Morgunblaðið - 25.09.1979, Page 20

Morgunblaðið - 25.09.1979, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1979 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1979 21 Skoraði 70 stig og setti nýtt met TVÆR umferðir fóru fram í Reykjavíkurmótinu í körfuknattleik um helgina og verður að segjast að fátt varð um óvænt úrslit. KR vann viðureign^ jötn- anna gömlu, KR — ÍR, en mesta athyglina vakti Bandaríkjamaðurinn í liði Ármanns, Danny Showers, sem skoraði 134 stig í tveimur leikjum. Þar af 70 í öðrum leiknum og er það stigamet á íslandi. Svo gæti farið, að kappi þessi skori 100 stig í 1. deildinni í vetur, ef sá er gállinn á honum. En lítum á leikina. Ármann — Fram 100-124 (48-63) Þessi fyrsti leikur Reykjavíkur- mótsins í körfuknattleik var milli þeirra liða, sem slógust um að komast í úrvalsdeildina í ár. Framarar urðu hlutskarpari og enn höfðu þeir yfirhöndina er liðin áttust við á laugardaginn. Ár- menningar skörtuðu nýjum Am- eríkana, Danny Showers að nafni, og þrátt fyrir að sá skoraði 64 stig í þessum leik, þá voru Framarar mun jafnari í skoruninni. í hálf- leik var staðan 48—63 Fram í vil, en lokatölur urðu 124—100. Sem fyrr sagði skoraði Danny Showers 64 stig, en aðrir voru 50 stigum á eftir honum. Hjá Fröm- urum var John Johnson stiga- hæstur, skoraði 38 stig, Símon ólafsson skoraði 23 og Þorvaldur Geirsson 22. Þorkell Sigurðsson kom síðan með 11 stig. KR - ÍR 99-89 (46-45) Leikir KR og ÍR eru nær alltaf jafnir og var þessi leikur engin undantekning. Bæði lið mættu til leiks með nýjan útlending, KR með mikinn risa, Dakarsta Web- ster að nafni, og ÍR-ingar með stigahæsta leikmann íslandsmóts- ins í fyrra, Mark Christensen, sem áður lék með Þór á Akureyri. Eins og áður sagði var leikurinn jafn og brá oft fyrir góðum köflum hjá báðum liðum. Er 4 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik var ÍR komið 11 stigum yfir, en þá skor- uðu KR-ingar 19 stig í röð og náðu forystunni, sem þeir létu ekki af hendi og sigruðu 99—89. Hjá KR var Jón Sigurðsson langbestur, en einnig átti „nýliðinn" Geir Þor- steinsson góðan leik. Webster sýndi ekkert sérstakt í sínum fyrsta leik. Mark Christensen stóð sig ágætlega og skoraði 23 stig í sínum fyrsta leik með ÍR. Þá voru bræðurnir Jón og Kristinn góðir og skoruðu 24 og 23 stig. Fyrir KR skoruðu mest Jón 25 stig, Webster 24 og Geir 16. Valur - Í.S. 102-90 (54-51) Valsmenn náðu þegar í upphafi að komast í 8—0 og leiddu leikinn allt fram undir miðjan hálfleik- inn, en þá minnkuðu ÍS-menn muninn og komust yfir 47—45 rétt fyrir hálfleik, en í lokin skriðu Valsmenn aftur fram úr, en stað- an var 54—51 í hálfleik Val í hag. Stúdentar gáfu síðan Vals- mönnum 10 fyrstu stig seinni hálfleiks og eftir það voru þeir í litlum vandræðum með að inn- byrða sigurinn. 