Morgunblaðið - 29.08.1979, Qupperneq 1
32 SÍÐUR
195. tbl. 66. árg.
MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 1979 ' Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sprengjan var mjög öflug og sviðið rústir einar — brezka herhljómsveitin átti að
leika þar nokkrum mínútum eftir að sprengjan sprakk.
ítölskum popp-
stjömum rænt
Sassari, 28. ágúst — AP. Reuter.
TVEIR ÞEKKTIR ítalskir poppsöngvarar hurfu á Sardiníu 1 dag og
leitar lögreglan þeirra dyrum og dyngjum. Fabrizic de Andre,
þekktur í heimalandi sínu fyrir þjóðlagasöng sinn. hvarf ásamt konu
sinni. Dori Phezzi, en hún hefur unnið hina þekktu sönglagakeppni f
San Remo. Þau hurfu úr herbergi sfnu þar sem þau dvöldust á
Sardinfu og var allt á rúi og stúi í herberginu er lögregluna bar að.
Kona hringdi í kvöld til fréttastofu í Róm og sagði að þau væru í haldi
hjá hópi, sem berðist fyrir byltingu í músikheiminum.
Þetta mannrán varð til þess að
innanríkisráðherra Ítalíu, Virgi-
nio Rognoni, fór þegar til eyjunn-
ar og fjölgað var í lögregluliði
eyjunnar um 170 lögreglumenn er
komu frá meginlandinu. Þyrlur
leita nú í fjöllum eyjarinnar að
ræningjum, en talið er að þeir
hafist þar við. Nú eru i höndum
mannræningja á Sardiníu tíu
manns, allt auðugt fólk er gist
hefur eyjuna í sumarleyfi. Ránið á
söngvurunum kemur í kjölfar ráns
á brezkri fjölskyldu í síðustu viku.
Hringt var til fréttastofu í
Cagliari og sagt að „kommúnískir
verkamenn“ hefðu brezku fjöl-
skylduna í haldi og hún væri ekki
lengur á Italíu.
Hœkkun vaxta í
Bandaríkjunum
New York. 28. ágúst. Reuter.
CHASE Manhattan, þriðji
stærsti banki Bandarfkj-
anna, hækkkaði f dag vexti
til bestu viðskiptavina sina í
1214%. Þessi hækkun kemur
nokkrum vikum eftir hækk-
un vaxta í 12%. Hærri hafa
vextir ekki verið í Bandaríkj
unum en í júií 1974. komust
þeir í 12%. First National
Bank í St. Louis fylgdi þegar
í kjölfar Chase Manhattan og
hækkaði vexti.
Úrskurðaður
geðveikur
Málmey, 28. ágúst. Reuter. AP.
FJÖLDAMORÐINGINN sænski,
Anders Hansson, var f dag úr-
skurðaður geðveikur og dæmdur
til að dveljast á geðveikrahæli.
Hansson myrti 11 gamalmenni
á elliheimili í Málmey með því að
gefa fólkinu eitur. Einnig reyndi
hann að myrða 16 aðra. Hansson
kvaðst hafa vorkennt gamla fólk-
inu og því viljað „hjálpa því að
deyja" eins og hann orðaði það
fyrir rétti í Málmey. Geðlæknir,
sem hefur stundað Hansson sagði
að hinn 19 ára gamli piltur hefði
ekki gert sér grein fyrir gerðum
sínum, en morðin framdi hann þar
sem hann vann á sjukrahúsi í
Málmey frá október sl. þar til í
janúar á þessu ári.
Arvatnið
reyndist
banvænt
Rómaborg, 28. ágúst. AP.
MAÐUR nokkur, kvikmyndafram-
leiðandinn Gianni Buffardi, iézt f
dag af völdum vatnssopa úr ánni
Tfber sem liðast um Vatikanið og
Rómaborg. Læknayfirvöld hafa
staðfest að Buffardi hafi látist af
Leptospirosis sem er sýking sem
rekja má til of mikillar vatns-
mengunar.
Fregnirnar hafa valdið óhug með-
al umhverfissinna í Rómaborg, sem
segja að áin sé óheyrilega menguð
fyrir trassaskap og sinnuleysi ítala í
umhverfismálum.
