Morgunblaðið - 03.02.1979, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1979
Woodcock, væntanlegur sendiherra Bandaríkjanna í Kína, skálar við
Teng.
Eðlileg samskipti Bandaríkja-
manna og Kínverja munu stuðla
að ábatasömum viðskiptum og
breyta stöðunni í heimsmálunum.
Takmark Kínverja er að verða
fyrsta flokks stórveldi og standa
hvorki Rússum né Bandaríkja-
mönnum að baki. Að þessu róa
þeir öllum árum þótt langur tími
geti liðið þangað til þessi draumur
þeirra verði að veruleika.
En Kínverjar hafa síður en svo
einblínt á Bandaríkin. A liðnum
árum hafa þeir tekið upp samband
við fjölda ríkja um allan heim og
gert viðskiptasamninga við marg-
ar þjóðir. Þeir hafa rofið einangr-
un sína með áhrifamiklum hætti
og það kom bezt í ljós á liðnu ári.
Þá virtust Kínverjar allt í einu
vera alls staðar í einu að semja um
viðskipti og að læra af umheimin-
um sem mest þeir máttu.
Hua Kuo-feng formaður fór til
Rúmeníu í ágúst og styggði þar
með Rússa, sem tefla fram 43 af
beztu herfylkjum sínum á landa-
mærunum að Kína sem eru um
6.0000 kílómetra löng. Teng
Hsiao-ping fór til Japans til þess
að undirrita friðar- og vináttu-
samning og lýsti því yfir, að
fortíðin væri gleymd. Hann fór
síðan til Thailands, Malaysíu og
Singapore, þar sem hann undirrit-
aði samninga um samskipti á
sviðum vísinda og tækni og hamr-
aði á þeirri hættu, sem hann taldi
að þessum löndum sem öðrum
stafaði frá yfirdrottnunarstefnu
Sovétríkjanna. Síðan hyggst Teng
fara til Washington í febrúar og
staðfesta þar í eigin persónu þau
þáttaskipti, sem hafa orðið í sam-
skiptum Kínverja og Bandaríkja-
manna.
Langir listar
Á ferðum sínum hafa Kínverjar
haft meðferðis langa lista með
nöfnum á tækjum og vörum, sem
þeir vilja kaupa. En óvíst er hvort
þeir hafa fjárhagslegt bolmagn til
þess að kaupa þetta allt. Kínverjar
hafa ágætt lánstraust, en þeir
hafa aldrei áður nefnt eins risahá-
ar upphæðir og þeir gera nú. Von
Kínverja er sú, að þeir geti staðið
undir geysimiklum fjárfestingum,
sem nútímabreytingar þeirra
heima fyrir hafa óhjákvæmilega í
för með sér, með miklum útflutn-
ingi, sem þeir ætla að hefja á olíu,
með sameiginlegum framkvæmd-
um, en þeir ætla að haga þannig að
þeir greiði skuldir sínar í vörum
Kína og
Bandaríkin
3. grein
er að koma til leiðar, muni kosta
Kínverja 800 milljarða dollara
árið 1985. Verið getur að neyzlu-
markaður verði lengi að þróast í
Kína. Nú er gífurlegur áhugi á
sjónvarpsviðtækjum í Kína og
tækin kosta háfsárslaun. En Kín-
verjar eru gífurlega sparsamir og
ótrúlega mikið hefur selzt af
sjónvarpstækjum. Sjónvarpað er'í
aðeins fjóra tíma á dag og nokkru
lengur um helgar, en langtum
stærri hópur nýtur sjónvarpsins
en fjölskyldur þeirra sem kaupa
þau, þar sem þeim er komið fyrir í
félagsheimilum og öðrum sam-
komuhúsum. Erlendar kvikmyndir
eru sýndar í sjónvarpinu og
Abbott og Costello urðu geysivin-
sælir.
