Morgunblaðið - 03.02.1979, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1979
SigurðurArnason frá
Raufarhöfn—Minning
nesi, að öllu sem sitt barn. Kona
hans er Guðrún Þórarinsdóttir.
★
A árunum kringum 1945 og
síðar fór mikill vaxtarkippur um
kauptúnið, þegar Raufarhöfn tók
við forystunni af Siglufirði sem
miðstöð síldveiðanna fyrir
Norðurlandi. Öll hjól tóku þá að
snúast hraðar í bæjarlífinu, og á
sumrin yfirfylltist staðurinn af
aðkomufólki, sem ásamt heima-
mönnum vann dag og nótt að
nýtingu alls þess mikla afla, sem
barst þar á land.
Nýjar bryggjur og uppfyllingar,
verbúðir, verksmiðjuþrær, lýsis-
geymar, olíugeymar, íbúðarhús,
skrifstofuhús, verzlanir og þjón-
ustumiðstöðvar spruttu upp á fá-
um árum og breyttu skyndilega
hinni fyrrum kyrrlátu ásýnd þessa
náttúrufagra staðar með sína
löngu, bogadregnu vogströnd inn
við Sand, með Höfðann og hólm-
ann, dökkar, ávalar klappir á
Holtinu, grösuga bakka, og svo
Asinn í baksýn.
Raufarhöfn skilaði þjóðarbúi
íslendinga tugum milljarða króna
á þessum árum, og staðarbúar
tóku öllu þessu aðvífandi fólki vel
og sumum okkar forkunnar vel,
svo margir tengdust þá staðnum
þeim böndum, sem seint hrörna.
Sigurður Árnason greiddi á
þessum feikna annasömu árum
götu allra hinna ótal mörgu, sem
til hans leituðu vegna matarkaupa
fyrir heimilin, tugi skipa eða
eitthvert hinna stóru mötuneyta á
staðnum. Og um leið og hann
afhenti hið umbeðna, hressti hann
menn gjarnan með hlýju brosi
sínu, gamanyrði eða jafnvel hnitt-
inni stöku, ef svo bar undir.
Á annasömum degi í miðri
söltunartörn varð Sigurði eitt sinn
að orði:
Hér er auma ólukkans törnin,
allt er löðrandi í slori,
en hver í að sjí um blessuð börnin.
sem birtast á nœsta vori?
★
Eins og áður var vikið að, var
Sigurður einn af frumbyggjum
kauptúnsins á Raufarhöfn; hann
unni þessum stað af ástúð og vildi
veg Raufarhafnar og velgengni
sem mesta. Hinn sérstæði per-
sónuleiki Sigurðar, tápið og
gneistandi fjörið, sem honum
fylgdi, brá birtu á umhverfi hans
og gerði samferðamönnum hans
lífið léttara og bjartara. Hann var
afar félagslyndur og hrókur alls
fagnaðar, hvar sem hann kom,
spilaði mjög gjarnan bridge við
góðvini sína, og tefldi mikið skák
við þá suma hverja. Hann reyndist
fjölskyldu minni ætíð hin mesti
hollvinur, allt frá upphafi okkar
kynna; hjálpsemin og elskulegheit
hans og hans fjölskyldu við okkur
voru einstök, og mun seint fyrnast
sú vinátta.
Svo lengi sem Sigurður dró
andann og mátti mæla, leitaði
hann frétta frá byggðinni sinni á
Raufarhöfn og af Sléttu — spurð-
ist fyrir um menn og málefni
norður þar, aflabrögð, veðurfar,
afkomu fólksins, framkvæmdir
þess og áætlanir; alltaf var honum
þetta efni jafn hugleikið og náið.
Eftir að Sigurður lét af störfum
hjá K.N.Þ. árið 1960, fluttust þau
Arnþrúður suður og bjuggu á
heimili dóttur sinnar, Margrétar
Önnu, og tengdasonar, Einars
Sigurðssonar. Þegar kom fram á
vor tóku hjónin sig jafnan upp
fyrstu árin og héldu norður, heim í
Sandgerði til sumarlangrar dval-
ar. í síðasta sinn fór Arnþrúður þó
ein norður, sumarið 1967, en þá
hafði Sigurður nær alveg misst
sjónina og var mjög heilsuveill
orðinn. Það ár, hinn 28. september
! andaðist Arnþrúður Stefánsdóttir
á heimili sínu, Sandgerði.
