Morgunblaðið - 16.06.1979, Síða 14

Morgunblaðið - 16.06.1979, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1979 í Evrópu hefur raunverðið á olíu á frjáls- um markaði í Rotterdam rokið upp að nýju. Almennt er reiknað með 25 — 30 dollurum á tunnuna og að auki hefur framboðið á þessum ákveðna markaði aukist verulega, segir fréttaritari franska blaðsins Le Monde í grein, er hann skrifaði frá fundi í Bruxelles þar sem orkumálaráð- herra Efnahagsbandalagsins ráðguðust um viðbrögðin við afleiðingum hækkaðs olíuverðs á efnahag Evrópu og möguleika á að gera þær léttbærari. Iðnaðarráðherra Frakka, Giroud, lagði þar fram tillögu um að aðildarríkin í Efnahagsbanda- laginu kæmu á kerfi, þar sem þak yrði sett á olíuverðið á Rotterdam- markaði og að jafnframt yrðu teknar upp viðræður við olíufram- leiðslulöndin. En ráðherranefndin um orkumál tók ekki tillögur Frakka til meðferðar vegna efa- se'mda nokkurra aðildarríkja og verður málið aftur á dagsskrá á fundi 18. júní, að því er segirí Le Monde. Hið ótrygga ástand á olíu- markaðinum, sem ekki hefur batnað eftir að íranir hófu aftur framleiðslu sína, „fer saman við truflanir á birgðadreifingakerf- inu“, segir í fréttinni. Mörg stór alþjóðafyrirtæki hafa gert stjórn- um aðildarríkjanna aðvart um að þau kunni af óviðráðanlegum ástæðum að neyðast til að draga úr afhendingu og það í verulegum mæli. Eða með öðrum orðum, að þau afhendi ekki óskert það magn, sem samið er um svart á hvítu í úndirrituðum samningum. EBE-ríkjunum þykir þetta tor- tryggilegt og grunar að félögin vilji halda hluta af þeirri olíu, sem þau hafa til ráðstöfunar, til að selja hana á betra verði en stend- ur í samningum og nota sér þannig hinn frjálsa markað. Ræddu EBE-löndin m.a. nauðsyn þess að fylgjast með starfsemi olíufélaganna, í því skyni að tryggja að staðið verði við afhend- ingar á komandi mánuðum, nema fullgildar afsakanir liggi fyrir, er réttlæti annað. Ekkert var þó minnst á hvað gera skyldi, ef olían yrði ekki afhent og gildar ástæður ekki gefnar, segir í Le Monde. Þá hafa aðildarríki EBE áhyggjur af að gífurlegar verðhækkanir á frjálsa markaðinum í Rotterdam megi nota sem afsökun til nýrrar hækkunar framleiðenda á olíu- verði, jafnvel þótt magnið verði takmarkað, sem unnið er á þessum markaði. Þetta ástand nálgast það að vera hneyksli, sagði Francois-Poncet, utanríkisráð- herra Frakka, en þeir vilja ganga lengra en aðrir og hafa lagt til að komið verði upp raunverulegum olíukvóta undir eftirliti þar til skipaðs eftirlitsmanns og hámarksverð verði ákveðið. Sum- ar sendinefndir, svo sem hin ítalska, tóku jákvætt í þessar tillögur. Aðrir, svo sem Bretar voru mun varkárari. „Því yrði varið að beita of miklum þrýstingi í Rotterdam, þá myndi frjálsi markaðurinn bara flytjast annað," eins og hinn nýi breski ráðherra Howel orðaði það. Loks eru Þjóð- verjar, sem stefnu sinni sam- kvæmt eru ávallt tregir til hafta- aðgerða, ekki hlynntir tillögu Frakka. En ekki kemur í ljós fyrr en á fundinum 18. júní hvað um þær verður. • Græðir hver sem betur getur Bandaríska vikuritið Newsweek tekur í grein um olíumarkaðinn sláandi dæmi um það, sem Evrópulöndin kölluðu óróleikann á Rotterdammarkaðinum: Vest- ur-þýzkur olíukaupandi hafði keypt 40.000 tonn af bensíni á frjálsa markaðinum í Rotterdam fyrir 11,4 milljón dollara, geymt það í tvo mánuði, og selt svo aftur til eins af stóru olíufélögunum með 4 milljón dollara gróða að mati olíukaupmanna í Rotterdam eru þessi viðskipti fullkomlega eðlileg. „Þetta gera allir. Þetta er það sem er stöðugt að gerast á markaðinum eins og hann er nú,“ sagði einn olíukaupandinn. I rauninni hefur verið erfitt að græða ekki verulega í Rotterdam að undanförnu segir blaðið. í