Morgunblaðið - 09.06.1979, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 09.06.1979, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1979 Elín Pálmadóttir: Mál Bernhörftstorf- unnar eru að verða eins og f ramúrstef nuleikrit ELÍN Pálmadóttir (S) kvaddi sér hljóðs á fundi borgarstjórnar 7. júní vegna Bernhöftstorfunnar. I máli sínu sagði Elín m.a., að borist hefði bréf frá forsætisráðuneytinu um niðurrif á geymsluhúsinu norðan Gimlis. Bréfið væri furðu- legt miðað við það sem á undan hefði gengið, því sér skildist, að forsætisráðherra væri að kanna viðbrögð borgaryfirvalda við niðurrifi á „gamla bakaríinu" þ.e. svörtu skemmunni norðan Gimlis við Lækjargötu. Elín minnti á, að um sl. áramót hefðu gengið í gildi lög þar sem óheimilt væri að rífa hús án leyfis byggingarnefndar. í borgarráði hefði umræddu máli verið frestað, en hún kvaðst vilja minna á, að samþykktir um- hverfismálaráðs, sem hefðu verið einróma um, að þessi húsalína Menntamálaráð- herra má ekki spara „Kennarafélag Æfingaskólans mótmælir eindregið ákvörðunum menntamálaráðuneytisins um sparnað í rekstri grunnskóla." Þessi tilkynning birtist í Morgun- blaðinu 8. júní. Menntamálaráðherra er orðinn vandi á höndum. Hann er í stjórn sem setti sér það markmið að draga úr ríkisgjöldum en má ekki spara á einum stærsta gjaldalið ríkisins, jafnvel þótt sá sparnaður leiddi til betri árangurs í starfi. Einn helsti ásteytingssteinn kennarafélagsins mun vera fækk- un kennslustunda í grunnskóla- bekkjum um eina í hverri deild, t.d. ætla 12 ára börnum 34 viku- stundir í stað 35. Þótt þess sé gætt að hér er um 50 mínútna stundir að ræða (frí- mínútur meðtaldar), þá þarf ekki ýkjamikla heimavinnu svo að 12 ára börn séu orðin með lengri vinnuviku en fullorðnum er áskil- in í lögum. Einhvern tíma hefði það verið nefnt hundrað og ellefu meðferðir á dýrum, sem Dorttin kvað vera á móti skapi. Allir kennarar vita að athygli barna og unglinga sljóvgast þegar á langan vinnudag líður. Skyldu 12 ára börn ekki hafa fengið ærið nóg þegar þeim sjötta er lokið, þótt þeim sjöunda sé sleppt einu sinni í viku? Æfingaskólinn komst í orðakast við menntamáláðherra fyrr á þessu ári. Kennaraskólann vantar húsnæði. Hús Æfingaskólans gæti leyst þann vanda, en þrir barna- skólar eru hálfsetnir á hans svæði. Menntamálaráðherra hafði uppi hugmyndir um að færa hann um sess í annan hinna tveggja. Þá rak þetta sama kennarafélag upp ramakvein, skólarnir þrír skyldu vannýtnir áfram. Það væri við hæfi að hvetja menntamálaráðherra að halda áfra.m að vinna að hagkvæmni í skólarekstri og láta hjáróma radd- ir íhaldsamra kennara sem vind um eyru þjóta. Þeir eiga að vera þjónar ríkisins ekki herrar. Jón Á. Gissurarson. Eins og kunnugt er hafa dróttskátar á suðvesturlandi skipulagt og framkvæmd kassabílakeppni til styrktar góðu málefni. Keppnin fór fram fyrir tveim vikum og lauk henni' lóð Kópavogshælis innan um fjöl- menni í hinu besta veðri. Þessu lofsverðu og frumlega framtaki skátanna var hrund- ið af stað til fjáröflunar fyrir ákveðið verkefni á hælinu og kunna allir velunnarar vist- Blómamarkað- uríGarðabæ KVENFÉLAG Garðabæjar heldur í dag, laugardag, blómamarkað í Safnaðarheimilinu við Bæjar- braut og verður markaðurinn opnaður