Morgunblaðið - 14.12.1978, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978
15
Pétur Gunnarsson
ÍG UM MlG FRÁMÉRTIL MÍN
í skáldsögunni Ég um mig frá mér til mín halda persónur og
leikendur úr Punktinum áfram ferðalagi sínu gegnum lífið, og
nýir farþegar slást í hópinn. í miðju atburðarásarinnar stendur
Andri, barmafullur af komplexum kynþroskaskeiðsins —
búinn að slíta barnsskónum án þess að passa í fullorðins-
skóna — eiginlega veit hann ekki í hvorn fótinn hann á að
stíga.
Þetta er sjálfstætt framhald af hinni frægu metsölubók
Péturs, Punktur punktur komma strik, sem kom út í þremur út-
gáfum á tæpum þremur mánuðum. Eignist nýju bókina áður
en það verður um seinan.
ÉgumMigfráMértilMín
m
PÉTUR GUNNARSSON
Bræðraborgarstig 16 Sími 12923-19156
Ólafur Gunnarsson
AIILLJÓN
PRÓSENT
AfENN
Engilbert Ármannsson er stórkaupmaður,
peningafursti og milljón prósent maöur
meö dollaramerki í augunum og uppá-
tektasamur ýkjumaður. Kjartan er and-
stæða hans og á milli þeirra stendur
Ernir, sonur Kjartans. Hann langar til að
verða milljón prósent, en hann langar líka
til að verða skáld. Milljón prósent menn er
þroskasaga Ernis, en lýsir jafnframt heimi
peningamannsins á gráglettinn hátt og af
óbeislaðri gamansemi.
Þorsteinn Antonsson
Sálumessa
Þau áttu allt til alls — einbýlishús og
nýjan bíl. Maður hennar rak eigið fyrir-
tæki sem gekk vel og þau áttu tvö mann-
vænleg börn. Hvernig getur konu í þessari
aðstöðu dottið í hug að fyrirfara sér? Er
kannski hægt að krefjast einhvers meira
af lífinu?
Ung kona deyr um nótt í húsi í Reykjavík.
Lögreglan er kvödd á vettvang. Var þetta
slys? Óhappatilviljun? Morð? Daginn eftir
er handtekinn maður og hnepptur í gæslu-
varðhald. — En er hann sá seki?
Thor Vilhjálmsson
KJARVAL
Þessi bók er ævintýri líkust, saga eins
mesta og einkennilegasta listamanns,
sem uppi hefur verið hér á landi, í með-
ferð höfundar, sem skrifar svipmestan og
hugmyndaríkastan stíl sinnar kynslóðar.
Thor rekur sögu Kjarvals, lýsir háttum
hans og list á afar persónulegan hátt,
gerir hvert smáatriói lifandi og sögulegt,
þó að stíllinn sé yfirleitt hraðari en oft
endranær í verkum hans. Að miklu leyti er
bókin sprottin af nánum kynnum þessara
manna, löngum samtölum þeirra og ferða-
lögum saman.
Bókina prýða margar af hinum listrænu
Ijósmyndum, sem Jón Kaldal tók af
Kjarval.
Þórarinn Eldjárn
VcMcewumut
„Disneyrímur eru stórviðburður, þær eru
spegill gerður úr oröum ...“
Ó.M.J. / Vísir
„Ég man ekki eftir bók sem ég hef haft
eins gaman af að lesa upphátt...“
A.l. / Dagblaðió
„Samtíminn með róttækri félagslegri út-
tekt á fjölmiölum er viðfangsefni skálds-
ins, hið nýja vín sem hellt er á gamla belgi
rímnakveðskapar... Þórarinn Eldjárn er
gamansamur í besta lagi... Disneyrímur
eru ortar af ærnum hagleik ..
Á.B. /Þjóðviljinn
Skáídað i skörðin
Ási í Bæ segir frá aflaklóm og
andansmönnum
Af sinni alkunnu frásagnargleði og góó-
látlegu kímni bregður Ási upp hverri svip-
myndinni annarri fróðlegri og skemmti-
legri af göldróttum forfeðrum, vinum,
kunningjum, furöufuglum, skáldum og
skipstjórum: Stefán Hörður Grímsson,
Steinn Steinarr, Sigurbjörn Sveinsson,
Baldvin Björnsson, Oddgeir Kristjánsson,
Árni úr Eyjum, Binni í Gröf, o.fl. o.fl. að
ógleymdum öllum yndislegu konunum
sem koma við sögu í þessari bráð-
skemmtilegu og fróðlegu bók.
Árni Elfar hefur myndskreytt bókina af
sannri viröingu fyrir efni hennar og anda.
BroddiJóhannesson
Q&l/iur
Fjölbreytt safn persónulegra hugleiðinga
og frásagna. í öguðu, listrænu ritformi
lýkur höfundur upp hug sínum fyrir les-
anda, iðulega með því að hnita saman
veigamikil sjónarmið og dýrmæta reynslu
eöa minnileg atvik. Náin tengsl við
náttúru landsins og líf þjóðarinnar, m.a.
starfshætti hennar, birtast hér með af-
brigðum vel. Öll er bókin mikilsvert fram-
lag til íslenskrar ritmenntar af skyldum
toga.
ÞÓRARINN ELDJÁRN
IÐUNN
Ská/dað i
skörðin
ÁsiiBæ
/ðunn
7í
Broddi Jóhannessort
O‘blitur
Iðunn