Morgunblaðið - 09.06.1979, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 09.06.1979, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ1979 Skála- túns- heimilið 25 ára í tilefni af því að 25 ár eru liðin frá því að Skálatúnsheimilið í Mosfellssveit tók til starfa hélt stjórn heimilisins 26. maí kaffi- samsæti fyrir velunnara þess og aðra gesti. Sátu það m.a. heil- brigðis og félagsmálaráðherra, Magnús H. Magnússon og frú, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar, frú Margrét Magnúsdóttir, Jón Guðmundsson oddviti og frú og Jón Gunnlaugs- son, aðalstofnandi heimiiisins, þáverandi stjórnarráðsfulltrúi, en með honum sem stofnendur voru nokkrir templarar í Um- dæmisstúkunni nr. 1. Árið 1960 gerðist Styrktarfélag vangefinna eignar- og rekstraraðili að heimilinu, (sem er sjáifseignar- stofnun) ásamt Umdæmisstúk- unni. Tilnefnir hvor aðili tvo menn í stjórn, en landlæknir oddamann. Fyrstu árin voru ákaflega erfið, en með tilkomu Styrktarsjóðs vangefinna og daggjöldum heil- brigðis- og tryggingamálaráðu- neytisins léttist róðurinn til upp- byggingar á staðnum og með daglegan rekstur. Hvorugt hefði þó heppnast eins og raun er á orðin, ef heimilið hefði ekki átt marga og fórnfúsa velunnara. Síðan árið 1960 hafa bygginga- framkvæmdir verið s.a.s. stöðugt í gangi, þó með misjafnlega miklum hraða. Nú eru þar tvö vistmanna- hús, annað er hið upprunalega, lagfært 1968—’69, hið síðara byggt 1963—’67, ennfremur hafa verið byggð tvö starfsmannahús, byggð 1961—’63 og 1971-’73, og loks vinnu- og þjálfunarhús, reist 1978—’79. Þá var komið upp gróð- urhúsi fyrir heimilið 1975—’76, og myndarlegur búrekstur er á staönum. Nokkrir aðstandendur vistmanna reistu og gáfu heimil- inu vandaða og fallega sundlaug, sem er vistmönnum til mikillar ánægju og heilsubótar allan árs- ins hring. Tannlæknastofu hefur nýlega verið komið upp með fullkomnum búnaði, sem Lionsmenn hafa gef- ið. Ymsir aðrir velunnarar heimilisins hafa hjálpað til með lagfæringu á lóð, myndun leik- valla, fegrun híbýla vistmanna og gefið margvísleg tæki þeim til skemmtunar. Nú dveljast að Skálatúni 57 vistmenn, voru í upphafi 17. Þeir eru á aldrinum 5—51 árs, af báðum kynjum og af öllum stigum þroskaheftunar. Heimilinu er skipt eftir þroska vistmanna í þrjár vistir og í hverri fyrir sig búa bæði piltar og stúlkur. Reynt er með stöðugri kennslu og þjálfun í skóla og á heimilis- einingum að gera vistmenn eins sjálfbjarga og unnt er, þ.e. að halda sér þurrum og hreinum, klæðast sjálfir, matast hjálpar- laust o.s.frv. Daglega koma 46 manns til þjálfunar og kennslu í hið nýja vinnu- og þjálfunarhús. Um þenn- an þátt starfsins sjá 16 manns. Vinnustofur og skóli starfa frá 9—15 virka daga. Er reynt að raða nemendum í hópa eftir getu og þroska, en veitt er einstaklings- meðferð eftir því, sem hægt er. Talkennari veitir talkennslu og sumir nemendur fá bóklega kennslu, m.a. í meðferð peninga. Handavinnukennsla er ríkur þátt- ur í starfinu og