Kvöldið fyrir lát konu sinnar
kvað Sigurður þessa vísu suður í
Kópavogi:
Drottinn er vor eina hlíf,
engu kvtðum meðan.
okkur gefur eilift Iff,
er við hverfum héðan.
★
Síðustu árin, sem hann dvaldi í
Kópavogi átti hann oft við mikla
vanheilsu að stríða og var oft
lengri eða skemmri tíma á sjúkra-
húsum. í aprílmánuði 1975 fór
hann svo á hjúkrunarheimilið
Sólvang í Hafnarfirði, þar sem
hann einnig naut ágætrar
hjúkrunar og aðhlynningar.
Rómaði Sigurður mjög alla þá
hjálp og þá vinsemd, sem hann
varð aðnjótandi á þessu síðasta
heimili sinu.
Hann andaðist á Sólvangi hinn
15. janúar síðastliðinn á 89.
aldursári og fékk hægt andlát.
Allir þeir, sem hann þekktu,
sakna nú vinar í stað og munu
taka heilshugar undir ummæli
Einars Braga, rithöfundar, í af-
mæliskveðju til Sigurðar á
sjötugsafmæli hans, að hann hafði
verið „einn hinn eftirminnanleg-
asti persónuleiki og mesti öðlung-
ur, sem við getum vænzt að fyrir-
hitta á flakki okkar um heiminn".
Leifur Eiríksson, fyrrum oddviti
á Raufarhöfn, kvað þegar hann
spurði lát Sigurðar:
Minnist hans, som marga kvaö
mæta „vísu daxsins".
Lffið hefur brotið blað
f bliki sólarlagsins.
Að Sigurði Árnasyni látnum
mun og mörgum þykja sem nú sé
brotið blað og lokið sérstökum
kapítula í sögu Raufarhafnar-
kauptúns.
Útför Sigurðar fór fram frá
Fossvogskirkju mánudaginn í
fyrri viku að viðstöddu fjölmenni.
Halldór Vilhjálmsson.
Pálína Kreis —
Minningarorð
Einn af útvörðum íslands í
norðri er Melrakkaslétta í
Norður-Þingeyjarsýslu. Landið
grýtt og berangurslegt og ekki
búsældarlegt við fyrstu sýn. Við
ströndina brotna öldur Norður-ís-
hafsins, heldur ófrýnar og
kaldranalegar á stundum. En
Slétta er ekki öll, þar sem hún er
séð við fyrsta tillit: Þegar betur er
að gáð, leynast ærnar graslendur
víða á Sléttu, fiskur vakir þar í
vötnum og vatnsdrögum en upp til
heiða eru kjarnmikil beitilönd.
Úrsvalt Ishafið býr yfir gjöfulum
fiskimiðum á Sléttugrunni og í
Axarfjarðardjúpi. Breiðurnar af
æður og svartfugli fylla margar
víkur, voga og lón, en selurinn
dormar í klöppum og skerjum við
ströndina.
Byggðin hefur þó ætíð verið
strjál norður á Melrakkasléttu, og
er nú svo komið á síðustu árum, að
mörg forn og gróin býli á Sléttu
eru með öllu komin í eyði.
Yfirleitt hafa Sléttungar búið
vel, þótt ekki sé hægt að segja, að
það hafi verið hægur búskapur;
þeir stunduðu sjóinn jöfnum hönd-
um með landbúnaði, höfðu ríflega
afkómu og gátu veitt sér ýmislegt
fleira én rétt til hnífs og skeiðar.
Um langan aldur hefur jafnan þótt
búa mennilegt og menningarlegt
fólk á Melrakkasléttu, þróttmikið
og harðdugandi, mjög mótað af
sínu umhverfi og fastheldið á
gamlar íslerizkar menningar-
erfiðir.
