Morgunblaðið - 09.06.1979, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1979
11
%
% %
X i
\ 1
V
■■■
Flugdreki, hannaður og málaö-
ur af ameríska listamanninum
Tom Van Sant.
sportveiöimenn notaö flugdrek-
ann viö veiöar. Kosturinn viö
slíkar vejöar er augljós. Drekinn
getur svifiö langt á haf út og á
þann hátt er hægt aö krækja í
þann stóra. Aö sama skapi er
ókosturinn einnig augljós. Komi
sá stóri á, hvernig á þá aö ianda
honum?
íslendingar hafa lítiö notaö
flugdreka viö fiskveiðar, enda
sáust varla flugdrekar hérlendis
fyrr en um 1930. En landinn er
snöggur upp á lagiö og því hefur
ýmislegt veriö reynt hér í flug-
drekamálum þessi fáu ár.
Piparkerling ein fyrir austan,
sem gekkst upp í því aö ná-
grannarnir héldu hana þrifna í
meira lagi, geröi þaö aö vana
sínum aö flagga rauöröndóttum
sængurfötum sínum um helgar.
Mikiö gekk á fyrir kerlu og
sveiflaöi hún léreftum sínum vítt
og breitt um garöskika sinn.
laugardag einn í hávaöaroki
tóku nágrannar hennar eftir því,
aö kerling var komin á stúfana.
Meö meiriháttar rassaköstum
skellti hún upp bæjardyrunum,
baöaöi út höndunum og rak
Svokallaöur lestarflugdreki.
Erfitt er aö flugsetja hann sök-
um stærðarinnar.
nýtt, rósótt sængurver út í
vindinn. Þaö skipti engum tog-
um, vindurinn fyllti veriö og
kerling tókst á loft og sveif um
stund, unz hún aö lokum hafn-
aöi í kartöflugaröi nágrannans.
Sagna segir, aö kerling hafi
nýlokið við aö sauma veriö og
ógjarnan viljaö sleppa því út í
vindinn. lítiö fór fyrir kerlu eftir
þetta, en hún er eflaust fyrst
kvenna á íslandi til aö fljúga
drekaflug.
Þessi saga sýnir vel, aö hér-
lendis skortir ekki vind til flug-
drekaflugs. Sportiö er ^infalt og
ódýrt og öll fjölskyldan getur
tekiö þátt í því. Sláum nú til,
smíöum flugdreka og notum
ímyndunarafliö, því á þá má
mála allt milli himins og jaröar.
Hvað geta börn og unglingar gert í sumar?
FélagsmáLastofnun Kópavogs skipulegg
ur sumar starf meðal bama og unglinga
Á vegum Félagsmálastofnunar
Kópavogs veröur ýmisleg starfsemi í
gangi fyrir börn og unglinga í
sumar.
íþrótta- og útilífsnámskcið verður
fyrir börn á aldrinum 8—14 ára, 4
vikur í júní frá 10—15 virka daga.
í austurbænum fer námskeiðið
fram á Kópavogsvelli, við Digranes-
skóla og við Snælandsskóla, en í
vesturbænum við Þinghólsskóla.
Námskeið þessi hófust 5. júní s.l.
Þátttökugjald er 8000 krónur en
þátttakendur skulu hafa með sér nesti
sem þeir borða í hádeginu en heita
súpu eða kakó fá þeir á staðnum.
Námskeiðið byggist fyrst og fremst
á íþróttum og leikjum en ýmislegt
fleira fléttast þar inn í t.d. heimsóknir
í siglingaklúbbinn, reiðskólann og
sundlaugina. í lok námskeiðsins verð-
ur farin tveggja daga ferð að Laugar-
vatni. íþróttakennarar, auk aðstoðar-
fólks, munu sjá um kennslu á nám-
skeiðunum en forstöðumaður þeirra
er Hafsteinn Jóhannesson.
Starfsvellir og gæsluvellir
í Kópavogi verða reknir starfsvellir
á eftirtöldum stöðum: neðan Reyni-
grundar í Snælandshverfi, við skóla-
garða við Kópavogsbraut, við leikvöll-
inn og við Efstahjalla. Einnig er
ráðgert að smíðavöllur verði í tengsl-
um við skólagarða neðan Kjarrhólma.
Starfsvellirnir eru fyrir börn á
öllum aldri. Þeir eru opnir frá kl.
9—17 alla virka daga í júní, júlí og
ágúst. Leiðbeinendur annast eftirlit á
starfsvöllunum og er aðgangur ókeyp-
is.
