Morgunblaðið - 16.06.1979, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1979
a
'M
*
1«
Möl og meistaraheppni
spila stór hlutverk...
NÚ ERU búnar fjórar umferðir í 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu og má segja
án þess að skafa nokkuð utan af, að allt er enn í einum graut. Helmingur liðanna
hefur hlotið fimm stig og deilir þannig með sér efsta sætinu. Botnliðin tvö hafa þó
hlotið 2 stig hvort, þannig að á þessu,stigi málsins má segja að öll séu liðin í bráðri
fallhættu og öll eigi enn möguleika á íslandsmeistaratitlinum!
Þetta á sér bæöi bjartar hliðar og
aðrar ekki eins bjartar. I fyrra báru
lið Vals og ÍA af svo um munaði.
Léku þau bæði stórgóða knatt-
spyrnu á íslenskan mælikvarða, það
sýndi sig best þegar þau mættu
Magdebur og Kölnn á heimavelli í
Evrópukeppninni um haustið.
Hvorugt liðanna hefur sýnt neitt
líkt því þegar best lét í fyrra. Það er
skiljanlegra með Skagaliðið, sem
missti aðalmennina Karl og Pétur í
atvinnumennsku. Nýju mennirnir
eru enn að læra hver á annan og
þegar það hefur lánast, verður
Skagaliðið sterkt, því að liðið fékk
góða menn í skörðin. Það á þó eftir
að há liðinu illa hversu bitlaus
framlínan er, það sést best á því, að
mörkin sjö, sem liðið hefur skorað
til þessa, hafa aðeins tveir leik-
menn skorað, báðir miðvallarleik-
KnallsDvrna
ÍBK
ÍBV
ÍA
Fram
KR
Valur
KA
Þróttur
Haukar
Víkingur
41 30 5-1
4211 4-1
4211 7-5
41 30 6-4
42114-4
4121 5-4
4202 6-6
4112 4-5
41 03 3-8
41033-9
Markhæstu leikmenn eru nú:
Sveinbj. Hákonarson ÍA
Pétur Ormslev Fram
Árni Sveinsson IA
Þórir Sigfúss. ÍBK
Gísli Eyjólfss. ÍBK
Ingi B. Albertss. Val
Gunnar Blöndal KA
Guðm. Sigmarss. Haukum
Gunnar Ö. Kristjánss. Vík.
• Sveinbjörn Hákonarson, ÍA.
menn. Til lengdar er ekki hægt að
reiða sig á að aðrir en framlínu-
mennirnir skori, til þess eru þeir
þó.
Það er erfiðara að skilja hvers
vegna Valsmenn hafa ekki haldið
sínu striki, þar sem þeir hafa haldið
öllum sínum bestu mönnum og
meira að segja bætt við sig góðum
leikmönnum, t.d. Ólafi Danivals-
syni. Vaalsmenn hafa verið í öldu-
dal í mótinu til þessa og þeir áttu
cinnig mjög misjafna leiki í
Reykjavíkurmótinu. Það hefur
lengi loðað við liðið hin svokallaðða
meistarahepppni, sem fellst í því,
að þó að iiðið leiki illa, lauma þeir
samt inn sigur- eða jöfnunarmarki.
Liðið gekk í gegnum slæman kafla
sem varði eitthvað um þrjá leiki í
fyrra, en kom þó út úr því með 6
stig. Þannig á að vinna mót, en
heppni þessi virðist hafa yfirgefið
herbúðir Vals um sinn a.m.k.
Þaö er annað sem spilar hér inn í,
malarvellirnir. Flestum liðum
fyrstu deildar hentar betur að leika
á grasi. En í Hafnarfirði, Akranesi,
Keflavík og á Akureyri er ekki um
grasvelli að ræða eins og er, þó að
úr rætist hugsanlega síðar í sumar..
Lið eins og IA, Valur, Fram o.fl. ná
ekki að sýna það sem í þeim býr á
möl. Öðrum liðum kemur þetta til
góða, t.d. Haukum. Án þess að ætla
að styggja Hauka, er mun ólíklegra,
að lið þeirra hefði haft í í A að segja
ef leikið hefði verið á grasi. En
þetta er takmörkuð afsökun fyrir
hin svokölluðu topplið, því að ef
einhverjar töggur eru í liði, á það að
geta lagað sig eftir aðstæðum.
