Morgunblaðið - 06.03.1979, Blaðsíða 48
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. MARZ 1979
Liverpool slapp
meó skrekkinn
\
!
i
!
Blackburn 26
ÞAÐ eru ýmsar sviptingar í
ensku knattspyrnunni þessar
vikurnar bæði á toppi sem á
botni, þannig náði Liverpool
aðeins jafntefli gegn einu af
botnliðunum Chelsea, sem
tefldi fram júgóslavneskum
landsliðsmarkverði, nýkeupt-
um frá Partizan Belgrad. í
slökum leik var lið Liverpool
hcppið að sleppa heim með eitt
stig. Arsenal tapaði mjög
óvænt fyrir Southampton og
þrátt fyrir sigra, voru Everton
og WBA ekkert líkt því eins
góð og þegar best lætur. Þá
urðu óvænt ekki síður en
ósanngjörn úrslit í nokkrum
leikjum botnliðanna. Úlfarnir
töpuðu mjög óvænt á heima-
velli fyrir öðru botnliði,
Middlesbrough. Þá tapaði
Birmingham tólfta leiknum í
vetur með einu marki, er ná-
grannaliðið skoraði úr eina
færinu sem það fékk.
Heppni Liverpool
Peter Borota, 27 ára gamall
markvörður frá júgóslavneska
liðinu Partizan Belgrad, lék sinn
fyrsta leik fyrir Chelsea gegn
Liverpool. Sýndi hann framúr-
skarandi góðan leik þegar á
reyndi. Sem var að vísu ekki oft,
því að þetta var einn af daufari
dögum Liverpool og tvívegis
slapp liðið naumlega fyrir horn,
þegar Tommy Langley slapp í
gegnum óörugga vörn liðsins.
En hann skaut í stöng í bæði
skiptin. Stærsta stund Borota í
leiknum kom þegar hann varði
snilldarlega frá Kenni Dalglish í
fyrri hálfleik.
Skuggarnir stóðu
sig misjafnlega
Þau lið sem fylgja Liverpool
hvað ákafast gerðu það ýmist
gott eða slæmt um helgina.
1. DEILD
Liverpool 26 19 4 3 58 10 42
Everton 28 14 10 4 39 24 38
West Brom. 25 15 6 4 52 25 36
Arsenal 28 14 8 6 45 25 36
Leeds United 29 13 10 6 53 35 36
Notth. Forest 24 10 12 2 28 16 32
Man. Utd 27 12 7 8 40 43 31
Southampton 28 10 9 9 34 32 29
Tottenham 28 10 9 9 31 43 29
Bristol City 30 10 8 12 35 37 28
Aston Villa 24 8 11 5 29 21 27
Ipswich 28 11 5 12 36 35 27
Coventry 27 10 7 10 34 46 27
Manchester C. 28 8 10 10 40 36 26
Norwich City 27 5 16 6 38 43 26
Derby County 27 8 6 13 29 47 22
Middlesbr. 26 7 6 13 35 37 20
Bolton 25 7 6 12 32 44 20
Wolverhamp. 27 8 3 16 26 49 19
QPR 28 4 10 14 25 42 18
Chelsea 27 4 7 16 29 56 15
Birmingham 27 3 4 20 22 44 10
2. DEILD
Stoke City 29 13 12 4 40 24 38
Brighton 29 16 5 8 50 28 37
Crystal Palace28 11 14 3 36 19 36
West Ham 27 14 6 7 55 29 34
Sunderland 28 12 10 6 46 35 34
Fulham 27 11 8 8 37 31 30
Notts County 27 9 11 7 36 44 29
Charlton 27 10 8 9 45 42 28
Orlent 28 11 6 11 36 33 28
Newcastle 27 11 5 11 31 34 27
Bristol Rover8 27 10 7 10 38 44 27
Luton 28 10 6 12 45 38 26
Preston 27 8 10 9 41 43 26
Cambridge 27 7 12 8 32 34 26
Burnley 25 9 7 9 37 40 25
Leicester 28 7 11 10 30 33 25
Wrexham 23 8 7 8 29 23 23
Cardiff 26 8 5 13 32 54 21
Sheffield Utd 26 6 8 12 31 42 20
Oldham 25 6 8 11 29 44 20
Millwall 25 5 5 15 21 39 15
Blackburn 26 3 9 14 26 50 15
• Osvaldo Ardiles í argentínska iandliðsbúningnum. Þessi smávaxni Argentínumaður hefur unnið
hug og hjörtu
laugardaginn.
breskra knattspyrnuáhangenda í vetur og hann skoraði sín fyrstu mörk á
Everton vann sigur, 2—1, á
QPR, en sýndi framur botnliða-
takta heldur en toppliðatakta.
