Morgunblaðið - 25.03.1979, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1979
35
Yfir 60 höggmyndir á
almannafæri í Reykjavík
BORGARRÁÐ hefur samþykkt aö
verða við óskum sjómannadags-
ráðs að höggmyndin Þorfinnur
karlsefni. sem stendur í Tjarnar-
garði, verði flutt á lóð Dvalar-
heimilis aldraðra sjómanna,
Hrafnistu í Laugarási. Gkki tókst
að flytja myndina þangað fyrir
veturinn, segir í skýrslu Hafliða
Jónssonar garðyrkjustjóra fyrir
sl. ár um höggmyndir, en hann
hafur umsjón með þcim fyrir
Reykjavfkurborg. bá segir hann:
Sett var upp ónefnd mynd. skúlp-
túr eftir Gerði Helgadóttur í
Austurstræti, en stór mynd eftir
Hallstein Sigurðsson, sem áform-
að er að koma upp við Langholts-
skóla, bíður uppsetningar.
Skráðnr höggmyndir á almanna-
færi í Reykjavík eru nú 61 að tölu
og eru þá ekki taldar með lágmynd-
ir á húsum, eða verk sem eru
aðgengileg til skoðunar í opinber-
um byggingum, s.s. skólum, sjúkra-
borfinnur karlsefni
bíður flutnings með
vorinu á lóð Dvalar-
heimilis aldraðra sjó-
manna, Hrafnistu í
Laugarási. Ljósm. ól.K.
Mag.
húsum o.fl. stofnunum og að sjálf-
sögðu ekki myndir á húsalóðum
einstaklinga eða lóðum viðkomandi
listamanna.
Höfundar þessara höggmynda
eru alls 24. Þar af eru tveir forn-
grískir. Thorvaldsen og Tove Olafs-
son eru þar talin með hérlendum
höfundum. Langflest verkin eru
eftir Ásmund Sveinsson 16 talsins,
9 eftir Einar Jónsson, 9 eftir
Sigurjón Ólafsson, 4 eftir Ríkharð
Jónsson, 3 eftir Bertel Thorvald-
sen, 2 eftir Ólöfu Pálsdóttur, en ein
mynd eftir aðra höfunda.
Af höggmyndunum er 41 í eigu
Reykjavíkurborgar, 8 í eigu ríkis-
ins, 2 í eigu Háskólans, 2 í eigu
Dómkirkjunnar, 2 í eigu Kirkju-
garða Reykjavíkur, 2 í eigu
Menntaskólans í ReykjaVík og 4 í
einkaeign fyrirtækja og stofnana.
Aðeins þrjár myndir eru eftir
útlenda höfunda, Leifsstytta
Calders, Pomona Joh. C.Bjergs og
Berlínarbjörninn eftir ókunnan
þýskan myndhöggvara.
Ein höggmynd var sett
upp í borginni á sl. ári.
Skúlptúr eftir Gerði
Helgadóttur í Austur-
stræti.
Þetta gerdist
25. marz
1976 — Feisal konungur
Saudi-Arabíu ráðinn af dögum
og Khaled tekur við.
1969 — Ayub Khan forseti færir
hernum völdin í hendur Pakist-
an.
1966 — Fimm fjallgöngumenn
klífa Eigertind, Sviss, fyrstir
manna.
1957 — Efnahagsbandalag Ev-
rópu stofnað með Rómar-sátt-
málanum.
1941 — Júgóslavía gengur í
Öxulbandalagið.
1936 — Bandaríkin, Bretland og
Frakkland undirrita flotasamn-
inginn í London.
1883 — Uppreisn á Haiti.
1826 — Brazilía fær stjórnar-
skrá og þingbundna konungs-
stjórn.
1821 — Tólf ára uppreisn gegn
Tyrkjum hefst í Grikklandi
(lauk með sjálfstæði).
1815 — Nýtt bandalag stofnað
gegn Napoleon.
1634 — Brezkir landnemar und-
ir forystu Baltimore lávarðar
koma til Maine.
