Morgunblaðið - 03.02.1979, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1979
Úr skýrslu Hafrannsóknastofnunar um ástand nytjastofna og aflahorfur 1979
Lagt til að auka
sóknina í ýsu
ÝSUAFLI á íslandsmiðum hefur á undanförnum árum verið á bilinu 40—50 þúsund tonn. sem er talsvert
mikið undir meðalafla. en hann var 70 þúsund tonn árabilið 1950—70. Frá 1963 minnkaði stofninn úr 386
þús. t. niður í 141 þús. t. árið 1971, en síðan hefur hann stækkað nokkuð á ný og er nú áætlaður 218 þús.
tonn. bróun hrygningarstofns ýsunnar hefur verið hliðstæð þessu og var í byrjun síðasta árs; var hann
áætlaður um 128 þús. tonn.
Minnkunina, sem varð á heildarstofni ýsunnar og hrygningarstofni má rekja til ofveiði fyrri ára, en
mjög mikið var drcpið af smáýsu þegar möskvi í botnvörpu var aðeins 120 mm og 110 mm í dragnót. Þá var
klak á sjöunda áratugnum oft langt undir meðallagi og árgangar á þessum áratug hafa margir hverjir
verið rýrir. Stækkun möskva hefur leitt til þess að smáýsudráp fyrri ára heyrir nú sögunni til.
Síldveiðar
ekki auknar
Ýsuafli íslendinga árið 1977 nam
35 þús. t. og búist er við að hann
verði um 42 þús. tonn. Aðeins á
árunum 1960—1965 veiddu íslend;
ingar meira af ýsu en á sl. ári. I
síðustu skýrslu Hafrannsóknastofn-
unarinnar var lagt til að hámarks-
afli ýsu 1978 yrði 40 þúsund tonn, en
m.a. vegna þess að stofninn er í vexti
er lagt til að hámarksaflinn í ár
verði 45 þúsund tonn. Þá er búist við
enn frekari aflaaukningu árið 1980.
Ufsaafli hefur
farið minnkandi
Allt frá lokum seinni heims-
styrjaldarinnar og fram til 1960 var
klak ufsa langt undir meðallagi, en
upp úr 1960 fór klak aftur batnandi,
þrátt fyrir að hrygningarstofn væri
aðeins 120 þús. tonn. Árangurs betra
klaks fór fljótlega að gæta í veiðinni,
sem óx ár frá ári og náði hámarki
1971. Síðan hefur ufsaaflinn aftur
farið hraðminnkandi þar sem klak
frá árunum 1969—1974 hefir verið
talsvert undir meðallagi.
Hrygningarstofn ufsans er ekki
kominn í þá lægð, sem hann var í
1960. Núverandi stærð hrygningar-
stofnsins er áætluð 177 þús. tonn.
Með tilliti til þess að ekki var
veiddur allur sá ufsi, sem lagt var til
að veiða ætti árið 1978, þá er nú lagt
til að leyfilegur hámarksafli ufsa
verði 60 þús. tonn árið 1979. Það er
ekki ráðlegt að auka sóknina í
ufsann frekar á næstunni, þar sem
það myndi óhjákvæmilega koma
niður á hrygningarstofninum, og
leiða til óarðbærra ufsaveiða.
Hafrannsóknastofnunin lagði í
fyrra til að hámarksafli ufsa yrði 58
þúsund tonn, en ufsaaflinn er
áætlaður 52 þús. tonn á árinu.
Karfaafli getur
aukist um 70%
Heildarafli á karfa á íslandsmið-
um minnkaði úr 114 þús. tonnum
árið 1965 í tæp 70 þús. tonn árið
1973. Á síðasta ári er áætlað að
karfaveiðin á miðum hér við land
hafi numið um 32 þúsund tonnum og
þar af veiddu íslendingar um 30 þús.
tonn. V-Þjóðverjar veiddu ekkert við
ísland á síðasta ári og því hefði mátt
búast við að afli Islendinga myndi
aukast við brottför þeirra. Vegna
óhagstæðs verðs á karfa borið saman
við verð á þorski, var, eins og 1977,
minna sótt í karfann yfir sumarið en
ella.
Með tilliti til þess að meðalársafli
af karfa við Færeyjar og A-Græn-
land á árunum 1968—1977 hefur
verið um 21 þús. tonn. leggur Haf-
rannsóknastofnunin til að leyfilegur
hámarksafli við Island verði 50
þúsund tonn á árinu 1979. Miðað við
karfaafla á árinu 1977 og áætlaðan
karfaafla 1978 geta íslendingar því
aukið afla sinn um 70% á árinu 1979.
Þótt afli kunni að glæðast nokkuð
vegna brottveru annarra þjóða að
mestu, verður þessari aukningu
aflans þó vart náð nema sókninni
verði beint meira í karfa, en gert var
á árunum 1977 og 1978.