Það var fyrir einskæra gjaf-
mildi markvarðar Rangers,
Richardsons, sem Bob Latchford
og síðar George Telfer skoruðu í
fyrri hálfleik. í þeim síðari var
það QPR sem hafði frumkvæðið
í leiknum, einkum eftir að Paul
Goddard hafði minnkað muninn
með marki nærri miðjum hálf-
leik.
WBA var einnig nokkuð fjarri
sínu besta þrátt fyrir öruggan
sigur sinn gegn Coventry. David
Mills lék sinn fyrsta heila leik
síðan hann var keyptur frá
Middlesbrough fyrir feiknaupp-
hæð. Og kappinn skoraði þriðja
mark WBA. Brian Robson skor-
aði fyrst í fyrri hálfleik og var
staðan þannig í leikhléi. I síðari
hálfleik bætti Ally Brown öðru
marki við og loks Mills eins og
fyrr segir. Gary Thompson skor-
aði eina mark heimaliðsins með
glæsilegum skalla.
Arsenal tapaði heldur betur
óvænt fyrir Southampton, sem
farið hefur geysilega fram á
undanförnum vikum. Það var
enginn annar en Alan Ball, sem
að Arsenal taldi vera útbrunn-
inn fyrir fáum árum, sem lagði
grunninn að öruggum sigri
heimaliðsins. Ball var allt í öllu
hjá Southampton og frægu
nöfnin hjá Arsenal komust ekki
með tærnar þar sem hann hafði
hælana í skónum. Mörkin tvö
hjá Southampton komu með
stuttu millibili, á 13. og 16.
mínútu. Austin Hayers og
Malcolm Waldron sáu um að
skora.
Leeds kastaði einnig frá sér
góðum möguleika á að draga á
efstu liðin með því að gera
jafntefli við jafntefliskóngana
frá Norwich. Leikmenn Leeds
virtust þreyttir, utan nýja
mannsins Kevin Hird, sem átti
stórleik. Hawley skoraði þó á 20.
minútu og náði forýstumarki.
Snemma í síðari hálfleik jafnaði
Kevin Bond og skömmu siðar
bætti blökkumaðurinn ungi
Justin Fashanu um betur með
því að skora sitt fyrsta mark
fyrir Norwich og annað mark
liðsins í leiknum. John Hawley
bjargaði síðan andliti Leeds með
því að skora um miðjan hálfleik-
inn og jafna leikinn.
Lítið sást til
nýju snillinganna
Trevor Francis lék sinn fyrsta
leik með Nottingham Forest
kom inn í stað Tony Woodcock
eins og reiknað hafði verið með.
En Francis gerði fáa hluti fall-
ega og sást lítið í leiknum eins
og hinn nýi snillingur hjá Ips-
wich, Hollendingurinn Franz
Thyssen, sem þarna lék sinn
fyrsta leik. Bæði mörkin í leikn-
um komu eftir gróf varnarmis-
tök, Gari Birtles skoraði fyrst,
1—0 fyrir Forest en síðan jafn-
aði Alan Brazil fyrir Ipswich,
fyrsta deildarmark hans fyrir
liðið.
Man. Utd skríður
upp töfluna
Hið stórfurðulega lið Man-
chester Utd kemur enn á óvart,
nú orðið fyrir góða leiki, fyrir
skömmu fyrir lélega leiki og þar
áður fyrir misjafna leiki. Lið
MU, ásamt Tottenham og hugs-
anlega einu eða tveimur öðrum,
eru helsti höfuðverkur tippara.
Það stefndi í öruggan sigur
Bristol þegar staðan var eitt
núll í hálfleik með marki Gerry
Gow. En í síðari hálfleik yfir-
spilaði MU Bristol-liðið og hefði
auðvéldlega getað skorað fleiri
mörk en tvö ef hepppni hefði
verið með. En svo var eigi og tvö
urðu að nægja. Andy Ritchie
jafnaði og sigurmarkið skoraði
Gordon McQueen á 76. mínútu.
