Morgunblaðið - 09.06.1979, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ1979
Gjafir til Hrafnistu í Hafnarfirði
SÍÐASTLIÐINN fimmtudag
tóku stjórnendur Hrafnistu í
Hafnarfirði við góðum gjöfum
sem heimilinu voru færðar.
Frú Guðrún Ásbjörnsdóttir
færði heimilinu vandað hjarta-
línuritstæki frá sér, börnum
sínum og tengdabörnum til
minningar um eiginmann henn-
ar Guðmur't Guðbjörnsson skip-
stjóra.
Frú Friðrikka Guðbjörg
Eyjólfsdóttir færði Heilsugæslu-
sjóði Hrafnistu peningagjöf, til
minningar um eiginmann henn-
ar Einar Helga Nikulásson sjó-
mann og Emil Jónsson fyrrver-
andi alþm. færði bókasafni
heimilisins Sjómannablaðið Vík-
ing frá byrjun. Eru blöðin inn-
fundin í vandað skinnband.
Forstöðumaður heimilisins,
Pétur Sigurðsson, tók við gjöfun-
um f.h. stjórnar heimilisins og
þakkaði þær.
Á myndinni eru talið frá
vinstri — Marinó Hafstein,
læknir heimilisins, Sigríður
Jónsdóttir forstöðukona, Guðrún
Ásbjörnsdóttir, Friðrikka G.
Eyjólfsdóttir, Emil Jónsson og
Pétur Sigurðsson.
Ferming
Ferming í HAGA Barðaströnd,
á trinitatis, 10. júní Prestur
Þórarinn Þór.
Fermd verða:
Steinunn Jóna Kristjánsdóttir,
Breiðalæk.
Gunnar Ingvi Bjarnason,
Haga.
Hjálmar Ingi Einarsson,
Ytri-Múla.
Þórður Sveinsson,
Innri-Múla.
Lítrar en
ekki tonn
SLÆM villa slæddist inn í frétt á
baksíðu í gær um olíukaup skut-
togara erlendis. Þar stóð að minni
skuttogararnir tækju oft 80 þús-
und tonn af gasoliu en átti auðvit-
að að vera 80 þúsund lítrar.
Hvad kostar að hita íbúðarhús-
Hámarksafli Belga
minnkar úr 6.500
tonnum í 5.000
Hlutfall þorsks ekki yfír 15%
BREYTINGAR hafa nú verið
gerðar á samkomulagi þvf, sem
gert var árið 1975 um veiði-
heimildir belgískra togara á til-
teknum svæðum hér við land og
skiptust utanríkisráðherra
Belgíu og sendiherra íslands í
Brussel á orðsendingum þess
efnis hinn 17. maí sl. Leyfilegur
hámarksafli Belga minnkar úr
6.500 tonnum í 5.000 tonn og
engar þorskveiðar eru heimilað-
ar.
Hlutfall þorsks í afla má ekki
fara yfir 15 prósent, sem er sama
hámarkstala og gildir í þorsk-
veiðibanni íslenskra skipa. Átta
belgískir togarar hafa nú heimild
til veiða á Islandsmiðum, en þeir
voru alls tólf við gerð samkomu-
lagsins 1975, að því er segir í frétt
frá utanríkisráðuneytinu.
1977 — Idi Amin, forseti Uganda,
hverfur.
1972 — Hörðustu loftárásir
Bandaríkjamanna á Norður-Víet-
nam í fjögur ár.
1971 — Endanlegt samkomulag
um að Bandaríkjamenn skili
Japönum Okinawa.
1967 — Nasser forseti segir af sér
eftir ósigur Egypta fyrir ísraels-
mönnum.
1940 — Norski herinn gefst upp
fyrir Þjóðverjum.
1915 — Óeirðir í Moskvu.
1908 — Játvarður VII og Nikulás
II funda í ’ jval um Makedóníu-
málið.
1896 — Réttindi Rússa í Kóreu
viðurkennd samkvæmt samningi
við Japani.
1815 — Ráðstefnunni í Vín lýkur.