Daglega flæða í ána um 20 millj-
ónir rúmmetra af úrgangsefnum,
m.a. allt frárennsli frá þremur
stærstu sjúkrahúsum Rómaborgar
og skólp frá þúsundum bygginga.
Talið er að um 25 milljón rottur búi í
og við ána.
Bi ffardi skellti sér í Tíber fyrir
skömmu er hitinn varð sem óbæri-
legastur. Hann hrasaði og fyrir
slysni varð honum á að súpa á
árvatninu.
IR A sprengdi í
miðborg Brussel
Brussel. Lundúnum, Belfast. — 28. ágúst — AP. Reuter.
ÖFLUG SPRENGJA sprakk í dag í miðborg Brussei. hljómsveitin að koma sér fyrir á honum en sprengjunni
16 manns særðust í sprengingunni og írski lýðveldis-
herinn, IRA, hefur lýst ábyrgð á hendur sér. Sprengj-
an í Brussel sprakk aðeins nokkrum mfnútum áður en
brezk herhljómsveit átti að halda hljómleika í miðborg
Brussel. Sérstakur pallur hafði verið reistur og átti
hafði verið komið fyrir undir pallinum. Meðal þeirra
sem særðust voru f jórir meðlimir hljómsveitarinnar og
tvö börn, en enginn alvarlega. „Það er kraftaverk að
meiðsli skuli ekki hafa orðið meiri.“ sagði George
Poels. lögreglustjórinn í Brussel.
árangurs. Lögreglan athugar nú þá
Carter
til Kína
Peking, 28. ágúst, AP.
WALTER Mondale varaforseti
Bandaríkjanna sagði f Peking f
dag að Hua Kuo-feng forsætis-
ráðherra Kína hefði þegið boð
Carters forseta um heimsókn til
Bandarfkjanna á næsta ári.
Einnig sagði Mondale að
Carter mundi endurgjalda heim-
sókn Hua og fara til Peking á
næsta ári. A fundi með frétta-
mönnum sagði Mondaíe að í ferð
sinni til Kína hefði verið lagður
hornsteinn að eðlilegri sambúð
Bandaríkjanna og Kína á næsta
áratug. Þá skýrði Mondale frá
því að hann mundi opna ræðis-
mannsskrifstofu í Canton og yrði
það fyrsta ræðismannsskrifstofa
Bandaríkjanna í Kína í yfir 30
ár. Þar yrðu 7—8 starfsmenn
undir yfirstjórn Richards Willi-
ams. í staðinn hygðust Kínverjar
opna ræðismannsskrifstofur í
Houston í Texas og í San Franc-
isco.
„Hefði hljómsveitin verið búin að
koma sér fyrir á pallinum hefðu
áreiðanlega margir látist," sagði
hann ennfremur. Hljóðfærin voru á
pallinum og eyðilögðust þau og
rúður brotnuðu í nágrenninu.
Tala þeirra, sem létust í spreng-
ingunni á Donegalflóa, hækkaði í
dag þegar tengdamóðir dóttur
Mountbattens jarls lést af sárum
sínum. Lafði Brabourne var 82 ára
gömul en Patricia, dóttir jarlsins og
sonur hennar liggja enn þungt hald-
in. Tilkynnt var í Lundúnum í dag að
jarðarför Mountbattens jarls fari
fram 5. september. Hún verður gerð
frá Westminster Abbey á kostnað
ríkisins.
Margaret Thatcher ræddi í dag við
William Whitelaw, innanríkisráð-
herra, Francis Pyn varnarmálaráð-
herra, Sir Ian Gilmore er gegnir nú
störfum utanríkisráðherra í fjarveru
Carrington lávarðar og Humphrey
Atkins er kom til Lundúna frá Túnis
þar sem hann dvaldist í fríi. Atkins
hélt síðan í dag til Belfast til að
kynna sér ástandið og búist var við
honum aftur til Lundúna í kvöld til
að gefa Thatcher skýrslu.
