Morgunblaðið - 16.06.1979, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 16.06.1979, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1979 37 lagsþörfin hvetur unglingana til samneytis hver við annan. Það þýðir ekki að reyna að dreifa þessum hópum þeirra út um allan bae, þeir vilja allir vera saman. Ef til vill er einhver stelpan úr Breiðholtinu skotin í strák úr austurbænum og þá er farið í miðbæinn um kvöldið í von um að hittast. En hvað er þá hægt að gera, því allir sjá að það er ekki hægt að hafa Hallærisplanið samkomustað unglinganna í framtíðinni. Eina lausnin sem ég sé er að koma upp félagsaðstöðu fyrir unglingana í miðbænum sjálfum. Ýmislegt er hægt að gera, til dæmis má koma upp kaffihúsum, diskótekum og fleirum svipuðum stöðum þar sem unglingarnir geta komið saman. Ef til vill drægi líka úr áfengis- neyslu unglinganna ef þeir gætu komið inn á veitingahús eða á diskótek, sem mjög eru í tísku nú á dögum, í stað þess að hírast úti í kuldanum. Vissulega geri ég mér það ljóst að við það að koma slíkri aðstöðu upp í miðbænum þarf að fórna einhverju. Ef til vill gömlu og grónu verslunarhúsnæði, eða öðru gömlu húsi. Kannski þarf jafnvel að byggja nýtt hús eða rífa innan úr húsi til að koma nýtísku innréttingu þar fyrir. En þetta eilífa „unglingavandamár leysist ekki nema einhverju sé fórnað. Ég vona að þeim sem les þessa grein mína skiljist það, að vanda- malið er ekki unglinganna, það er höfuðverkur okkar sem erum orð- in fullorðin. Við fæðum af okkur börnin sem vaxa upp með mann- legar þarfir og það er skylda okkar að sjá um að þeim þörfum sé fullnægt. Annars bregðumst við uppeldishlutverki okkar. Þegar svo þessir unglingar vaxa upp kemur til þeirra kasta að endurgreiða það sem gert var fyrir þá sem unglinga með því að sjá fyrir þörfum þeirrar kynslóðar sem vafalaust verður svipuð þörf- um þeirra sjálfra en í öðrum búningi. Fyrrverandi unglingur. • Hugmynd Það hefur lengi verið litið svo á, að sautjándi júní, væri mikill hátíðisdagur, téngdur göfugum hugsjónum og ættjarðarást. Hvað hugsar íslenska þjóðin í dag í því efni? Ég man sjaldan eftir því, að þjóðinni hafi verið meiri þörf á samhéldni og göfugum hugsjónum en í dag til þess að forðast vandræði. Nóg er af ferðalögum og skemmtunum. Margt í skemmt- ana-iðnaðinum mun vera uppvax- andi fólki miður gott, og þykist ég taka vægt til orða, eitt sjónarmið, á hverju er mest að græða? Þjóðin þarf að rækta hug sinn til blessun- ar öllum. Viskan og dyggðin á að vera hennar leiðarljós um alla framtíð, strengjum þess heit nú á þjóðhátíðardaginn, góðir íslend- ingar. Gestur. Þessir hringdu . . . • Þakkir til sjónvarpsins V.J. hringdi: „Mig langar til að þakka sjónvarpinu fyrir mynd um kristnilíf í Sovétríkjunum sem s^nd var þriðjudaginn 12. júní s.l. Eg vona að mynd þessi hafi vakið fólk til umhugsunar um það hug- rekki sem þeir eiga sem lifa þrengingar í sínu kristna lífi og hversu mikinn styrk og stuðning þeir fá sem lifa í samfélaginu við Krist. Það er alltof sjaldan gripið á svona málum á almennum vett- vangi en það mætti gera mun meira af því að sýna hvernig fólk handan járntjaldsins hefur