Morgunblaðið - 14.12.1978, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
I0100KL. 10— 11
, FRÁ MÁNUDEGI
litiö. Þaö var International Song
Festival of Sopot eða Sopot ’78 sem
haldin var í baðstrandarbænum
Sopot en það er fallegur staður
milli Gdansk og Gedynia. Keppni
þessi er haldin ár hvert í lok
ágústmánaðar. Aðalsönghátíðin er
4 kvöld en daglega eru ýmis
frábær skemmtiatriði.. Þátttak-
endur á Sopot-sönghátíðinni eru
frá mörgum löndum bæði frá
Austur- og Vestur-Evrópu.
Ef hægt væri að líkja þessari
hátíð við eitthvað þá væri það
helst okkar ágæta Evrópu söng-
lagakeppni sem íslenska sjónvarp-
ið hefur sýnt á undanförnum
árum. En ég fullyrði að Alþjóða
sönghátiðin í Sopot er í alla staði
margfalt fjölbreyttari og ánægju-
legri. Það er útilokað að lýsa
þessari hátíð, svo glæsileg var
hún, en ég veit að pólska sjónvarp-
ið sendi út frá þessari stórkostlegu
hátíð. tiagskránni var einnig
sjónvarpað víða um lönd.
Eg vil nú skora á okkar ágæta
sjónvarp að tryggja sér þetta
frábæra efni sem myndi örugglega
gleðja okkur íslendinga. Fólk má
ekki halda að það sé aðeins í
Bandaríkjunum og Englandi að
uppi eru listamenn. Þeir eru líka
til í öðrum löndum.
Ferðalangur.
Velvakandi hafði samband við
dagskrárstjóra Sjónvarpsins Jón
Þórarinsson. Jón kvaðst ekki hafa
heyrt getið um þessa sönghátíð
fyrr og kvaðst hann ekki muna til
þess að upptaka frá henni hefði
staðið sjónvarpinu til boða. Hins
vegar fagnaði hann þessari áskor-
un sem fram kemur hjá bréfritara.
Þessir hringdu . . .
• Hvar eru
peningarnir?
„Fávís kona„ hafði samband
við Velvakanda og bar fram þá
fyrissprun hvað félagsstofnun
stúdenta hefði gert við peninga
sína. Hún kvaðst ekki muna betur
en stofnunin hefði eftir að febrú-
arlögin voru sett verið eina eða ein
af fáum stofnunum á landinu sem
töldu sig reiðubúnar til að greiða
fullar vísitölubætur á laun.
stofnuninni, flest fær það laun
samkvæmt lægstu töxtum verka-
lýsðfélaganna. Vildu stúdentar
gjarnan þakka þeim þannig góð
störf.
Skúli tók það fram í lokin að
kostnaður við laun á þessu ári yrði
80 milljónir króna en kostnaður-
inn við að greiða fullar vísitölu-
bætur um 830 þúsund krónur.
Skúli Thoroddsen framkvæmda-
stjóri félagsstofnunar stúdenta
sagði að á stjórnarfundi hjá
fyrirtækinu hefði verið ákveðið að
þrátt fyrir slæman fjárhag yrðu
greiddar fullar vísitölubætur á
laun. Það var gert að skilyrði að ef
um hallarekstur yrði að ræða hjá
stofnuninni vegna þessa þá hlyti
það að bitna á þjónustu við
stúdenta sjálfa. Tillaga þessi var
borin fram af stúdentum í stjórn
Félagsstofnunarinnar samkvæmt
áliti stúdentaráðs. Sá rökstuðning-
ur fylgdi með að stúdentar vildu
umbuna því fólki sem ynni á
Endur
skins
merki
HÖGNI HREKKVlSI
0
GROHE
vandaður
JÓLAGLAÐNINGUR
Margir sem þjáðst hafa af gigt, vöðvabólgu og meiðslum margskonar,
hafa náð heilsunni aftur með notkun GROHE vatnsnuddtækisins.
ÓTRÚLEGT EN SATT.
Hægt er að mýkja og herða bununa að vild, nuddtækiðgefur 19- 24 litra
með 8.500 slögum á minútu.
Svo er lika hægt að tengja vatnsnuddtækið við hvaða blöndunartæki
sem ér. gömul sem ný, svo nú geta allir notið GROHE vatnsnuddtækisins
TILVALIN HEIMILISJÓLAGJÖF i ÁR -
GJÖF SEM GEFUR VELLÍÐAN
BYGGINGAVÖRUH HE
SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331. (H. BEN. HÚSIÐ)
<
Q
>
■
Spennið bílbeltin, þau eru til öryggis