Almenningur í Bretlandi var
felmtri sleginn vegna hryðjuverka
IRA og Thatcher hvatti tii allsherjar
baráttu gegn IRA en sprengingarnar
í gær hafa nú kostað 23 manns lífið,
þar af 18 hermenn. Varnarbandalag
Ulster, samtök mótmælenda, kröfð-
ust í dag afsagnar Atkins, Irlands-
málaráðherra og hótuðu að taka
lögin í sínar hendur. Brezki þing-
maðurinn Anthony Marlowe hvatti
til að þingið yrði kallað saman til að
fást við IRA. íbúar í Mullaghmore,
þorpinu sem Mountbatten lagði frá í
hinstu för sína ræddu um að setja fé
til höfuðs leiðtogum IRA.
Víðtæk leit hélt áfram að hermd-
arverkamönnum IRA en án nokkurs
kenningu, að sprengju hafi verið
komið fyrir í humarskel í bátnum og
síðan sprengd með fjarstýriútbún-
aði.
Viðbrögð víðs vegar um heim voru
mjög á einn veg þar sem illvirkið var
fordæmt en japanska stjórnin þagði
þó alveg um tilræðið. Sovéska
stjórnin lýsti vanþóknun sinni á
tilræðinu, kallaði það grimmdarlegt
og tilgangslaust. Jóhannes Páll páfi
II. fordæmdi einnig morðin á N-ír-
landi en heimildir í Páfagarði sögðu
að páfi myndi þrátt fyrir morðin
ekki hætta við fyrirhugaða heim-
sókn til írlands. Kaþólikkar óttast
nú, að ofstækisfullir mótmælendur
muni reyna að vinna páfa mein í
heimsókn hans sem hefnd fyrir
hermdarverk IRA.
Sjá „Mikil gremja og reiði
vegna hryðjuverka IRA“. bls.
14.
Hafnar samkomulagi
Teheran. 28. ágúst. AP. Reuter.
AYATOLLAH Khomeini, trúar-
leiðtogi írana, hafnaði í dag
öllum sáttatilraunum Kúrda og
neitaði að samþykkja vopnahlé,
sem staðið hefur f tvo daga f
Kúrdistan. „Imam (Khomeini)
hefur f engu gefið eftir,“ sagði
einn helsti forystumaður bylting-
arráðsins, Bani-Sadr, f viðtali við
Reuter f dag og sagðist hann
mæla fyrir munn Khomeinis.
„Ekkert getur réttlætt tilslakanir
við minnihlutahópa. Það er ekki
undir okkur komið að lýsa yfir
vopnahléi — það er Kúrda að
leggja niður vopn,“ sagði
Bani-Sadr.
Þessi yfirlýsing kom í kjölfar
annarrar yfirlýsingar eins helsta
trúarleiðtoga landsins, ayatollah
Teleghani, þar sem hann sagði að
formlegt vopnahlé yrði tilkynnt í
dag en harðlínustefna Khomeinis
hefur bundið enda á þær vonir.
Fimm manna nefnd Kúrda kom til
Teheran í dag til viðræðna um
vopnahlé og að binda enda á átökin
í Kurdistan. Þótt nefndin hefði
ekki formlegt samþykki KDP,
Demókrataflokks Kúrda, var búist
við því, að kæmist hún að sam-
komulagi við stjórnvöld, myndu
Kúrdar virða það. Nefndin, sem
Rham Gazi er í forsvari fyrir,
krafðist þess að liðsmenn bylting-
arhersveita Khomeinis yrðu á
brott úr Kúrdistan. Stjórnarher-
inn hætti árásum sínum á Kúrda
og að hinn umdeildi ayatollah
Khalkali yrði á brott úr Kúrdistan.
Khalkali kom til Kúrdistan fyrir
tíu dögum og hefur dæmt 74 Kúrda
til dauða.
I morgun voru 20 manns teknir
af lífi. Þar af voru 11 Kúrdar, sem
voru teknir höndum í bardögum
undanfarinna daga. Einnig voru
níu hermenn stjórnarinnar teknir
af lífi, en þeir voru ásakaðir um að
hafa liðsinnt Kúrdum. Þetta er í
fyrsta sinn frá því byltingardóm-
stólarnir tóku til starfa, að her-
menn hafa verið teknir af lífi.