Morgunblaðið - 09.06.1979, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 09.06.1979, Blaðsíða 40
Síminn á afgreiðslunni er 83033 2R«r0unl>Int>ib AUGLYSINGASIMINN ER: 22480 JHor0un&Iabit> LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1979 IIARÐUR árekstur varð um kl. 21. í gærkvöldi á Vesturlandsvegi við vegamót Úlíarsfellsvegar skammt frá Korpu. Þar rákust á tveir fólksbílar og köstuðust báðir bílarnir út af veginum. Þrennt var flutt á slysadeild Borgarspítalans og þegar Morgunblaðið spurðist fyrir um líðan hinna slösuðu seint í gærkvöldi, var fólkið enn í rannsókn og ekki ljóst hvesu alvarleg meiðsli þess voru. Báðir bílarnir eru taldir gjörónýtir. Ljósm. mm. Hækkar bú- vöruverd aftur 1. júlí? Farmenn vinnu við neita sam- sáttanefnd viðræður í strandi SAMNINGAVIÐRÆÐUR yíirmanna á farskipum og vinnuveitenda þeirra eru nú allar í uppnámi. Farmenn neita að ræða við viðsemjendur sína í viðurvist sáttanefndar ríkisins og vilja aðeins hafa sáttasemjara ríkisins þar einan viðstaddan, en vinnuveitendur vilja að sáttanefnd sinni störfum sfnum. Sáttafundur var boðaður f gær klukkan 15 og stóð f þrjár klukkustundir og stóð allan tímann f þessu stappi án þess að deiluaðilar ræddust við. Fyrr um morguninn hafði verið haldinn sáttafundur með undirmönnum og matsveinum. Samkvæmt upplýsingurn Ingólfs Ingólfssonar er riú sátta- nefndin, „sem átti að vera til hins mesta gagns, orðin til hins mesta ógagns, því að hún hindraði það að viðræður gætu hafizt, enda þótt báðir aðilar væri reiðubúnir og allar líkur væru á að hægt hafi verið að koma málum nokkuð áleiðis erin.“ Ingólfur kvað sátta- nefndina hindra framgang máls- ins með kröfu sim í um að fá að verða vitni að samtölum aðila. Ingólfur Ingólfsson sagði: „Við héldum fast við það að við ynnum ekki með þeirri sáttanefnd, sem sýnilega væri send út af örkinni af félagsmálaráðherra til þess að halda uppi njósnum, svo að hún gæti auðveldað honum eða þeim ráðherrum, sem berja vildu á farmönnum, að setja bráðabirgða- lög. Hins vegar lýstum við því yfir að við værum reiðubúnir að vinna undir handleiðslu ríkissáttasemj- ara og höfðum við raunar ekkert við það að athuga, þótt þessi sáttanefnd sæti einhvers staðar í húsinu, en hún yrði ekki vitni að þeim samtölum, sem við ættum við okkar viðsemjendur. Hins vegar væri sáttasemjari sá sem umræðum ætti að stýra. Því er þrátefli í þessu og enginn fundur boðaður. Erum við samt reiðubún- ir til viðræðna og höfum á reiðum höndum efni í samtöl og á sama hátt held ég að það sé mikið til í skreppu viðsemjenda okkar. Því eru það ill tíðindi, þegar valda- menn standa þannig að verki. Það er ljóst að innan ríkisstjórnarinn- ar eru menn, sem berjast fyrir því einu að fá að berja á okkur, en það er ljóst að enginn hefur selt þeim meira vald en þeir eru menn til að bera.“ Torfi Hjartarson ríkissátta- semjari sagði í gær að sáttanefnd- in kæmi saman til fundar í dag klukkan 14 til þess að ræða stöðu mála. „EFTIR þvf sem ég þesf veit á að lækka niður- greiðslurnar í áföngum og stefnt er að því að byrja um næstu, mánaðamót, júní—júlí. Ég held að þá sé miðað við að draga úr þeim um 1 milljarða en samkvæmt forsendum fjárlaga fyrir þetta ár var reiknað með að þær lækkuðu alls um 3.1 milljarð á árinu,“ sagði Ilöskuldur Jónsson, ráðu- neytisstjóri í fjármála- ráðuneytinu, í samtali við Mbl. í gær. Samkvæmt fjárlögum er gert ráð fyrir að um 19 milljarðar króna fari til niðurgreiðslna og til Lífeyrissjóðs bænda en að óbreyttum niðurgreiðslum hefði þessi tala þurft að vera 22 milljarðar. Fjárlögin gera því ráð fyrir að dregið verði úr niður- greiðslunum sem þessu nemur. Ef niðurgreiðslur verða lækkaðar um 1 milljarð við næstu mánaðarmót hækkar verð á bú- vöru en þó mismunandi éftir hlutfalli niðurgreiðslna og yrði hækkunin á bilinu 1,2 til 10% og svo dæmi sé tekið af mjólkinni, þá hækkar hún samkvæmt þessu um milli 5 og 6%. Höskuldur sagði að vitanlega væri óvíst með hvaða hætti yrði dregið úr niðurgreiðslunum, hvort það yrði jafnt á öllum vörutegundum eða niðurgreiðslur yrðu óbreyttar á sumum vöruteg- undum. Miðað við þennan 1 milljarð sem niðurgreiðslur lækka, hækkar verð á hverju kílói af smjöri um 190 kr., um 52 krónur á hverju kílói af nauta- kjöti, 77 