Morgunblaðið - 09.06.1979, Síða 1
40 SIÐUR OG LESBOK
127. tbl. 66. árg. LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1979 _____________________Prentsmiðja Morgunblaðsins.
„Hver gengur þarna eftir Austurstræti...“
Ljósm. Kristinn.
Fundur um stöðvun
DC-10 í Strassborg
Bern, 8. júní. Reuter. AP.
STARFSMENN flugmálastjórna 13 Vestur-Evrópu-
landa koma til fundar í Strassborg á þriðjudag um
stöðvun DC-10 þotnanna að sögn svissneskra flugmála-
yfirvalda í dag.
Flugmálanefnd Evrópu í París
boðar til fundarins sem kemur í
stað fundar sem svissnesk yfirvöld
ætluðu að halda sama dag. Undir-
búningsfundur flugmálastjórna
Sviss, Frakklands, Bretlands og
Vestur-Þýzkalands fer fram í
Strassborg á mánudag. Þessi lönd
hafa sent nefnd til Bandaríkjanna
að rannsaka tæknilegar ástæður
stöðvunar DC-10.
British Caledonina áformar að
stefna bandarísku flugmálastjórn-
inni (FAA) fyrir stöðvunina. Jap-
anska flugfélagið JAL hefur til
athugunar að fara í mál til að fá
skaðabætur. Mörg önnur flugfélög
hafa harðlega gagnrýnt FAA þar
sem þau hafa orðið að fækka
ferðum eða gera róttækar breyt-
ingar á þeim í upphafi ferða-
mannatímans í Evrópu.
Framtíð flugfélags Sir Freddie
Lakers er í hættu og stöðvun sex
DC-10 þotna hans hefur í för með
sér tap að upphæð 350.000 pund á
dag. Hugmyndir Lakers um
lægstu fargjöld eru líka í hættu.
Forstjóri belgíska flugfélagsins
Sabena sagði í dag, að félag
evrópskra flugfélaga héldi líka
fund í Strassborg á mánudag um
málið. Hann sagði að Sabena
tapaði þremur milljónum dollara
ef þrjár DC-10 þotur félagsins
fengju ekki að fljúga í hálfan
mánuð.
Talsmaður MacDonnell
Douglas-fyrirtækisins sem smíð-
aði DC-10 sagði í dag að stöðvun
DC-lOhefði verið ónauðsynleg með
öllu og allt væri gert sem unnt
væri til að koma þotunum í loftið.
Einkum hefði verið óþarfi að
stöðva DC-10 30 og 40 þar sem
engar sprungur hefðu fundizt í
þeim. Atta sprungur hefðu sézt í
DC-10 en engin stafað af málm-
þreytu.
7félög
dœmdí
sektir
Washington, 8. júní. AP.
BANDARÍSKUR alríkisdómari
dæmdi í dag sjö alþjóðleg skipa-
félög og 13 framkvæmdastjóra í
sektir að upphæð 6.1 milljón doll-
ara. Starísmenn bandaríska dóms-
málaráðuneytisins segja að þetta
séu hæstu fjársektir sem hafi verið
úrskurðaðar í sakamáli samkvæmt
svonefndum Shermaniögum um
myndun auðhringa.
Bandarísk skipafélög hafa ekki
áður verið ákærð fyrir auðhringa-
myndun að sögn dómsmálaráðu-
neytisins. Félögin voru sökuð um
samsæri um að ákveða farmgjöld á
leiðum milli Bandaríkjanna og
Evrópu.
Samkvæmt ákærunni stóð þetta
samsæri yfir á árunum 1971 til 1975.
Skipafélögin sjö annast 60% frakt
flutninga á leiðinni milli Bandaríkj-
anna og Evrópu.
Framselja \
vinAmins
Nairohi, 8. júní. Reuter. AP.
Rannsóknardómari í
Nairobi fyrirskipaði í dag að
Bob Astles majór, aðstoðar-
maður Idi Amins fyrrum for-
seta, skyldi framseldur yfir-
völdum í Uganda þar sem hann
er ákærður fyrir morð.
Astles fékk leyfi dómarans til
að áfrýja til hæstaréttar. Dóm-
arinn sagði að tilskipun yfir-
valda í Uganda um handtöku
hans væri á rökum reist og
ríkisstjórn landsins hefði sýnt
fram á að ákæran væri ekki af
pólitískum toga.
Astles flúði yfir Viktoríuvatn
til Kenya 10 apríl. Hann er
ákærður fyrir að hafa myrt
fiskimann í Buyikvve,
Austur-Uganda, í fyrra.
Ritsljórar
hitta páfa
Kraká, 8. júní. Reuter. AP.
JÓHANNES Páll páfi ræddi í dag
við ritstjóra nokkurra pólskra
blaða sem hafa reynt að halda
fram sjálfstæði og kaþólska leið-
toga sem hafa átt í útistöðum við
stjórnvöld. Einn ritstjóranna
kvað fundinn mikinn siðferðileg-
an styrk þar sem við margan
vanda væri að etja.
Fimmtán mínútna töf varð á
dagskrá heimsóknarinnar meðan
páfi flaug í þyrlu yfir ýmsa gamla
staði sem hann þekkir í fjöllunum
nálægt Kraká. Páfi fór síðan í
pílagrímsferð til grafhýsis heilags
Stanislausar, píslarvotts frá 11.
öld, sem yfirvöldum er í nöp við.
Með honum var Frantisek
Tomasek kardináli . frá Tékkó-
slóvakíu.
Flóttafólk flutt heim
Banxkok, 8. júní. Reuter.
THAILENDINGAR hófust handa í dag um heimflutn-
ing þúsunda Kambódíumanna sem flúðu yfir landa-
mærin í leit að friði og mat.
Um 110 langferðabílar hafa verið sendir til búða í
Austur-Thailandi til að flytja 9—10.000 Kambódíu-
menn aftur yfir landamærin. Um 24.500 flóttamenn
eru í þessum búðum í landamærabænum
Aranyaprathet og þeir verða allir fluttir úr landi.
Starfsmenn flóttamanna-
hjálpar Thailendinga hafa
áhyggjur af afdrifum þeirra.
Flóttafólkið verður líklega sent
til fjallahéraðsins Preah Vihear
og þótt ekki sé talið að þar sé aö
finna stuðningsmenn Pol Pots
fyrrum forsætisráðherra sem
líta á flóttamennina sem föður-
landssvikara er vitað að matur
er af skornum skammti í landa-
mærahéruðunum.
Um 80.000 eða fleiri flótta-
menn dveljast í bráðabirgða-
búðum við landamærin. Nokkur
þúsund flóttamenn frá Kam-
bódíu hafa verið fluttir til
Bangkok frá öðrum löndum.
Forseti thailenzka herráðs-
ins, Saiyud Kerdphol, sagði í
dag að það væri stefna Thai-
lendinga að beita fortölum til
að fá fólk sem hefur nýlega
komið frá Kambódíu til að snúa
aftur... „Ef það vill mat og
læknishjálp látum við það í té
og hvetjum það til að fara.“