Morgunblaðið - 03.02.1979, Page 1
48 SIÐUR OG LESBOK
28. tbl. 66. árg.
LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Teng atyrðir
Rússa áfram
Atlanta, Bandaríkjunum,
2. febrúar. AP. Reuter.
TENG Hsiao-Ping varaforsætis-
ráðherra Kína hélt sínu striki á
ferð sinni um Bandarikin og
gagnrýndi Sovétmenn harðlega í
dag og hvatti allar þjóðir til að
sameinast í baráttunni gegn yfir-
gangs- og útþenslustefnu Sovét-
manna sem væri óþolandi.
Teng Hsiao-Ping
Haft var eftir Teng við komuna
til Houston í dag að hættan á
heimsstyrjöld væri ennþá fyrir
hendi og þá sérstaklega vegna
yfirgangs- og útþenslustefnu So-
vétmanna. Þá var haft eftir Teng
að það væri söguleg staðreynd að
friður væri ekki tryggður með
bænum einum saman. Einnig kom
það fram í sameiginlegri yfirlýs-
ingu Carters og Tengs í gær að
þeir lýstu fullri andstöðu ríkis-
stjórna sinna við yfirgangs- og
útþenslustefnu ríkja en minntust
ekki á Sovétríkin sérstaklega.
Fréttaskýrendur telja að Carter
sé settur í mikinn vanda vegna
yfirlýsinga kínverska varaforsæt-
isráðherrans þar sem hann vilji
fyrir alla muni halda sem beztu
sambandi við Sovétmenn og haft
var eftir talsmanni Hvíta hússins í
dag að stefna Bandaríkjamanna
væri að halda jafnvægi í samskipt-
um sínum við aðrar þjóðir.
Stjórnarkreppan á ítallu:
Ráðherrastólar eru
skilyrði kommúnista
Róm, 2. febrúar — AP — Reuter
BÚIST var við því í dag í Róm að
Giulio Andreotti fráfarandi for-
sætisráðherra myndi formlega
fallast á beiðni forseta landsins
um að gera tilraun til nýrrar
stjórnarmyndunar þrátt fyrir
mikinn andbyr þar sem kommún-
istar kref jast þess að fá ráðherra-
stóla í stjórninni, en það telja
flokksbræður Andreottis í Kristi-
lega demókrataflokknum ekki
koma til greina.
Ef Andreotti tekst að koma
saman starfhæfri stjórn nú verður
það hin fertugasta og fyrsta frá
því að fasistar hröktust frá völd-
um árið 1943, en fráfarandi stjórn
Andreottis féll s.l. miðvikudag
þegar kommúnistar tilkynntu að
þeir væru hættir stuðningi við
hana.
Að áliti fréttaskýrenda í Róm
eru líkur á því að Andreotti takist
að koma saman stjórn nú taldar
verða litlar þar sem deilur Kristi-
legra demókrata og kommúnista
fara harðnandi með degi hverjum.
Hins vegar var haft eftir Enrico
Berlinguer leiðtoga Kommúnista-
flokksins að bezta lausnin fyrir
þjóðina væri ef fyrrnefndir flokk-
ar kæmu sér saman um starfhæfa
stjórn sem kommúnistar ættu
fulla aðild að.
Ayatullah Khomeini trúarleiðtogi Múhameðstrúarmanna í fran fagnað á fjölmennum fundi í Teheran í
dag. Múgurinn lyftir frönskum hermanni í átt til trúarleiðtogans. Símamynd AP.
Khomeini hafnar alfarið
samningum við Bakhtiar
Teheran. 2. febrúar. AP.
HAFT var eftir áreiðanleg-
um heimildum í herbúðum
trúarleiðtogans Ayatullah
Khomeini í dag að ekki
kæmi til greina fundur
hans með Shahpour Bakht-
iar forsætisráðherra nema
því aðeins að Bakhtiar
segði af sér og þátttaka í
Verkfallið í Bretlandi:
Almenningur farinn
að greftra ættingia
London, 2. febrúar — AP
EKKERT lát er á verkföllum á
Bretlandi og versnar ástandið
stöðugt. Sérstaklega hefur verk-
fall grafara og starfsmanna á
sjúkrahúsum valdið miklum
vandræðum og hermdu fréttir frá
norðausturhluta Englands í dag
að tvær fjölskyldur hefðu gripið
til sinna ráða og grafið látna
foreldra upp á eigin spýtur.