1800 — Frakkar sigra Austurrík-
ismenn í orrustunni um Monte-
bello, Ítalíu.
1752 — Lið Frakka í Trichinopoly,
Indlandi, gefst upp fyrir Bretum.
1572 — Vilhjálmur af Óraníu
gerir innrás í Hollandi frá Þýzka-
landi.
1568 — Neró keisari sviptir sig
lífi.
Afmæli: George Stephenson,
Sumarkoma í Meðallandi
Dnausum íMeðallandi 8. )ún(
NÚ ER hér 19 stiga hiti og
kom sumarið með hvíta-
sunnu. Það er orðið létt
hljóðið í sumarfuglunum,
en í maí voru þeir hljóðari,
enda voru þá óvenjuleg
harðindi, þrálát norðaust-
angaddveður og bylur um
miðjan mánuð.
Víða urðu vanhöld á lömbum,
enda eru menn hér ekki vanir
slíku tíðarfari um sauðburð.
Veturinn var snjóþungur, en hey
reyndust nægileg. Þó að sumir
hefðu ekki nóg vor.u aðrir vel
birgir. Margir eru búnir að sleppa
sauðfé og almennt hlýtur fé að
verða sleppt úr þessu.
- Vilhjálmur.
næði með jaróvarma?
Gjaldskrár nýrri
hitaveitnanna
áberandi hæstar
Verðlag rafveitna úti á landi er
mjög misjafnt. Sumar eru nokkuð
lægri en Reykjavík, en aðrar mun
hærri. Kemur þar til, að sögn
Gunnars Kristinssonar, að marg-
ar nýrri hitaveitur eru að greiða
niður fjármagnskostnað, erlend
lán o.fl. Siglufjörður er með lang-
hæsta taxtann, eða kr. 71.602
hvern mínútulítra á ári að meðal-
tali 9.668.00 kr. á mánuði. í taxta
H.R. er einnig getið um mínútu-
lítrakerfið, þó það sé ekki notað,
og myndi hver mín.lítri þar kosta
kr. 31.272 á ári, eða kr. 2.606 á
mánuði. Eigandi 450 rúmmetra
húsins tæki mjög líklega þrjá og
hálfan lítra, ef hann byggi við það
kerfi.
Rúmlega 66% af heildarorku til
húshitunar á árinu 1977 var jarð-
varmi. Þeir staðir á landinu, sem
njóta í stærstum mæli jarðvarma
til húshitunar, eru Suðvesturland,
stór hluti Norðurlands og nokkur
hluti Suðurlands.
Hver ju veldur 40% verðbólga?
Bíll á 5,9 milljarða
kr. um aldamótin
HAGDEILD Vinnuveitenda-
sambands íslands hefur reikn-
að út verð á nokkrum nauðsynj-
um og vörum miðað við þá
verðþróun, að árlega sé 40%
verðbólga.
Verð á kaffi er nú 620 krónur.
Árið 1985 verður verð á sama
magni af kaffi 4.668 krónur, 1990
25.107 krónur og aldamótaárið
2000 kostar kaffipakkinn 726.240
krónur.
Verð á mjólkurlítra er 152
krónur. Árið 1985 kostar lítrinn
1.145 krónur, árið 1990 6.155
krónur og aldamótaárið 2000
kostar lítrinn 178.048 krónur.
Bíll, sem kostar 5 milljónir
króna í dag, kostar árið 1985 37
milljónir og 650 þúsund krónur,
1990 kostar slíkur bíll 202
milljónir og 480 þúsund krónur
og aldamótaárið 2000 kostar
slíkur bíll 5 milljarða 856
milljónir og 700 þúsund krónur.
Sólarlandaferð, sem nú kostar
250 þúsund krónur kostar 1985
eina milljón 882 þúsund krónur,
1990 kostar hún 10 milljónir 124
þúsund krónur og aldamótaárið
kostar þessi ferð 292 milljónir
839 þúsund krónur.