Skarkoli
í lok október á s.l. ári nam
skarkolaaflinn einungis 3.3 þús.
tonnum miðað við um 4 þús. tonn á
sama tíma árið 1977.
Talið er að ná megi allt að 10 þús.
tonna varanlegum hámarksafla á ári
af skarkola hér við land og mætti því
tvöfalda sóknina í þennan stofn.
Slíkt verður þó varla gert án þess að
opna Faxaflóa fyrir dragnótaveiðum
að sumrinu.
Grálúöa
Grálúðan er seinþroska fiskur og
verður tæplega kynþroska fyrr en
9—10 ára. Hrognin eru stór en fá og
viðkoman því lítil. Það tekur því
grálúðustofninn nokkurn tíma að ná
sér eftir ofveiðina á undanförnum
árum. Að vísu fékk stofninn góða
friðun árið 1976 en þá voru aðeins
veidd um 6 þús. tonn. Árið 1977 var
aflinn hins vegar rétt um það sem
talinn hefur verið æskilegur
hámarksafli, eða um 15 þús. tonn. Af
þessu magni veiddu Vestur-Þjóðverj-
ar um 5 þús. tonn svo, svo að
íslendingar ættu að geta bætt við sig
um 5 þús. tonnum frá þeim afla sem
fékkst árið 1977.
í lok okt. á s.l. ári nam grálúðu-
veiðin 10.3 þús. tonnum miðað við 9.9
þús. tonn á sama tíma árið 1977.
Hafrannsóknastofnunin leggur til
að hámarksafli grálúðu árið 1979
verði bundinn við 15 þús. tonn.
Lúöa
íslendingar stunda ekki lúðuveiðar
sérstaklega og hafa ekki gert undan-
farin ár. Þrátt fyrir það er lúðu-
stofnihn við ísland ofnýttur og hefur
verið um langt skeið vegna þess að
mikið veiðist af smálúðu með öðrum
fiski og mun erfitt ef ekki ómögulegt
að koma í veg fyrir það.
Lúðuaflinn á Islandsmiðum varð
2.3 þús. tonn árið 1977 og þar af
veiddu íslendingar 1717 tonn eða
tæp 74% heildaraflans.
I lok okt. á s.l. ári nam lúðuafli
okkar samtals 1157 tonnum miðað
við 1383 tonn á sama tíma árið 1977.
Steinbítur
Nýjustu athuganir á steinbít hér
við land benda til þess að hrygning-
arstofninn hafi minnkað samfellt frá
árinu 1970 úr 99 þús. tonnum í 63
þús. tonn árið 1978. Á þessu tímabili
jókst verulega sókn í eldri hluta
stofnsins, utan tvö síðustu árin, eftir
brotthvarf Breta af íslandsmiðum.
Þrátt fyrir umrædda sóknaraukn-
ingu og minnkun stofnsins hefur afli
línubáta á sóknareiningu vaxið í
heild á framangreindu tímabili.
Svo virðist sem núverandi sókn
gefi af sér sem næst hámarksaf-
rakstur á nýliða og er því talið
ástæðulaust að breyta tillögum
stofnunarinnar frá s.l. ári um leyfi-
legan hámarksafla, en þar var lagt
til að hann yrði bundinn við 13 þús.
tonn.
Spærlingur
Spærlingsaflinn árið 1977 varð
tæp 24 þús. tonn en rúm 27 þús. tonn
árið 1976. í lok okt. 1978 var spær-
lingsaflinn orðinn 38 þús. tonn.
Álkunnugt er að afli sá, sem
flokkast undir spærling er allmikið
blandaður öðrum fisktegundum og
mest kolmunna en einnig lýsu, eitt-
hvað af flatfiski einkum sandkola,
skrápflúru, stórkjöftu ofl. Þessi
aukaafli er mjög mismikill og breyti-
legur og fer eftir árstíma og veiði-
stað. Samanburður sem gerður hefur
verið á spærlingsafla og aukaafla í
leiðöngrum Hafrannsóknastofnun-
arinnar á rs. Hafþór undanfarin ár
sýnir að á Selvogsbanka, V- og SV-
Surtseyjar og í Háfadjúpi er spær-
lingur langmest áberandi í afla í
mars, apríl og fram í maí eða
75—95% af aflanum, en þá fer að
bera meira á lýsu og stundum er
aðaluppistaðan í aflanum lýsa í maí
og júní á þessum slóðum. Þegar
kemur fram á sumarið og haustið
verður kolmunni mjög áberandi og
getur numið 50— 90% aflans. Austan
Háfadjúps er kolmunni oftast mun
algengari en spærlingurinn nema
e.t.v. fyrst á vorin.
