Morgunblaðið - 09.06.1979, Page 39

Morgunblaðið - 09.06.1979, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1979 39 w, Sanngjarn sigur Þór- Q-n UBK OiU BREIÐABLIK sigraði Þór á Akureyri, í 2. deild í gærkvöld með þrem mörkum gegn engu, leikurinn var ekki sérlega vel leikinn, og undir lokin, hitnaði í kolunum, hjá sumum leikmönn- um. Sigurinn var sanngjarn, en þó oí stór miðað við gang leiks- ins, Breiðabliksmenn sóttu meira í byrjun leiksins án þess þó að skapa sér hættuleg íæri. Á 18 mínútu kom fyrsta markið. Aukaspyrna var tekin frá hægri, og Valdimar Valdimarsson skallaði knöttinn mað marki Þórsara og Ingólfur Ingólfsson potaði knettinum í markið. Þarna var vörn Þórs illa á verði. Á 27. mínútu fengu Blikarnir stór- hættulegt færi, Sigurður Grétars- son átti skot á mark Þórs, knötturinn small á stöngina innanverða og út, þar sem Eiríkur markvörður handsamaði knöttinn. Þar sluppu Þórsarar sannarlega með skrekkinn. Stuttu seinna átti UBK Breiðablik annað hættulegt færi, Sigurður Grétarsson, sem reyndist vörn Þórs oft skeinuhættur í leiknum, gaf þá góða sendingu fyrir markið, en framlínumenn UBK náðu ekki knettinum, sem fór rétt fram hjá stöng. Þórsarar sóttu í sig veðrið undir loks hálfleiksins og héldu upp- teknum hætti í byrjun síðari hálfleiks. Síðan jafnaðist leikur- inn og var jafn það sem eftir var. Þór sótti þó heldur meira, en skapaði sér ekki umtalsverð færi. Á 85 mínútu átti Sigurður hættu- legt skot á Þórsmarkið, sem smaug fram hjá stöng. Á 88 mínútu var dæmd mjög vafasöm vítaspyrna á Þór og skoraði Sigurður Grétarsson af öryggi úr spyrnunni. Eftir það var allur vindur úr Þórsurum og stuttu seinna galopnaðist Þórsvörnin og Hákon Gunnarsson skoraði þriðja markið af stuttu færi. Vörn Þórs virkaði sein í leiknum og hinir frísku framlínumenn Blikanna gerðu oft usla í henni. — sh. KSÍgerír hreint fyrír sínum dyrum VEGNA umræðna að undanförnu um knattspyrnulandsleiki og sjónvarp frá þeim hefur KSÍgefið út eftirfarandi tilkynningu: Að undanförnu hafa staðið yfir viðræður milli Ríkisútvarps- ins/sjónvarps annars vegar og Knattspyrnusambands íslands hins vegar varðandi útsendingar af knattspyrnulandsleikjum þeim, sem háðir eru hér á landi í sumar. Fyrir landsleikinn gegn Vestur-Þjóðverjum 26. maí s.l. bauð sjónvarpið kr. 1.300 þús. fyrir réttinn til að sýna leikinn í heild sinni samdægurs. KSI taldi það tilboð og lágt, miðað við þá fjárhagslegu áhættu, sem þvi var samfara að standa fyrir þeim landsleik, og þau áhrif, sem það kynni að hafa á aðsókn. KSÍ setti aldrei fram ófrávíkjanlega kröfu um neina lágmarksupphæð, en þegar af þeirri ástæðu, að sjónvarpið var ekki tilbúið að hækka tilboð sitt fram yfir kr. 1.300 þús. tókust ekki samningar. Á morgun, laugardag, fer fram landsleikur mílli íslands og Sviss, en það er leikur f Evrópukeppni landsliða. KSÍ hefur boðið sjónvarpinu rétt til útsendingar fyrir kr. 1.400 þús. enda sé leikurinn ekki sendur út samdægurs. Þessu tilboði hefur verið hafnað af sjónvarpsdcild Ríkisútvarpsins og útvarpsráði. Það er því Ijóst að leiknum verður ekki sjónvarpað, en það liggur jafnframt fyrir, að þar er ekki við Knattspyrnusamband íslands