kl. 14. Á boðstólnum verður fjölbreytt úrval af blómum að sögn aðstandenda markaðarins, bæði inni- og útiblóm. EF ÞAÐ ER FRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU yrði varðveitt allt frá Stjórnar- ráðshúsinu út að Fríkirkjuvegi 11. Þetta mál væri að verða eins og framúrstefnuleikrit þar sem einn talaði í austur um leið og annar talaði í vestur. Menn væru að þvæla bréfum á milli sín án þess að taka nokkra afstöðu og þættust sumir vera hlynntir húsafriðun. Menntamálaráðherra skyti sér undan að friða húsin eins og húsafriðunarnefnd hefði farið fram á. Hann segðist vilja það, en borgin þyrfti að biðja um friðun- ina sérstaklega. Þetta væri fjar- stæða því menntamálaráðherrar hefðu alltaf friðað hús að beiðni húsfriðunarnefndar og stundum leitað umsagnar sveitarfélaga. Aðferðir menntamálaráðherra væru því undanbrögð, því hann gæti friðað Torfuna ef hann kærði sig um. Hið sama gilti um borgar- fulltrúa sem létu líklega að þeir vildu friða, en samt sem áður væri aldrei hægt að festa hendur á því. Forsætisráðuneytið virtist hafa hug á að láta rífa húsið og ef til vill án leyfis byggingarnefndar. Kannski yrði húsið horfið áður en menn vissu af. Elín Pálmadóttir flutti síðan eftirfarandi tillögu: „Borgarstjórn lýsir því að gefna tilefni yfir, að hún er hlynnt friðun þeirri, sem Húsafriðunar- nefnd hefur lagt til við mennta- málaráðuneytið, á húsunum er enn standa í svonefndri Bern- höftstorfu og mynda húsaröðina meðfram Lækjargötu, frá Banka- stræti að Amtmannsstíg, og mun ekki standa í vegi fyrir því að Ríkissjóður friði þessa eign sína. Vegna bréfs forsætisráðuneytis- ins um niðurrif „brunarústa af geymsluhúsi því sem stendur norðan Gimlis", sbr. 20. lið fundargerðar borgarráðs frá 5. júní, vill borgarstjórn benda ráðu- neytinu á að óheimilt er skv. nýjum byggingarlögum að rífa hús nema að fengnu leyfi viðkom- andi byggingarnefndar, sbr. 9. gr. í IV kafla um byggingarumsóknir og byggingarleyfi í nefndum lög- um.“ Guðrún Helgadóttir (Abl) sagð- ist vilja taka undir tillögu Elínar. Björgvin Guðmundsson (A) sagð- ist telja að í huga borgarráðs- manna væri hér um að ræða hreinsun í brunarústunum, en ekki brottflutning t.d. framhliðar- innar. Hann kvaðst telja eðlilegt, að málinu yrði lokið í borgarráði og tillögu Élínar yrði vísað þang- að. Það var síðan samþykkt með 10 gegn 4. Hildur Blöndal látin LÁTIN er í Danmörku Hildur Blöndal, ekkja dr. Sigfúsar Blön- dals orðabókarhöfundar, en Hild- ur var á 96. aldursári. Hún var fædd Arpi óg var faðir hennar prófessor í málfræði í Uppsölum. Dvaldist hann lengi hérlendis m.a. hjá sr. Ásmundi í Odda. Hildur Blöndal talaði íslenzku eins vel og innfæddur og var ekki síðri ís- lendingur en Svíi. Þau Sigfús og Hildur voru barnlaus. Leiðrétting I FRÉTT Morgunblaðsins síðastiið- inn miðvikudag um bruna í bátnum Jóhannesi Jónssyni KE 79 gætti nokkurrar ónákvæmni og er beðist velvirðingar á því. Það var vél- báturinn Ásgeir Magnússon úr Garði, sem dró bátinn til hafnar, en áhafnir Baldurs og Happasæls aðstoðuðu við að slökkva eldinn. Eldurinn kom upp í vélarrúmi bátsins og gjöreyðilagðist það, en eitt ár er síðan ný vél var sett í Jóhannes Jónsson. Skipstjórinn á Jóhannesi Jónssyni KÉ 64 hefur beðið Morgunblaðið að