12 stig skildu liðin út allan hálfleikinn og lokatölur voru 102—90. Tim Dwyer og Þórir Magnússon voru bestu menn Vals í þessum leik, en auk þeirra var Torfi Magnússon sprækur. Trent Smock var bestur stúd- enta, en Jón Héðinsson átti ágæta kafla og gæti vafalaust meira ef hann legði sig fram við það. STIG Vals: Dwyer 30, Þórir 24, Torfi Magnússon 15, Ríkharður Hrafnkelsson 11, Sigurður Hjör- leifsson, Óskar Baldursson og Kristján Ágústsson 6 stig hver og Jón Steingrímsson 2 stig. STIG ÍS: Smock 37, Gísli Gíslason og Jón Héðinsson 13 stig hvor, Atli Arason 11, Bjarni Gunnar Sveinsson 6 stig, Ingi Stefánsson og Gunnar Halldórsson 4 stig hvor og Jón Óskarsson 2 stig. Kðrluknattlelkur KR — Ármann 124-107 (60-51) Ármenningar komu nokkuð á óvart og stóðu í KR-ingum lengi framan af og í leikhléi var aðeins 9 stiga munur. KR jók forystuna í síðari hálfleik og sigraði með 17 stiga mun, sem var minna en búist var við. Það sem gerðist mark- verðast í þessum leik var, að Bandaríkjamaðurinn í liði Ár- manns, Daniel Shouse, var alger- lega óstöðvandi og setti nýtt met í stigaskorun og skoraði hvorki meira né minna en 70 stig og var hittni hans með ólíkindum. í lið KR vantaði Jón Sigurðsson, sem meiddist daginn áður í leik gegn ÍR, og munar um minna. Dakarsta Webster var nú mun sprækari en í leiknum gegn ÍR og skoraði 36 stig. Þá áttu Ágúst Líndal (18 stig), Geir Þorsteinsson (22 stig) og Eiríkur Jóhannesson (12 stig) ágætan Ieik. ÍR - ÍS 101-92 (48-44) Fyrri hálfleikur í þessum leik var mjög jafn, en undir lokin sigu ÍR-ingar framúr og höfðu fjögurra stiga forystu í leikhléi. ÍR byrjaði síðari hálfleikinn mjög vel og náði góðri forystu, sem ekki varð ógnað og ÍR-ingar sigruðu örugglega þrátt fyrir að Mark Christensen T vöf alt hjá Knapp? VÍKINGARNIR frá Stafangri tryggðu sér sæti í úrslitaleik norsku bikarkeppninnar með því að sigra Brann frá Bergen 1—0 í undanúrslitum. „„ , Víkingur mætir 2. deildar liðinu Haugen í úrslit- um og á Víkingur nú mjög góða möguleika á þvi að vinna tvöfalt í Voregi, þ.e.a.s. bæði deild og úkar, en liðið stendur mjög vel að vígi í norsku deildarkeppn- inni. Haugen gerði það gott í undan- úrslitunum, vann 1. deildar liðið Mjoendalen 3—1 á útivelli. Það hefur verið gott ár hjá Haugen, þvi að liðið hefur þegar tryggt sér sæti í 1. deild að ári. Þrír Englendingar leika með félag- inu, Dennis Burnett, Steve Hob- son og Dean Mooney. fengi sína fimmtuyillu um miðjan síðari hálfleik. ÍR-ingar verða vafalaust sterkir í vetur, en breiddin er sem fyrr ekki nógu mikil. Stigahæstir í Ieiknum gegn ÍS voru Kristinn Jör. með 26 stig, Mark með 23, Kolbeinn Kristins- son með 17 og Jón Jör. með 15. Stúdentar töpuðu báðum leikjum sínum um helgina og virkuðu ekki nógu sannfærandi. Trent Smock var langstigahæstur með 35 stig, Bjarni Gunnar skoraði 14 stig og Jón Héðinsson 12. Valur — Fram 94-68 (47-32) Valsmenn sýndu það gegn Fram að þeir hafa engu gleymt frá því í vor. Tim Dwyer og félagar hrein- lega gengu frá efnilegu liði Fram- ara. Strax á fyrstu mínútunum var Ijóst hvert stefndi og í hálfleik var orðinn 15 stiga munur Val í vil. í seinni hálfleik slökuðu Vals- menn aðeins á klónni, en Framar- ar gátu aldrei fært sér það í nyt. Lokastaðan 94 —68 og Valsmenn líta því björtum augum á fram- haldið. STIGAHÆSTIR Valsmanna voru: Tim Dwyer 26 stig, Þórir Magnús- son 20, Torfi Magnússon 11 og Kristján Ágústsson 12 stig. Hjá Fram var John Johnson með 29 stig, Símon Ólafsson 19 en aðrir mun minna. Eftir fyrstu tvær umferðir þessa Reykjavíkurmóts verður ekki annað sagt, en að veturinn lofi góðu. Leikmenn