Stór markaður
Almennt er gengið út frá því, að
í Kína hafi opnazt geysistór mark-
aður, og fjárhagslega sterk fyrir-
tæki á Vesturlöndum hafa hafið
milli sín sterka samkeppni um að
komast að þessum markaði og
koma þar við sögu á eftir mörgum
öðrum þjóðum. í febrúar í fyrra
gerðu Japanir viðskiptasamning
við Kínverja upp á 20 milljarða
dollara og Japanir hafa tekið
forystuna á kínverska markaðn-
um. Samkvæmt þessum samningi
munu Kínverjar selja Japönum
olíu og fá í staðinn stál og verk-
smiðjur frá Japönum. í desember
sömdu Kínverjar síðan við Frakka
um viðskipti að verðmæti 13,5
milljarða dollara og í þeim sann-
ingi er gert ráð fyrir samvinnu.
Þannig munu Frakkar aðstoða
Kínverja við að framleiða fjar-
skiptahnetti og koma upp sjón-
varpskerfi, stækka og endurnýja
stálver og byggja orkuver,
magnesiumverksmiðju og önnur
mannvirki. Mikilvægast var, að
Frökkum var falið að reisa tvö
kjarnorkuver, sem hvort um sig
mun kosta einn milljarð dollara.
Kínverjar hafa tryggt sér sam-
starf við Svía á sviðum náma-
reksturs, járnbrauta og fjarskipta.
Við Breta hafa Kínverjar gert
samning um tæki til kolanámu-
reksturs að verðmæti 315 milljónir
dollara og Kínverjar munu einnig
kaupa Harrier-orrustuflugvélar af
Bretum. Hjá Dönum hafa Kínverj-
ar tryggt sér aðstoð við að bæta
höfnina í Shanghai og fleiri hafn-
ir. Herafli Kínverja hefur mikla
þörf fyrir hergögn og á því er
mikill áhugi að endurvopna hann.
Kínverjar hafa kynnt sér ítarlega
það sem Svíar, Frakkar og Bretar
geta boðið þeim af vopnum, en
sennilegt er talið að þeir verði
mjög vandfýsnir fyrst í stað vegna
unum. Áætlað er að útflutningur
Bandaríkjanna til Kína muni að-
eins nema 10 milljörðum dollara á
næstu fimm árum og verði því
talsvert minni að verðmæti en
viðskipti Bandaríkjanna við
Taiwan. Þau nema sjö milljörðum
dollara á ári og á það er lögð
áherzla að engin breyting verði á
þeim viðskiptum.
Michael Blumenthal fjármála-
ráðherra er væntanlegur til Kína
seint í febrúar og hann hefur sagt
að hann muni ræða möguleika á
skattasamninga við Kínverja.
Hann vonar að viðskiptasamning-
ur við Kína geti orðið að veruleika
innan árs og að þingið samþykki
að veita Kínverjum forgangsað-
stöðu í viðskiptum við Bandaríkin
nokkrum mánuðum eftir samn-
ingsgerðina. En Blumenthal tók
skýrt fram, að aukin viðskipti við
Kína ættu ekki að koma niður á
viðskiptum við Rússa, sem hann
vill að fái að njóta sömu réttinda
og Kínverjar gagnvart Bandaríkj-
unum.
Við Bandaríkjamenn hafa Kín-
verjar þó átt mjög rækilegar
samningaviðræður um viðskipti.
Bandaríska fyrirtækið Coastal
States Gas hefur samþykkt að
kaupa 3,6 milljónir tunna af kín-
verskri hráolíu og fyrsta sendingin
er væntanleg frá Kína til Banda-
rætt við forstöðumenn bandaríska
hamborgara-fyrirtækisins
McDonalds um aðstoð við að inn-
leiða hraðvirkar aðferðir í matar-
gerð og talið er að þess verði ekki
langt að bíða að Insta-
matic-myndavélar flæði yfir Kína.