Gæsluvellir verða á eftirtöldum
stöðum: í vesturbæ: á Borgarvelli við
Hábraut og á Holtsvelli við Borgar-
holtsbraut. í austurbæ: á Brekkuvelli
við Fögrubrekku, á Hlíðarvelli við
Hlíðarhvamm, á Hólavelli við Bjarn-
hólastíg, á Snælandsvelli við Reyni-
grund og á Hjallavelli við Efstahjalla.
Opnunartími vallanna verður í sumar
kl. 9—12 og 14—17 alla virka daga.
Gæsluvellirnir eru opnir börnum á
aldinum 2—6 ára. Kristjana Stefáns-
dóttir hefur umsjón með völlunum.
Siglingaklúbburinn
Kópanes
Siglingaklúbburinn Kópanes er í
Vesturvör við Fossvog. Klúbburinn er
opinn í júní, júlí og ágúst sem hér
segir:
Barnadeild (9—10 ára): þriðjudaga
og fimmtudaga kl. 13—15.
Yngri deild (11—12 ára): mánudaga,
þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga
kl. 15-17.
Fullorðnir (13 ára og eldri): mánu-
aga, þriðjudaga og föstudaga kl.
|7—19 og fimmtudaga kl. 17—22.
Þátttökugjaldið fyrir allt tímabilið
ér 12.000 fyrir fullorðna, 8.000 fyir þá
sem eru í yngri deild og 4.000 í
barnadeild. Einnig eru seld skírteini
sem gilda hálft tímabilið, mánaðar-
skírteini einnig má greiða fyrir ein-
stök skipti. Innritun fer fram í húsi
klúbbsins en forstöðumaður hans er
Guðleifur Guðmundsson.
Skólagarðar og reiðskóli
Fjórir skólagarðar verða starfrækt-
ir í sumar, á horni Kópavogsbrautar
og Urðarbrautar, við Fífuhvammsveg,
í landi Ástúns við Nýbýlaveg og neðan
Kjarrhólma. Starfsemin hefst nú í
júní og henni lýkur í lok ágúst. Öllum
börnum á barnaskólastigi er heimil
þátttaka en gjaldið er 4,500 krónur.
Umsjónarmaður garðanna verður
Þórunn Björnsdóttir.
Fimm námskeið verða í reiðskólan-
um í sumar .en skólinn er rekinn
sameiginlega af tómstundaráði og
hestamannafélaginu Gusti. Hvert
námskeið stendur í 2 vikur. Kennt er
alla virka daga, 3 kennslustundir í
senn og er hvert námskeið þrískipt,
þ.e. kl. 9, 13 og 16. Námskeiðin verða
sem hér segir: 11. júní til 22. júní, 25.
júní til 6. júlí, 9. júlí til 20. júlí, 30. júlí
til 10. ágúst og 13. ágúst til 24. ágúst.
Þátttökugjald er 12.000 krónur fyrir
Kópayogsbúa og Gustsfélaga, en
17.000 fyrir aðra. Kennari verður
Bjarni Sigurðsson.
Lindarbær
Opiö frá 9—2.
Gömlu dansarnir í
kvöld.
Þristar leika.
Söngvari: Gunnar Páll.
Miöa- og boröapantanir
eftir kl. 20, sími 21971.
Gömludansaklúbburinn Líndabæ.
Frá Nausti
Opiö til 2
Fjölbreyttur matseöill.
Þar á meöal soðinn nýr Hvítárlax.
Tríó Naust sér um tónlistina.
Boröapantanir í síma 17759
Verið velkomin í Naust.
Magnús Jónason
Árni Johnsen
Niðnæturskemmtun
í Háskólabíói,
sunnudaginn 10. júní kl.
11.30.
Púðluhundarnir
Rudy og
Pushkin
Síamskisurnar
John-John,
Mími, Tíbrá,
og Nínó
Tízkusýning ffyrir
ffeitar konur.
Lúðrasveitin Svanur og
Big Band leika.
Stjórnandi Sæbjörn
Jónsson.
Eitthvað fyrir alla.
Miöar veröa seldir í
Háskólabíói í dag
frá kl. 4.
ÞuHður Pólsdótlir,
Krtotln Sadti Arni Ellar Quórún
Krlatinsdóttlr
K völdskemmtun
með Guðrúnu Á&Co
í léttum dúr og moll
Söngskólakórinn í Reykjavík.