Morgunblaðið - 09.06.1979, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 09.06.1979, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1979 21 / Birgir Isl. Gunnarsson: r --------------------- A sundlaugarbarm- inum í Breiðholti S.l. þriðjudag lenti ég ásamt tveimur borgarfulltrúum Sjálf- stæðisflokksins í dálítið ein- kennilegu hlutverki. Nokkur fél- ög, sem starfa meðal íbúa Breiðholtshverfa höfðu boðað til fundar við Fjölbrautarskólann þar efra til að ræða um sund- laugina, sem þar er í byggingu. Þessi félög voru: Framfarafélag Breiðholts, íþróttafélagið Leikn- ir, Kvenfélagið Fjallkonan, J.C. Breiðholt, Skátafélagið Haf- ernir, Nemendafélag Fjölbraut- arskólans og Félag áhugamanna um Fjölbrautarskólann. Áhugasamir íbúar Innan þessara félaga starfa þúsundir Breiðholtsbúa, sem sýnt hafa málefnum hverfisins mikinn áhuga og jafnan verið reiðubúnir að leggja sitt af mörkum í þágu hverfisins. Sem dæmi um það má nefna að fyrir hálfum mánuði síðan stóðu þessi félög fyrir mikilli hreinsun í hverfinu og tók mikill mann- fjöldi þátt í því starfi og tók hverfið stakkaskiptum við það átak. Að undanförnu hafa þessi fél- ög beitt sér fyrir undirskriftar- söfnun, þar sem mótmælt er frestun á byggingu útisundlaug- ar við Fjölbrautarskólann. Nokkur þúsund manns hafa rit- að undir mótmælaskjal þetta. Öllum borgarfulltrúm var boðið að sækja fund þennan, enda upplýst í fundarboði að afhenda ætti fulltrúum borgarstjórnar þessi gögn. Vinstri menn létu ekki sjá sig Sól skein í heiði þennan dag og allar aðstæður því í bezta lagi fyrir smá uppákomu á sundlaug- arbarminum. Allmargt fólk var þarna samankomið, þ.á m. forystumenn ofangreindra fél- aga. Biðu menn nú spenntir eftir því, að einhverjir af þeim, sem ábyrgð bera á stjórn borgarinn- ar kæmu til að ræða við þessa fulltrúa íbúa hverfisins. Þá brá svo við að enginn þeirra lét sjá sig. Við borgar- fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lentum því í því einkennilega hlutverki að taka við þessum gögnum fyrir hönd vinstri meiri- hlutans og koma þeim til skila. Það gerðum við með glöðu geði, enda ávallt haft gott samstarf við þetta fólk í Breiðholtshverf- unum á síðasta kjörtímabili. Fyrirheitin um samráð hafa gleymst Ekki efast ég um að í mörg horn er að líta varðandi stjórn borgarmála hjá þeim vinstri mönnum, en óneitanlega rifjast upp fögur fyrirheit fyrir borgar- stjórnarkosningar um nauðsyn- samráðs við Reykvíkinga. Þessi fyrirheit fengu farveg inn í samstarfssamning flokkanna, sem kynntur var borgarbúum eftir kosningar, með þessum orðum: „Flokkarnir munu beita sér fyrir því að borgaryfirvöld hafi samráð og samvinnu við borgarbúa og starfsfólk borgar- innar". Þessi góðu orð gufuðu upp eins og dögg fyrir sólu á sundlaug- arbarminum í Breiðholti þennan fagra júnídag fyrr í vikunni. Hvað með sundlaugina? En hvað með þessa sundlaug, sem íbúarnir hafa svo mikinn áhuga á? Það var fyrir löngu ljóst, að nauðsynlegt væri að koma upp sundlaug í Breið- holtshverfum, enda hverfin fjöl- menn og langt að fara i næstu laug. Því var á sínum tíma ákveðið að byggja tvær sund- laugar við Fjölbrautaskólann, aðra innilaug fyrir kennslu, en hina útilaug 12,5x25 m, sem gæti verið almenn hverfislaug. Innilaugin ásamt böðum og búningskiefum var tekin í notk- un í janúar 1977, en vonir stóðu þá til að hægt yrði að taka útilaugina í notkun á miðju ári 1978. Við endurskoðun fjárhags- áætlunar á miðju ári 1977 var dregið nokkuð úr fjárveitingum, en þó talið að unnt yrði að taka iaugina í notkun í árslok 1978. Voru fjárveitingar í fjárhags- áætlun 1978 við það miðaðar. Fyrst eftir 2-3 ár Eftir borgarstjórnarkosningar á s.l. vori var fjárhagsáætlun tekin til endurskoðunar og þá dregið úr fjárveitingum til laug- arinnar og við samþykkt fjár- hagsáætlunar fyrir þetta ár voru fjárveitingar ekki meiri en svo, að nú er