildar
Alþingis, 7 að tölu, flytja
sameiginlega tillögu til þings-
ályktunar um sparnað 1 fjár-
málakerfinu. Efnisatriði til-
lögunnar er að Alþingi feli
ríkisstjórninni að koma á
slíkum sparnaði.
Kveikt í borg-
arbrennunni
EINHVERJIR pörupilt-
ar kveiktu í fyrrakvöld í
borgarbrennunni við
Hvassaleiti en slökkvilið
slökkti eldinn fljótlega.
Töluverð brögð hafa ver-
ið að því að undanförnu
að kveikt hafi verið í
áramótabrennum og
hefur margur peyinn
fellt tár er hann hefur
séð vinnu sína fuðra upp
á skömmum tíma. Eru
slík óhæfuverk litin illu
auga af öllum.
Stjórninni til aðstoðar við fram-
kvæmdina tilnefni þingflokkarnir
fimm menn í nefnd, stjórnar-
flokkarnir hver um sig einn mann
en stjórnarandstaðan tvo. Nefndin
skipti með sér verkum. Markmiðið
er veruleg fækkun starfsmanna
ríkisbanka, Framkvæmdastofnun-
ar ríkisins og opinberra sjóða og
samræmdar aðgerðir til sparnaðar
og hagkvæmari rekstrar, þ. á m.
sameining fjármálastofnana og
skprður við óhóflegum byggingum.
f greinargerð með tillögunni
segir að ofvöxtur hafi hlaupið í
fjármálakerfi þjóðarinnar. Sam-
hliða hafi það orðið sífellt van-
máttugra að leysa þau verkefni,
sem peningastofnunum eru ætluð í
EINS og sagt hefur verið frá í
Morgunblaðinu hafa staðið yfir
undanfarna mánuði könnunar-
viðræður milli yfirvalda á Sri
Lanka, Air Canada og Loftleiða
um hugsanlega samsteypu flug-
félags á Asíu flugleiðum.
í gær var það tilkynnt á þingi |
Sri Lanka að stjórnvöld þar hefðu ,
nútíma þjóðfélagi. Tilraunir, sem
gerðar hafi verið til endurbóta,
hafi einna helzt orðið til að flækja
mál sífellt meir og torvelda
úrlausnir. Stóraukið starfslið hafi
sízt orðið til bóta. Ljóst ætti að
vera að sjálft mun kerfið ekki
snúast gegn þessari framvindu.
Óhjákvæmilegt sé því að Alþingi
taki í taumana. Þess vegna sé
tillagan flutt.
Flutningsmenn tillögunnar eru:
Eyjólfur Konráð Jónsson (S), Jón
Helgason (F), Geir Gunnarsson
(Abl), Agúst Einarsson (A), Jón G.
Sólnes (S), Karl Steinar Guðnason
(A) og Ólafur Ragnar Grímsson
(Abl).
ákveðið að stofna nýtt flugfélag
upp á eigin spýtur og hefur það
hlotið nafnið Air Lanka. Air
Lanka mun væntanlega leigja
707-flugvélar frá Singapore Air-
lines, en ekki er ákveðið hvenær
félagið tekur til starfa né hverjar
flugleiðirnar verða.
Sri Lanka stofnar flug-
félag upp á eigin spýtur
Hækkun aðstöðugjalda
þýðir hækkun á dagleg-
um vörum almennings
— segir Birgir ísl. Gunnarsson
MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í
gær til Birgis ísl. Gunnarssonar
borgarfulltrúa og innti eftir
áliti hans á þeim stórfelldu
hækkunum aðstöðugjalda, sem
vinstri meirihlutinn í borgar-
stjórn, þ.e. fulltrúar Alþýðu-
flokks, Alþýðubandalags og
Framsóknarflokks, hafa boðað.
Birgir ísl. sagðii
Við sjálfstæðismenn í borgar-
stjórn eigum varla orð lengur til
að lýsa undrun okkar á bíræfni
vinstri meirihlutans í Reykjavík.
Það líður varla sá fundur í
borgarráði, að ekki séu þar lagðar
fram tillögur um stórhækkaða
skatta og álögur á borgarbúa, nú
síðast tillögur um mikla hækkun
aðstöðugjalda.
Þessar nýju tillögur um
aðstöðugjöld fela í sér um 750
millj. kr. auknar álögur á ýmsa
þætti atvinnureksturs í Reykja-
vík. Má nefna m.a. rekstur
fiskiskipa, kjötiðnað matvöru-
verzlun, fiskiðnað, tryggingar-
starfsemi, útgáfustarfsemi og
matsölur. Við sjálfstæðismenn
nýttum aldrei til fulls lögheimil-
aðar gjaldskrár aðstöðugjalda.
Ástæðan er sú, að aðstöðugjöld
eru ósanngjarn tekjustofn. Hann
leggst á fyrirtæki án tillits til
afkomu þeirra og því er eðlilegt
að reyna að halda aðstöðu-
gjöldum í hófi.
Þessi stórhækkun nú er greini-
lega liður í þeirri herferð Alþýðu-
bandalagsins á Alþingi og í
borgarstjórn, að þrengja sem
mest kosti hins frjálsa atvinnu-
reksturs. Það vekur sérstaka
athygli, hversu mikil hækkun er
á ýmsum atvinnugreinum, sem
tengdar eru nauðþurftum manna.
Mest er hækkunin á matvöru-
verzlanir, en hækkunin þar er
nálægt þreföldun á núverandi
aðstöðugjaldi. Hætt er við, að
þessi mikla hækkun fari fyrr eða
síðar út í verðlagið og þá þýðir
það verðhækkun á daglegum
vörum almennings.
Þessar miklu skattahækkanir
vinstri manna bera vott um að
þeir hafi misst allt vald á
fjármálastjórn borgarinnar. Þeir
hrifsa í örvæntingu allar tekjur,
sem mögulegt er að ná í, til að
geta reiknað út, hversu miklu
þeir geti eytt. Þeir byrja á
öfugum enda. Við sjálfstæðis-
menn reiknuðum fyrst út hvaða
tekjur borgarsjóður myndi fá
með óbreyttum álagningarregl-
um og miðuðum síðan útgjöldin
við það. Nú hefur óneitanlega
orðið mikil breyting á meðferð
fjármála hjá borginni.