Morgunblaðið - 25.09.1979, Síða 25

Morgunblaðið - 25.09.1979, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1979 25 HIP mót- mælir verð- hækkunum FULLTRÚARÁÐ Hins íslenzka prentarafélags samþykkti á fundi sínum hinn 20. september ályktun, þar sem mótmælt er siendurteknum hækkunum, sem dunið hafi yfir launafólk og hafa i för með sér siminnkandi kaup- mátt. Ályktun HÍP er svohljóð- andi: „Á síðustu mánuðum hefur verkalýðshreyfingin haldið uppi lágmarkslaunakröfum og tekið þannig fullt tillit til fullyrðinga stjórnvalda um lélegan efnahag. Með þessari stefnu var þess vænzt, og raunar gefin um það fyrirheit af stjórnvöldum, að verð- lagi yrði haldið í skefjum, þannig að umsaminn kaupmáttur laun- taka héldist óskertur. Því mótmælir fundurinn harð- lega þeim margendurteknu verð- hækkunum, sem dunið hafa yfir launafólk að undanförnu og hafa í för með sér síminnkandi kaup- mátt. Slík vinnubrögð eru ekki nú, frekar en áður, til þess fallin að auka traust almennings á stjórn- völdum. Fundurinn skorar því a verka- lýðshreyfinguna að halda vel vöku sinni í komandi kjaraátökum og snúa vörn í sókn.“ Fjölbrautaskóli settur á Sauðárkróki Sauóárkróki, 24. september 1979. FJÖLBRAUTASKÓLINN á Sauðárkróki var settur i fyrsta skipti á laugardag að viðstöddu fjölmenni. Meðal gesta við skólasetninguna voru þingmenn og ráðherrar. Jón Ásbergsson formaður skólanefndar setti athöfnina og stjórnaði henni. Aðrir ræðumenn voru Ragnar Arn- alds menntamálaráðherra, Þorbjörn Árnason, forseti bæjarstjórnar Sauðárkróks og Jón Hjartarson, nýskip- aður skólastjóri. Jón Hjartarson gat þess m.a. í skólasetningarræðu sinni að tæplega 90 nemendur yrðu í skólanum í vetur. Fjölbrautaskólinn er til húsa í húsnæði Gagnfræðaskólans, en í haust var hafin bygging verkmenntunarhúss og er þess vænst að smíði þess verði hraðað. Nánari frásögn af setningu Fjölbrautaskólans birtist í Morgunblaðinu síðar. -. Kári. Benedikt ávarpar alls- herjarþing SÞ í dag BENEDIKT Gröndal, utanríkis- ráðherra, hélt vestur um haf síðastliðinn föstudag til þess að sækja 34. allsherjarþing Samein- uðu þjóðanna og mun hann sitja þingið til 28. september næstkom- andi. Benedikt Gröndal mun taka þátt í almennri umræðu þingsins og er ráðgert að hann flytji ræðu sína í dag. Nám í Norðurlandamáli skap- ar tengsl við 20 millj. manna í NORRÆNA húsinu var haldin um helgina ráðstefna um kennslu í Norðurlandamálunum og var það Norræna félagið í Reykjavík sem stóð fyrir ráðstefnunni í samvinnu við mennta- málaráðuneytið. Slikar ráðstefnur eru haldnar á öllum Norður- löndunum að frumkvæði Menningarmálaskrifstofu Norðurlanda. Um 60 fulltrúar sóttu ráðstefnuna. bæði innlendir og erlendir. Norræna féiagið skipulagði ráðstefnuna í samvinnu við ýmsa aðila í Háskóla íslands og utan hans. Miklar umræður urðu á ráðstefnunni í kjölfar ýmissa erinda sem flutt voru. en samkvæmt upplýsingum Hjálmars ólafssonar formanns Norr- æna félagsins virtist sem allir væru sammála um það að menn væru ekki aðeins að læra eitt tungumál með þvi að læra Norðurlandamál, þvi að i rauninni væri veerið að opna möguleika á tengslum við alls um 20 milljónir ibúa á þessu svæði. „Það kom fram,“ sagði Hjálm- ar, „að margir telja að börn séu látin hefja dönskunám of snemma og komu m.a. fram hugmyndir að færa dönsku- kennsluna aftur um eitt ár, þ.e. hefja hana hjá 11 áa börnum í stað 10 ára. Rökin fyrir því eru m.a. þau að börnin séu á þessu aldursskeiði ennþá að læra sitt eigið tungumál og öðlast skiln- ing á ýmsum hugtökum þess. Hins vegar kom fram hjá mörg- um ráðstefnumönnum að nauð- synlegt sé að hafa ekki færri en fjórar kennslustundir í viku í erlendu máli. Þá var rætt um það að í kennslubókum í dönsku verði einnig texti á sænsku og norsku og jafnframt var fjallað um nauðsyn þess að endurskoða kennslubækur í dönsku, en það hefur ekki verið gert síðan kennslan var færð niður í yngri aldursflokka." Þá kvað Hjálmar menn hafa rætt talsvert um það að ekki Hjálmar ólafsson formaður Norræna