stefnt að því að ljúka framkvæmdum fyrst á miðju ári 1982 með möguleikum á að taka laugina þó í notkun í árslok 1981. Þessum mikla drætti voru íbúar Breiðholtshverfa að mót- mæla og er það skiljanlegt að íbúar hverfisins telji það of langt að þurfa að bíða í 2—3 ár enn eftir því að fá laugina í notkun. Af hverju ekki hægri st jórn eftir hægri sigur í Finnlandi? DAGINN eftir að ný meirihlut- astjórn var mynduð í kjölfar kosninganna í Finnlandi var leið- ari í Dagens nyheter þar sem því er meðal annars haldið fram að langar og strángar stjórnarmynd- unarviðræður hafi meðal annars miðað að því að koma í veg fyrir þátttöku hægri flokksins, Sam- lingspartiet, í stjórninni, þrátt fyrir að flokkurinn væri óumdeil- anlegur sigurvegari kosninganna í marz s.l. Leiðtogum Samlingsp- artiet var raunar falið að reyna Mauno Koivisto, forsætisráð- herra finnsku stjórnarinnar. fyrst stjórnarmyndun, en enginn virðist hafa gert ráð fyrir því að af stjórnarmyndun þess flokks gæti orðið. Erlendis, segir Dagens nyh- eter, telja flestir að ástæðan fyrir þessu sé sú, að hvorki Kekkonen forseti né Sovétstjórnin gætu fa- llizt á stjórnarmyndun þessa flokks. I Finnlandi halda þó marg- ir því fram að ástæðan sé sú að borgaraflokkarnir séu svo sund- urleitir að samsteypustjórn finnsku borgaraflokkanna sé útil- okuö. Hvort sjónarmiðið sem er á nokkurn rétt á sér. Kosningaúrlist hljóta þó að einhverju leyti að endurspeglast í því hvernig stjórn er mynduð. Þess vegna hafa borgaraflokkarn- ir, samkvæmt þeirri hefð, sem skapazt hefur á síðasta áratug, fengið meirihluta ráðherraemþ- ætta í þeirri samsteypustjórn mið- og vinstriflokka, sem nú hefur verið mynduð. Kalevi Sorsa, formaður jafnaðarmannaflokk- sins og fyrrum forsætisráðherra, á ekki sæti í stjórninni, en í hans stað er kominn Mauno Koivisto, seðlabankastjóri. Koivisto er jafnaðarmaður, sem hann nýtu mjög mikilla vinsælda meðal almennings, og raunar má segja að hann sé á sama hátt og Kekkonen forseti hafinn yfir stjórnmálaflokka. Dagens nyheter telur ástæðu til að gefa sérstakan gaum tveimur ungum ráðherrum, þeim Paavo Váyrynen úr Miðflokknum, sem er 32 ára að aldri, og Ulf Sundkvist, 34 ára úr Jafnaðarmannflokknum, en báðir hafa verulega stjórn- málareynslu þótt ungir séu. Dag- ens Nyheter vekur á því athygli að menn þurfi helzt að vera annað hvort mjög ungir eða mjög aldrað- ir til að hljóta frama í finnskum stjórnmálum. Dagens Nyheter telur ástæðu til að hafa áhyggjur af því að Koivisto kunni fremur að reynast istöðulaus en þessir ungu menn, og bendir á að í fyrri forsætisr- áðherratíð sinni, á síðasta áratug, hafi Koivisto átt það til að tvístíga nokkuð. Hins vegar bendir blaöið á að Koivisto hafi ótvírætt sýnt af sér röggsemi í seðlabankastjór- aembættinu. Þrátt fyrir það að Samlingsp- artiet sé utan stjórnar telur Dag- ens nytheter að flokkurinn muni hafa veruleg óbein áhrif á störf og stefnu nýju stjórnarinnar, enda sé ástæðan fyrir því að Frjálslyndi flokkurinn hafi á síðustu stundu hætt við þátttöku í stjórninni án efa verið ótti við að skilja Sam- lingspartiet einn eftir utan stjórnar og gefa flokknum þannig kost á að auka fylgi sitt um of. Þá segir að lokum: Sjaldan hefur svo marga utan lands og innan með hinar ólíkustu skoðan- ir, langað til að sjá íhaldssaman flokk taka þátt í ríkisstjórn í Finnlandi og nú. Ekki leikur vafi á því að þingræði og lýðræði í Finnlandi bíða tjón af því að kosningaúrslit skuli ekki fá að hafa beinni áhrif á stjórnarmynd- unina. Þegar eftir kosningarnar í marz var rætt um möguleika á víðtæku stjórnarsamstarfi, með þátttöku bæði Samlingspartiet og kommún- ista. Sá valkostur ætti að koma mjög til greina næst og ráðherr- astólar í Finnlandi koma til skipt- anna. Kekkonen forseti í „vináttuheimsókn" í Moskvu fyrir nokkrum árum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.