Morgunblaðið - 14.12.1978, Síða 11

Morgunblaðið - 14.12.1978, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978 11 hrekkur ekki til og má því segja að mönnum sé ekki vandara um að skreppa til næsta lands í leit að skottulækni. Hér er þó ólíku saman að jafna, því slíkar ferðir eru ekki greiddar af almannafé. Það er mikil ábyrgðartilfinning sem á bak við það býr að banna fólki með lögum að leita sér bata á heilsu sinni hjá öðrum en þeim sem bréf hafa upp á það að veita bata við mannanna meinum, þegar batinn fæst ekki. Á bak við slíkt forsjárhlutverk sem þannig skerð- ir frelsi annarra, býr ótrúlega mikil vissa um eigið ágæti. * Mörgum þykir sem forsjónar- hlutverkinu sé ekki jafnt skipt milli ógnvalda samfélagsins og þar sé hluti skottulæknanna gerður óþarflega stór. Bent er á að menn geti óhindrað drekkt sorgum sínum í alkóhóli, aðrir geti áunnið sér krabbamein með tóbaksreyk- ingum. Þá eru aðrir sem ekki þola þjáningar lífsins þrátt fyrir meira magn af róandi pillum sem hér er étið en á hinum Norðurlöndunum og stytt sér þjáningatímann með jafn einföldum hlut og snæri. Enginn hefur reynt að banna þessa hluti hér nú í seinni tíð. Þau lög sem eitt sinn bönnuðu alkóhól að hluta hér á landi hafa löngu verið afnumin. Skortur hefur naumast verið hér á snæri síðan á dögum Jóns Hreggviðssonar. Nú munu ýmsir segja, að lög séu lög og eftir þeim beri að fara. Nú er það svo að fá lög munu svo fullkomin að breytinga sé aldrei þörf og kemur þar margt til. Stundum er lögum því breytt, þau afnumin eða þau látin standa án merkingar og enginn vekur á þeim athygli nema þá vegna sögulegs gildis. Heyrt hef ég að enn séu í gildi lög í Bretlandi sem kveða á um það að hlaupandi maður skuli fara fyrir vélknúnu ökutæki og vara vegfarendur við hættunni með hrópum. Bretar munu hættir að vara menn við hættu umferðarinnar á þennan hátt, enda munu þeir mörgum fremri í því að læra af reynslunni. Samkv. frásögn Morgunblaðsins 6/11 ’77 hvetur Halfdan Mahler framkvæmdastjóri alþjóða heil- brigðismálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, W.H.O., til samstarfsl löggiltra lækna og þeirra sem hér eru nefndir skottulæknar. Hann telur að slíkt gæti bætt heilsufar í I heiminum. Erfitt er að ímynda sér að svona hvatning kæmi úr þessari átt ef skottulæknar eru svo hættulegir að ástæða sé til að banna þá með lögum. Ef Sameinuðu þjóðirnar ráða sæmilega hæfa menn til starfa, má ljóst vera af framanskráðu að réttast væri fyrir okkur Islendinga að afnema, eða að minnsta kosti þegja um bannið við skottulækn- ingum. Væri það gert gætu löggiltir læknar og skottulæknar starfað óáreittir hvorir af öðrum. Ef til vill yrði um smávegis samkeppni að ræða sem báðum gæti verið holl. Skottulæknar gætu þá brugg- að grasaseyði til inntöku eða nuddað iljar þeirra sem löggiltar læknisaðferðir geta ekki veitt tilætlaða meinabót. Magnús Magnússon. þetta standa í a.m.k. þrjú ár. Væri það íhaldinu að kenna. Ólafur B. Thors og Magnús L. Sveinsson gagnrýndu harðlega aðgerðarleysi borgarstjórnar- meirihlutans hvað snerti lóðaút- hlutanir og það að varpa ábyrgð- inni yfir á sjálfstæðismenn væri útúrsnúningur. Verulegt áhyggjuefni væri ef atvinnuleysi brytist út í byggingariðnaði. Tilfitssenii kostor ekkert Lionsklúbburinn Njördur selur jólapappír FÉLAGAR í Lionsklúbbnum Nirði í Reykjavík selja um þessar mundir jólapappir til ágóða fyrir líknarsjóð klúbbsins. Sá sjóður hefur m.a. verið notaður til tækjakaupa á heyrnardeild Borgarspítalans og til styrktar starfsemi flugbjörg- unarsveitarinnar í Reykjavík en Njörður hefur keypt fyrir deild- ina tvo fjallasjúkrabíla. Bílum þessum hefur verið komið fyrir við Lækjartorg og við Kjörgarð á Laugavegi og þar munu klúbbfélagar bjóða fólki jólapappírinn. Þessi mynd var tekin er verið var að undirbúa söluna. L'tWtíl beggja hfiða argerö 1979 eru komii Nú hafa PIONEER verksmiöjurnar tekiö upp þá nýjung aö velja saman hljómtækjasett kö sem henta hverjum og einum. wfc 1 þessum fallegu hillusamstæöum < njóta £ PIONŒCER JZA tækin sín hvar sem er. Komiö og hlustiö — heyrn er sögu ríkari. hlj°MDEILD fa KARNABÆR Laugavegi 66, 1 hæð Simi frá skiptiborði 281 bb

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.