Morgunblaðið - 25.09.1979, Page 31

Morgunblaðið - 25.09.1979, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1979 31 Minning: Björn Bessason aðalendurskoðandi Fæddur 5. marz 1916. Dáinn 9. júlí 1979. Sé horft til baka yfir farinn veg finnst manni oft að straumur tímans hafi verið of hraður. Þegar vinur er kvaddur i hinsta sinn á góðum aldri vaknar sú tilfinning í brjósti að lífið sé stutt og stopult, og valt yndi ævistunda. „Vinir berast burt með tímans straumi". Björn Bessason er hniginn í faðm fósturjarðarinnar sem hann unni. Minningin lifir um góðan dreng sem ekki mátti vamm sitt vita og féll með skíran skjöld og fullri sæmd í orrustunni síðustu. Björn var elsta barn hjónanna í Kýrholti í Viðvíkursveit, þeirra Bessa Gíslasonar hreppstjóra og Elínborgar Björnsdóttur. Þar fæddist hann og ólst upp í örmum ástríkra foreldra og í glöðum systkinahópi. Systkini hans eru: Frú Margrét Fjeldsteð, læknis- ekkja í Reykjaví, Gísli fyrrverandi bóndi í Kýrholti, Haraldur pró- fessor og ritstjóri í Winnipeg í Kanada, og hálfsystir frú Elín- borg húsfreyja í Hofsstaðaseli í Skagafirði. Fegurð Skagafjarðar hefur snortið margan draumlyndan ungling, ekki síst þegar hið víð- lenda hérað og eyjarnar á firðin- um eru böðuð í sólarbirtu vordýrð- arinnar. Slíkir átthagar fylgja manni í minningunni langa ævi- daga „þótt leiðir liggi um borgir". Æskuheimili Björns stendur í miðri sveit með útsýni til aðal- héraðs Skagafjarðar til vesturs en Hjaltadals og útsveita héraðsins að austan. Þar hefur verið ættar- jörð frá 1866. Á þessum tíma hafa þar vaxið upp og búið fjórar kynslóðir af sömu ættinni. Allt hefur þetta verið duglegt og vel gefið fólk og bændurnir þar verið í forystuliði sveitarinnar mann fram af manni. Eftir svo langa búsetu sömu ættarinnar skapast traust tryggðabönd við ættaróðal- ið og ættarhéraðið, sem ekki slitna þótt örlögin ráði öðrum dvalar- stöðum. Bessi í Kýrholti var af traustum bændaættum úr Skagafirði, mjög greindur og gegn maður. Ein af formæðrum hans var á sínum tíma kölluð gáfaðasta kona á Norðurlandi. Hann var duglegur bóndi og var hreppstjóri í fjölda ára. Elínborg, móðir Björns og kona Bessa, var dóttir séra Björns prófasts á Miklabæ í Blönduhlíð Jónssonar frá Broddanesi og konu hans Guðfinnu Jónsdóttur frá Verðará í Önundarfirði. Séra Björn var fyrst prestur á Bergs- stöðum í Svartárdal í þrjú ár en á Miklabæ í 42 ár. Þessi prestshjón eignuðust 11 börn og er mikill fjöldi góðra manna og kvenna út af þeim kominn. Móðurbræður Björns Bessasonar voru séra Guð- brandur Björnsson prófastur í Viðvík og Hofsósi og séra Bergur Björnsson prófastur í Stafholti. Fimm náfrændur Björns eru nú starfandi prestar og mun hugur hans einnig hafa hvarflað til slíkra starfa á tímabili. Það kom snemma í ljós að Björn var ekki hneigður til búskapar og að hugur hans stefndi til mennta. Hann las mikið sem unglingur og spurningar um lífið og tilveruna leituðu ákaft á hug hans. At- hyglisgáfa hans var sterk. Hann ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- formi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubili. gleymdi oft daglegum störfum sem unglingur þegar hann var að brjóta einhver viðfangsefni til mergjar. Var hann því oft það sem kallað er viðutan. Hann þráði að fá tækifæri til góðrar menntunar, en slíkt var miklum erfiðleikum bundið, eins og flestir af þeirri kynslóð þekktu og margir urðu að líða fyrir. Kreppan mikla var byrjuð og fjárpestir og verðfall herjuðu á íslenskan landbúnað. Búin gáfu lítið af sér og dugnaður og elja hrukku skammt. í Kýrholti var talið vera gott bú og sæmilega góð efni á þeirrar tíðar mæli- kvarða. En húsbóndinn var ekki aflögufær og mun líka hafa talið eðlilegt að elsti sonurinn byggi sig undir það að taka við ættarjörð forfeðra sinna. Sem ungur maður var Björn á unglingaskóla á hinu fræga menntasetri Hólum í Hjaltadal. Fn frekara nám þar fullnægði ekki löngunum hans. Hann fór því í Menntaskólann á Akureyri og vann fyrir skólakostnaði sínum á sumrin. Helst var þá sumarvinnu að fá á Siglufirði, sem gæfi eitt- hvað í aðra hönd, og þangað sóttu ungir menntamenn á þessum ár- um til þess að afla fjár til greiðslu námskostnaðar. Þar sem þessir peningar voru misjafnlega miklir eftir veiðum og árferði nægðu þeir stundum ekki til slíkra þarfa. Brugðu því margir á það ráð að lesa utanskóla til þess að spara kostnaðinn. Slíkt gerði Björn stundum á sinni námsbraut. Er hann var langt kominn með menntaskólanám hætti hann í skóla. Brá hann þá á það ráð að fara til Danmerkur til starfa við garðyrkju. Náttúrufræði