Við spærlingsveiðarnar er mest
hætta á að ýsuseiði og smáýsa
flækist saman við spærlinginn svo og
humar. Með ströngu eftirliti og
tímabundnum lokunum veiðisvæða
ætti að vera unnt að koma í veg fyrir
þetta að mestu leyti.
Þrátt fyrir þann aukaafla, sem
slæðist saman með spærlingnum
mun vera óhætt að stunda spær-
lingsveiðar og jafnvel auka þær ef
nauðsynlegt er, en fylgjast verður
vel með veiðunum vegna hættunnar
á ungviði nytjafiska í aflanum.
Vegna þess hve aukaaflinn er
mismikill og breytilegur hjá
spærlingsbátunum, og vegna þess
hve skammlífur fiskur spærlingur
er, þá stofu stofnstærðarathuganir
miklum erfiðleikum bundnar.
GERÐ hefur verið spá um aldur-
skiptingu síldaraflans 1979.
(tafla 6). í henni er gert ráð fyrir
að veiði ungsfldar verði tiltölu-
lega lítil miðað við smásfldar-
magnið á miðunum. Þó má búast
við að sfld undir 27 cm verði allt
að 15% (eftir þyngd) ef hring-
nótaveiðar verða stundaðar að
einhverju marki. Þá er gert ráð
fyrir að um 20% aflans verði á
bilinu 27 — 30 cm, 30% verði
30—35 cm og um 35% verði 35 cm
og stærri, enda verði sérstaklega
sóst eftir stórsfld eins og raun
varð 1978.
Tillögur um hámarksafla og
tilhögun síldveiða árið 1979 taka
mið af eftirfarandi: a) Hrygning-
arstofninn hefur ekki aukist eins
og við var búist, b) eigi að síður er
stefnt að því að hann verði um 350
þús. tonn árið 1983, c) gert er ráð
fyrir að mikið af uppvaxandi
smásíld og millisíld verði á miðun-
um.
Með tilliti til þessa leggur Haf-
rannsóknastofnunin til eftirfar-
andi um síldveiðar árið 1979:
a) Leyfilegur hámarksafli verði 35
þús. tonn.
b) Reknetaveiðar verði leyfðar frá
20. ág.—20. nóv. en hringnótaveið-
ar frá 20. sept,—20. nóv.
c) Hringnótaskipum er leyfi fá til
síldveiða verði fækkað til mikilla
muna frá því sem var haustið 1978.
Verulegar
takmarkanir á
loðnuveiðunum
TÍL AÐ tryggja svo sem kostur er
viðvarandi hámarksafla, stuðla
að öflun góðs hráefnis og nægi-
lega mikilli hrygningu, er lagt til
að settar verði eftirfarandi tak-
markanir við loðnuveiðar:
1. Hámarksafli á vetrarvertíð
1979 verði 350 þús. tonn og veiðum
til bræðslu þá og 1980 verði haldið
í lágmarki á hrygningarstöðvum
við S- og SV-land.
2. Loðna 12 cm að lengd og minni
verði friðuð með svæðislokunum
og ákvæðum um aflasamsetningu
eins og nú er.
3. Veiðibann frá lokum vetrarver-
tíðar til 15. ágúst 1979 meðan
yngri árgangurinn er að taka út
sumarvöxt, loðnan að fitna og
átuinnihald er mest.
4. Ákvörðun um hámarksafla á
tímabilinu 15. ágúst 1979 — 14.
ágúst 1980 verði tekin á árinu 1979
þegar aflað hefur verið nánari
upplýsinga um stærð hrygningar-
stofnsins árið 1980. Á þessum
hluta stofnsins munu veiðarnar að
langmestu leyti byggjast á ofan-
greindu tímabili.
TillSgur um hámarksafla einstakra tegunda á íslandsmióum árið 1979, afll 1978,
1977 og meðalafli 1968 - 1977 (þús . tonn) .
Tegund Tillögur um hámarksafla 1979 Afli 1978 Island Afli 1977 ísland Alls Meöalafli 1968 - 1977 ísland Alls
Þorskur 250 2943) 330 340 264 .393
Ýsa 45 353) 35 40 34 44
Ufsi 60 3g3) 47 62 56 100
Karfi 50 273) 28 62 28 76
Skarkoíi 10 33) 5 5 6 7
Grálúða 15 103) 10 15.7 5 14
Steinbítur 13 103) 11 11 9 13
Síld 35 36.94) 28.9 28.9 14 14
Loðna 3501* 9664) 809 834 352 355
Humar 2.5 2.14) 2.7 2.7 3.2 3.3
Hörpudiskur 7.5 8.84) 4.4 4.4 3.6 3.6
Ræk ja 3.72^ 6.94) 7.1 7.1 5.4 5.4
^Vetrarvertíö 1979; 2)Vorvertíð 1979; 3) jan.- okt. 1978; 4)áætlaður ársafli