Þó að deildin sé slíkur hafra-
grautur nú, er ekki ólíklegt að
innan skamms, fari að draga í
sundur, en í stað þess að í fyrra
stungu tvö lið af, verða þau líklega
a.m.k. þrjú nú, kannski fleiri.
Framarar eru með sterkt lið, en til
þessa mistækt. Kippi þeir því í lag,
verða þeir við toppinn ásamt IA og
Val. ÍBK, KR og ÍBV hafa einnig
byrjað tímabilið þokkalega og
spurningin með þau er sú hvort þau
geta haldið út, eða hvort þau
springa er fram í sækir. Til að
halda mikilli og góðri spennu í
mótinu, væri æskilegt að þau héldu
sér öll í toppbaráttunni.
Ekkert hefur verið minnst á
fjögur neðstu liðin, Þrótt, KA,
Hauka og Víking. Það er mjög
furðulegt að Víkingur skuli vera í
þessum hópi, með alla sína topp-
menn, en öll eiga þessi lið örugglega
eftir að hala inn einhver stig,
sérstaklega þó innbyrðis, ekki síst
meðan enn er spilað á möl. Hvert
þeirra fellur skal ekkert fullyrt til
að styggja engan.
Hlutskipti ÍBK og Víkinga hefur verið ólíkt í deildarkeppninni það
sem af er sumri, en samt ekki... ÍBK er efst, Víkingur neðst, en samt
skilja liðin aðeins 3 stig.
„Verð í Belgíu
næsta vetur“
— segir Karl Þórðarson
MBL. HAFÐI það fyrir venju á síðasta sumri að láta
leikmenn spá um leiki hverrar helgar og ræða við það
tækifæri við þá um ýmislegt varðandi íslenska knatt-
spyrnu. Þessu verður nú framhaldið. Karl Þórðarson er
einn þeirra knattspyrnumanna sem lagt hafa í atvinnu-
mennskuna og leikur því ekki með íslensku liði þetta
árið, lið hans er La Louviere í Belgíu. En Karl var mikið
í sviðsljósinu síðastliðið sumar og var þá verðskuldað
mjög, valinn knattspyrnumaður íslandsmótsins af
íþróttafréttamönnum Mbl. Fer spá hans ásamt stuttu
spjalli hér á eftir.
— Ég hef aðeins séð tvo leiki
eftir að ég kom heim, leik KR og
IA og leik Fram og Þróttar. Ég
held að deildin verði miklu jafnari
nú en áður, sem er gott, það var
nóg komið af einokun fárra liða.
Ég held að þetta stafi frekar af því
að önnur lið eru á uppleið, frekar
Stórleiknum frestað
LEIK Vals og ÍA, sem fara átti fram á Skaganum í dag, hefur orðið að fresta vegna þess að grasvöllurinn á
Skaganum er cnn ekki kominn í skikkanlegt horf. Malarvöllurinn er og lélegur og voru liðin sammála um
að fresta heldur leiknum en að kljást á mölinni. Fer leikurinn því fram á fimmtudaginn í næstu viku
klukkan 20.00 og þá á Laugardalsvellinum, þ.e.a.s. liðin skiptast á heimaleikjum.
Að sögn Kjartans Trausta framkvæmdastjóra KSÍ var leitað til ÍBR um að fá Luagardalsvöllinn á morgun,
17. júní, en það reyndist því miður ókleift.
Þó að stórleiknum sé frestað, þurfa knattspyrnuáhugamenn ekki að kvarta, þeir geta sótt tvo aðra leiki á
Reykjavíkursvæðinu í staðinn. A Laugardalsvellinum leika í dag Víkingar og KA. Hefst leikurinn klukkan
14.00. Verður Víkingur nú að fara að hala inn stig ef fallið á ekki að verða hlutskipti liðsins. KA er í sömu
stöðu, en hefur heldur fleiri stig í pokahorninu. Von er á miklum baráttuleik. Skemmtilegri gæti leikurinn í
Kópavogi þó orðið, þar leika í 2. deild Breiðablik og Fylkir, en bæði liðin leika þessa dagana vandaða
knattspyrnu sem gleður augað þegar best tekst til. Hér fer á eftir skrá yfir leiki helgarinnar í 1., 2. og 3. deild:
LauKardaxur, 1. deild:
LauKardalsvdllur kl. 14.00 VíkinKur—KA. Dómarl MaKnús V.
