Morgunblaðið - 28.02.1979, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1979
Fasteignasalan
Norðurveri Hátúni 4 a
Símar 21870 og 20995
Við Baldursgötu
2ja herb. sérlega skemmtileg
íbóö.
Viö Ægissíöu
2ja herb. risíbúö í góöu
ástandi.
Viö Lindargötu
2ja herb. íbúö, vandaö eldhús,
gott baö.
Viö Hverfisgötu Hafn.
3ja herb. efri hæö, ásamt
bflskúr.
Viö Álfaskeiö
4ra herb. 1. hæö og 40 fm
kjallari. Bílskúr. Æskileg skipti
á 5 herb. blokkaríbúö.
Viö Leirubakka
4ra herb. falleg fbúö á 2. hæö,
ásamt einu herb. í kjallara,
sérteiknaö eldhús. Bílskúr.
Viö Laugarnesveg
Stórt einbýlishús ásamt 40 fm
bílskúr.
Viö Hæöargarö
5 herb. íbúöarhús í hinum nýja
íbúöarkjarna á mótum Hæöar-
garös og Grensásvegar.
Við Laugarnesveg
Verzlunar- og skrifstofuhús-
næöi hentugt fyrir heildverzlun.
Höfum fjársterka kaup-
endur aö sérhæöum og
einbýlishúsum.
Jon Bjarnason, hrl.,
Hilrnar Valdimarsson,
fasteignaviöskipti.
Óskar Þ. Þorgeirsson
Heimasími 34153
Eldvarnarvika Junior Chamber í Reykjavík:
Flestir eldsvoðar ve^na
kæruleysis okkar sjálfra
Það eru um það bil 140 ár
síðan að sett voru fyrstu ákvæð-
in varðandi eldvarnir við hönn-
un húsa hér á landi, ákvæði
þessi voru aðallega um það að
greiður aðgangur skyldi vera að
húsum svo og um fjarlægð húsa
frá nágrannabyggð.
Þessi fyrstu eldvarnarákvæði
eru enn í fullu gildi og ákvæðið
um að taka beri tillit til ná-
grannabyggðar eitt af þrem
megin sjónarmiðum eldvarna
enn þann dag i dag.
Núgildandi ákvæði um eld-
varnir hvað við kemur hönnun
húsa er að finna í bygginga- og
brunamálasamþykktum, megin
sjónarmiðin í þeim efnum eru
eftirfarandi:
1. Að byggingar séu þannig
gerðar að tryggt sé, svo fram-
ast sem unnt er, að þeir sem í
þeim dveljast eigi auðvelt
með, af eigin rammleik eða
með aðstoð annarra, að kom-
ast út úr þeim ef eldsvoða ber
að höndum.
2. Að byggingar séu þannig
gerðar og þannig fyrirkomið
að viðráðanlegt sé að hefta
útbreiðslu elds frá þeim til
annarra bygginga.
3. Að byggingar séu þannig að
innri gerð að gerlegt sé miðað
við aðstæður að hefta út-
breiðslu elds innan bygging-
anna.
Um þessi meginsjónarmið
eldvarna er nánar fjallað í
hinum einstöku köflum bruna-
málasamþykktar, en þar eru
byggingar flokkaðar niður eftir
gerð, notkun og stærð.
Þar eru nánari ákvæði um
fjölda og breidd útganga, gerð
stigahúsa, fjarlægð frá ná-
grannabyggð miðað við hæð og
gerð bygginganna svo og niður-
hólfun þeirra í brunahólf og val
á einangrun og yfirborðsklæðn-
ingu.
Hólfun byggingar í brunahólf
er mikilvægasti þátturinn í því
að hefta útbreiðslu elds og reyks
um bygginguna og gera slökkvi-
liðinu auðveldar um vik að ráða
niðurlögum hans.
En hvað er brunahólf. Bruna-
hólf er eitt eða fleiri herbergi
aðskilið frá öðrum hlutum húss-
ins með veggjum og hurðum
með ákveðinni brunamótstöðu.
