Morgunblaðið - 17.12.1978, Page 1
290. tbl. 65. árg.
SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Bandaríkiri og Kína taka
upp stjómmálasamband
Það er ekkert smámál að
velja jólatréð og það
leynir sér ekki alvara
stundarinnar í svip barns-
ins enda aðeins vika þar
til jólahelgin gengur í
garð.
Vilja að Carter
skerist 1 leikinn
WashinKton. Tókýó, 16. desember — AP-Reuter.
JIMMY Carter Bandaríkjaforseti tilkynnti í beinni sjónvarps- og
útvarpssendingu frá Ilvíta húsinu í nótt. að Bandaríkin og Kína veittu
hvort öðru fulla viðurkenningu hinn 1. janúar næstkomandi og að
löndin skiptust á scndiherrum tveimur mánuðum síðar. Við sama tæki
færi sagði Carter, að þetta samkomulag stjórnvalda í Washington og
Peking hefði ekki aivarleg áhrif
sinna á Formósu.
Tilkynningin um að þjóðirnar
tvær tækju upp fullt stjórnmála-
samband í ársbyrjun 1979 var birt
samtímis í Bandaríkjunum og
Kína. Carter forseti sagði að
Bandaríkin mundu slíta stjórn-
málasambandi við Formósu og að
varnarsáttmáli Bandaríkjanna og
Formósu frá 1954 félli úr gildi í
árslok 1979.
„Við erum að viðurkenna ein-
falda staðreynd. Það er aðeins eitt
Kína til og Formósa er hluti
Kína,“ sagði Carter. Hann sagði
einnig að Bandaríkjamenn hefðu
lagt sig fram af öllum mætti í
viðræðum við Kínverja að tryggja
það að stjórnmálasamband land-
anna stefndi ekki íbúum Formósu
í hættu. Haft er eftir áreiðanleg-
um heimildum að Kínverjar hafi
fallizt á það skilyrði Bandaríkja-
manna, að þeir innlimuðu ekki
Formósu, en embættismaður í
Hvíta húsinu sagði þó, að ekki
væri um að ræða skýrar eða
á hagsmuni kínverskra þjóðernis-
skorinorðar yfirlýsingar frá Kin-
verjum í þeim efnum.
I tilkynningu Kínverja sagði, að
Formósa væri hluti af Kína, og
það væri mnanríkismál Kínverja
hvort og hvenær Formósa yrði
innlimuð. Þar sagði ennfremur, að
Teng Hsiao-ping varaforsætisráð-
herra færi í opinbera heimsókn til
Bandaríkjanna í janúar
Hua Kuo-feng flokksformaður
sagði á fundi með fréttamönnum í
Peking, eftir að tilkynningin hafði
verið birt, að Kínverjar væru því
andvígir, að Bandaríkjamenn
seldu vopn til Formósu eftir 1.
janúar n.k., en Carter forseti sagði
að Bandaríkjamenn hygðust við-
halda viðskiptalegum og menn-
ingarlegum tengslum við Formósu
og áskildu sér rétt til að selja
Formósu vopn, þrátt fyrir sam-
bandsslitin. Ljóst þykir af þessu
að Bandaríkjamenn og Kínverjar
hafa ekki jafnað allan ágreining
sinn varðandi Formósu.
forseta til að kalla saman annan
fund til að „reka endahnútinn á það
samkomulag sem náðst hefði í Camp
David“. Carter sagði að slíkur
fundur væri mistök enda hefði hann
við mörg mikilvæg alþjóðamál önnur
að fást.
Ákvörðun Bandaríkjanna
og Kína víðast hvar fagnað
Washington. Belgrað. Taipei, Tókýó, Vínarborg, 16. des. — AP-Reuter.
SAMEIGINLEGRI tilkynningu Bandaríkjamanna og Kínverja um að
löndin tvö taki upp eðlilegt stjórnmálasamband I. janúar
næstkomandi. hefur víðast hvar verið fagnað. nema á Formósu og í
nokkrum löndum Varsjárbandalagsins og 1 Bandaríkjunum hefur
málið hlotið misjafnar undirtektir.
Bæði Jimmy Carter Bandaríkja-
forseti og Hua Kuo-feng forsætis-
ráðherra Kínverja sögðu á fundum
með fréttamönnum eftir að hafa
tilkynnt um samkomulag land-
anna, að stigið hefði verið stórt
skref í þá átt að tryggja frið og
jafnvægi í Asíu og um heimsbyggð
alla.