virðast ætla að halda áfram þar sem frá var horfið í fyrra. Jafnvel dómgæslan var betri en við mátti búast eftir Ianga hvíld yfir sumarmánuðina. ÁG/gig STAÐAN: 1 u t stig Valur 2 2 0 196:158 4 KR 2 2 0 223:1% 4 ÍR 2 1 190:191 2 Fram 2 1 1 192:194 2 ÍS 2 0 2 182:203 0 Ármann 2 0 2 207:248 0 Hurð skellur nærri hælum við mark Valsmanna, en þarna var ekki skorað írekar en úr öðrum færum í leiknum. Ljósm. Emilía. Hvaða lið fær UEFA-sætið? Valur og Akranes þurfa að leika á ný. ÞAÐ er enn óútkljáð hvort það verður Valur eða Akranes sem tekur þátt í UEFA-keppninni næsta ár fyrir íslands hönd. Aukaleik liðanna um 2. sætið i Islandsmótinu og þar með þátt- tökurétt i UEFA-keppninni, sem fram fór á sunnudaginn, lauk með markalausu jafntefli eftir framlengingu. Liðin verða því að reyna með sér að nýju og verður sá leikur á Laugardalsvellinum n.k. laugardag kl. 14. Það er eins gott að úrslit fáist i þeim leik því á sunnudaginn halda bæði liðin utan til þátttöku i Evrópumótun- um og siðan liggur leið flestra leikmanna til sóiarlanda og þvi alls óvist hvenær hægt verður að leika enn einn aukaleikinn. Má telja liklegt að vítaspyrnukeppni verði látin útkljá málið ef leikur- inn á laugardag endar með jafn- tefli. Leikurinn á sunnudaginn var bráðskemmtilegur á að horfa þótt engin væru mörkin. Bæði lið léku vel en Valsmenn þó mun betur og hafa þeir ekki leikið jafn vel frá því í miðju Islandsmóti. Maður var hreinlega búinn að gleyma því hve góðir Valsmenn geta verið á góðum degi, svo langt er um liðið síðan þeir féllu í öldudalinn. Hvað eftir annað komu þeir vörn Skaga- manna í vandræði með góðum og markvissum samleik og aðeins frábær markvarzla hins unga markvarðar Bjarna Sigurðssonar kom í veg fyrir, að Valsmenn færu með sigur af hólmi. Skagamenn fengu einnig góð marktækifæri en þau voru færri og enduðu flest með skotum framhjá markinu. Inattspyrna 9 Spánartitlar í safni Barcelona • Jón Sigurðsson körfubolt- amaður, átti góðan leik með liði sinu KR gegn ÍR, en var fjarri góðu gamni gegn Ármanni. BARCELONA er enginn nýgræð- ingur i knattspyrnunni. Félagið hefur niu sinnum orðið Spánar- meistari, siðast 1974 undir stjórn Johans Cruyff. 18 sinnum hefur félagið unnið spænsku bikar- keppnina, siðast 1978. Barcelona er einnig eitt af ríkustu félögum veraldar og óviða eru knattspyrnumenn jafn hátt launaðir. Engan skal undra það, þegar mæta að jafnaði 90.000 áhorfendur á hvern ein- asta heimaleik liðsins. Völlurinn tekur ekki fleiri. En forráða- menn kunna ráð viö þvi og nú eru i gangi breytingar á áhorfenda- svæðum vallarins Nou Camp, sem gera mun 100.000 áhorfendum kleift að troða sér inn á völlinn. Ekki er vafi að þessi aukasæti verða þéttsetin, þar sem jafnan komast færri að en vilja á heima- leiki Barcelona. • Carlos Rexach, kunnur spænskur landsliðsmaður í liði Barcelona. Skagamenn voru frískari til að byrja með og strax á 5. mínútu komst Kristján Olgeirsson í dauðafæri en skaut himinhátt yfir þegar mark blasti við. Skömmu síðar átti Árni Sveinsson þrumu- skot að Valsmarkinu en Sigurður Haraldsson, sem kominn var í markið á ný, varði skot hans mjög vel. Nú fóru Valsmenn í gang svo um munaði og varð Bjarni að taka á honum stóra