Hinir látnu voru grafnir rétt
utan við kolanámu í Durhamhér-
aði þrátt fyrir tilraunir kolanámu-
verkamanna til að koma í veg fyrir
það.
Mjög mikið hefur borið á því
síðustu daga að fólk hefur lýst
undrun sinni og hneykslan á fram-
ferði grafaranna og var m.a. haft
eftir dóttur annars hinna látnu
sem jarðaður var í dag að hún
hefði aldrei trúað því að óreyndu
að menn gætu verið svo fullkom-
lega tilfinningalausir, hreinlega
tröðkuðu á tilfinningum meðborg-
ara sinna.
Þrátt fyrir nokkurn andbyr síð-
ustu daga hafa verkfallsmenn
þráfaldlega lýst því yfir að þeir
muni ekkert gefa eftir heldur
herða skrúfuna þar til gengið verði
að kröfum þeirra. Verkfallsmenn
sem starfa við sjúkrahúsin og við
líkgröft hafa farið fram á allt að
42% hækkun launa eða nær átta
sinnum meira en stjórnin hefur
sett sem hámark á launahækkanir
ársins. Sem dæmi um launakjör
verkfallsmanna má nefna að þeir
hafa í dag rúmlega 40 pund á viku
eða um 26 þúsund krónur en fara
fram á 60 pund eða um 39 þúsund
krónur.
stjórn hans væri fráleit þar
sem stjórnin væri með öllu
ólögleg.
Bakhtiar hafði lýst því
fyrr í dag að hann væri
tilbúinn að bjóða mönnum
Khomeinis þátttöku í
stjórn sinni til að ná sam-
komulagi við hann og var
haft eftir Bakhtiar að með
slíkum hætti væri öryggi
landsins bezt borgið.
Áreiðanlegar heimildir í stjórn-
arráði Bakhtiars hermdu í dag að
ef forsætisráðherrann næði ekki
samkomulagi við Khomeini innan
tíðar væri stórhætta á því að átök
brytust út í landinu með þátttöku
hersins. Haft var eftir sömu heim-
ildum að mikil deila væri innan
stjórnar Bakhtiars um afstöðuna
til trúarleiðtogans Khomeinis og
væri jafnvel á mörkunum að
meirihluti væri fyrir því að bjóða
mönnum Khomeinis þátttöku í
henni. Þá munu allnokkrir ráð-
herrar vera búnir að tilkynna að
þeir muni segja af sér ef gengið
verði til nokkurra samninga við
Khomeini.
Á fjölmennúm fundi sem hald-
inn var síðdegis í dag endurtók
Khomeini fyrri yfirlýsingar sínar
þar sem hann lýsti stjórn Bakht-
iars ólöglega og benti þátttakend-
um í henni á að ef þeir ekki segðu
af sér þegar í stað yrðu þeir leiddir
fyrir rétt og dæmdir fyrir landráð.
Ilermeon
Pots herða
sóknina
Bangkok, 2. febrúar.
Reuter — AP.
TALSMAÐUR herflokka sem
hliðhollir eru Poi Pot fyrrver-
andi forsætisráðherra Kambód-
íu og berjast nú víðs vegar um
Kambódfu sagði f dag á fundi
með fréttamönnum að herflokk-
arnir hefðu fyrr í þessari viku
fellt a.m.k. 500 víetnamska her-
menn í hörðum bardögum.
„Útvarp lýðræði“ sem útvarp-
ar frá suðurhluta Kína og styð-
ur baráttu Pots og manna hans
sagði í dag að hermenn Pots
heðu þegar eyðilagt margar
mikilvægar aðflutningsleiðir
víetnamska herliðsins.