kapphlaupinu um síminnkandi birgðir, hafa stóru olíufélögin og olíuneytendaþjóðirnar leitað fyrir á lausamarkaðinn með dagprís- ana. Afleiðingin er sú, að verðið rýkur upp. Síðan í ársbyrjun hefur hráolíuverðið á lausa markaðinum tvöfaldast, farið upp í 37 dollara á tunnuna, miðað við 16,50 dollara meðalverð á langtímasamningum hjá OPEC löndunum. Þessi geysi- Olíu- skip í Rotter- dam. forseti allsnarpar umræður. Hafði franski iðnaðarráðherrann Giraud það eftir James Schlesingar, að Bandaríkin gætu fallist á að hætta 5 dollara niðurgreiðslunni á diesel-olíu og húshitunarolíu, ef komið yrði á hámarksverði á Rotterdammarkaðinn. Þetta mun hafa komið þýzku sendinefndinni mjög á óvart, sem kom með Helmut Schmidt, kansl- ara Þýzkalands, til viðræðna við Carter forseta daginn eftir. En Þjóðverjar munu hafa neyðst til þess að bjóða í olíu í Rotterdam á móti Suður-Afríku og ísrael, sem eiga enn færri kosta völ. Höfðu fylgdarmenn Schmidts fyrirfram sagt að þeir væru á móti tillögu Frakka, sem þeir teldu raunar óraunhæfa og höfðu ætlað að taka vægilega á niðurgreiðslum Banda- ríkjamanna. Virtist Schmidt hafa áttað sig á því að a.m.k. væru tvær hliðar á málinu. Sýnilega samúð Bandaríkjamanna með tillögum Frakka um strangt eftirlit og takmörkun á dagsverði á olíunni, sem Þýzkaland stóð mjög á móti á fundum Efnahagsbandalagsins 10 dögum fyrr, gerir málið mun flóknara fyrir Helmut Schmidt. Vestur-Þýzkaland hefur neyðst til að kaupa mikið af olíunni á frjálsum markaði, þar sem Frakk- ar aftur á móti hafa bannað innflutning á olíu á svo háu verði. Kapphlaupió um olíuna lega verðhækkun á frjálsa mark- aðinum hefur vakið grunsemdir um að bæði OPEC-ríkin og stóru olíufélögin séu að möndla með markaðinn á þann hátt að beina olíu og hreinsuðum olíuafurðum frá afhendingu upp í samninga og yfir í ábatasamari lausamakaðs- sölu sem nær yfir 4% af oliunotk- un heimsins. Og um leið gætir vaxandi ótta um að OPEC-ríkin kunni að hækka fastaverðið síðar í þessum mánuði, til að ná jöfnuði við frjálsa markaðsverðið. Það er þetta sem franski utanríkisráð- herrann kallar hneyksli. • Markaður með engan samastað í venjulegri merkingu er Rotter- dam-markaðurinn í rauninni eng- inn markaður. Hann hefur ekki aðsetur í neinu einu húsi og leikurinn fer ekki fram á neinum einum stað. Þess í stað er þetta samtengt net um víða veröld, sem að sögulegri hefð kemur saman í einum punkti í umferðarmestu höfn í Evrópu og er rekið meira eða minna af 200 til 300 olíukaup- endum í Rotterdam. Ástæða þess að lausasölumarkaðurinn er yfir- leitt til, er sú að olíuhreinsistöðv- arnar geta aldrei verið öruggar um að hafa nægt magn af ein- hverri ákveðinni tegund til að mæta eftirspurn kaupenda. Eitt- hvert stóru olíufélaganna getur um tíma vantað þotubensín eða til dæmis einhverja sérstaka tegund af hráolíu og leitar þá til Rotter- dam til að kaupa viðbótarmagnið. „Þetta er eins og þegar klæðskera vantar nauðsynlega grátt fataefni til að sauma upp í pöntun. Þá borgar hann hvaða verð sem er fyrir það,“ er haft eftir bandarísk- um embættismanni í Hague. Og hátt verð á frjálsum markaði dregur auðvitað að olíuna. Ef til vill er stórtækustu dagprísasal- arnir útflutningsríkin sjálf. íran tekur opinberlega frá 200 þúsund tunnur á dag á frjálsa markaðinn og hótar að setja enn meira magn til hliðar í þeim tilgangi. Libýa, sem kom til dæmis nýlega ákvæð- um um „force majeure" (ófyrirsjá- anlegar ástæður) inn í suma lang- tímasamninga sína við olíufélögin, og grunur leikur á því að olían sú hafi verið flutt rakleiðis á Rotter- dammarkað. Á sama hátt kenndi Mexico hafnarvandræðum um að ekki var hægt að standa við gerða samninga, en margir sérfræðingar telja að olían hafi í raun verið