sínum til að verja skot og skallabolta Inga Bjarnar, Harðar og Magnúsar Bergs. I hálfleik kom Sveinbjörn inn á fyrir Árna Sveinsson sem var meiddur og friskaðist framlína Akurnesinga við það. Sóttu bæði liðin á báða bóga en sóknarleikur Valsmanna var liprari og sóknar- lotur þeirra þyngri. Þegar líða tók á hálfleikinn fengu Valsmenn nokkur góð tækifæri, sem flest sköpuðust eftir einleik Ólafs Dani- valssonar, sem nú lék sinn lang- bezta leik með Val. Albert komst einn upp að markinu en Bjarni bjargaði mjög vel með úthlaupi og skömmu síðar komst Ingi Björn í dauðafæri en enn á ný varði Bjarni meistaralega. Þremur mín- útum fyrir leikslok munaði svo litlu að Skagamenn skoruðu mark. Tveir framherjar liðsins lágu þá óvígir í vítateig Valsmanna en Sveinbjörn lét það ekkert setja sig úr jafnvægi, lék á þrjá Valsmenn og renndi boltanum út á Sigurð Halldórsson miðvörð sem kominn var í sóknina en hann skaut yfir af þriggja metra færi. Nú var framlengt og gerðist þá fátt markvert utan hvað Jón Einarsson komst í dauðafæri skömmu fyrir leikslok en enn á ný varði Bjarni frábærlega. Skagamenn geta þakkað Bjarna markverði að þeir eiga enn mögu- leika á UEFÁ-sætinu. Hann var frábær í markinu, bezti maður vallarins. Auk hans áttu góðan leik hjá ÍA miðverðirnir Jón og Sigurður, tengiliðirnir Kristján og Jón Alfreðsson og Sveinbjörn var sprækur eftir að hann kom inn á. Og talandi um Jón Alfreðsson má skjóta því að, að það er undravert hve mikla yfirferð hann hefur á vellinum. Valsliðið átti í heild góðan dag. ólafur Danivalsson var bezti mað- ur liðsins að þessu sinni en einnig áttu þeir mjög góðan leik Guð- mundur, Hörður, Dýri og Albert, sem loksins virðist vera að ná sér eftir slakt sumar. Þá átti Sigurður góðan leik í markinu. f STUTTU MÁLI: Laugardalsvöllur 23. september, aukaleik- ur um 2. sætift i íslandsmfttinu, Valur—ÍA 0.0 (eftir framlengingu). Áminningar: Jón Alfreftsson og Dýri Guft- mundsson bókaðir. Áhorfendur: 1447. LIÐIN: Valur: Sigurður Haraldsson, Magnús Bergs, VllhJAImur Kjartansson (Þorgrimur Þráins- son). Hörftur Hilmarsson, Dýrl Guðmunds- son, Sævar Jónsson, Ingi Björn Albertsson, Atli EAvaldsson, Albert Guftmundsson, Guft- mundur Þorbjörnsson, Ólafur Danivalsson. lA: Bjarnl Slgurðsson. Guðjón Þórðarson, Jóhannes Guðjónsson, Sigurður Lárusson, Slgurður Halldórsson, Kristján Olgeirsson. Jón Gunnlaugsson, Jón Alfreðsson, Árnl Svetnsson (Sveinbjörn Hákonarson), Krist- Inn Björnsson, Sigþór Ómarsson (Guðbjörn Tryggvason). - ss Haustbragur á handknattleiknum 4 LEIKIR voru keyrðir í gegn í Reykjavikurmótinu í handknattleik á laugardagseftirmiðdaginn, tveir i hvorum riðli sem leikið er i. Þarna fór fram dæmigerður hausthandbolti, þó svo að góðir sprettir hafi iðulega sést. Merkilegast var að sjá hvernig hinir nýju menn liðanna spjöruðu sig. Ólafur H. Jónsson og Sigurður Sveinsson hjá Þrótti, Stefán Halldórsson og Gunnar Lúðviksson hjá Val, Þorbergur endurheimtur til Víkings erlendis frá, eins þeir Hannes Leifsson og Andrés Bridde, Framararnir, sem léku með Eyjaþór á síðasta keppnistimabili, o.fl. o.fl. Valur - ÍR 23-23 (11-9) Óvænt úrslit, óumdeilanlega. Framan af var Valur mun sterkari, en ÍR-ingarnir sýndu