Vestmannaeyjar kl. 14.00 lBV—KR. Dómari Arnþór Óskarsson.
2. deild:
Selfossvöllur kl. 14.00 Selfoss—Þróttur Nk.
lsaíjörður kl. 14.00 ÍBÍ—FIL
Eskifjörður kl. 16.00 Austri —Reynir.
KópavoKsvöllur kl. 14.00 UBK—Fylkir.
3. deild:
A-riðill Garðsvöllur kl. 16.00 Víðlr Stjarnan.
A-riðill Gróttuvöllur kl. 16.00 Grótta—Ármann.
A-riðill Grindavfk kl. 16.00 Grindavfk—ÍK.
B-riðill Ilelluvöllur kl. 16.00 Hekla—Óðlnn.
B-riðil) Þorlákshöfn kl. 16.00 Þór—Léttir.
B-riðill Fellavöllur kl. 16.00 Leiknir-UMFA.
C-rlðiIl Ólafsvfk kl. 16.00 VfkinKur—IlolunKarv.
C-riðill BorKarnes kl. 16.00 SkallaKr,—Stefnir.
D-riðill Dalvík kl. 16.00 Svarfd.-IIöfðastr.
D-riðilI Ólafsf. kl. 16.00 Lelftur-Tlndast.
E-riðill DaKsbr.v. kl. 16.00 DaKsbrún—Árroðinn.
E-riðill Álftabáruv. kl. 16.00 IISÞ-Reynlr
F-riðiIl Hornafirði kl. 16.00 Sindri-Leiknir
F-riðill Reyðarfirði kl. 16.00 Valur-Einh.
F-rlðill Breiðdalsv. kl. 1600 Ilrafnkcll —IIuKÍnn.
Mánud.: 1. deild:
LauKardalsvöllur kl. 20.00 Þróttur — ÍBK. Dóm-arl Kjartan
Ólafsson.
en að stórliðin svokölluðu séu að
hrynja saman. A.m.k. finnst mér
knattspyrnan vera mjög svipuð og
áður og það þýðir skemmtilegra
mót og fleiri áhorfendur sagði
Karl.
Karl var nú spurður um stöðu
sína hjá La Louviere. Karli tókst
ekki að tryggja sér öruggt sæti í
liðinu síðari hluta keppnistíma-
bilsins og lenti liðið í mikilli
fallhættu sem lauk með því að
liðið féll. Það átti að freista þess
að fá Karl heim í landsleikinn við
Vestur-Þjóðverja á dögunum, en
þegar KSÍ falaðist eftir honum,
fengu þeir þau svör hjá La
Louviere, að liðið ætti að leika
sinn síðasta leik á keppnistímabil-
inu sama dag, enn væri von um að
bjarga sætinu og það átti að nota
Karl í liðinu. KSI fékk sem sagt
synjun.
— Mér var haldið volgum allt
þar til leikurinn mikilvægi byrj-
aði, mér var sagt að ég ætti að
leika. En svo var ég á bekknum
eftir sem áður og var ég mjög
óhress og þóttist hlunnfarinn,
m
Spá Karls um leiki helgarinnar.
1. deild:
enda hefði verið gaman að koma Víkingur—KA 1-1
heim og leika gegn Þjóðverjunum, ÍBV-KR 1-0
sagði Karl. Þróttur—ÍBK 0-1
2. deild:
— Þetta breytir því þó ekki, að Selfoss—Þróttur Nk 2-0
ég ætla hiklaust að klára samning ÍBÍ-FH 0-1
minn við La Louviere, en hann Austri—Reynir 0-2
gildir út næsta keppnistímabil, UBK—Fylkir 2-1
sagði Karl að lokum. - m