Morgunblaðið - 09.06.1979, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ1979
15
BING CROSBY
Hann var einn aí fyrstu
dægurlagasöngvurunum. Rödd
hans yfirgnæfði skemmtanaiðn-
aðinn í Bandaríkjunum á stríðs-
árunum og áratugunum eftir
stríð. Bing Crosby var stjarna
Ilollywood rómantíkurinnar og
án efa einn vinsælasti dægur-
lagasöngvari á þessari öld. Lag
hans White Christmas varð þjóð-
söngur Bandaríkjamanna númer
tvö á stríðsárunum og það lag er
leikið í útvarpsstöðvum víða um
heim enn í dag og um ókomna
tíð, því það telst nú sígilt. Crosby
lézt á golfvelli í Madrid fyrir
tæpum tveimur árum, 74 ára að
aldri og enn vinsæll eftir hálfa
öld í sviösljósinu og sextfu kvik-
myndir að baki.
Hann var sá söngvari sem skóp
stílinn sem aðrir dægurlaga-
söngvarar tóku upp áður en
kappar eins og Presley hertóku
sviðið með tilkomu rokksins.
Crosby hélt samt sínu striki og
átti sitt trygga fylgi aðdáenda.
Hann var lengi eftirsóttasti
skemmtikraftur heims og þekkt-
asti söngvari sinnar samtíðar.
Frank Sinatra lét svo um mælt
að hann ætti Crosby frama sinn
að þakka. „í æsku dáði ég Bing
Crosby. Á fullorðinsárum var
hann mér góður vinur. Bing skilur
eftir sig skarð í tónlistarheimin-
um og meðal þeirra sem þótti
vænt um hann. Það þótti víst
flestum.“
Það þykir einatt orð að sönnu
að ólíkt öðrum súperstjörnum
hafi Bing Crosby verið með af-
brigðum geðfelldur náungi, sem
brosti iðulega út í annað og stakk
ekkert í stúf við samlanda sína él
svipuðum aldri með hattinn sinn
og pípuna. í vinsældakönnun sem
gerð var á eftirstríðsárunum sló
hann bæði Truman og Eisenhover
út — án þess að þurfa að skapa
sér einhverja ákveðna ímynd
meðal fjöldans. Hann bara raul-
aði. Og það svo um munaði. Á
stríðsárunum voru hann og grín-
istinn Bob Hope mestu mátar og
skemmtu oft saman. Þótti Crosby
ekki síður gæddur kýmnigáfu en
Hope og þótt sá fyrrnefndi hafi
aðallega verið frægur fyrir söng
sinn hefur hitt eflaust hjálpað
upp á og ekki dregið úr vinsæld-
um hans.
Skírnarnafn hans var Harry
Lillis Crosby en nafnið Bing tók
hann upp sökum einlægrar aðdá-
unar frá blautu barnsbeini á
teiknimyndafígúrunni Bingville
Bugle. Hann var fæddur af
kaþólsku foreldri í Tacoma,
Washington 2. maí, 1904. Bæði
voru foreldrar hans söngelsk og
hvöttu hann á því sviði. Söngnám
hans var þó aldrei mikið því
kennari hans vildi frekar að hann
stundaði raddæfingar en væri
ekki að raula dægurlög. í æsku
hafði hann strax mikinn áhuga á
íþróttum og ef hann tók eitthvað
fram yfir sönginn á fullorðins-ár-
um var það golfið, en á golfvellin-
um lézt hann. Laxveiði heillaði
hann einnig og kom hann til
íslands í þeim tilgangi eins og
flestum mun í minni.
Áður en söngferill hans hófst
fyrir alvöru á þriðja áratugnum
lagði hann stund á lögfræði en
sagðist síðar lítið hafa grætt á því
námi nema kennsluna sem hann
hlaut í framsögn.
Hann kom í fyrsta sinn fram
með söngsveitinni Delta Thythm
Brothers undir stjórn Paul
Whiteman sem var ekki ýkja
ánægður með Bing vegna
drykkjusvalls og kvennafars þess
síðarnefnda.
