Morgunblaðið - 16.06.1979, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ1979
15
BLðM
VIKUNNAR l“( > \ \k ' ^ i
UMSJÓN: ÁB. (210) v-y
Sýning á handvinnu aldraðra var haldin í safnaðarheimili
Bústaðasóknar sunnudaginn 20. maí. Þar voru sýndir munir sem
aldraðir í sókninni höfðu unnið á samverustundum í safnaðarheim-
ilinu sem haldnar hafa verið vikulega á miðvikudögum í vetur.
Safnaðarráð Bústaðasóknar skipulagði samverustundirnar en
formaður þess er Áslaug Gísladóttir.
Garðskriðnablóm
Arabis caucasia/ albida
GARÐSKRIÐNABLOM er þekjublóm sem myndar
breiður með því að leggja grágræn blöð sín eins og
teppi yfir það svæði sem það fær til umráða. Blöð þess
standa sígræn allt árið — en þau fara í feluleik á
vorin því strax í aprílmánuði — í sæmilegu árferði —
skrýðist jurtin ca 15—20 sm háum snjóhvítum
blómum svo ríkulegum að laufið hylst mikið til. Þessi
hvíta blómabreiða stendur í skrauti sínu allt fram í
júní. Garðskriðnablómið blómstrar sem sagt snemma
vors og er þá mjög kærkomið með blómskrúð sitt.
Þegar jurtin er afblómstruð er gott að klippa af
blómstönglana (ef ekki á að safna fræi) og verða þá
blöðin þéttari en ella. Garðskriðnablóm er auðvelt í
ræktun, þrífst svo að segja hvar sem er, en kann best
við sig í þurrlendi í magurri, sendinni, kalkríkri mold
í sól. Það getur orðið all fyrirferðarmikið sé það látið
einrátt um of en vandalaust er að halda því í skefjum.
Til eru ýmis afbrigði af garðskriðnablómi eins og t.d.
Arabis caucasia flore plene sem er ofkrýnt. Arabis
albida er með nokkuð dekkra lauf en önnur afbrigði
og eru blaðjaðrarnir gulhvítir. Síðla sumars þegar
blöðin eru farin að þéttast og stækka er hún hin
skrautlegasta laufjurt. Arabis rosea er með rósrauð
blóm. Arabis bléopharophylla með karmínrauð blóm,
Arabis rosabella með falleg bleik blóm.
Garðskriðnablómi er auðvelt að fjölga með fræi
sem spírar á ca 15 dögum og kemur betur upp sé
fræílátið haft í birtu. Græðlinga má og nota og þeir
þá settir í létta mold og skýlt gegn sól og ofþornun
meðan þeir eru að festa rætur. Líka má fjölga
skriðnablómum með skiptingu á vorin.
Garðskriðnablóm er fyrirhafnarlítið í ræktun en
stendur vel fyrir sínu.
S.Á.
Driíhvítt garðskriðnablóm fer vel í steinhæðinni með rauðfjólu-
bláum Júlíulykli (Primula juliae)
Námskeið
um viðgerð-
ir á einangr-
unargleri
Dagana 18,—22. júní mun Knud
Mogensen ráðunautur hjá Tekno-
logisk Institut, Danmörku, halda
fyrirlestra um glugga og tvö nám-
skeið um hvernig gera megi við
tvöfaldar glcrrúður sem orðnar
eru óþéttar.
Fyrra námskeiðið um rúðuvið-
gerðatækni verður haldið í Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðarins
þriðjudaginn 19. júní. Námskeið
þetta er einkum ætlað glerfram-
leiðslufyrirtækj um, en einnig við-
haldsdeildum frá ríki og sveitarfé-
lögum. Seinna námskeiðið verður
haldið á sama stað miðvikudaginn
20. júní og er öllum opið. Tólf
þátttakendur geta verið á hvoru
námskeiði. Þátttaka i námskeiðun-
um tilkynnist Iðntæknistofnun ís-
lands.
Auk framangreindra fyrirlestra
mun Knud Mogensen halda tvo
fyrirlestra um glugga í Bygginga-
þjónustunni, Grensásvegi 11. Þátt-
taka í þeim er öllum opin. Fyrri
fyrirlesturinn verður 18. júní og
fjaHar hann um hönnun glugga og
skaða á gluggum við danskar að-
stæður. Síðari fyrirlesturinn verður
haldinn 21. júní á sama stað og
fjallar um ísetningu einangrunar-
glers og plastglugga.
(Fréttatilkynning).
Reynt að líf ga
upp á
NÚ FYRIR skömmu opinberaði
verslunin Flóin lcyndardóma
sína. í versluninni eru á boð-
stólum úrval af notuðum fatn-
aði bæði frá íslandi og Eng-
landi, en í bígerð er að hefja
ennfremur innflutning frá
Bandarfkjunum. Einnig verður
til sölu keramik og grafík, auk
þess sem fengist verður við
sauma í versluninni.
bæinn
Þau sem að Flónni standa eru
flest nemendur í Myndlista- og
handíðaskólanum, en þeirra er
ætlunin að þetta mætti verða til
þess að lífga upp á bæjarlífið.
Flóin er til húsa að Hafnar-
stræti 16, og í sumar verður opið
frá 9—6 og á laugardögum frá
9-12.
Kósa og Andnna innan um sumt af því, sem Flóin hefur upp á að
bjóða. Ljósmynd: Kristinn.
ABU
CARDINAL
Bremsan er aftan ó og engin hætta á aö línan sé fyrir þegar mest
liggur viö — óbrjótanleg spóla — sveifina má hafa hægra eöa
vinstra megin — hárnákvæm línuröðun — kúlulegur — ryöfrír
málmur o.fl. o.fl.
Cardinal hefur kostina sem engin önnur opin spinnhjól hafa.
HAFNARSTRÆTI 5
TRYGGVAGÖTUMEGIN