Morgunblaðið - 25.03.1979, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1979
63
fclk í
fréttum
+ í SHANGHAI er þessi mynd tekin. — Fólkið er hvorki að fagna sigrum á
Víetnamvígstöðvunum eða heimta Formósu. — Þetta fólk heldur á kröfuspjöldum
fyrir utan aðalbækistöðvar byltingarstjórnarinnar og það heimtar að fá vinnu. —
Það ku standa á spjöldunum: Að biða er dauði en barátta sigur. Fremst til hægri er
kínverskur hermaður, en hann hafði verið þarna á verði og tók ekki þátt í
kröfufundi fólksins.
Allt fyr-
ir
föður-
landið
+ RÉTT áður en hann stakk
kjötbitanum á gafflinum
upp í sig, sagði hann við
nærstadda félaga sína:
Drengir það sem maður
leggur ekki á sig fyrir Bret-
land?! — Ungi maðurinn er
Karl Bretaprins. — Hann
var fyrir skömmu austur í
Hong Kong og þá heimsótti
hann frumskógastöð hers-
ins. Myndin er tekin þar á í
matarhléi, á æfingu í frum-
skóginum.
+ HNEFALEIKAHEIMSMEISTARINN Muhammed Ali (til
vinstri) er aftur kominn í fréttirnar. — Nú er verið að vinna að
því að fá hann til að verja titilinn í Buenos Aires í septembermán-
uði næstkomandi. Sá sem ætlar þá að berjast við hann (ef
samningar takast) er ítalskur hnefaleikakappi, Alfío Righetti.
Um daginn sagði Ali við blaðamenn í New York, er þeir gengu á
hann um hugsanlega hnefaleikakeppni. — „Það hefur ekkert
verið ákveðið ennþá og ekkert verður um það fullyrt á þessu
stigi.“ — Það er ítalinn Alfío Righetti, sem er til hægri. Því má
bæta við að þegar er farið að nefna f járhæð þá sem Alí ætlar að
hafa á þurru eftir keppnina en það munu vera kringum þrjár
milljónir dala.
+ FÖGNUÐUR.
Þessi mynd var
tekin þegar olíu-
útflutningur
hófst aftur frá
íran, á dögunum.
— Verkamaður
opnar fyrir olíu-
krana, en vopnað-
ir skæruliðar
skutu af herriffl-
um sínum upp í
loftið til að fagna
þessum degi.
Suomi postulínið frá Rosenthal á sér fáa líka, enda er
lögð ótrúleg vinna í framleiðslu þess. Suomi er hannað
af Timo Sarpaneva.
í raun og veru er ekkert postulín fullkomið. En Suomi er
þaö postulín, sem listamenn Rosenthal telja einna full-
komnast.
Suomi er gljáð í handavinnu. Vélar skila ekki nægilega
fínlegri vinnu. Hluti af framleislu Suomi er valin til
skreytingar með gulli og hvítagulli af heimsfrægum lista-
mönnum.
Komið og skoðið Suomi í Rosenthalverzluninni.
studio-line
Á. EINARSSON & FUNK
Laugavegi 85
Kantlímdar — smíöaplötur
(Hobby-plötur)
fyrir fagmenn og leikmenn.