að sakast. „Slíkar yfirlýsingar eiga ekki rétt á sér“ ÍÞRÓTTASÍÐUNNI barst á fimmtudag eftirfarandi athugasemd frá Knattspyrnudeild Fram: „í Morgunblaðinu í dag mátti lesa að Youri Ilytchev landsliðsþjálf- ari hefði lýst því yfir á blaðamannafundi á miðvikudag að Valur og Fram væru í lélegri æfingu og sökin Iægi hjá þjálfurum liðanna. Tony Knapp hefði hins vegar ávallt fengið leikmenn Vals, sem valdir voru í landslið hverju sinni, í toppæfingu, meðan Youri Ilytchev þjálfaði það lið. Vegna þessa viljum við Framarar, að það komi skýrt fram, að við erum einstaklega ánægðir með Hólmbert Friðjónsson þjálfara 1. deildarliðs okkar og vildum ekki skipta á honum og t.d. Youri Ilytchev. Skömmu áður en Youri lýsir þessu yfir vann Fram t.d. auðveldan sigur á Víkingi, sem doktor Youri þjálfar. Þau úrslit segja í raun það sem segja þarf í þessu máli. Við teljum að slíkar yfirlýsingar eigi ekki rétt á sér og sízt af öllu af hálfu þessa starfsmanns Knattspyrnusambands íslands. Hann ætti að hugsa meira um eigið lið, en ekki að vera að hnýta í kollegana. Virðingarfyllst, Lúðvfk Halldórsson, formaður Knattspyrnudeildar Fram. • Mynd þessi er táknræn fyrir leik Fylkis og Reynis, ríghaldið í andstæðingana og fötin allt að því svipt utan af mönnum. T.v. er Hilmar Sighvatsson, sem kom mikið við sögu í leiknum. Ljósm. Mbl: Kristján. Sigur Reynk~ 4=0 FYLKIR vann stóran og sann- gjarnan sigur á Reyni frá Sandgerði í 2. deild íslandsmóts- ins í knattspyrnu á Laugardals- vellinum í gærkvöldi. Mörkin urðu alls fjögur hjá Fylki, en þau hcfðu getað orðið fleiri miðað við færin sem buðust. Reynismenn skoruðu ekki mark í leiknum. Jafnræði var nokkurt framan af leiknum, stundum bærileg knatt- spyrna, oftar þó langspyrnur og hlaup. Harka var og mikil, bak- hrindingar pústrar og glerhörð návígi. Það var strax grunnt á því góða og ekki batnaði ástandið þegar mörkin fóru að hlaðast upp Fylkis hjá Fylki. Menn sátu þó á strák sínum og létu vera að fljúgast á, pexuðu þeim mun meira í dómaranum og línuvörðum hans. Fyrsta færi leiksins áttu Reynis- menn, á 5 mínútu leiksins. Pétur Sveinsson skaut þá góðu skoti rétt yfir úr aukaspyrnu. Smám saman fóru Fylkismenn að ná betri tökum á leiknum og á 20 mínútu slapp mark Reynis fyrir heppni, þegar Hilmar Sighvatsson skaut þrumuskoti í þverslána. Fyrsta markið kom aðeins 5 mínútum síðar og var Hilmar þar á ferðinni, hafði betur gegn varnarmanni í kapphlaupi um boltann eftir stungusendingu frá Herði Antons- syni, og skoraði laglega fram hjá úthlaupandi markverði Reynis, i—0. Á 36 mínútu bættu Fylkismenn öðru marki við. Hörður tók þá hornspyrnu, en Gretti Gíslasyni var hrint er hann var að ná til ' knattarins. Dæmdi dómarinn víti Q og Ögmundur markvörður k Kristinsson skoraði úr henni af öryggi, 2—0. Þriðja markið kom • aðeins mínútu síðar, Grettir J Gíslason fékk þá langa sendingu ™ fram á völlinn, lék laglega á tvo R varnarmenn Reynis og skoraði k síðan með góðu jarðarskoti, 3—0. ^ Létu Fylkismenn þetta gott heita í • fyrri hálfleik. Fylkismenn voru ákveðnir i að B bæta við mörkin í síðari hálfleik ^ og þegar á fyrstu mínútunni |a brenndi Hilmar illa af í dauða- ■ færi. Hann