Hótelfyrirtækj asamsteypan
Inter-Continental hefur uppi
áform um að koma á laggirnar
keðju 1.000 herbergja hótela á
þremur hæðum með öllum nú-
tímaþægindum eins og sundlaug-
um og saunaböðum. Þessi hótel
verða í Peking, Kanton, Shanghai
og öðrum helztu stórborgum Kína.
Fyrirtækið Hayatt International
hefur lagt til að hafin verði smíði
hótela með 10.000 herbergjum.
Pan American og nokkur önnur
flugfélög hafa hafið mikla inn-
byrðis samkeppni um lendingar-
réttindi í Kína til þess að ýta undir
stórfelldan ferðamannaiðnað.
Áhugi Kínverja á ensku og fleiri
tungumálum hefur stóraukizt.
Rúmlega ein milljón eintaka af
kennslubók, sem er notuð við
enskukennslu útvarpsins í Peking-.
hefur selzt í höfuðborginni. Fjöldi
kínverskra stúdenta hefur verið
sendur til útlanda til náms og
áhrifin sem þessir kínversku
stúdentar munu hafa þegar þeir
koma aftur verða mikil á sviðum
tækniþekkingar og menningar.
Brezezinski ásamt fulltrúa Kína í Bandarikjunum, Chai Tse-min.
Woodcock og Teng við athöfn eftir viðurkenningu Bandarikjanna á
Peking-stjórninni.
Mótmæli gegn sambandi Bandarikjanna við Kína í kfnverska hverfinu í New York.
sem verða framleiddar í verk-
smiðjum er útlendingar reisa, og
með hinum geysimikla mannafla,
sem þeir hafa yfir að ráða, og með
miklum aga þessa geysimikla
mannafla.
Hins vegar er almennt talinn
leika mikill vafi á því, hvort
Kínverjar hafa nógu mikla fjár-
hagsgetu til þess að standa undir
þessu öllu, þar sem efnahagur
þeirra er óneitanlega frumstæður.
Sú ágizkun hefur komið fram, að
þær miklu breytingar, sem ráðgert
hagnast á honum. En liðið geta
mörg ár áður en Kínverjar hafa
efni á að kaupa allt, sem hugur
þeirra girnist. Kínverjar binda ef
til vill of háar vonir við olíuiðnað
sinn til dæmis til Jiess að afla sér
gjaldeyristekna. I þessum nýja
iðnaði er við ótal tæknileg vanda-
mál að stríða og þau eru alvarlegs
eðlis.
Þrátt fyrir þetta halda Kínverj-
ar ótrauðir áfram þeirri baráttu
sinni að gera land sitt að öflugu
nútímaríki. Bandaríkjarnenn
skorts á fjármagni og Vesturlönd
vilja forðast að styggja Rússa um
of.
Viðvaranir
Yfirvöld í Washington hafa var-
að bandaríska kaupsýslumenn við
því að binda of miklar vonir við
vipskiptin við Kína í kjölfar eðli-
legra samskipta. Á það er bent að
vegna skorts á gjaldeyri muni
Kínverjum reynast erfitt að greiða
mikinn innflutning frá Bandaríkj-
ríkjanna áður en langt um líðúr.
Kínverjar hafa sett sér það mark-
mið að tvöfalda árlega stálfram-
leiðslu sína í 60 milljónir lesta
1985. í samræmi við þetta mark-
mið hafa Kínverjar undirritað
samning við fyrirtækið Bethlehem
Steel um að að taka í notkun
járnnámu í Hoepei-héraði.
Hamborgarar
Kínverjar hafa meira að segja
Áhugi á erlendum kvikmyndum
hefur stóraukizt og stórfelld
breyting hefur orðið á kvikmynda-
sýningum og leiksýningum í Kína.
Mannréttindi
Kannski eru athyglisverðustu
áhrif sem mannréttindabarátta
Carters forseta hefur haft í Kína.
Sá óvænti atburður gerðist í
Peking í nóvember, að þar voru
hengd upp spjöld á vegg, sem