Morgunblaðið - 09.06.1979, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1979
Albert Guðmundsson gerdur ad heidursborgara í Nice:
„Félagi minn sagði mér frá því, en ég
þorði ekki að trúa að það væri satt”
A l'Aiglon qu'il •r'»n cœur depuis vingt-cinq ans, on
carriére á l'O.C.G.N II y arriva en 1952, il en repartit en 1
« Lorsque je jouais á Milan, rappelait-il hier, dans son allocution,j
jnís venu á Nice avec ma femme. Je me souviens qu'elle m'a d!
np l'habiter Je va
Sgki * ■ i < i
ALBERT Guðmundsson alþingismaður var þann 2.
júní s.l. útnefndur heiðursborgari í Nice við
fjölmenna athöfn. Tilefni þess að Albert hlýtur
þessa viðurkenningu er sú mikla rækt sem hann
lagði við uppbyggingu unglingastarfs er hann var
atvinnuknattspyrnumaður í Nice. Hann átti þátt í
að byggja upp félagið „Cavigal“ en úr röðum þess
hafa á unndanförnum árum komið margir af
þekktustu íþróttamönnum Frakka.
þetta sem viðurkenningu til
hennar ekki síður en mín.
Það var ekki hvað minnsti
heiðurinn í minn garð að við
athöfnina voru mættir allir
borgarfulltrúarnir í Nice, allir
forystumenn íþrótta, allt frá
Cannes að Monte Carlo, og borg-
arstjórinn Jacques Médicin, sem
er í framboði til Evrópuþings,
gerði hlé á kosnkngaferðalagi
sínu til þess að afhenda mér
heiðursskjalið sjálfur. Þetta var
meira en ég átti von á og ég er
ennþá að átta mig á þessu.“
Við athöfnina í Nice gerði
borgarstjórinn grein fyrir því að
það hefði verið samþykkt í borg-
arstjórn með öllum greiddum
atkvæðum atkvæðum að gera
Albert að heiðursborgara. Hann
sagði einnig að ef Nicebúar
sjálfir hefðu verið beðnir að
tilnefna einhvern væri hann ekki
í nokkrum vafa um að nafn
Alberts hefði verið efst á lista.
Albert kom til Nice árið 1952
frá París og var hann þar at-
vinnuknattspyrnumaður í 3 ár.
„Það sem fólk hér á íslandi
hefur kannski ekki fylgst með er
að ég tók virkan þátt í æskulýðs-
starfi í Nice og geri það enn. Við
berum oft saman bækur okkar í
gegnum síma, þeir leita til mín
og ég til þeirra.
í þessu íþróttafélagi, Cavigal,
eru stundaðar allar greinar
Albert er 21. heiðursborgari
Nice en þessi siður var tekinn
upp á öldinni sem leið. Albert er
fyrsti íþróttamaðurinn sem hlýt-
ur þessa nafnbót, en meðal ann-
arra heiðursborgara Nice má
nefna Gústav Svíakonung,
Napóleon III Frakklandskeisara
og myndlistarmennina Matisse
og Chagal.
„Þetta kom mér mjög á
óvænt," sagði Albert Guðmunds-
son er blaðamaður ræddi við
hann í gær. Albert var þá ný-
kominn frá Frakklandi. „Félagi
minn var búinn að segja mér frá
því að þetta stæði til. Ég tók
mark á því en þorði samt ekki að
trúa að það væri satt. Þetta er
mjög mikill heiður fyrir mig og
eiginkonu mína. Hún hefur ekki
síður en ég skapað þennan góð-
vilja í garð okkar og ég lít á
Borgarstjóri Nice-borgar af-
hendir Alberti Guðmundssyni
gullstyttu af erni, tákni borgar-
innar. Við hlið Alberts stendur
eiginkona hans, Brynhildur
Jóhannsdóttir. Við athöfnina
mælti borgarstjórinn einnig
fyrir minni Alberts en mcðal
viðstaddra var ræðismaður ís-
lands í Nice, Jacques
Dumar-Lairolle. Meðfylgjandi
mynd er úrklippa úr frönsku
blaði.
Albert með heiðursborgaraskjalið og gullörninn á heimili sínu
við Laufásveg í gær. A litlu myndinni má sjá gullörninn með
áletruninni „Albert Guðmundsson heiðursborgari í Nice“.
b i\\\MM 'K
Ljósm. Kristinn.
arra til íþróttauppeldis þegar ég
var unglingur.
En ég festist þarna í Nice. Ég
eignaðist þar mikið af góðum
vinum það tímabil sem ég var
þar. Eftir að ég kom heim og fór
að starfa sjálfstætt hafa þeir
ytra notað feril minn til þess að
örva unga drengi og segja þeim
frá því að knattspyrnan þurfi
ekki að eyðileggja fyrir þeim
framtíðaráformin."
Albert er verndari milliríkja-
knattspyrnukeppni meðal ungl-
inga sem Cavigal hefur haldið
um hvítasunnuhelgina í 6 ár.
Albert var því staddur þar ytra
ásamt eiginkonu sinni á því
íþróttamóti er hann var út-
nefndur heiðursborgari Nice.
„Eftir athöfnina hitti ég
marga félaga og margir stöðv-
uðu mig á götu og óskuðu mér til
hamingju og lýstu ánægju sinni
yfir því að ég skyldi hafa haldið
áfram að vinna fyrir æskulýð
Nice-borgar,“ sagði Albert að
lokum.