krónur á dilkakjötskíló- inu, 11 krónur á mjólkurlítranum og 14 krónur á ostinum. Minnst yrði hækkunin hlutfallslega á osti eða um 1,2% en mest á smjöri eða um 10% en ýmsir telja að ekki komi til þess að niður- greiðslur verði lækkaðar á smjöri og þar með lækka niðurgreiðslur á öðrum tegundum meira. Ráð- gert er að niðurgreiðslurnar hækki enn síðar á árinu, eða sem nemur um 2 milljörðum, þannig að 3,1 milljarðs markinu verði náð. Grafíska sveinafé- lagið boðar verkfall GRAFÍSKA sveinafélagið ákvað í gær verkfallsboðun frá og með 18. júní, þ.e.a.s. verk- fallið gengur í giidi klukkan 24 hinn 17. júní. Stjórn félagsins hafði áður fengið verkfalls- heimild, sem hún hafði ekki nýtt. Verkfallsboðunin var sam- þykkt á félagsfundi í gær, þar sem staddur var um 20% félags- manna. Eins og segir í samþykkt fundarins var boðað til verk- fallsins „vegna verkbanns vinnu- veitenda" og nær það til allra umbjóðenda félagsins, nema þeirra, er vinna í Ríkisprent- smiðjunni Gutenberg, sem er ekki þátttakandi í verkbanns- aðgerðum vinnuveitenda. Komi til þessarar vinnu- stöðvunar, munu dagblöðin öll stöðvast, en Vinnuveitendasam- band íslands hafði í verkbanns- boðun sinni undanþegið vinnu við útgáfu dagblaða á þeim forsendum, að óeðlilegt væri að hefta tjáningarfrelsi í blöðunum. Kemur fiskverdsákvördun í dag? Fiskverðs- og olíu- gjaldshækkun um 20% Útlit fyrir 30% sam- drátt í bflainnflutnmgi „VIÐ erum ekki búnir að gera upp ondanlegar tölur varðandi þann bílainnflutning. sem rcikna má með fyrstu níu mánuði þessa árs, en okkur sýnist allt útlit fyrir, að á þessu tímabili verði 30% minni bíla- innfiutningur en á sama tíma í fyrra,“ sagði Jónas Þór Steinars- son, íramkvæmdastjóri Bíl- grcinasambandsins, í samtali við Mbl. í gær. Jónas sagði að á þremur fyrstu mánuðum þessa árs hefði verið flutt inn 20% minna af nýjum fólksbílum en á sama tíma árið 1978. Sér virtist eins og áður sagði, að enn yrði um aukinn samdrátt að ræða en hafa þyrfti í huga, að árið 1978 hefði varla verið meðalár í innflutningi bifreiða, þannig að ekki hefði verið eðlileg endurnýjun í bifreiðaeign landsmanna. Fram kom hjá Jónasi, að á árinu 1978 voru fluttar inn um 7700 bifreiðar og samkvæmt fyrr- nefndum tölum er því gert ráð fyrir, að bifreiðainnflutningurinn í ár verði um 5500 bifreiðar og samdrátturinn er því um 2200 bifreiðar. ALLAR líkur voru á því í gær- kveldi, að fiskverðsákvörðun yrði tekin í dag, en yfirnefnd Verð- lag-'*áðs sjávarútvegsins hefur verið kölluð saman árdegis f dag klukkan 09. Fiskverðsákvörðun er mjög erfið vegna hinna gífur- legu olíuhækkana og var sá möguleiki alls ekki útilokaður í gærkveldi, að lokaákvörðun yrði frestað fram yfir helgi. Sú hækkun, sem útvegsmenn þurfa, er að minnsta kosti 20% og munu þá fiskvinnslustöðvarnar þurfa eitthvert gengissig eða gengis- fellingu á móti, í áföngum, sem gæti, þegar allt er talið náð um 10 prósentustigum. Samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið hefur aflað sér, Yfirnefnd verðlagsráðs sjávarútvegsins á fundi í gær. Vinstra megin sitja fulltrúar fiskkaupenda, Árni Benediktsson og Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson, við borðsendann er Jón Sigurðsson, formaður nefndarinn- ar. og hægra megin sitja fulltrúar fiskseljenda, Óskar Vigfússon og Kristján Ragnarsson. Ljósm. Mbi: Emiiía. liggja ýmsir valkostir á borði yfirnefndar, að því er varðar skiptingu milli eiginlegrar fisk- verðshækkunar og hækkunar olíu- gjalds, sem tekið er af óskiptum hlut, þ.e.a.s. kemur eingöngu út- gerðinni til góða. Talið er að þær upphæðir, sem um ræðir, séu um 10 milljarðar króna, sem kaupendur fiskvinnslustöðvarinn- ar, þurfa að axla og geta ekki nema með breytingu á skráðu gengi krónunnar. Sá hængur er þó á gengissigi, miðað við óbreytt verðlag á sölumörkuðum okkar erlendis, að þungi vandamálsins færist þá á ný yfir til útgerðarinn- ar. Eftir því, sem Morgunblaðið komst næst í gærkveldi, er rætt um valkosti á skiptingu olíugjalds og fiskverðshækkunar. Miðað við að heildarútkoman yrði 20% hækkun hafa þar einkum tveir valkostir komið til greina, 12% fiskverðshækkun og 8% hækkun olíugjalds og 13% fiskverðs- hækkun og 7% hækkun olíugjalds.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.