í maí og júní verða nóttlaus
dægur norður á Sléttu, bjartari og
einhvern veginn óræðari en víðast
annars staðar á Islandi — rétt eins
og land og haf verði þá uppnumið í
sjálfan himininn: Hánorrænt sum-
ar, sem lætur engan ósnortinn,
sem því hefur kynnzt.
★
Á vestanverðri Melrakkasléttu
stendur bærinn Sigurðarstaðir á
mjóum granda milli lóns og hafs.
Þar fæddist Sigurður hinn 24. maí
árið 1890. Anna Soffía Guðmunds-
dóttir, móðir hans, var þá aðeins
tuttugu og tveggja ára gömul
stúlka, vistráðin það ár á
Sigurðarstöðum, og hafði verið
heitbundin ungum manni, Árna
Sigurðssyni að nafni, en hann lézt
skömmu eftir að sonur þeirra
fæddist. Anna Soffía dvaldist
áfram um skeið á Sigurðarstöðum
með drenginn, en réðst síöar með
barnið kornungt til þeirra hjón-
anna Siggeirs Péturssonar og
Borghildar Pálsdóttur á Oddsstöð-
um, og þar óx Sigurður upp við hið
bezta atlæti og átti þar sitt heimili
allt til fullorðinsára. Sigurður
kallaði Borghildi á Oddsstöðum
jafnan fóstru sína, og börn þeirra
Borghildar og Siggeirs leit hann á
sem systkini sín og hafði í kærleik-
um. Móðir hans, Anna Soffía,
giftist aldrei en ílentist á Odds-
stöðum og vann því heimili í þrjá
ættliði allt það gagn sem hún
mátti, á meðan kraftar hennar
entust.
Símon Dalaskáld gisti Oddsstaði
eitt sinn árið 1893 og orti til
Sigurðar, sem þá var þrevetra:
Blikar að vonum blfðlyndur
Baldur Freyju tára,
Árnaaonur Sigurður,
sem er þriggja ára.
Það var rétt eins og Símon
Dalaskáld hefði haft þarna eitt-
hvert spámannlegt hugboð um
það, sem með þessum dreng-
hnokka bjó, því skáldskapargáfan
reyndist Sigurði Árnasyni í blóð
borin, og ferskeytlan varð honum
fastur förunautur alla hans ævi-
daga.
Hann unni ljóðlist og bæði las
og nam kynstrin öll af ljóðum.
Sem fulltíða manni var honum
orðið einkar tamt að kasta fram
snjallri stöku mitt í dagsins önn,
og voru vísur hans gjarnan krydd-
aðar góðlátlegri, græskulausri
glettni; en stundum kvað þó við
þyngri undirtónn í vísum Sigurð-
ar.
Urðu margar vísur Sigurðar
fleygar, fóru sumar víða og marg-
ir, sem lærðu þær jafnharðan.
Um skeið hafði Sigurður þann
sið að yrkja vísu dagsins, þ.e. eina
vísu sérstaka fyrir hvern þann
dag, sem Guð honum gaf, og höfðu
margir vinir hans og kunningjar
yndi af að heyra þær vísur. Svo
létt var Sigurði um að yrkja, að
það má segja, að hann hafi verið
talandi skáld.
Kristján Friðriksson frá Efri-
hólum, síðar kenndur við fyrirtæki
sitt, Últíma, var eitt sinn ásamt
fleirum að tala um, hve lítið væri
að marka veðurspá Jóns Eyþórs-
sonar, því það rættist helzt ekki,
sem hann spáði. Sigurður var þar
nærstaddur, hlýddi á tal þeirra og
varð að orði:
Mikill liggur munur í
maður og Guð að vera.
því annar getur upp á því,
hvað ætli hinn að gera.
★
Árið 1923 gekk Siguður að eiga
Arnþrúði Stefánsdóttur, Jónsson-
ar bónda í Skinnalóni, og gaf síra
Páll Hjaltalín brúðhjónin saman
hinn 10. desember í Ormarslóni.
Arnþrúður var almennt talin mjög
fríð sýnum, vel gefin til hugar og
handar eins og hún átti kyn til,
hógvær í fasi og þótti hin mætasta
kona.