koma á framfæri þakklæti til þeirra, sem aðstoðuðu. Lokaátakið um helgina mannanna þeim hinar beztu þakkir. Verkefnið sem. unnið er að með fjársöfnun skátanna er að kaupa bifreið til að aka vist- mönnum í ýmsar nauðsynja- ferðir sem þeir ekki komast annars vegna fötlunar sinnar. Ríkisspítalarnir munu síðan bera reksturskostnað bifreið- arinnar þegar hún er fengin. Enn vantar nokkun fjár- magn til bifreiðarkaupanna og því hugsa skátarnir sér að hefja stórsókn til lokaátaksins nú um helgina. Það er von mín að við sýnum skátunum þakklæti í verki um þessa helgi með því að láta nokkra fjármuni renna til söfnunarinnar. Rétt er að geta þess að gírónúmer söfnunarinnar er 63336-4. Árni Pálsson sóknarprestur. Bullworkerþjálfun! Skjót og örugg aðferð til að byggja upp vöövastæltan líkama Markviss þjálfun aöeins 5. mínútur á dag. JA Æfingaspjald og 24 síöna skýring- arbaaklingur fylgja hverju tæki. íslenzkar býðingar má klippa út og líma á spjaldíð aöeins 5. mínútur á dag til aö byggja upp vöðvastæltan líkama. Innbyggöur AFLMÆLIR sýnir Þór Irá degi til dags aö bér vex bróttur LíkamsÞjálfunartækiö BULLWORKER hefur náö vinsældum almennings í öllum aldursflokkum. Þaö telst til aöalkosta tækisins aö þaö hentar tólki sem hefur lítinn tíma til íþrótta- og leikfimisiökana, vegna annríkls og þaö hefur jafnframt vakiö veröskuldaöa hrifningu þeirra, sem höföu gefist upp á öllu ööru en aö láta reka á reiöanum og héldu sig alls óhæfa til að ná nokkrum árangri í líkamsrækt. Æfingarnar eru ekki einungis ótímafrekar — tæklö vekur líka furöu manna vegna þess hve lítillar áreynslu æfingaiökanir meö því krefjast og hve árangur af þeim er samt skjótur og óvéfengjanlegur. Rannsóknir hafa sýnt aö meö 60% orkubeitingu næst 4% vöðvastæling á viku hverri þar til hámarkiö hefur náöst. Þaö sem Bullworker-æfingar hata komiö til leiöar hjá öörum getþ þær líka áorkaö hjá þér. í hverrri æfingu njóta slakir vöðvar góös af auknu blóöstreymi, sem flytur með sér súrefni og sópar burt eiturefnum. Allur líkaminn hlýtur ábata af aö aukakílóin fara aö brenna upp og líðan þín stórbatnar. Þér er boöiö aö kauþa Bullworker gegn skilatryggingu. Viljiröu einhverra hluta vegna ekki halda tækinu, er þér frjálst aö skila því ásamt veggspjaldinu og krefjast endurgreiöslu innan 14 daga trá móttöku þess. SENDUM ÓKEYPIS 24 SÍÐNA LITMYNDA- BÆKLING. Pöntunarsími 44440, kl. 10—4 í dag og alla virka daga. Póstverzlunin Heimavai pósthólf 39, 202 Kópavogi. 14 daga skilatrygging Viö skorum á Þig aö reyna Bullworker í tvær vikur, halda Dví, ef Þú sannfærist um kosti Þess innan 14 daga, en skila Því ella meö æfingaspjaldinu og krefjast endurgreiöslu. Viljiröu eingöngu fá 1 upplýsingar um tækiö til pess aö geta óttaö pig betur áöur en pú ákveöur pig, munum viö senda pér bæklinginn. Geröu okkur grein fyrir hvaö pú vilt á afklippingunum hér fyrir neöan, — og svar okkar berst pér fljótlega. • Sendu afklippinginn sem beiðni um nánari upplýsingar án skuldbindingar EÐA sem pöntun gegn póstkröfu meö 14 daga skilarótti frá móttöku tækisins. • Sendið mór: □ Upplýsingar □ ..stk. Bullworker Buliworker gerir þér kleift að verða hreykinn af iíkamshreysti þinni. NAFN HEIMILISFANG .

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.