Morgunblaðið - 09.06.1979, Síða 37
J
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1979
37
JD ^
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
Pólverji nokkur, Gormulka, fór
af stað til að sjá hvernig almenn-
ingur hefði það. Hann fór inn í
veitingahús og rakst þar á mann
sem pantaði sér hina dýrmætustu
rétti og dýrustu veigar. Gormulka
hrærðist og sagði. „Ég er afskap-
lega ánægður að sjá yður. Hvernig
farið þér að því að borga svona
dýran kost?"
„Sjáið til Gormulka. Ég er á
eftirlaunum en svo á ég tvo syni í
góðum efnum. Annar er lásasmið-
ur en hinn er múrari."
„Dásamlegt. Þér eruð talandi
dæmi um blessun flokksins fyrir
land okkar. Get ég ekki gert
eitthvað fyrir yður.
„Ó, jú þér eruð vinsamlegur.
Gætuð þér ekki hjálpað mér um
vegabréf til Bandaríkjanna í þrjár
vikur."
„En til hvers í fj...?“
„Það er svo skelfilega langt
síðan ég hef hitt syni mína.“ .
Ein Gyðingasagan er þannig:
Englendingur, Frakki og Gyðing-
ur voru handteknir í Moskvu fyrir
að berjast fyrir málstað sovéskra
Gyðinga. Dómarinn sagðist
myndu láta þá lausa ef þeir gætu
hver um sig svarað rétt einni
spurningu, og spurði Englending-
inn: „Hvaða ár fórst Titanic?
„Árið 1912,“ var svarið. „Rétt,“ og
svo spurði hann Frakkann hve
margir hefðu farist með Titanic.
„1692“, var svarið og aftur var það
rétt. „En þú þarna Gyðingur,"
segir dómarinn. „Hvað hétu far-
þegarnir?".
Þessir liringdu . .
Vorvfcur
til
visu um
Velvakanda
vorið og
G.Þ. hringdi
eftirfarandi
vorkomuna:
„Vor í lofti. Vetur flýr.
Vonir bóndans glæðast.
Beitargróður blómgast nýr.
Blessuð lömbin fæðast."
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
í fyrstu umferð svæðamótsins í
Luzern kom þessi staða upp í skák
þeirra Lars Karlssonar, Svíþjóð,
em hafði hvítt og átti leik, og
Helmers, Noregi.
33. g4! og svartur gafst upp, því að
hann getur aðeins valið á milli
þess að verða mát eða tapa miklu
liði. Þeir Karlsson og Helmers
tefldu í B-riðli og komust báðir í
úrslit ásamt þeim GrUnfeld, ísra-
el, og Helga Ölafssyni. Úr A-riðl-
inum komust þeir Hiibner,
V-Þýzkalandi, Guðmundur
Sigurjónsson, Kagan, ísrael, og
Wedberg, Svíþjóð, áfram í úrslit.
Ég las í Franch Time Veekly
fyrir tveimur árum að þegar
launagreiðslur fara fram í borg
nálægt Leningrad, segðu verka-
mennirnir. „Við höfum ekkert með
þetta að gera því við getum hvergi
fengið mat.“ Það er kannski þess
vegna að Rússar hafa nógar rúbl-
ur heima hjá sér. Berjast sósíal-
istarnir hér fyrir þannig Sovét-
íslandi?
Húsmóðir
Á grynnstu
vöðum
„Flestir að þeim gera grín
og geta ei varist brosi
er bæði frönsk og búlgörsk
vín
bjóða þeir með trosi."
Svo kveður heiðursfrú ein í
Vestmannaeyjum og kom mér vísa
hennar í hug þegar ég var að
hlusta fyrir nokkru á morgunút-
varpið, með allar vangavelturnar
um amerískar brennivínsblöndur.
Ég fór að velta því fyrir mér hvort
svona auglýsingar brytu ekki í
bága við lög. Þar sem útvarpið
þefur aldrei tekið til flutnings
tóbaks- og áfengisauglýsingar, má
ætla að málsnillingarnir þar
hyggist bæta það upp því að ekki
má gróði áfengisauðvaldsins í
heiminum þverra þótt hann bygg-
ist á ógæfu annarra.
En það var nú samt annað sem
kom mér til að stinga niður penna.
Það var kyndugt við tal við
einhvern veitingamann. Það vakti
athygli manna að alls staðar í
viðtalinu glytti í gróðasjónarmið-
in. Aðalatriðið er sem sé að
hagnast og helst ríflega á sölu
vínanda og mér skilst að „ávext-
ina“ af starfsemi þessa málglaða
verts megi stundum sjá á Austur-
velli.
„Einhver verður að gera þetta,“
er viðkvæðið eins og hjá böðlinum
forðum. Og alltaf skil ég betur og
betur dýptina í vísubroti Steins:
„Þótt borgir standi í báli
og beitt sé eitri og stáli
þá skiptir mestu máli
að maður græði á því.“
Árni Helgason.
Strandgötu 1 — Hafnarfiröi.
Opiö til kl. 2.00.
Hljomsveitin
Hafrót og diskótek
Matur framreiddur
frá kl. 7.
Boröapantanir í síma
52502 og 51810
Nýtt símanúmer frá
og með 1. júní
84599
Húsasmiðjan,
Súðavogi 3
HÖGNI HREKKVÍSI
VfÐJZZUM AJ'öCsU 'AMÆCrOKZ MÓVJ&ZAAfDl
WKMyV^ OKKAZ'"
GLÆSILEGT
ATVINNUTÆKI
Benz 1113 rúta 38 manna meö Wetter húsi.
Litaö gler, 5 loftlúgur, 4 miöstöövar, 9 lestir,
nýjar setur og áklæði. Vökvastýri og mótor-
bremsur. Upptekin vél svo og allur bíllinn.
Næg atvinna. Óvenju snyrtilegur og glæsi-
legur bíll.
bilaka.MP
íiiiíiihUTiiiiiiTi"! líiTllni
miiTHiiiiMiiiilhiiniHii
SKEIFAN 5 — SÍMI 86010
Tillitssemi
kostar
ekkert