Morgunblaðið - 04.03.1979, Side 21

Morgunblaðið - 04.03.1979, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MARZ 1979 21 Þetta gerdist líka .... Guðsmaður slær í gegn I fyrsta skipti í mörg ár var fullt út úr dyrum þegar hinn 61 árs gamli séra Kenneth Flenley í Bradfordí Englandi messaði á dögunum. Ekki er þó alveg víst að blessaður klerkurinn hafi beinlínis viknað yfir hinni nývöknuðu trúrækni sóknarbarna sinna. Kynni að hafa hvarflað að honum þar sem hann stóð í stólnum og horfði yfir hjörðina að einmitt daginn áður hafði hann neyðst til að játa opinberlega að hann hefði um árabil haldið fram hjá konunni sinni. Hið valta veraldargengi Ekki batnar byrinn fyrir fyrrum íranskeisara, því að nú er smáfólkið sem fylgdi honum í útlegðina farið að þyrpast undan merkjum. Sautján úr fylgdarliði keisarafjölskyldunnar tóku saman pjönkur sínar og kvöddu í næstliðinni viku og tóku í þokkabót traustataki hina forláta Boeing-þotu hátignarinnar til þess að komast aftur heim til föðurlandsins. Hér voru á ferðinni fjórir af áhöfn flugvélarinnar, níu úr lífverði hins fallna þjóðhöfðingja og fernt úr þjónustuliðinu. Lífverðirnir segja flestir að keisarinn hafi vitað að þeir voru að yfirgefa hann og gert hvað hann gat — og verið nánast klökkur — til þess að teija þeim hughvarf; en þotuna játa þeir samt að hafa tekið í heimildarleysi og notað það sem yfirvarp að hún þyrfti í reynsluflug. Samkvæmt sömu heimild þynnist nú óðfluga flokkurinn sem heldur tryggð við keisarahjónin í bágindum þeirra; það væru þá helst „hundarnir þeirra tveir“, eins og talsmaður hinna nýju valdhafa í Teheran orðaði það svo illkvittnislega á dögunum. Aftur á móti kvað þeirra vera vel gætt í Marokko þar sem hundruð þarlendra hermanna vaka yfir því að þau verði ekki hrifsuð burt með valdi til þess að standa fyrir máli sínu fyrir „byltingardómurum" hins miskunnarlausa Khomeinis. (Sjá ennfremur „Stórlaxar bíða skuldadaga" hér í opnunni). AugaiuU missti augað Barbara nokkurHansen, sem er framreiðslustúlka í Morristown í New Jersey og varð fyrir þeirri ógæfu að missa annað augað í ölæði, hefur fengið sér dæmdar nær 27 milljónir króna í bætur frá eigendum knæpu þeirrar þar sem hún fullyrðir að hún hafi óátalið fengið að hvolfa í sig allt að 25 „sjússum" af Amaretto-líkjör. Hin 39 ára gamla Hansen bar fyrir réttinum að hún hefði hnotið og stungist á hlaupið á loftbyssu þegar hún lenti í háarifrildi við eiginmanninn eftir að hafa einhvernveginn haft það af að klóra sig heim. Kviðdómurinn komst að þeirri niðurstöðu að forstöðumenn knæpunnar hefðu borið ábyrgð á því hvernig frúin var á sig komin þegar slysið varð og dæmdu henni fyrr- greinda upphæð fyrir augnmissinn. Að auki fékk bóndi hennar sem svarar 3.200.000 króna fyrir spjöllin á makanum. Sjón er sögu ríkari Austurríski nasistaveiðarinn Simon Wiesentahl (myndin) upplýsti í síðastliðinni viku að hann hefði móttekið 30.000 bréf og upphringingar frá Vestur-Þýskalandi síðan Holo- caust, bandaríska sjónvarps- myndin um þjóöarmorðið á Gyðingum, var sýnd þar í landi. Allt þóttist þetta fólk búa yfir vitneskju um stríðs- glæpamenn og ódæðisverk þeirra. Wiesentahl, sem nú stendur á sjötugu, segist fyrir vikið hafa komist yfir meiri gögn um stríðsglæpi á örfáum vikum en með sleitulausri vinnu síðastliðinna tveggja ára. (Sjá lika „Hörmungar" hér í opnunni). Sitt lítið afhverju Hætt við að kínverskur almenningur drekki sér ekki beinlínis í Coca-Cola. Nú er sú stund að vísu loks runnin upp að hinn bandaríski þjóðardrykkur sé á boðstólum í Kína — en enn sem komið er sam einungis í einu einasta hóteli í Peking og er þar að auki því aðeins falt að kaupandinn greiði fyrir hnossið í frönkum eða dollurum ... Ónafngreind illgresistegund, sem bandarískir táningar eru byrjaðir að nota sem vímugjafa, getur valdið svo hroðalegum ofsjónum að þess eru jafnvel dæmi að neytendur hafni sturlaðir á sjúkrahúsi, veinandi að hákarlar séu á hælunum á þeim, albúnir að gleypa þá. Guardian, sem birtir fréttina, segir að stjórnvöld á Bretlandseyjum hafi af þessu nokkrar áhyggjur. Hin skæða jurt vex semsagt líka þar. ... Breska flugmálastjórnin tilkynnti fyir skemmstu að „talandi tölva“ yrði senn tekin í notkun á Heathrow flugvelli til þess að gefa flugstjórum upplýsingar um veðrið. Tölvan mun taka við veðurfregnum á hálftíma fresti og verða til viðtals um þær allan sólarhringinn á fjórum bylgjulengd- um. ... Henning Viljoen heitir 32 ára gamall náungi í Pretoríu í Kanada, sem var fyrir skemmstu dreginn fyrir rétt fyrir að misþyrma konunni sinni á all nýstárlegan hátt satt best að segja. Hann gaf henni á’ann og sparkaði í hana — og fleygði að svo búnu í hana nærtæku apagreyi sem var gæludýr þeirra hjóna. Dómarinn hótaði Viljoen að senda hann í tukthúsið ef hann hætti ekki þessum apalátum, enda bætti aumingja dýrið gráu á svart með því að bíta skotmarkið. ... Finlux LITSJÓNVARPSTÆKI Verö 20,, kr. 415.000.- 22„ kr. 476.000.- 26„ kr. 525.000.- SJÓNVARPSBÚÐIN BORGARTÚNI 18 REYKJAVÍK SlMI 27099 Stórkostleg fjolskylda KENWOOD heimilistæki bjóóa upp á ótrúlega fjölbreytni í framleióslu, sem öll hefur þaó sameiginlegt, aó þar fara saman fullkomin gæói, fallegt útlit og mjög hagkvæmt veró. , THORN KENWOOD Hrærivélar Blenderar Rafhiöóu- þeytarar Eldavélar Kæliskápar Gufugleypar Frystiskápar Kaffivélar Frystikistur Strauvélar Þurrkarar HEKLA HR LAUGAVEG1170-172 — SÍMAR 21240-11687

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.