Brunahólf geta því verið misstór
og fer það allt eftir því hvað þau
hafa að geyma. Ibúð t.d. á að
vera eitt brunahólf, kyndiklefi
tilheyrandi þeirri sömu íbúð á
að vera annað.
Oft er notkun húss á þann veg
háttað að ekki er hægt að koma
neinni brunahólfun við eða
starfseminnar vegna yrðu þau
i svo stór að erfitt yrði eða jafn-
vel ómögulegt að ráða niðurlög-
um elds, sem næði sér verulega
á strik á slíkum stað t.d. vöru-
geymslur eða stórir verksmiðju-
salir. Þar sem svo háttar til
verður að gera aðrar ráðstafanir
sem metnar eru ígildi hólfunar,
þar kemur helst til greina sjálf-
virkur reykræstibúnaður, sjálf-
virk viðvörunarkerfi eða sjálf-
virk slökkvikerfi.
Þessar ráðstafanir sem
minnst hefur verið á, miða allar
að því að hefta útbreiðslu elds,
gera auðveldar um vik að ráða
niðurlögum hans eða að upp-
götva eld á byrjunarstigi og
hjálpa þannig til hver í sínu lagi
eða allar saman að draga úr því
tjóni sem ella hefði orðið, en
þær slökkva ekki eld, nema
sjálfvirk slökkvikerfi, né heldur
koma þær í veg fyrir að eldur
kvikni.
Það er til ýmisskonar hand-
slökkvibúnaður til að slökkva
eld á byrjunarstigi, búnaður
sem á að vera á flestum stöðum,
svo sem brunaslöngurúllur,
handslökkvitæki og asbestteppi,
en til þess að þessi búnaður
komi að notum þurfum við að
kunna skil á honum og kunna að
nota hann. Flestir eru eflaust
færir um að nota brunaslöngu,
það er jú ósköp svipað og að
nota garðslöngu, en megum við
nota hana við hvaða eld sem er?
Nei, það megum við ekki og
sama er að segja með hand-
slökkvitækin.
Algengustu tegundir hand-
slökkvitækja eru vatnstæki,
þurrduftstæki og kolsýrutæki,
hvaða tegund notuð er, fer eftir
því hvað er að brenna. Vatn eða
vatnstæki megum við nota ef
eldurinn er í viði, vefnaðarvöru
eða pappír, öllum föstum efnum
sem glóð getur myndast í, en
alls ekki á eld í olíu, feiti, gasi
eða ef um rafmagnseld er að
Borgarnes
Glæsilegt einbýlíshús að Þórunnargötu 4 er til
sölu. Tilboö sendist undirrituðum fyrir næst-
komandi laugardagskvöld. Réttur áskilinn til að
taka hvaða tílboði sem er eða hafna öllum.
Gísli Kjartansson lögfræöingur,
Kveldúlfsgötu 20,
Borgarnesi.
Einbýlishús eða raðhús
óskast
Höfum fjársterkan kaupanda aö einbýlishúsi í
Smáíbúöahverfi eöa góöu raöhúsi í Fossvogi.
Aörir staöir koma til greina.
Húsafell Lúdvík Halldórsson
FASTEIONASALA Langholtsvegi 115 A&alsteinn Pétursson
I Bæjariei&ahúsinu) simi: 8 io 66 Bergur Guonason hdl
'MHDBORG
fasteignasalan í Nýja-bíóhúsinu Reykjavík
Símar 25590,21682
2ja herb. Holtsgötu Hafnarf.
íbúöin er nýstandsett risíbúö, stofa, og gott svefnherbergi. I
Verð 10 út 7.
3ja herb. Álfaskeiði Hafnarf.
íbúöin er í fjölbýlishúsi ca 93 ferm. 2 rúmgóö svefnherbergi, 1
þvottahús f. hæðina. Bílskúrsréttur. Verð 16 út 11. '
4ra herb. Kársnesbraut Kópavogi
Efri hæð í tvíbýli (timburhús) þarfnast lagfæringa möguleiki I
hafa sér inngang. 3 svefnherbergi og stofa. Verð 14 út i
9—10
Parhús Jófríðastaðaveg Hafnarf. 1
Húsið er kjallari og tvær hæðir (ris) 4 svefnherbergi eru í i
húsinu auk möguleika m/kjallara húsiö er nýviöbyggt en
ekki fullkláraö. Verö tilboö. ;
Vantar ailar geröir og stærðir fasteigna á
söluskrá kaupendur með góðar útborganir.