bætti það þó upp 4 , mínútum síðar, þegar hann J skoraði fjórða mark Fylkis með B fallegu skoti frá vítateigslínunni, ^ 4—0. Eftir markið dofnaði um k hríð yfir Fylki og Reynismenn ^ áttu sinn besta leikkafla. Ög- , mundur markvörður stóð þá vel ' fyrir sínu, greip inn í af öryggi B þegar svo bar undir og varði einu ^ sinni mjög vel gott langskot k vinstri bakvarðarins eftir auka- ■ spyrnu. Þá skall einnig hurð nærri J hælum eitt sinn, er knötturinn A barst fyrir mark Fylkis, tveir B Reynismenn voru þar fyrir, en fe hvorugum tókst að pota í knött- I inn. Þegar líða tók að leikslokum fór J að færast líf í Fylki á nýjan leik og í fengu þeir færi á að bæta mörkum ^ við, einkum þeir Grettir og Ómar k Egilsson. Fuðulegt atvik átti sér h hins vegar stað þegar skammt var . til leiksloka, Hilmar lék inn í J teiginn, vígalegur ásýndum. Var B hann kominn í gott færi þegar K honum var brugðið. Dómarinn fe blés, en ekki víti, heldur dæmdi ■ hann aukaspyrnu á Hilmar! Fylkismenn voru vel að sigrin- J um komnir og var hann síst of B stór. Besti leikmaður Fylkis var ^ Hilmar Sighvatsson beinlínis I eitraður í framlínunni, það mátti i aldrei af honum líta. Hann er að . vísu grófur leikmaður, en hann lætur hart mæta hörðu. Margir B leikmanna Fylkis áttu mjög góða fe spretti, t.d. Kristinn bakvörður, k Grettir og Hörður, einnig ungur i tengiliður Guðmundur að nafni. Reynisliðið var á hinn bóginn ™ slakt, flestir leikmanna liðsins virkuðu þungir, þó að ekki sé hægt að segja annað en að allir hafi k gert sitt besta,— gg. ^ Umboösmaöur fyrir norskan skipabúnaö A.S. Bergens Mekaniske Verksteder óska eftir umboðsmanni á íslandi til að selja dieselmótora og lágþrýstivökva-þilfarsvélar. BMV sem framleiðir ca. 200.000 áshestöfl á ári er stærsti framleiðandi dieselmótora í Noregi. Þetta eru fjórgengnis- mótorar með snúningshraða 720—900 o/mín. Þegar er búið að selja meíra en 5000 mótora. BERGEN DIESEL gerð NORMO drifkerfi er selt með öllum búnaði, mótor, fjarstýringu, gír, skrúfu og skrúfuhring. Kerfiö er meö einum eöa fleiri mótorum og afkastagetan er frá 1025 til 16.000 áshestöfl. BERGEN DIESEL rafstöövar (generatorsett) eru með afkastagetu frá 380 KW til 2.710 KW til að nota í skipum og hvar sem er. Auk þess eru framleiddar fullbúnar aflstöðvar með öllu sem þeim þarf að fylgja. Viö þær má einnig bæta, þannig að þær geti hitaö upp stofnanir, iðnaðarhúsnæöi og íbúðarhús. Þegar hafa selst rúmlega 1.500.000 kw í ca. 1100 skip. NORWINCH vökva þilfarsvélabúnaður byggist á eigin framleiðslu á lágþrýstivökvabúnaði og BMV er einn af helstu framleiðendum heims aö því er varðar þilfarsvélar. Við framleiðum spil fyrir allar gerðir skipa, fiskiskip, strandferðaskip, dráttarbáta o.s.frv. Við höfum þegar selt rúmlega 6.000 vélasamstæður. Óskum eftir virkum umboðsmanni sem hefur góða þekkingu á skipabúnaöi. Nánari upplýsingar gefur Avd. ing. Jörgen Johnsen eða Overing. Harald S. Arntzen, á Hótel Loftleiðum á tímabilinu 7.—15. júní 1979 eða salgssjef Mortensen. A.S BERGENS MEKANISKE VERKSTEDER AKERGRUPPEIM Postboks 858 — 5001 Bergen, Norge. Tlf. 47 5 19 00 00

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.