Morgunblaðið - 14.12.1978, Síða 15

Morgunblaðið - 14.12.1978, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978 15 Pétur Gunnarsson ÍG UM MlG FRÁMÉRTIL MÍN í skáldsögunni Ég um mig frá mér til mín halda persónur og leikendur úr Punktinum áfram ferðalagi sínu gegnum lífið, og nýir farþegar slást í hópinn. í miðju atburðarásarinnar stendur Andri, barmafullur af komplexum kynþroskaskeiðsins — búinn að slíta barnsskónum án þess að passa í fullorðins- skóna — eiginlega veit hann ekki í hvorn fótinn hann á að stíga. Þetta er sjálfstætt framhald af hinni frægu metsölubók Péturs, Punktur punktur komma strik, sem kom út í þremur út- gáfum á tæpum þremur mánuðum. Eignist nýju bókina áður en það verður um seinan. ÉgumMigfráMértilMín m PÉTUR GUNNARSSON Bræðraborgarstig 16 Sími 12923-19156 Ólafur Gunnarsson AIILLJÓN PRÓSENT AfENN Engilbert Ármannsson er stórkaupmaður, peningafursti og milljón prósent maöur meö dollaramerki í augunum og uppá- tektasamur ýkjumaður. Kjartan er and- stæða hans og á milli þeirra stendur Ernir, sonur Kjartans. Hann langar til að verða milljón prósent, en hann langar líka til að verða skáld. Milljón prósent menn er þroskasaga Ernis, en lýsir jafnframt heimi peningamannsins á gráglettinn hátt og af óbeislaðri gamansemi. Þorsteinn Antonsson Sálumessa Þau áttu allt til alls — einbýlishús og nýjan bíl. Maður hennar rak eigið fyrir- tæki sem gekk vel og þau áttu tvö mann- vænleg börn. Hvernig getur konu í þessari aðstöðu dottið í hug að fyrirfara sér? Er kannski hægt að krefjast einhvers meira af lífinu? Ung kona deyr um nótt í húsi í Reykjavík. Lögreglan er kvödd á vettvang. Var þetta slys? Óhappatilviljun? Morð? Daginn eftir er handtekinn maður og hnepptur í gæslu- varðhald. — En er hann sá seki? Thor Vilhjálmsson KJARVAL Þessi bók er ævintýri líkust, saga eins mesta og einkennilegasta listamanns, sem uppi hefur verið hér á landi, í með- ferð höfundar, sem skrifar svipmestan og hugmyndaríkastan stíl sinnar kynslóðar. Thor rekur sögu Kjarvals, lýsir háttum hans og list á afar persónulegan hátt, gerir hvert smáatriói lifandi og sögulegt, þó að stíllinn sé yfirleitt hraðari en oft endranær í verkum hans. Að miklu leyti er bókin sprottin af nánum kynnum þessara manna, löngum samtölum þeirra og ferða- lögum saman. Bókina prýða margar af hinum listrænu Ijósmyndum, sem Jón Kaldal tók af Kjarval. Þórarinn Eldjárn VcMcewumut „Disneyrímur eru stórviðburður, þær eru spegill gerður úr oröum ...“ Ó.M.J. / Vísir „Ég man ekki eftir bók sem ég hef haft eins gaman af að lesa upphátt...“ A.l. / Dagblaðió „Samtíminn með róttækri félagslegri út- tekt á fjölmiölum er viðfangsefni skálds- ins, hið nýja vín sem hellt er á gamla belgi rímnakveðskapar... Þórarinn Eldjárn er gamansamur í besta lagi... Disneyrímur eru ortar af ærnum hagleik .. Á.B. /Þjóðviljinn Skáídað i skörðin Ási í Bæ segir frá aflaklóm og andansmönnum Af sinni alkunnu frásagnargleði og góó- látlegu kímni bregður Ási upp hverri svip- myndinni annarri fróðlegri og skemmti- legri af göldróttum forfeðrum, vinum, kunningjum, furöufuglum, skáldum og skipstjórum: Stefán Hörður Grímsson, Steinn Steinarr, Sigurbjörn Sveinsson, Baldvin Björnsson, Oddgeir Kristjánsson, Árni úr Eyjum, Binni í Gröf, o.fl. o.fl. að ógleymdum öllum yndislegu konunum sem koma við sögu í þessari bráð- skemmtilegu og fróðlegu bók. Árni Elfar hefur myndskreytt bókina af sannri viröingu fyrir efni hennar og anda. BroddiJóhannesson Q&l/iur Fjölbreytt safn persónulegra hugleiðinga og frásagna. í öguðu, listrænu ritformi lýkur höfundur upp hug sínum fyrir les- anda, iðulega með því að hnita saman veigamikil sjónarmið og dýrmæta reynslu eöa minnileg atvik. Náin tengsl við náttúru landsins og líf þjóðarinnar, m.a. starfshætti hennar, birtast hér með af- brigðum vel. Öll er bókin mikilsvert fram- lag til íslenskrar ritmenntar af skyldum toga. ÞÓRARINN ELDJÁRN IÐUNN Ská/dað i skörðin ÁsiiBæ /ðunn 7í Broddi Jóhannessort O‘blitur Iðunn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.