Morgunblaðið - 16.06.1979, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 16.06.1979, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ1979 19 Veður víða um heim Akureyri 12 úrkoma Aimterdam 15 rigning Apena 33 sól Barcelona 23 léttskýjað Berlín 17 rigning Bruésel 18 rigning Chicago 30 bjart Denpasar 32 bjart Helsinki 14 skýjað Hong Kong 29 bjart Jerúsalem 27 bjart Jóhannosarb. 10 sól Kaupmannah. 16 skýjað Lissabon 22 sól London 16 skýjað Los Angeles 30 bjart Madrid 28 sól Majorka 25 léttskýjað Malaga 24 léttskýjað Miami 29 rigning Montreal 22 vantar Moskva 26 8ÓI Kýja Delhi 36 skýjað New York 28 bjart Osló 13 skýjaö París 18 skýjað Reykjavík 8 skýjað Rómaborg 29 skýjaö San Fransisco 17 bjart Stokkhólmur 18 skýjaö Sidney 19 bjart Teheran 34 bjart Tel Aviv 27 bjart Tókíó 26 skyjað Vancouver 20 vantar Vínarborg 20 skýjaö Víkingaskip strandar við Skotland Skotlundi, AP. EFTIR að haía siglt 2000 km. leið yfir Norðursjó frá Noregi og komist heilu og höldnu umhverf- is norður- og vesturströnd Skot- lands, þá rakst eftirlfking af fornu langskjpi víkinga á sker og sökk þar. Öllum sex áhafnar- meðiimunum var bjargað úr sjónum og upp í bát kvikmynda- tökumanna. sem fylgu þeim, til að festa siglinguna á filmu. Áhöfnin sagðist vera ákveðin í því að halda siglingunni áfram þar sem frá var horfið, jafnskjótt og farkosturinn væri orðinn ferðafær að nýju. Ferðinni er heitið til eyjarinnar Manar til að halda upp á 1000 ára 'afmæli þingsins þar. Eyjan Mön sem er í írlandshaf- inu, var eitt sinn undir yfirráðum Noregs en er nú hluti af Bret- landi, og í samræmi við það er áhöfnin bæði skipuð Norðmönn- um og Manarbúum. Á gúmbát yf ir Atlantshafið Halifax, Nova Scotia, 15. júní, Rcuter BRETINN Paul Parsons lét í dag frá Dartmouth á Nova Scotia. Hann ætlar að reyna að verða fyrstur manna til að fara einsamaíl yfir Atlantshafiö í gúmmfbát. Parsons, sem er burðarmaður á Heathrowflugvelli, þarf að leggja að baki tæpa 5000 km. til að ná þessu marki sínu í 5 metra löngum far- kosti sínum. Hann var dreginn 30 km. frá landi til að komast á áhrifasvæði þangað sem Golf- straumsins fer að gæta. Hann von- ast til. þess að ná suðurströnd Englands eftir 2 mánuði. Aðspurður kvað hann það vera óeðlilegt að bera ekki einhvern beyg í brjósti fyrir ferðinni. „Það var ekki um margt að ræða þegar fólk hefur bæði róið og farið með loftbelgjum yfir Atlants- hafið.“ Kosningar í Færeyjum? Frá fréttaritara Mbl. í Þórahöfn f gœr. Stjórnarkreppan í Færeyjum hefur harðnað að undanförnu og getur svo farið að kjósa verði að nýju til Lögþingsins. Stjórnarflokkarnir þrír funduðu í Þórshöfn síðdegis og á þessum fundi staðfestu flokkarn- ir að ekki hefði tekist að ná samstöðu um hvernig leysa ætti þann vanda sem skapast hefði í sambandi við áætlunarferðir skipa til Suðureyjar og útlanda. Atli Dam lögmaður sagði eftir fundinn að ekki hefði náðst sam- staða í nefnd þeirri sem skipuð var í þessu skyni, né heldur ríkisstjórninni, um hvernig leysa ætti þennan vanda. En hann til- kynnti Fólkaflokknum að nánari frétta væri að vænta frá Sósíal- demókrataflokknum innan fárra daga. Sósíaldemókrataflokkurinn mun nú fljótlega boða til fundar í miðstjórn flokksins. Á landsþingi sem haldið var fyrir mánuði var þingliði flokksins gert ljóst að ganga ætti til nýrra kosninga ef ekki fengist viðunandi lausn á þeim vandamálum sem um væri deilt. Þetta gerðist j 1978 — Nýju samningarnir um Panama-skurð undirritaðir í Pan- ama. 1977 — Brezhnev kosinn forseti. 