Loks skoraði Ardiles
Það er engum blöðum um það
að fletta, að Argentínumaður-
inn Osvaldo Ardiles hefur verið
einn skemmtilegasti leikmaður
ensku knattspyrnunnar í vetur.
En til þessa hafði hann gert
nánast allt á knattspyrnuvellin-
um nema skora. Hann bætti það
upp með því að skora ekki bara
eitt, heldur tvö glæsimörk gegn
lélegu liði Derby. Vörn Derby
var afar hrörleg og leikmenn
Tottenham fengu aragrúa góðra
marktækifæra sem ekki nýttust.
Bæði mörk Ardiles voru perlur,
þrumusnúningsskot af 20 metra
færi, bæði mjög svipuð.
Afleitt gengi
botnliðanna
Leikmenn Birmingham höfðu
ærna ástæðu til að ganga niður-
lútir af leikvelli eftir að Aston
Villa hafði unnið 1—0. Þegar lið
er í botnbaráttu, er það alkunna,
að ekkert tekst sem reynt er.
Birmingham var mun sterkara
liðið á laugardaginn, a.m.k. átti
liðið skilið jafntefli, þar sem
leikmenn Villa fengu i raun
aðeins eitt færi í leiknum. Það
var Gordon Cowans sem færið
fékk og hann skoraði eina mark
leiksins. Var það í síðari hálf-
leik. Þetta er fjórtándi leikurinn
hjá Birmingham í vetur sem
tapast með einu marki.
John Richards er kominn á
fleygiferð í Úlfaliðinu og hann
skoraði annað mark sitt í tveim
leikjum, þegar Úlfarnir náðu
forystunni gegn Middlesbrough,
öðru botnliði. Billy Ashcroft
tókst að jafna fyrir Boro nokkru
fyrir leikhlé. I síðari hálfleik
hafði Boro mjög óvænta yfir-
burði og þeir Tony McAndrew
og David Shearer tryggðu liðinu
sigur með mörkum sínum.
Staða Bolton nærri botninum
breyttist ekki til hins betra við
enn eitt tapið, nú gegn Man-
chester City, sem þar vann sinn
fyrsta-leik á heimavelli síðan 14.
október. Mick Channon og Gary
Owen (víti) skoruðu inörk City,
en Frank Worthington skoraði
eina mark Bolton skömmu fyrir
leikslok.
Hamagangur á
toppi 2. deildar
Það fer lítið fyrir eftirgjöf hjá
efstu liðunum í 2. deild. Stoke,
Brighton, Crystal Palace og
Sunderland unnu öll leiki sína,
West Ham tapaði. Mike Doyle
og Paul Randall skoruðu mörk
Stoke gegn West Ham sem lék
mun betur þrátt fyrir tap. Brian
Horton (víti) og Mark Lawren-
son tryggðu Brithton sigur gegn
Burnley og eina mark Palace
gegn Wrexham skoraði Walsh.
Wayne Entwhistle skoraði sig-
urmark Sunderland gegn Mill-
wall.
Knatt
spyrnu-
urslit
ENGLAND 1. dclld.
Aston VIHa — Birmingham 1—0
Bristol C — Manchester Utd 1—2
Chelsea — Liverpool 0—0
Coventry — WBA 1—3
Everton — QPR 2—1
Ipswich — Nottingham Forest 1 — 1
Leeds — Norwich 2—2
Manehcster City — Bolton 2—1
Southampton — Arsenal 2—0
Tottenham — Derby 2—0
Wolves — Middlesbrough 1—3
ENGLAND, 2. deild:
Hrighton — Burnley 2—1
Crystal Palace — Wrexham 1-0
Leicester — Cardiíí 1—2
Millwall — Sunderland 0—1
Newcastle — Charlton 5—3
Notts County — Luton 3—1
Oldham - Sheííield lltd 1-1
Orient — Bristol Rovers 1 — 1
Preston — Fulham 2—2
Stoke — West Ham 2—0
ENGLAND. 3. deild:
Bury - Exeter * 4—2
Chester — Oxford 4 — 1
Gillingham — Peterbrough 1—0
Mansfield — Blackpool 1 — 1
Plymouth — Walsall 1—0
Rotherham — Carlisle 1 —3
Sheffield Wed. — Shrewsbury 0—0
Swindon — Lincoln 6—0
Tranmere — Brentford 1 —0
Watford — Chesterfield 2—0
ENGLAND. 4. deild:
Aldershot — Hereford 2—0
Bradford — Scunthorpe 1 — 1
Darlington — Rochdale 0—2
Grimsby — Bournemouth 1—0
Halifax — Portsmouth 2—0
Hartlepool — Crewe 2—2
Newport — Doncaster 3—0
Wigan — Barnsiey 1 — 1
Wimbledon — Huddersfield 2—1
York — Reading 0—1
SKOTLAND, BIKARK.:
Dundee — St. Mirren 4—1
nearts — Morton 1 — 1
SKOTLAND,
ÚRVALSDEILD: * ,
Hibs — Dundee Utd 1—0
Partick — Motherwell 0—0
Celtic — Aberdeen 1—0
St Mirren heíur forystuna í úrvals-
deildinni með 25 stig eftír 22 leiki.
