Morgunblaðið - 06.03.1979, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. MARZ 1979
5
Oskar frekari könnunar á
tillögu EyjólfsKonráds
Búnaðarþmg:
— um beinar greiðslur til bænda
Þessa mynd tók Sigurgeir í Eyjum af Árna Magnússyni
skipstjóra og Benedikt Heiðdal Þorbjörnssyni háseta. en þeir
komust af er vélbáturinn Ver frá Vestmannaeyjum fórst í s.l.
viku við Eyjar. Þeir eru nú á batavegi eftir hrakningana í
sjónum.
Messufall vegna ófærðar
BÚNAÐARÞING sam-
þykkti á fundi sínum í gær,
mánudag, ályktun þar sem
segir að enn liggi ekki
fyrir nægar upplýsingar til
þess, að unnt sé að taka
efnislega afstöðu til þeirra
hugmynda, sem felist í til-
lögu Eyjólfs Konráðs Jóns-
sonar, alþingismanns, um
að hluti niðurgreiðslna og
útflutningsbóta verði
greiddur beint til bænda en
óskar eftir því við stjórn
Færeysku loðnu-
skipin farin
Færeysku loðnuveiðiskipin eru
nú hætt veiðum á íslandsmiðum
þar sem þau hafa veitt upp í kvóta
samkvæmt samningum, 15 þús.
tonn, en þess má geta að veiði-
samningurinn hefur ekki verið
staðfestur á Alþingi ennþá. ■
Stéttarsambands bænda að
hún láti fara fram frekari
könnun á málinu. Var þessi
ályktun samþykkt með 24
atkvæðum.
Tillaga Eyjólfs Konráðs kom
fyrir Búnaðarþing frá land-
búnaðarnefnd neðri deildar en sú
nefnd hefur nú til meðferðar
frumvarp til laga um breytingu á
lögum um framleiðsluráð land-
búnaðarins, sem landbúnaðarráð-
herra hefur lagt fram. Eyjólfur
hefur í nefndinni lagt fram tillögu
um að í stað frum'varpsins verði
ákveðið, að hluti niðurgreiðslna og
útflutningsbóta verði greiddur
beint til bænda.
Hér fer á eftir ályktun Búnaðar-
þings ásamt greinargerð, sem
henni fylgdi frá framleiðslunefnd
þingsins:
„Búnaðarþing telur, að enn liggi
ekki fyrir nægar upplýsingar til
þess, að unnt sé að taka efnislega
afstöðu til þeirra hugmynda, sem í
tillögunni felast, en óskar eftir því
við stjórn Stéttarsambands
bænda, að hún láti fara fram
frekari könnun á málinu."
Greinargerð
„Ýmsir hafa leitt hugann að því,
hvort það fjármagn, sem hið opin-
bera ver til niðurgreiðslna og
útflutningsbóta búvara, kynni að
nýtast betur í öðru formi en því
sem beitt hefur verið. Hér er um
háar fjárhæðir aö ræða og full
ástæða til þess að gaumgæfa vel
alla möguleika um hagkvæmari
notkun þess fyrir landbúnaðinn og
þjóðarheildina.
Ljóst er, að hugmyndin um að
greiða hluta framleiðsluverðs
beint til bænda með þessu móti
krefst ýtarlegrar skoðunar á
mörgum þáttum framleiðslu- og
sölukerfisins.
M.a. munu hugmyndir Eyjólfs
Konráðs Jónssonar vera í frum-
athugun hjá Stéttarsambandi
bænda og því ekki tímabært fyrir
Búnaðarþing að taka endanlega
afstöðu til málsins."
Seljatungu. mánudag.
HÉR setti niður gríðarlega mikinn
snjó aðfaranótt föstudagsins og enn
bætti á sunnudagsnóttina. Vegir hér í
nágrenninu eru víða ófærir.
Guðsþjónustu varð að fella niður hér í
kirkju sveitarinnar, Gaulverjabæjar-
kirkju á sunnudaginn. Presturinn
komst ekki frá Eyrarbakka til kirkju
sinnar. Brunagaddur var hér á sunnu-
dagskvöldið og í morgun var hér 20
stiga frost. Þega kóm fram á daginn
tók að draga úr því, en um leið færðist
veðrið í aukana og var hér komið
hvassviðri af norðaustan með miklum
skafrenningi nokkru fyrir hádegið og
var skyggni knapplega meira en um
100 metra í verstu bylgjunum. Um
nónbil hafði dregið verulega úr veður-
hæðinni og frosti og var þá komið
niður í 8 stig. Þrátt fyrir þessa
norðangusu tókst mjólkurbílunum
nokkurn veginn að halda sinni dag-
legu áætlun milli bæja hér í sveitinni.
— Gunnar.
"
hitet (tfúwil
Mest seldu sjónvörp á íslandi.
Hvers vegna? — v
Það hefur sýnt sig að íslendingar eru vandlátir, vanda valið og velja NordMende.
Okkur er þaö ánægja aö kynna yöur árgerö 1979. Sjaldan hefur tæknin þjónaö manninum jafn
dyggilega. Ein mesta byltingin á ájigerö 1979 er nýr myndlampi PIL (precicion in-line) sjálfvirk
samhæfing á lit, sem gefur miklu skarpari mynd en áður þekktist, jafnvel þó bjart sé inni.
(nordMende)
V-Þýzk gæöavara.
V^BUOIN
Skipholti 19, sími 29800.
^222211
979
Sertilboð frá 1. til 10. marz
.r
Nu geta
allir eignast
vönduö
litsjónvörp.
eftirstöóvar
. ........ ■ "»■—*—....‘i
Dæmi 22“ kr. 555.265 — Útb. 194.343 og eftirstöðvar ca. 60 þús. á mánuði.