1976 — Óeirðirnar í blökku- mannabænum Soweto í Suður-Afríku. 1972 — Innbrotiö í Water- gate-bygginguna í Washington — Clifford Irving dæmdur fyrir að falsa æviminningar Howard Hughes. 1963 — Rússar skjóta fyrstu konunni, Valentinu Tereshkovu, út í geiminn. 1949 — Hreinsanir hefjast í Ung- verjalandi. 1940 — Pétain marskálkur tekur við af Paul Reynaud — Þjóðverjar taka Maginot-línuna — Rússar setja Eistlendingum úrslitakosti. 1932 — Banni við stormsveitum þýzkra nazista aflétt. 1920 — Fyrsti opinberi fundur ráðs Þjóðabandalagsins. 1917 — Fyrsta alrússneska þing verkamannaráðanna. 1907 — Nikulás II neyddur til að leysa upp annað rússneska ríkis- þingið, Dúmuna. 1826 — Uppreisn Janissara-her- manna í Konstantínópel lýkur. 1815 — Orrustan um Quatre Bras: Sigur Breta á Frökkum. 1779 — Spánverjar fara í stríð gegn Bretum og setjast um Gí- braltar. 1705 — Karl XII sigrar Rússa við Gemaurhof. Afmæli: Julius Plúcker, þýzkur stærðfræðingur (1801—1868) — Gústaf V Svíakonungur (1858-1950). Andlát: Hertoginn af Marlbor- ough, hermaður, 1722. Innlent: Oddeyrardómur (Jón Arason og synir dæmdir landráða- menn) 1551 — Einkaleyfi elzta íslenzka verzlunarfélagsins stað- fest 1634 — Menntaskóli í Reykja- vík 1846 — Trampe greifi leyfir enskum skipum að sigla hingað og Englendingum að búa og verzla hér 1809 — ísafoldarprentsmiðja tekur til starfa 1877 — Alþingi samþykkir kosningu ríkisstjóra og samþykkir lýðveldisstjórnar- skrána 1944 — Þýzk orrustuflug- vél gerir árás á „Súðina“ 1943 — Hannibal Valdimarsson sigrar í aukakosningu á ísafirði 1952 — Eisenhower á íslandi 1955 — f. Lúðvík Jósepsson 1914. Orð dagsins: Maðurinn hefur not- að gáfur sínar; hann fann upp heimsku — Remy de Gourmont, franskur rithöfundur (1858-1915). Eldur í Macy’s New York, 15. júní, Reutcr. Eldsvoði kom upp í verslunar- samstæðunni Macy’s, scm margir íslendingar þekkja, og olli dauða eins slökkviliðsmanns. 2000 manns voru inni í búðinni og slösuðust 6 manneskjur. Eldurinn braust út í íþrótta- deild Macy’s, sem er talin vera stærsta verslun í heimi. Þó að eldurinn væri bundinn við eina hæð hússins tók það 120 slökkvi- liðsmenn 3 klst. að ráða við eldinn. Tugir slökkvibifreiða sem kall- aðar voru á vettvang orsökuðu mikið umferðaröngþveiti á Man- hattan. Guðmundur Jónasson fjailabílstjóri klæddur til hvers sem er. „Terta ogfínirí” í sjötíu ára af- mæli á Vatnajökli GUÐMUNDUR Jónasson bifreiðastjóri hélt upp á 70 ára afmæli sitt á Vatnajökli þann 11. júní s.l. og er það í fyrsta skipti sem haidið er upp á slíkt merkisafmæli á þeim slóðum. Morgunblaðið hafði talstöðvarsamband við Guðmund f gær þar sem hann var á leið niður af jöklinum ásamt félögum sínum, en alls voru liðlega 20 manns í hópnum sem fór á jökulinn, mest þaulvanir jöklafarar. Nokkur hiuti hópsins varð eftir við mælingar í Grímsvötnum. „Það er alveg ágætt veður hér nú,“ sagði Guðmundur, „hefur gengið á ýmsu undanfarna daga, en er sérlega gott nú. Sólargang- ur er hvað lengstur nú og það er von á fólki í kvöld eða á morgun sem ætlar á jökulinn. Jú auðvitað var haldið upp á afmælið eins og eðlilegt er þegar einhver á afmæli í svona ferðum, það var terta og fínirí. Við verðum í skálanum í Tungnaár- botnum