seiglu og áttu jafntefli skilið fyrir hinn góða endasprett, en staðan var 22—20 þegar stutt var til leiksloka. Jöfnunarmarkið skoraði Bjarni Bessason þegar aðeins 20 sekúnd- ur voru til leiksloka. Var markið sögulegt. ÍR-ingar náðu knettin- um og löng sending var gefin fram á Bjarna. Ólafur Benediktsson markvörður varð þó fyrri til og virtist ná knettinum. Skullu þeir Ólafur o'g Bjarni saman með þeim afleiðingum að Bjarni handsamaði knöttinn og sendi hann í autt markið. Þegar Rögnvaldur Erl- ingsson dómari dæmdi markið gilt, reiddist Ólafur og hrinti honum í gólfið. Ekki verður hér rætt um réttmæti dómsins, en Ólafur á nú vafalaust yfir höfði sér lengra eða skemmra leikbann. Nýju mennirnir hjá Val, þeir Stefán Halldórsson og Gunnar Lúðvíksson, stóðu fyrir sínu, eink- um þó Gunnar, sem er ógnandi og skemmtilegur hornamaður. Mörk Vals: Bjarni 8, Stefán Gunn- arsson og Stefán Halldórsson 4 hvor, Þorbjörn G. 3, Gunnar 2, Jón K. og Steindór 1 mark hvor. Mörk ÍR: Bjarni Bessason 6, Ársæll Hafsteinsson 4, Bjarni Hákonarson 3, Pétur Valdemars- son og Guðjón Marteinsson eitt hvor. Víkingur — Fram 27-17(13-10) Yfirburðir Víkings voru ekki í samræmi við lokatölur leiksins fyrr en síðasta stundarfjórðung- inn eða svo. Víkingur var þó sterkari allan tímann, en Framar- arnir héngu í þeim. Víkingsvélin hikstaði dálítið, en hrökk í gang þess á milli. Jens stóð í markinu í fyrri hálfleik og varði vel, m.a. 3 vítaköst. Nýliði hjá Víkingi, Guð- mundur Guðmundsson, vakti einnig athygli fyrir góðan leik, en hann fiskaði 3 víti og átti aðra sendingu sem gaf mark. Hannes var skæðastur Framara, lítið bar á öðrum. Mörk Víkings: Sigurður Gunn- arsson 7, Erlendur Hermannsson 5, Þorbergur Aðalsteinsson 4, Steinar Birjcisson 3, Páll Björg- vinsson, Arni Indriðason og Magnús Guðmundsson 2 hver og Ólafur Jónsson eitt mark. Þróttur — Ármann 18—16 (10—12) Þróttur, með Óla Jóns og Sigurð Sveinsson í fararbroddi, vann sig- ur á Ármanni, en leikur þessi var sá slakasti þennan dag. Hama- gangur og skipulagsleysi réð ríkjum, allir ætluðu að gera allt upp á eigin spýtur. Ármenning- arnir höfðu forystuna framan af og voru þá betri, Þróttararnir sigu hins vegar fram úr og unnu góðan sigur. Áhorfendur fengu að sjá þessi frægu þrumuskot Sigurðar Sveinssonar og eru sannarlega ekki margir gæddir slíkum skot- krafti. Ef veðja ætti á markakóng í 2. deild í vetur, væri sterkt að veðja á Sigga Sveins. Mörk Þróttar: Sigurður Sveins- son 9, Ólafur 4, Sveinlaugur 2 og Magnús 1 mark. Mörk Ármanns: Þráinn 5, Björn 4, Friðrik 3, Bragi 2, Jón Viðar 1 mark. KR - Fylkir 18-27 (10-13) Það þarf margt að laga hjá KR ef leiðin á ekki að liggja beinustu leið niður í 2. deild aftur. Tíminn er naumur. Eftir að jafnræði hafði verið framan af, tóku Fylkismenn leikinn algerlega í sínar hendur og skoruðu hvert markið af öðru gegn stöðum KR-ingunum. Með KR lék að þessu sinni Konráð Jónsson, markakóngurinn mikli úr Þrótti. Hann var frekar lítið með og gekk litlu betur en öðrum KR-ingum að finna leiðina í netið að baki Jóni Gunnarssyni, sem var maður dagsins á laugardaginn, varði flest með kjafti og klóm, t.d. skoraði KR ekki mark fyrstu 15 mínútur síðari hálfleiks. Mörk