Gerald Ford og Richard Nixon,
fyrrum forsetar Bandaríkjanna,
fögnuðu báðir í dag þeirri ákvörð-
un Carters að taka upp fullt
stjórnmálasamband við Kína, en
ýmsir íhaldssamir þingmenn, svo
sem Barry Goldwater, lýstu andúð
sinni á ákvörðun forsetans og
hótuðu honum jafnvel málaferl-
um. Þá fögnuðu Edward Kennedy
og Henry Kissinger ákvörðuninni,
en Kissinger sagðist þó bera
nokkurn kvíðboga fyrir framtíð
þjóðernissinna á Formósu, sem
nánast hefðu átt allt sitt undir
Bandaríkjamönnum komið til
þessa.
A Formósu hlaut ákvörðun
Carters óblíðar móttökur. Hundr-
uð manna reyndu að ryðjast inn í
sendiráð Bandaríkjanna á eyjunni
og létu ýmislegt lauslegt dynja á
byggingunni. Forseti Formósu,
Chiang Ching-kuo, sagði í morgun
að réttindi og hagsmunir For-
mósubúa ættu eftir að bíða
verulegan hnekki vegna ákvörðun-
ar Carters, og að það væri
Bandaríkjamanna að bera ábyrgð
á afleiðingunum.
Utanríkisráðherra Formósu,
Shen Chang-huan, sagði af sér
þegar fregnirnar bárust frá
Washington, og Wun Yun-suan
forsætisráðherra óskaði eftir að
vera leystur frá embætti, en
Chiang forseti varð ekki við þeirri
beiðni.
Búlgarar, helztu bandamenn
Sovétríkjanna í Varsjárbandalag-
inu, fordæmdu Kínverja í dag og
sögðu það lið í útþenslustefnu
þeirra í Asíu að taka upp stjórn-
málasamband við Bandaríkin.
Ekki voru birt nein viðbrögð
stjórnvalda í Sovétríkjunum þegar
Tass sagði frá samkomulagi Kín-
verja og Bandaríkjamanna, en
vestrænir diplómatar í Moskva
búast við því, að ráðamenn í
Kreml eigi eftir að fara hörðum
orðum um ákvörðun Bandaríkja-
manna að taka upp stjórnmála-
samband við Kína.
Samkomulagi Kínverja hefur
verið fagnaö af opinberri hálfu í
Japan og júgóslavneska fréttastof-
an Tanjug sagði, að samkomulagið
væri meiri háttar sigur fyrir
utanríkisstefnu Kínverja.
Jones fyrirskipaði
aftöku þmgmannsms
GeorBetown. Guyana. 16. des. — Reuter.
JIM Jones, leiðtogi sértrúarsafn-
aðarins í Guyana, þar sem fjölda-
sjálfsmorðin urðu fyrir fáeinum
vikum, fyrirskipaði morðið á Leo
Ryan, bandaríska þingmanninum
sem kom til að kynna sér ástandið í
Georgetown. Fyrrverandi yfirmaður
öryggissveita Jones greindi frá þessu
í dag og sagði að Jones hefði skipað
að Ryan skyldi skotinn áður en hann
kæmist heim, en hann kvaðst ekki
muna hver hefði fengið fyrirmælin.
Hann sagði að Jones hefði haft í
hótunum við fólkið ef það hefði uppi
kvartanir við þingmanninn og skyldi
það hafa verra af ella.
Kairó, Jerúsalem. Washington
16. des. Ap. Reuter
EGYPSKIR embættismenn eru
sagðir vænta þess, að Bandaríkja-
mcnn geri ráðstafanir til að reyna
að telja ísraela á að nauðsynlegt sé
að friðarsamningur ríkjanna vcrði
undirritaður fljótlega og beiti sér
einnig fyrir því að fá ísraela til að
skilja að þcir hafi misskilið gersam-
lega síðustu tillögur Egypta.
Anwar Sadat forseti hafði í dag
ekkert tjáð sig um neitun ísraela en
háttsettur egypskur embættismaður
sagði, að tillögurnar væru fullkom-
lega í samræmi við það sem samizt
hefði um í Camp David. Utvarpið í
Kairó sagði að þar yrði haldið áfram
að reyna eftir megni að komast að
samkomulagi og mátti skilja frétt
útvarpsins svo, að einkum yrði lagt
kapp á að samið yrði um nákvæma
tímasetningu varðandi sjálfsstjórn
Palestínumanna.
I Washington hvatti Jakob Javits
öldungadeildarþingmaður Carter
Audugasti
köttur heims
andaður
Sheflield. Englandi, 16. des. AP.
SURTUR, sem talinn hefur
verið auðugasti köttur í heimi,
andaðist í gærkvöldi að því er
ensk blöð greindu frá. Eigandi
hans og fóstra, frú Ivy Black-
hurst, arfleiddi Surt að öllum
eigum sínum þegar hún andað-
ist 1975 og voru þær metnar á
urn 22 milljónir króna eða 35
þús. pund. Surtur var nítján
ára að aldri. Talið er að eigur
Surts muni nú renna til dýra-
verndunarsamtaka í Bretlandi.