Húsnæði, sem menn greiða 18
milljónir fyrir í dag, mun kqsta
1985 136 milljónir króna. Árið
1990 kostar þetta húsnæði 729
milljónir og aldamótaárið 21
milljarð króna.
Bensínlítri, sem nú kostar 256
krónur, kostar 1985 1.928 krónur,
árið 1990 kostar hann 10.367
krónur og aldamótaárið 299.865
krónur.
Veður
víða um heim
Akureyri
Amsterdam
Apena
Barcelona
Berlín
BrUssel
Chícago
Frankfurt
Genf
Helsinki
Jerúsalem
Jóhannesarb.
Kaupmannah.
Lissabon
London
Los Angeles
Madríd
Malaga
Mallorca
Míami
Moskva
New York
Osló
Reykjavfk
Rio De Janeíro
Róm
Stokkhólmur
Tel Aviv
Tókýó
Vancouver
Vín
12 skýjaó
18 skýjaó
31 heióskírt
23 lóttskýjað
17 skýjaó
18 skýjaó
26 skýjað
22 skýjaó
20 heióskírt
24 heióskírt
25 skýjað
21 heiðskírt
22 skýjaó
27 heióskírt
14 skýjaó
19 skýjað
30 heióskírt
25 heiðskfrt
25 heiðskírt
29 skýjaó
18 skýjaó
26 skýjaó
26 heióskírt
7 skýjaö
29 heióskfrt
24 skýjaö
30 heióskírt
26 skýjaó
28 skýjaó
17 heiðskírt
28 skýjaó
EIGANDI einbýlishúss í
Reykjavík og nágrenni, að
stærð 450 rúmmetrar —
um 115 fermetrar nettó,
sem notar jarðvarma til að
hita húsið, greiðir
mánaðarlega fyrir hitann
kr. 99.603.00. Fyrir jarð-
varmahitun sams konar
húss á Siglufirði er greidd-
ur 250.607.00 kr. eða
20.884.00 kr. á mánuði.
Skv. upplýsingum Gunnars
Kristinssonar hjá Hitaveitu
Reykjavíkur er reiknað með, að
u.þ.b. 1.86 rúmmetra vatns þurfi
til að hita hvern rúmmetra húss.
Skv. því er ofangreint reiknað.
Hjá Hitaveitu Reykjavíkur er
vatnið mælt í tonnum skv. mæl-
ingu og kostar hvert tonn 119 kr.
Hjá flestöllum öðrum hitaveitum
landsins er vatnið selt í ákveðnu
magni, svokölluðum mínútu-
lítrum. Þá geta menn valið um,
hversu marga lítra þeir taka inn í
hús sín á mínútu og greiða síðan
samkvæmt því, án tillits til
notkunar. Verðlag er þá ákveðið
pr. mínútulítra.
Þetta gerðist 9. júní
brezkur verkfræðingur
(1781--1843) — Elizabeth Garrett
Anderson, brezkur læknir
(1836—1917) — Cole Porter,
bandarískt tónskáld (1893—1964)
— Otto Nicolai, þýzkt tónskáld
(1810-1849) - Robert
McNamara, forseti Alþjóðabank-
ans (1906---).
Andlát: Charles Dickens, rithöf-
undur, 1870 — Bevaerbrook
lávarður, blaðaútgefandi, 1964.
Innlent: Hornsteinn Alþingis-
hússins lagður 1880 — Barna-
ferming lögleidd 1741 — Enska
gufuskipið „Coquette" kemur til
að kanna kærur á enska sjómenn
1856 — d. Fuhrmann amtmaður
1733 — „Súlan" í reynsluflugi í
Eyjum 1928 — Hrafnkötlumenn
laðir 1943 — Danska fræðslu-
!a íðuneytinu stefnt í hand-
ritamáiiru 1965 — V: -eisnar-
flokkar halda velli í Alþing. sn-
ingum 1963 — f. Richard :.:k
1897.
Orð dagsins: Lækningin við aðdá-
un á lávarðadeildinni er að fara og
horfa á hana — Walter Bagehot,
enskur hagfræðingur
(1826-1877).