það og hvað þar er að gerast." SKÁK • „Útþynntir þættir“ Sjónvarpsáhorfandi hringdi: „Ég vildi bara lýsa þakklæti mínu og ánægju yfir því að þátturinn „Stúlka á réttri leið“ hefur runnið sitt skeið í íslenska sjónvarpinu. Oft hafa laugar- dagsþættir sjónvarpsins verið þunnir en aldrei eins útþynntir og þessir þættir. Ég vona að sjón- varpið sjái að sér og taki aftur upp sýningar breskra þátta á laugar- dagskvöldum." Umsjón: Margeir Pétursson Á alþjóðlega skákmótinu í Montreal um daginn kom þessi staða upp í hinni umtöluðu viður- eign þeirra Karpovs og Larsens, sem hafði svart og átti leik. 36 . . . Bxh4!, 37. De2 (Ef 37. Bxh4 þá Hxd3, 38. Dxd3? - Rf4+) Bxg3, 38. fxg3 - Dd7, 39. Dxf3 - Hxf3, 40. Kxf3 - Rxb4! og svartur vann auðveldlega. Þessi skák kostaði Karpov sigurinn í mótinu. Larsen beitti mjög óvenjulegri byrjun í þessari skák: 1. e4 - d5, 2. exd5 - Dxd5?! 3. Rc3 — Da5 og fékk erfiða stöðu, en heimsmeistarinn ætlaði sér um of og tapaði. gleraugu olíur lotion krem Snyrti- töskur í sumar fríiö. ^Holtsapótek snyrtivöradeild ^Langholtsvegi 84 Simi35213 Höfum kaupendur aö eftirtöldum veröbréfum: VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS: Innlausnarverð Seðlabankans m.v. 1 árs tímabil frá: 16. júní 1979. Kaupgengi pr. kr. 100,- 1968 1. flokkur 1968 2. flokkur 1969 1. flokkur 1970 1. flokkur 1970 2. flokkur 1971 1. flokkur 1972 1. flokkur 1972 2. flokkur 1973 1. flokkur A 1973 2. flokkur 1974 1. flokkur 1975 1. flokkur 1975 2. flokkur 1976 1. flokkur 1976 2. flokkur 1977 1. flokkur 1977 2. flokkur 1978 1. flokkur 1978 2. flokkur 3.391.14 25/1 ‘79 3.188.43 25/2 ‘79 2.370.52 20/2 ‘79 2.176.55 15/9 '78 1.574.29 5/2 '79 1.475.88 15/9 '78 1.286.41 25/1 ‘79 1.100.95 15/9 ‘78 834.62 15/9 '78 768.60 25/1 ‘79 532.88 431.41 329.24 312.85 254.09 235.97 197.68 161.07 127.16 Yfir- gengi 2.855.21 18.8% 2.700.42 18.1% 2.006.26 18.2% 1.509.83 44.2% 1.331.38 18.2% 1.032.28 43.0% 1.087.25 18.3% 770.03 43.0% 586.70 42.3% 650.72 18.1% VEÐSKULDABRÉF:* Kaupgengi pr. kr. 100,- 1 ár Nafnvextir: 28%% 83 2 ár Nafnvextir: 28’/z% 74 3 ár Nafnvextir: 28’/z% 66 4 ár Nafnvextir: 28'/z% 62 5 ár Nafnvextir: 28Vz% 57 *) Miöað er viö auöseljanlega fasteign Tökum ennfremur í umboössölu veöskulda- bréf til 1—3 ára meö 12—281/2% nafnvöxt- um. Höfum seljendur aö eftirtöldum veröbréfum: HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF RÍKISSJÓÐS: Sölugengi pr. kr. 100 B — 1973 714.10 C — 1973 622.29 D — 1974 540.00 G — 1975 266.15 H — 1976 257.75 (10% afföll) (10% afföll) (10% afföll) (10% afföll) (10% afföll) VEÐSKULDABRÉF: 4 ár Nafnvextir 3 ár 5 m Nafnvextir 5 ár 4 m Nafnvextir 5 ár 4 m Nafnvextir 5 ár 5 m Nafnvextir 5 ár 3 m Nafnvextir 7 ár 1 m Nafnvextir Sölugengi pr. kr. 100 13% 46.62 (Áfallnir vextir) 13% 62.95 (Áfalinir vextir) 14% 60.79 (Áfallnir vextir) 12% 51.81 (Áfallnir vextir) 13% 51.09 (Áfallnir vextir) 14% 59.20 (Áfallnir vextir) 14% 54.06 (Áfallnir vextir) PlÁRPEfTirtGflRPéUtG ÍfUtnDf Hft VERÐBRÉFAMARKAÐUR LÆKJARGÖTU 12 R. (Iðnaöarbankahúsinu). Sími 2 05 80. Opið alla virka daga frá kl. 9.30—16

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.