Vorið 1924 settust ungu hjónin
að á Raufarhöfn, sem á þeim árum
var að breytast úr bújörð í lítið
kauptún. í fyrstu vann Sigurður
alla vinnu, sem til féll og hann átti
kost á, m.a. hjá hinu nýstofnaða
útibúi Kaupfélags Norður-Þingey-
inga þar á staðnum. Þá átti Sig-
urður og hlut í litlum bát með vini
sínum Nielsi Lund, og urðu þeir
ófáir róðrarnir, sem þeir félagarn-
ir fóru saman í fleytunni og þá
helzt á kvöldin að loknum löngum
vinnudegi 1 landi.
Árið 1925 gerðist Sigurður úti-
bússtjóri Kaupfélags
Norður-Þingeyinga á Raufarhöfn
og gegndi þeim starfa í áratug.
Eftir að hann lét af því starfi, hélt
hann þó áfram störfum fyrir
kaupfélagið úti við, og var um
langt árabil frystihússtjóri á Jökli
eða allt fram til ársiris 1960, er
hann lét af störfum fyrir aldurs
sakir eftir 35 ára dygga þjónustu
við K.N.Þ. Þar er mál allra, er
grannt til þekkja, að fáir hafi
unnið K.N.Þ. á Ráufarhöfn jafn
hollum höndum og af þvílíkri elju
og trúmennsku og Sigurður Árna-
son. Hann bar alla ævi djúpa
virðingu fyrir vinnunni sjálfri, og
það var metnaður hans að leysa
störf sín ævinlega vel af hendi.
Hins vegar spurði hann víst
manna síðastur um, hver vinnu-
laun sín yrðu, en þau voru oft
heldur rýr hjá þessari ungu félags-
stofnun. Allir þeir Raufarhafnar-
búar og Sléttungar, sem nú eru
komnir um miðjan aldur eða eldri,
muna vel hina einstöku ljúf-
mennsku Sigurðar í starfi, greiða-
semi hans, sem allir gátu ætíð
treyst á, og óbrigðult glaðlyndið,
hvernig sem á stóð.
★
Réttum tveim árum eftir að þau
Arnþrúður og Sigurður höfðu sezt
að á Raufarhöfn, hófu þau smíði
myndarlegs steinsteypts íbúðar-
húss í félagi við Einar Vigfússon
og Hildi Stefánsdóttur, systur
Arnþrúðar. Sigurður teiknaði
sjálfur húsið og var fljótur að eins
og oft var hans vandi þegar verk
þurftí að vinna. Hann sýndi
Sigurði húsasmiði í Leirhöfn síðan
teikninguna, og hann samþykkti
og kvað hana ágætlega hugsaða og
útfærða. Smíði hússins gekk vel,
og sumarið 1926 fluttust báðar
fjölskyldurnar í húsið, sem hlaut
nafnið Sandgerði, og heitir svo
enn.