send beina sjóleið á frjálsa mark- aðinn. A.m.k. hefur hún horfið. Stundum eru hráolíufarmarnir frá OPEC seldir oftar en einu sinni og dæmi um að þeir gangi 5—6 sinnum milli kaupenda og alltaf hækkar verðið. • Kapphlaupið um olíuna Meðan olíukaupmenn í Rotter- dam græða, hafa ýmsir aðilar reynt að rýna í frjálsa markaðinn, svo sem Svíar, Svisslendingar, Efnahagsbancjalagslöndin, Banda- ríkjaþing og Andhringanefndin í Bandaríkjunum. Tillaga Frakka hjá Efnahagsbandalaginu um sameiginlegar ráðstafanir og þak á olíuverðið hefur verið rædd og gagnrýnd. Það virðist liggja ljóst fyrir að samstaða er ekki um slíkar ráðstafanir, segir frétta- maður Le Monde. Jean Francois-Poncet, utan- ríkisráðherra Frakka, ræddi málið við Carter Bandaríkjaforseta. Bandaríkjamenn telja að sam- keppnin um olíuna frá vestur-evr- ópskum innflytjendum, er borga hámarksverð, dragi húshitunar- olíu frá hreinsistöðvum í Karab- íska hafinu, sem annars hefðu farið á amerískan markað og lét Schlesingar orkumálaráðherra það í ljósi. Viðbrögðin hafa verið þau að niðurgreiða 5 dollara á tunnu hjá bandarískum innflytj- endum, svo að þeir séu samkeppn- isfærir við Evrópumenn. Þessu hafa Evrópumenn reiðst mjög, og telja réttilega að stefna Banda- ríkjamanna kyndi undir olíustríð, öllum til ills eins. Um þetta áttu þeir Francois-Poncet og Carter Nánast hneyksli, segir Francois-Poncet Carter forseti: 5% niðurgreiðslu hætt ef verð á olíu verður tak- markað. Francois-Poncet, utanríkisráð- herra Frakka: þak á verðið á frjálsa markaðinum. Schmith kanslari: á móti verðtak- mörkunum. 0 Orkusparnaður 5% Bæði Schmidt og Francois- Poncet lögðu í viðræðum sínum við Carter áherslu á sparnaðar- ráðstafanir á olíunotkun, og að iðnaðarríkin yrðu að kanna aðra orkukosti, svo sem kol og kjarn- orku. í Bruxelles höfðu ráðherrar Efnahagsbandalagsins enn á ný lagt áherzlu á nauðsyn þess að auka átakið til orkusparnaðar og ná markmiðinu, sem evrópuráðið setti í marz um að draga 5% úr notkun miðaða við upphaflega notkunaráætlun fyrir árið 1979. Ekki eru nema tveir dagar síðan M. Brunner, sem fer með orkumál bandalagsins lýsti því yfir að aðgerðir ríkjanna væru ófull- nægjandi og myndu ekki leiða til meira en 3,5% orkusparnaðar í árslok. Var dreift skýrslu um aðgerðir þær sem hafnar eru í bandalagsríkjunum, og sýnt fram á að varla væri hægt að gera sér vonir um að dragi meira en 2,4% úr notkuninni í Frakklandi til ársloka, á móti 4,8% í Bretlandi og 4,9% í Belgíu, svo dæmi séu tekin. Eftir að hafa kynnt sér betur fyrirhugaðar efnahagsaðgerðir í Frakklandi og viðleitni fyrirtækj- anna sjálfra, lýsti ráðið yfir í fréttatilkynningu að það væri bjartsýnt, „telur að aðgerðir til betri orkunýtingar, sem þegar eru hafnar og munu hafa vaxandi áhrif, svo og nýjar aðferðir, ættu að gera fært að ná settu marki". Bæði bandarísk og þýzk stjórnvöld hafa átt viðræður við fjölþjóðaolíufélögin og lagt að þeim að kaupa ekki olíu á frjálsum markaði á of háu verði. Tilhneigingar hefur gætt hjá olíuframleiðsluríkjunum að hækka verð á hráolíu. Fram- kvæmdastjóri Alþjóðaorkumála- stofnunarinnar lætur hafa eftir sér, að hækkun á hráolíu sé þegar ^rðin 25% frá áramótum. í kjölfar Irans, Líbýu og Venesúela kom röðin að Ábou Dhabi að hækka verðið á hráolíu sinni, upp í 17,90 dollara. Og nú mun verð OPEC- ríkjanna væntanlega enn hækka eitthvað þegar þau koma saman í Genf 26. júní næstkomandi. Hugsanlega verður þó ofan á hugmynd bæði Saudi Arabíu og Arabísku furstadæmanna um að hætta við „hókus-pókus“ verðin og setja eitt samræmt verð við 17 eða 18 dollara. Þetta væri þó naumast annað en skráning á verði, sem þegar hefur verið að hækka síðan í apríl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.