íþrótta. Fyrst þegar ég kom til
Nice var þar aðallega stunduð
knattspyrna meðal yngri flokk-
anna. Én félagið hefur dafnað
síðan ég fór og nú er það með
stærri íþróttafélögum í Frakk-
landi. Ég hef alltaf haft áhuga á
unglingastarfi," sagði Albert er
hann var inntur eftir því hvers
vegna hann hefði hafið starf
meðal unglinganna í Nice. „Með-
an ég var atvinnuknattspyrnu-
maður, hvort sem það var í
Englandi, Skotlandi, Frakklandi
eða á Ítalíu, reyndi ég alltaf að
nota reynslu mína og þekkingu
sem slíkur öðru vísi og meira en
aðeins sem leikmaður. Þegar ég
kom heim hóf ég líka að miðla
Hafnfirðingum og hverjum öðr-
um, sem vildu, af reynslu minni.
Það má kannski segja að maður
sé að endurgreiða framlag ann-
Albert afhendir hér fyrirliða sigurvegaranna
inu í Nice verðlaunin.
á knattspyrnumót-
Albert
Gudmundsson
citoyen
(Thonneur
de la ville
de Nice
en a ajoute unj;
Qui
Útihátíd á Kjarvalsstödum:
upp á borgina’
,Reyna
Eins og áður hefur verið sagt
írá í Mbl. efna landssamtökin
„Líf og land“ til sumarhátíðar á
Kjarvalsstöðum um helgina. Um
tvíþætta dagskrá er að velja,
annars vegar verður ráðstefna
um félagslíf og skipulagsmál
borgarinnar, hins vegar verður
útihátíð á Miklatúni.
Mbl. hafði samband við Jón
Óttar Ragnarsson, einn af for-
svarsmönnum samtakanna, og
innti hann eftir ástæðunni fyrir
því að útihátíð skuli vera haldin.
„Við erum að reyna að lífga upp á
borgina með þessu móti, reyna að
fá svolitla fjölbreytni í helgarlífið
að líf ga
sem, eins og kunnugt er, er ekki
allt of fjölskrúðugt. Við vonum að
sem flestir komi á hátíðina, eða
taki þátt í ráðstefnunni. Dagskrá
útihátíðarinnar er fjölbreytt,
ýmsir munu koma þar fram og .
flytja skemmtiefni og þess má
geta að öll vinna í sambandi við
það er unnin í sjálfboðavinnu.
Fyrri hluti útihátíðarinnar hvorn
dag er meira við hæfi fullorðinna
en seinni hlutinn er frekar börn-
um að skapi. Við hvetjum alla,
sem tök hafa á, að koma á hátíð-
ina og vonum að veðurguðirnir
verði okkur hliðhollir." Ráðstefn-
an hefst kl. 10 báða dagana og
stendur fram eftir degi. Ráð-
stefnugestum til hægðarauka mun
barnagæsla verða á staðnum,
einnig verður samfelld kvik-
myndasýning fyrir börn í hliðar-
sal Kjarvalsstaða. Dagskrá ráð-
stefnunnar mun snúast um efnið
„Maður og borg“. Ýmsir aðilar
munu flytja stutta fyrirlestra um
þetta efni og standa þeir fram
eftir degi, en á eftir verða umræð-
ur. Fyrri daginn verða tekin sér-
staklega fyrir efnin „Reykjavík í
dag“ og „Friðun og varðveisla" en
seinni daginn efnin „Maður og
borgarkerfi" og „Skipulag og ný-
sköpun".
Dagskrá útihátíðarinnar verður
fjölbreytt að efni til. Hefst hún kl.
13.15. með ávarpi Elínar Pálma-
dóttur varaborgarfulltrúa, síðan
syngur Unnur Jensdóttir einsöng
og að einsöngnum loknum fremur
stormsveitin popp-tónlist og að
lokum troða Tóti trúður og félagar
upp. Næsti þáttur hátíðarinnar
hefst kl. 15.00. og flytur þá Trítil-
toppakvartettinn frumsamda tón-
list. Þjóðlagasöngur verður næst-
ur á dagskrá og er hann í umsjón
Aðalsteins Sigurðssonar, síðan
flytur Stormsveitin popp-tónlist.
Kl. 16.30 hefst svo þriðji þáttur
með Töframanni sem kemur í
heimsókn, harmónikkuleikarar
þenja nikkurnar og að lokum leika
Guðmundur Ingólfsson og félagar
jazz. Seinni daginn hefst útihátíð-
in kl. 13.15. með ávarpi Guðrúnar
Helgadóttur borgarfulltrúa. Síðan
tekur við einsöngur, Elísabet
Eiríksdóttir syngur. Þá mun
Barbapapa fremja popp-tónlist en
síðan flytja félagar úr Alþýðuleik-
húsinu leikþátt. Annar þáttur
hefst svo kl. 15.00 með því að
Barnalúðrasveit Mosfellshrepps
leikur og að því loknu syngur
sænskur barnakór. Síðan leikur
Barbapapa aftur popp-tónlist. Síð-
asti þáttur hátíðarinnar hefst svo
kl. 16.30 með því að töframaður
kemur í heimsókn. Flutt verður
blönduð tónlist en hátíðinni lýkur
með að Agnar Asgrímsson syngur
þjóðlög.