KR: Konráð og Haukur 3 hvor, Kristinn, Þór, Friðrik og Jóhannes 2 hver, Þorvarður, Haukur Geirmundsson og Björn eitt mark hver. Mörk Fylkis: Guðni 6, Magnús og Gunnar 4 hvor, Sigurður 3, Ragnar, Guðmundur og Ögmund- ur 2 hver, Stefán eitt mark. — gg. Ingibjörg kom a óvart á Burknamótinu FYRSTA Burknamót haustsins var haldið í Hafnarfirði um helgina og var þá keppt í kast- greinum kvenna. Verða mót þessi haldin vikulega þar til vetur gengur í garð, en reynt síðan að halda mótið öðru hvoru í vetur. Ingibjörg Guðmundsdóttir kom mjög á óvart með frammistöðu sinni í mótinu, sem er annað meiri háttar mót hennar. Hún sigraði örugglega í öllum greinunum, varpaði kúlu 9,75 metra, kastaði spjóti 30,40 metra og kastaði kringlunni 26,10 metra. Lára Hall- dórsdóttir varð önnur bæði í kúluvarpi og spjótkasti, kastaði kúlunni 8,61 metra og spjótinu 29,10 metra. Hún varð síðan þriðja í kringlukasti með 22,10 metra kast. Anna Haraldsdóttir varð önnur í kringlukasti með 24,20 metra. Hún varð einnig þriðja í kúlu og spjóti 8,32 metra í kúlu og 23,10 metra í spjótinu. Nýir menn til Derbv Framkvæmdastjóri eins af botnliðum ensku knattspyrnunn- ar. Derby, keypti í gær tvo nýja leikmenn og seldi einn. Er það von hans og annarra velunnara Derby að breytingarnar verði til hins betra hjá félaginu. Addison borgaði Hereford Utd. 110.000 sterlingspund fyrir Steve Emery, tengilið. Enn meira kom þó á óvart að hann festi kaup á Roger Davies, fyrrverandi leik- manni Derby. Davies lék í sumar með Grófhálsunum frá Tulsa í Bandaríkjunum og gerði það gott. Hann lék áður með Derby fyrir nokkrum árum og síðan með Leicester. Kappinn þykir frábær þegar sá gállinn er á honum, en að sama skapi lélegur þar fyrir utan. Davies var ódýr, kostaði aðeins 40.000 pund. Þá var gengið frá sölu miðvarð- arins sterka Steve Wicks, sem fer til Tommy Dochetry hjá QPR fyrir 300.000 sterlingspund. Wicks lék áður með Chelsea og hafði hug á að komast aftur til Lundúna. Haukar sigruðu FH FH nægði ekki þrír nýir leik menn, Magnús Teitsson, Pétur Ingólfsson og Eyjólfur Bragason, til þess að vinna sigur á Haukum, er liðin áttust við i hinum árlega ESSO-bikarleik. Haukarnir hrepptu bikarinn þetta árið, unnu FH 27—26, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 15—11 fyrir Hauka. Haukar komust í 5 — 1 á skömmum tíma, en áður en langt um leið höfðu FH-ingar gert þann mun að engu og staðan varð jöfn á tiunda marki, 10—10. Þá tóku Haukarnir annan kipp og sigldu fram úr, náðu 4 marka forskoti. FH-ingar minnkuðu muninn mjög í síðari hálfleik, allt þar til þeim tókst að jafna í 18—18. Hið sveiflukennda lið Hauka tók þá nýjan fjörkipp og seig fram úr á nýjan leik, skoraði næstu fjögur mörkin. FH-ingar hófu þegar í stað að saxa á forskotið og hefðu líklega jafnað ef tíminn hefði reynst nægur. En hann rann út og Haukar hrepptu því Tobbasjoppu- bikarinn eftirsótta. Svo virðist sem reikna megi með báðum liðum þessum sterkum þegar kemur fram í íslandsmótið, ekki síst FH, þrátt fyrir tapið, með þrjá nýja og sterka leikmenn. Markhæstir Hauka: Hörður 8 og Andrés 6 mörk. Markhæstir FH: Geir 7 og Pétur Ingólfsson 6 mörk. G.G.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.