Jón Rafnar sölustjóri,
heimasími 52844. MtOtORQ
Guðmundur Þórðarson hdl.
Rif juð upp
kynni af
Dario Fo
Menntaskólinn að Laugavatni:
LÍK TIL SÖLU
og
NAKINN MAÐUR OG ANNAR
í KJÓLFÖTUM.
Höfundur: Dario Fo.
býðandi. Sveinn Einarsson.
Leikstjóri: Sigrún Björnsdótt-
ir.
Nú eru miklir Dario Fo tímar
á Islandi og skyldi engum undra.
Alþýðuleikhúsið sýnir Við borg-
um ekki! Menntaskólinn á
Laugarvatni kemur í heimsókn
með Lík til sölu og Nakinn mann
og annan í kjólfötum. Dario Fo
semur ærslaleiki með alvarleg-
um undirtónum, verk hans eru
jafn ítölsk og hugsast getur, en
jafnframt höfða þau til allra.
Dario Fo er gott skáld og mikill
leikhúsmaður. Þess vegna fara
verk hans sigurför um allan
heim. Alls staðar virðist hann
leikinn og alltaf við jafn miklar
vinsældir.
Sigrún Björnsdóttir hefur af
atorku og hugkvæmni stjórnað
sýningu Menntaskólans að
Laugarvatni á tveim fyrrnefnd-
um leikritum Fos. Hún hefur
áður sýnt að henni lætur vel að
leiðbeina óreyndum leikurum og
fá þá til að tjá sig af lífi og sál.
Ég hef í huga Túskildingsóperu
Brechts frá í fyrra. Það eru
margir. efnilegir leikarar sem
koma fram að þessu sinni.
Naumast verður gert upp á milli
þeirra. Þeir stóðu sig allir með
prýði sé miðað við að hér eru
áhugaleikarar á ferð. I Líki til
sölu léku Ari Páll Kristinsson,
Kristþór Gunnarsson, Jóhann
Emilsson, Halldóra Friðjóns-
dóttir og Skúli Sveinsson. Leik-
arasveit Nakins manns og ann-
ars í kjólfötum skipuðu
Lelklist
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
Eymundur Sigurðsson, Sigurður
Tómas Magnússon, Lovísa Óla-
dóttir, Sigrún Harpa Háfsteins-
dóttir, Reynir Sævarsson,
Jóhann Emilsson og Ómar Berg
Ásbergsson. Gervi leikaranna
var vel heppnað.
Að glíma við Dario Fo er
verðugt verkefni fyrir unga leik-
ara. Leikrit hans eru vel fallin
til þess að skýra fyrir fólki
lögmál leikhússins. Þau eru
engar ræður sem villst hafa upp
á svið. í Líki til sölu er með
kostulegum hætti fjallað um
svik og pretti, svindl í spilum og
annan prakkaraskap. Nakinn
maður og annar í kjólfötum
leiðir hugann að því hvað grein-
ir menn í sundur og hvernig
ytra prjál stækkar þá í augum
fjöldans. Það er spurt margra
spurninga í þessum verkum og
ýmsum svarað. En mestu ræður
gáski og spé. Niðurstöðu verk-
anna geta áhorfendur svo túlkað
eftir sínu höfði þótt ljóst sé að
Dario Fo er málsvari hinna
einföldu Og hjartahreinu.
í leikskrá eru ólafi Ketilssyni
færðar þakkir fyrir afnot af
verkstæði hans. Ólafur kemur
víða við og er ánægjulegt að
hann skuli nú vera farinn að
leggja leiklistinni lið.
Lík til sölu. Frá vinstri: Kristþór Gunnarsson, Ari
Páll Kristinsson og Jóhann Emilsson í hlutverkum sín-
um.