Bing Crosby varð fyrsti dægur-
lagasöngvarinn sem lét hljóðrita
lög sín fyrir útvarp. Rödd hans
var öllum kunn, þegar Paramount
kvikmyndafélagið bauð honum
hlutverk í kvikmyndinni College
Humour, 1933. í kjölfarið fylgdu
sex tugir annarra kvikmynda og
Fyrsti
fyrir hlutverk sitt sem prestur í
myndinni Going My Way hlaut
hann Óskarsverðlaun 1944. Bing
Crosby var uppáhald bandarísku
þjóðarinnar á kreppuárunum.
Glaðlegur með lög í léttum dúr
hreif hann fólk úr hversdagslegu
vonleysi og ömurleik þessara ára.
Á stríðsárunum skemmti hann
bandarískum hermönnum í Bret-
landi og Frakklandi „undirtektir
þeirra glöddu mig meira en allir
peningarnir frá Paramount",
sagði hann síðar.
Áf öllum kvikmyndunum sínum
hélt hann mest upp á „High
Society". Þar dansaði hann í
smóking með Frank Sinatra og
raulaði lagið True Love í návist
Grace Kelly eins og hann einn gat
raulað'. Það truflaði Crosby aldrei
að hafa önnur stórstirni við hlið
sér. Auk Bob Hope kom hann
fram með stjörnum á borð við
Fred Astaire, Ethel Barrymore og
Ingrid Bergman.
Heimur skemmtanaiðnaðarins
Hann var vinsælli en Truman
og Eisenhover. Lagið White
Christmas varð „þjóðsöngur“ á
stríðsárunum.
dægurlagasöngvar-
inn og sá vinsælasti
Bing Crosby var áhugamikill laxveiðimaður og þessi mynd var tekin er hann kom til íslands í veiði.
er spilltur heimur öfundsýki og
vafasamrar samkeppni. Heimur
eigingirni og sjálfsdýrkunar. í
þessum heimi hrærðist Bing
Crosby í hálfa öld og fáum virtist
hann bera þess merki. Frekar
þótti hann njóta sín betur með
öðrum á sviði en einn og sjálfsálit
hans var aldrei upp á marga fiska.
Bing Crosby var þrátt fyrir auð og
frægð hógvær náungi sem kaus að
halda einkalífi sínu fjarri heims-
ins glaumi.
Hann átti við sín vandamál að
stríða á þeim vettvangi eins og
aðrir. Fyrri kona hans Dixie Lee
sem lézt úr krabbameini 1952 var
drykkjusjúklingur. Hann kvænt-
ist aftur, Kathryn nokkurri
Grant, sem var þrjátíu árum
yngri en hann.
Bing Crosby gerði aldrei mikið
úr sönghæfileikum sínum eða
öðrum hæfileikum. Hann sagði
eitt sinn að frama sinn ætti hann
að þakka prestinum sem hann
játaði syndir sínar.
Síðustu æviárin söng hann ekki
eins mikið og áður en sagðist þó
aldrei ætla að hætta söngnum
alveg. Og líkast til gerir hann það
ekki í bráð.
77/ Luxemborg
■ ■■!■. ’ ^ . W
eða lengra...
Luxemborg er friösæll töfrandi
feröamannastadur, mótaöuraf frönskum
og þýskum menningaráhrifum - þar
sameinast franska glaölyndiö og þýska
nák æmnin. Þarsem landiö erlítiö, erstutt
aö skjótast til ýmissa stórborga í
nágrannalöndunum. Þannig er25 mínútna
akstur til borgarinnar Trier í Þýskalandi og
klukkustundar akstur til Koblenz, sem stendur
þar sem frægustu fljótahéruö Evrópu
sameinast, á mótum Mosel og Rínar.
LUXEMBORG - EINN FJÖLMARGRA STAÐA
íÁÆTLUNARFLUGIOKKAR.
FLUGLEIÐIR