félagsins. væri nóg haldið á loft fyrir nemendur að samkvæmt lögum gætu þeir ráðið hvaða Norður- landamál þeir vildu læra og kom fram vilji til þess að vekja meiri athygli á þessu. Einnig var m.a. rætt um nauð- syn þess að Menningarmála- skrifstofan efndi til námskeiðs fyrir jaðarríkin í norræna sam- starfinu, þ.e. Grænlendinga, ís- lendinga, Færeyinga, Finna og Sama. Var samþykkt ósk til Menningarmálaskrifstofunnar um að halda slíka ráðstefnu. Þátttakendur í ráðstefnunni voru frá Færeyjum, Danmörku, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Islandi. Frá innlendum félögum voru m.a. fulltrúar frá mennta- málaráðuneytinu, samtökum kennara og skólastjóra, Norr- æna félaginu, Dansk kvindeklub, Færeyingafélaginu, félaginu ís- land Færeyjar, Normanslaget, Finnlandsvinafélaginu, Græn- landsvinafélaginu, Námsflokk- um Reykjavíkur og fleiri aðilum. Fyrirlesarar voru Gustav Skuthalla frá Danmörku, Christina Andersson frá Finn- landi, Elizabeth Nylund frá Sví- þjóð, Hörður Bergmann og Guð- rún Halldórsdóttir. EndurskoðunFramleiðsluráðslaganna: Slitnaði upp úr starfi nefndar st jórnarflokka SLITNAÐ hefur upp úr starfi nefndar stjórnarflokkanna þriggja, sem hafði það hlutverk að reyna að ná samkomulagi um heildarendurskoðun laga um Framleiðsluráð landbúnaðarins, verðskráningu, verðmiðlun og sölu á landbúnaðarvörum o.fl. I nefndinni áttu sæti Jónas Jóns- son ritstjóri fyrir hönd Fram- sóknarflokksins, Vilmundur Gylfason, alþingismaður fyrir hönd Alþýðuflokksins og Helgi Seljan alþingismaður fyrir hönd Alþýðubandalagsins. Mun hafa slitnað upp úr starfi nefndarinn- ar vegna ákvæðis laganna um svokallaða tekjuviðmiðun bænda og skylduliðs þeirra en sam- kvæmt þvi skal launaliður bónd- ans miðaður við kaupgjald verka- manna og iðnaðarmanna. Vildi Vilmundur Gylfason að þetta ákvæði félli niður en hinir full- trúarnir stóðu fast gegn því. Þótti mönnum þá sýnt að ekki væri til staðar neinn samkomu- lagsgrundvöllur innan nefndar- innar og hefur hún nú hætt störfum. Þegar nefndin hætti störfum hafði hún ekki enn tekið til umræðu hugsanlegar breytingar á útflutningsbótakerfinu en talið var að tillögur um það kynnu að valda ágreiningi milli stjórnar- flokkanna. Tekjuviðmiðunar- ákvæðið, sem ágreiningur reis um nú, var einnig ágreiningsatriði við endurskoðun Framleiðsluráðslag- anna á árinu 1972, en þá vildi Björn Jónsson forseti Alþýðu- sambands íslands að það yrði fellt niður. Þessi nefnd stjórnarflokkanna var sett á laggirnar eftir að nefnd skipuð fulltrúum bænda og sam- taka vinnumarkaðarins hafði skil- að tillögum um heildarendurskoð- un Framleiðsluráðslaganna en sú nefnd klofnaði og skiluðu fulltrúar Alþýðusambandsins og Vinnuveit- endasambandsins minnihlutaáliti. Steingrímur Hermannsson land- búnaðarráðherra lagði fram í ríkisstjórninni tillögur um end- urskoðun laganna á grundvelli þessara tillagna nefndarinnar en innan ríkisstjórnarinnar náðist ekki samkomulag um að flytja frumvarp á Alþingi um þær breyt- ingatillögur. Var því ákveðið að skipa fyrrnefnda nefnd stjórnar- flokkanna, sem nú hefur hætt störfum. 4 umferðaróhöpp á Húsavík um helgína FJÖGUR umferðaróhöpp urðu á Ilúsavík og nágrenni um helgina. þar af tvö stórvægileg. Á föstu- dagskvöld varð árekstur tveggja bíla í Ljósavatnsskarði og skemmdust báðir bilarnir mjög mikið. annar þeirra er talinn ónýtur. Slys urðu þó ekki á mönnum. Á laugardag varð minniháttar árekstur á Húsavík, og aðfarar- nótt laugardagsins varð útafakst- ur í Aðaldalshrauni skammt frá flugvellinum; billinn skemmdist mjög mikið en engin meiðsl urðu á fólki. Á sunnudag varð síðan harður árekstur rétt sunnan við kaup- staðinn. Tvennt þurfti að flytja til Reykjavíkur á sjúkrahús; var ann- ar aðilinn með höfuðáverka en hinn hafði lærbrotnað. r Utvarpsskákin Svart: Guðmundur Ágústsson, íslandi. Hvítt: Hanus Joensen, Færeyjum. 1. e4 — e6 2. d4 - d5 3. Rd2 — c5 4. exd — exd 5. Bb5+ — Rc6 6. De2+ — Be6 7. Rf3 - INNLENT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.