Ekki gat víst talizt neinn auður í
garði hjá þeim Sigurði og Arn-
þrúði í Sandgerði fremur en á
flestum öðrum íslenzkum heimil-
um á þeim erfiðu krepputímum,
sem landlægir voru hérlendis á
árunum 1925 og allt fram til 1940
eða þar um bil. En hjónunum í
Sandgerði féll aldrei verk úr
hendi, og með mikilli ráðdeild,
nýtni og sparsemi tókst þeim þó að
komast vel af með allstóran
barnahóp á þessum árum. Þar
nutu þau og bæði ríkulega þeirra
dyggða, sem þeim höfðu verið
innrættar á bernskuheimilum sín-
um á Sléttu, og góðar gáfur beggja
hjónanna, menningarbragurinn í
fari þeirra og elskulegt viðmót
gerði heimili þeirra aufúsustað
öllum þeim fjölmörgu sem þar
komu. ^
Þeim Sigurði og Arnþrúði varð
fimm barna auðið, auk elztu dótt-
urinnar Kristínar Sigríðar af
fyrra hjónabandi Arnþrúðar, sem
Sigurður Árnason gekk í föður-
stað, og hafði ekki minni kærleika
á en hann bar til hinna barnanna
sinna: „Hún Sissa mín,“ eins og
hann var vanur að kalla elztu
dótturina. Sigríður er gift Guð-
mundi Þorsteinssyni, verkfræð-
ingi, búsett í Reykjavík. Hin börn-
in eru: Geirhildur, sem dó barn að
aldri; Valborg, ekkja Guðmundar
Magnússonar kennara við Skóga-
skóla, nú búsett í Reykjavík; Jón,
vélstjóri við Kísiliðjuna í
Mývatnssveit, ókvæntur; Hólm-
fríður gift Grími M. Helgasyni,
bókaverði í Landsbókasafni, og
yngst er Margrét Anna gift Einari
Sigurðssyni, háskólabókaverði,
búsett í Kópavogi. Auk þess ólu
þau Arnþrúður og Sigurður upp
son Sigríðar, Sigurð Ingimundar-
son, netagerðarmeistara á Akra-
F. 3. október 1921.
D. 22. janúar 1979.
Dauðinn er ekki Kröf
heldur varir, sem hljóðleKa anda
lífi inn í meira ljós.
Tendra ljósi meira líf.
M.
— Hún Palla frænka er komin.
Þessi orð vöktu ávallt gleði og
eftirvæntingu hjá okkur fjölskyld-
unni í Sólheimum 23 — áður á
Sólvallagötu 54. Það var svo stutt
á milli okkar þar, hún á Holtsgötu
17. (Hún og ég vorum þremenning-
ar að frændsemi).
— Ætli hún Palla skreppi nú
ekki yfir til okkar í dag, sagði
mamma stundum á morgnana, og
okkur hló hugur í brjósti við
tilhugsunina. Og oft kom Palla,
þessi aufúsugestur, sem ávallt bar
með sér líf og fjör í bæinn.
Það sem gjörði persónuleika
frænku minnar einhvern veginn
svo heilsteyptan og hrífandi var
þetta hreina og beina viðmót,
aldrei nein uppgerð hvorki í gleði
né sorg. Yfir henni hvíldi bæði
reisn og þokki, skaprík var hún og
einörð, en drenglunduð og samúð-
arrík. Hún var svo sannarlega
vinur vina sinna, og aldrei fæ ég,
sem þessar línur rita, og fjölskylda
mín, þakkað henni alla hennar
hjálpfýsi og greiðasemi. Hversu
oft var ekki leitað til Pöllu frænku
með eitt og annað — ná í blek
ellegar bækur og blokkir og sitt-
hvað fleira, sem mér var ókleift að
nálgast. Ætíð var allt alveg sjálf-
sagt og meira en það og einatt
margt óumbeðið í pokahorninu,
þegar af voru raktar umbúðir
varningsins. Pálína var höfðingi í
sjón og raun í þess orðs bestu
merkingu, og margar ógleyman-
+
Útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og sonar
BENEDIKTS HELGASONAR,
Holtsgötu 21,
veröur gerö frá Dómkirkjunni mánudaginn 5. febrúar kl. 3.
María Pélsdóttir,
Bára Benadiktsdóttir, Guóbjörn Hjartarson,
Helgi Benediktsson,
Unnur María Benediktsdóttir, Jóhann Bragason.
Brynja Benediktsdóttir,
Jónína M. Pétursdóttir.
Innilegt þakklæti færum viö öllum þeim, sem auösýndu okkur samúð og
vináttu viö andlát og útför,
AGNARS JÚLÍUSSONAR,
frá Bursthúsum,
Sunnubraut 8,
Keflavfk.
Kolbrún Agnarsdóttir, Guörún Agnarsdóttir,
Lilja Agnarsdóttir, Helga Agnarsdóttir,
Agnes Agnarsdóttir, Gunnlaugur Guömundsson,
Svanhildur Kjssr, Stefán Haraldsson,
barnabörn og brasóur hins látna.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu viö andlát og jaröarför móöur
okkar, tengdamóöur og ömmu
GUÐNÝJAR GÍSLADÓTTUR,
trá Fróöholtshjáleigu.
Gíslína M. Sörensdóttir, Óiafur Jónsson,
Sigrföur Árnadóttir, Þorsteinn Magnússon,
Jónína Árnadóttir, Þorsteinn Sigmundsson,
Hreinn Ó. Árnason, Elísa Samúelsdóttir,
og barnabörn.