Aberdeen og Rangers hafa hins vegar 24
stig, Aberdeen að loknum 23 leikium og
Rangers aA loknum 21 leik. Það sýnir
best hve jöfn skoska deildin er, að Celtic
er f þriðja neðsta sætinu með 21 stíg.
HOLLAND:
Nac Breda — Pec Zvolle 1 — 1
Tvente — Utrecht 2—2
Roda JC — Nec Nijmegen 3—1
Feyenoord — Sparta Rotterdam 4—1
\
Loks rofaði ti) í snjónum í Hollandi og
þá tókst að Ijúka fáeinum leikjum.
Pétur Pétursson var maðurinn að baki
stórsigurs Feyenoord gegn nágrannaiið-
inu Spörtu að sögn fréttaskeyta. Lagði
Pétur upp tvö fyrstu mörkin sem |>elr
Wim Van Till og Jan Peters skoruðu.
Rene Notten og Wira Jánsen bættu
mörkum við. en Sparta svaraði með
marki Wout Volverda. Að sögn frétta-
skeytis AP gerði Pétur hvað eftir annað
geysilegan usla i vörn Spörtu. Theo De
Jong og Andre BrÖks (2) skoruðu mörk
Roda gegn Nijmenen, sem svaraði ein-
ungis með marki Jan Hoogendoorn.
Tvente lék án norska útherjans Hall-
var Thoresens og Franz Thyssen. sem
nýlega var seldur til Ipswich. Enda var
liðið ósannfærandi gegn Utrecht og var
tapi ncerri. Það var á sfðustu stundu sem
Niels Overweg jafnaöi fyrir Tvente.
Aður höfðu þeir Leo Van Neen og Ton
De Kruik skorað fyrir Utrecht og Ab
Gritter fyrir Tvente.
Roda hefur nú tveggja stiga forystu í
deildinni, hefur 28 stig eftir 18 leiki.
Ajax hefur 26 stig eftir 17 leiki. PSV og
Feyenoord hafa b»ði 23 stig, PSV eftir
16 leiki. Feyenoord eftir 17 ieiki.
iTALlA:
Ascoli — Veron* 1—0
Atlanta — Napólf 2—1
Avellnno — Peruirfa 0—1
Kiorentlna - AC Mllanó 2-3
Intor — Torino 0—0
Juventna — Boloicnia I —1
ljmerosHÍ — Lazio 4 — 1
Koma — Catanzarro 1—3
AC Milano hetur nú 32 stig. Perugia
hefur 2fT Hti« ok er enn óslirraó. Torlno
hefur 27 atlg f þriója a«eti. Inter hefur 26
sti* og Juventua hefur 25 stig.
BELGÍA:
Siandard - Anderleeht 1—0
FC Bruxge — La Louviere 2—1
Courtrai — Lokeren 1 — 1
Lierae — Beeraehot 1—0
Molenbeek — Varegem 5—1
Charlerni — Winterslag 2—1
Beveren — Antwerp 3—1
Waterachei — Beringen 2—1
Staða Beveren veröur æ sterkari. liöió
hefur nú 6 stiga forystu í deildinnl,
Anderleeht er f »óru saeti þrátt fyrlr
tapiö gegn Standard. Beveren hefur 33
stig. Anderleeht hefur 27 stig. Lokeren
er ( 3. smtl meö 26 stig. FC Brugge og
Standard hafa einnig 26 stig. en lakara
markahlutfall en Lokeren.
i