smíðakennsla hefur verið frá s.l. hausti. í vinnu- stofu eru unnin ýmis verkefni fyrir fyrirtæki. Þá hefur kennsla í matreiðslu einnig verið nokkur. Ástand þriggja vistmanna er það slæmt, að þeir verða að fá alla þjálfun og aðhlynningu á sinni heimiliseiningu. ■Átta manns fara daglega til Reykjavíkur í skóla og vinnu og haf verið þjálfaðir sérstaklega til að ferðast sjálfbjarga með almenningsvögnum. Á sumrum er reynt að njóta útivistar, garðrækt stunduð, lóð hirt, farið í leiki, gönguferðir og sund og ferðir farnar í bæinn og í stuttar ferðir og langar út á land, og hver vistmaður fær einnar viku sumardvöl í sumarbústað Styrkt- arfélags vangefinna. Reynt er að glæða líf hvers einstaklings þeirri fyllingu, sem auðið er, og unnið er að því að opna þeim, sem til þess hafa getu, leið úr Skálatúni út í þjóðfélagið. í áður nefndu samsæti afhenti Magnús Kristinsson og dætur hans, Ágústa Kristín og Soffía, heimilinu mjög fagra höggmynd, „Samspil", sem Helgi Gíslason, myndhöggvari gerði. Stendur hún við aðalinngang í nýrra vist- mannahúsið. Einnig bárust heimilinu góðar peningagjafir. Stjórn undanfarin ár hafa skip- að: Frú Helga Hobbs og Páll Kolbeins, fv. aðalgjaldkeri, til- nefnd af templurum, Magnús Kristinsson forstjóri og Vilhjálm- ur Árnason hrl., tilnefndir af Styrktarfélagi vangefinna, og Jón Sigurðsson, fv. borgarlæknir, til- nefndur af landlækni, formaður. Forstöðumaður er Einar Hólm Olafsson yfirkennari. Við afhendingu höggmyndar Heiga Gíslasonar mynd- höggvara, „Samspil“. Frá vinstri: Páll Kolbeins stjórar- maður, Jón Sigurðsson stjórnarformaður, frú Ágústa Kristín Magnúsdóttir, Sigurður Jónsson eiginmaður henn- ar, frú Soffía Magnúsdóttir. Einar Hólm Ólafsson forstöðu- maður og Magnús Kristinsson stjórnarmaður, sem ásamt dætrum sínum gaf höggmyndina. Við vefnað í vinnu og þjálfunarhúsi. Ilandavinna. Eitt af herbergjum vistmanna, radauglýsingar — radauglýsingar — raðauglýsingar kennsla bátar — skip veiöi Framhaldsnám á Sauðárkróki Á komandi vetri verður kennsla á eftirtöldum námsbrautum viö framhaldsdeildirnar á Sauðárkróki: 1. ár Almennt bóknám Viðskiptabraut Uppeldisbraut Heilsugæslubraut 2. ár Viðskiptabraut Frekari upplýsingar veitir skólastjóri Gagn- fræöaskólans, Friðrik Margeirsson, í síma 95-5219. e. . .. Skolanefndm. Skip til sölu 6 — 7 — 8 — 9—10—11 — 12—15 — 17 _ 26 — 29 — 30 — 45 — 53 — 55 — 61 — 62 — 64 — 65 — 66 — 81 — 85 — 86 — 87 — 88 — 92 — 120 — 140 — 230 tn. Einnig opnir bátar af ýmsum stærðum. Aðalskipasalan Vesturgötu 17 símar 26560 og 28888 Heimasími 51119. Mjgggp Ásgarðsveiöar SVTR 1 Sogi Stangaveiöifélag Reykjavíkur hefur tekiö á leigu nýtt veiðisvæði fyrir félagsmenn sína, sem er Sogiö, fyrir landi Ásgarös. Veiöitími 21.6.—20.9. 1979. Stangir eru þrjár og verða seldar saman. Veiðihús er við ána. Umsóknir um veiðileyfi berist skrifstofu SVFR aö Háaleitisbraut 68 (Austurveri) fyrir 16. júní. Stanga veiðifélag Reykja víkur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.