í nótt í Jökulheimum og reiknum með að leggja af stað heim á laugardag. Þetta hefur gengið ágætlega, en tvo daga urðum við zpptir í þoku, en það var nóg að gera við að byggja snjóhús og bjarga dótinu. Nú sumir hafa tafl og spil og svo fjúka einstaka brand- arar. Af jöklinum að segja? Já, það er mjög einkennilegt snjólagið hér og hefur ekki sézt annað eins í 30 ár. Það eru miklir skaflar og þykkir, allt að 10 metra þykkir, svo þeir fara varla í sumar. Hitastigið hjá okkur í ferðinni hefur komizt niður í mínus 7 gráður á nóttunni og upp í 17 gráður á daginn. Ferðir á Vatnajökul? Ég hef farið öðru hvoru síðan 1951, nokkur ár hafa fallið úr. Jú, þetta er ágætt, það er Buðvelt að fara yfir Tungnaá núna,, það er hægt að vaða hana í hnéháum stígvélum. „Deilan um J an May en- land- helgina yfirgripsmikið mál” segir blaðafulltrúi norska utanríkisráðuneytisins Frá fréttaritara Morgunblaðsins (Ósló í gær „EF ÞAÐ er rétt að íslendingar haíi ákveðið frá og með 1. júní að áskilja sér allan rétt í fisk- veiðilögsögu sinni og fara þar mcð yfir miðlínuna gagnvat Jan Mayen er þetta yfirgripsmikið mál,“ sagði Torstein Sandö, blaðáfulltrúi norska utanríkis- ráðuneytisins, í dag. En Norð- menn hafa enga vitneskju fengið um að íslendingar ætli að vísa burtu norskum fiskimönnum frá hinu umdeilda „gráa svæði“ milli íslands og Jan Mayen. Þar með virðist hafa færzt mikill hiti í deilu Norðmanna og Islendinga um útfærslu norsku landhelginnar umhverfis Jan Mayen í 200 mílur. Upplýsingar um brottvísun norskra fiski- manna hafa vakið mikla athygli í norska fiskimannasambandinu þar sem fjallað hefur verið um málið á stjórnarfundi. „Ef þetta er rétt tel ég að Norðmenn eigi hreinlega að taka sér 200 mílna efnahagslögsögu umhverfis Jan Mayen," segir formaður norska fiskimannasam- bandsins, Johan Toft. „Þetta gerðum við í suðri og norðri með 200 mílna lögsögunni umhverfis sjálfan Noreg. Við tilkynntum EBE og Rússum að við ætluðum að gera þetta og svo gerðum við það.“ Um þá staðhæfingu íslendinga að loðnustofninn á svæðinu sé þeirra eign þar sem hann hrygnir við strendur þeirra segir Toft.: „„En þetta á líka við um þorsk- inn á Barentshafi. Hann hrygnir við norsku ströndina og færist síðan út. Þess vegna er þetta sameiginlegur fiskstofn — af því hann færist." „Ég geri ráð fyrir því að nú verði að fá málið á hreint gagn- vart íslendingum," segir Toft. „Á mánudaginn koma íslenzkir em- bættismenn til Óslóar og þá verða öll þessi vandamál trúlega tekin fyrir." Á þessum fundi munu einnig liggja fyrir viðbrögð sambands útgerðarmanna fiskibáta sem fjallaði um málið á stjórnarfundi í vikunni. „Við mótmælum því að norskir fiskimenn verði útilokaðir frá svæði sem er óumdeilanlega norskt — umhverfis Jan Maycn," segir formaðurinn. Per Sævig. „Við krefjumst þess að Norð- menn taki sér fyrst efnahagslög- sögu umhverfis Jan Mayen og semji því næst við íslendinga um þær verndunarráðstafanir sem grípa skuli til.“ Islenzku fulltrúarnir á Óslóar- fundinum eftir helgina verða þeir Jón Arnalds ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, Már Elísson fiskimálastjóri og Jón B. Jónasson í sjávarútvegsráðuneyt- inu. Morgunblaðið þar þessa frétt frá Noregi undir Kjartan Jóhannsson sjávarútvegsráð- herra í gærkvöldi, en hann vildi ekkert segja um málið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.