Afmæli: Arturo Toscanini,
italskættaður hljómsveitar-
stjóri (1867-1957) - Hinrik II
Englandskonungur (1133—1189)
— Jóakim Murar, konungur
Napoli (1767-1815) - Anne
Bronté, ensk skáldkona
(1820-1849) - Bela Bartok,
ungverskt tónskáld
(1881-1945).
Andlát: Garnet Wolseley, her-
maður, 1913 — Claude Debussy,
tónskáld, 1918.
Innlent: Þjóðverjar stækka
'hafnbannsvæðið og segja að
ísland sé „komið á ófriðarsvæð-
ið“ 1941 - Kristján III boðar
biskupana Jón Arason og Gissur
Einarsson á sinn fund 1542 — d.
Bogi Benediktsson á Staðarfelli
1849 — Róðraskip úr Landeyj-
um ferst með 15 manna áhöfn
1893 — d. Geir Zoéga 1917 —
„Novu“-deilan leyst 1933 —
Bandarísk herþota hrapar við
Fellsmúla 1968 — Skeiðarár-
hlaup sjatnar 1972 — f. Sigurð-
ur Ágústsson alþm. 1897.
Orð dagsins: Af orðum má hafa
mikið gagn til þess að fela
hugsanir okkar — Voltaire,
franskur rithöfundur
(1694-1778).
Þetta geróist________________26. marz
1978 Belgíska iðnrekandanum
Empain barón sleppt heilum á
húfi nálægt París tveimur mán-
uðum eftir að honum var rænt.
1977 — Kínverskir kommúnist-
ar aflétta banni við tónlist
Beethovens.
1976 — Nýr herstöðvasamning-
ur Bandaríkjamanna og Tyrkja.
1972 — Nýr varnarsamningur
Bretlands og Möltu.
1971 — Awami-bandalagið
bannað i Pakistan.
1%2 — Hvíslherferð í Kína
gegn Krúsjeff og öðrum ieiðtog-
um Rússa.
1960 — Jones Salk segir frá lyfi
sínu gegn lömunarveiki.
1933 — Ný stjórnarskrá í Portu-
gal.
1918 — Foch marskálkur skip-
aður yfirmaður herja Banda-
manna.
1917 — Fyrri orrustan um
Gaza.
1913 — Búlgarar taka
Adríanópel af Tyrkjum.
1895 — Japanir taka Fiski-
mannaeyjar á Formósusundi.
1871 — Parísarkommúnan
formlega stofnuð.
1854 - Karl III, hertogi af
Parma, myrtur.
1820 — Einstaklingsfrelsi tak-
markað í Frakklandi.
1495 — Maximilan keisari skor-
ar á þýzka prinsa á
Worms-þinginu að stöðva sókn
Frakka á Ítalíu.
Afmæli: Robert Frost, banda-
riskt skáld (1874-1965) -
Willam C. Westmoreland,
bandarískur hershöfðingi (1914
— —) — Tennessee Williams,
bandariskur leikritahöfundur
(1914— —) — A.E. Housman,
enskt skáld (1859—1936).
Andlát: Ludwig van Beethoven,
tónskáld, 1827 — Walt .
Whitman, skáld, 1892 — Cecil
Rhodes, stjórnmálaleiðtogi, 1902
— Sara Bernhardt, leikkona,
1923 — David Lloyd George,
stjórnmálaleiðtogi, 1945 —
Edouard Herriot, stjórnmála-
leiðtogi, 1957 — Noel Coward,
leikritaskáld, 1973.
Innlent: d. Siguröud konungur
Jórsalafari 1130 — „íslending-
ur/ hefur göngu sína 1860 —
Mesti afladagur í sögu Vest-
mannaeyja 1960 — Eldflaugar
úr þotu sem fórst leitað 1968 —
TF-Vor Björns Pálssonar ferst
nálægt Langjökli og fimm týna
lífi 1973 — Húsmæður mótmæla
1973 — Samkomulag í vinnu-
deilum 1975.
Orð dagsins: Ást er eins og
mislingar — miklu verri þegar
fólk fær hana seint á ævinni —
Douglas Jerrold, enskur rithöf-
undur (1803-1857).