var ein af mörgum hugðarefnum Björns og þá sérstaklega grasafræði. Stóð hugur hans á tímabili til fram- haldsnáms í þeim greinum. Hann dvaldi í Danmörku aðeins í eitt ár. Eftir heimkomuna stundaði hann áfram störf á Siglufirði að sumar- lagi og í tvo vetur farkennslu á Siglunesi, en þá var þar marg- menni sem oft áður. Stúdentsprófi lauk hann svo vorið 1941. Nú atvikaðist það svo að honum voru boðin störf hjá Kaupfélagi Eyfirðinga, en til undirbúnings fór hann í endurskoðunarstörf hjá Sambandi íslenskra samvinnu- félaga og stundaði jafnframt nám V í þeim greinum. Hann réðst síðan til K.E.A. sem endurskoðandi og varð það hans ævistarf. Lengst af var hann aðalendurskoðandi hjá þessu stóra fyrirtæki. Það voru mikil ábyrgðarstörf og yfirgrips- mikil. Þó bætti hann á sig ýmsum aukastörfum í starfsgrein sinni. Hann kenndi t.d. um tíma bók- færslu í Iðnskóla Akureyrar. Hann naut mikils trausts hjá yfirboðurum sínum, enda sam- viskusamur og skyldurækinn í öilum sínum störfum. Margar hamingjustundir mun Björn hafa átt, er hann sinnti sínum áhugamálum, sem lágu utan við lífsstarfið. Hann hafði yndi af tungumálum og bók- menntum. Hann lék sér að því að yrkja bæði í bundnu og óbundnu máli á íslensku og dönsku og var ritfær í besta máta. Hann las heimsbókmenntirnar á ensku og var mikill fagurfræðingur. Eftir að hann lauk sínu skólanámi, hélt hann sleitulaust áfram að full- nægja sínum fróðleiksþorsta. Varð hann fjölmenntaður og margfróður. Björn var mjög hógvær og yfir- lætislaus maður, og lét lítið yfir kunnáttu sinni. En í góðum félags- skap komst hann ekki hjá því að miðla öðrum af sinni miklu þekk- ingu. Nokkrar greinar hafa birst eftir hann í blöðum og tímaritum, og má þar m.a. nefna frásagnir í tímariti Ferðafélags Akureyrar, sem heitir Ferðir. Á yngri árum hafði Björn mikinn áhuga á ferða- málum og kynnisferðum um okkar fagra ættarland. Kynning okkar Björns hófst er við vorum ungir námsmenn á hinum forna Hólastað. Við urðum strax góðir vinir. Hann var glaður og hugljúfur félagi. Nokkrum árum síðar áttum við ánægjuleg samskipti er við dvöldum báðir í Danmörku. Hann var þá sem fyrr hinn káti og hressi lagsbróðir. „Ört hvikar æð um unglingsdaga þá er oss létt í lund“. (Svb. Egilsson). Þegar ég kom heim til íslands, eftir nokkurra ára útivist, hitt- umst við á ný á Siglufirði. Var hann þá hinn bjartsýni og glaði nýstúdent sem stráði birtu í kringum sig eins og sólskinsdagur. Síðan áttum við margar samveru- og ánægjustundir á heimili hans, á vettvangi hins daglega lífs og í góðra vinahópi. Á okkar vináttu sló aldrei neinum fölskva. Er vegir skiljast er gott að minnast slíkra vina og þakklæti og söknuður fylla hugann. Björn var gæfumaður um sína lífs daga. Hann kvæntist þann 9. maí 1942 eftirlifandi eiginkonu sinni Þyrí Eydal tónlistarkennara. Ungu hjónin byggðu sér glæsilegt heimili á Gilsbakkavegi 7 á Akur- eyri, Þar ríkti ástúð, gagnkvæm virðing. Gestrisni og glaðværð. Þyrí og Björn eignuðust tvær dætur. Eldri dóttirin Elínborg er gift og búsett í Svíþjóð. Maður hennar er Lars-Erik Shilling verk- fræðingur. Yngri dóttirin Þyrí Guðbjörg stúdent er í heimahús- um og starfar á skrifstofu K.E.A. Björn var heilsuhraustur þar til fyrir tveimur árum að hann kenndi nokkurrar vanheilsu. Þá missti hann heyrn að mestu, en fékk þó aftur nokkra bót á þeim sjúkdómi. Um síðustu áramót ágerðist sjúkdómur hans. I janúar var hann sjúklingur á Landsspít- alanum og hresstist nokkuð eftir þá dvöl. Var gleði hans einlæg að fá að koma aftur á sitt kæra heimili. Hann reyndi að halda áfram störfum sínum, meðan kraftur entist en þrekið var lítið og sjúkdómurinn ágerðist. Dvaldi hann þá á heimili sínu undir umsjá sinnar ágætu konu og dóttur sem spöruðu hvorki um- hyggju né erfiði til þess að létta honum þrautirnar í þungum sjúk- dómi. Þann 2. júní var hann fluttur helsjúkur á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri og þar lést hann 9. júlí. Jarðaförin fór fram þann T8. júlí, að viðstöddu fjölmenni. Vígslubiskup Norðlendinga flutti hugnæma kveðjuræðu yfir vini sínum, og þar hljómuðu fagrir tónar héraðssöngs Skagfirðinga, sem kveðja ættarbyggðarinnar. Góður drengur er genginn allrar veraldar veg. Samferðamennirnir þakka góð kynni. Við geymum góðar minningar og trúum því að „Vort líf sem svo stutt og stopult er það stefni á æðri leiðir." (E. Ben.) Ég og fjölskylda mín vottum ástvinum og ættingjum Björns heitins Bessasonar okkar innileg- ustu samúð í sorg þeirra og sökn- uði. Þ. Ragnar Jónasson. Arný Jónína Leifsdóttir Ég krýp og faðma fótskör þina. frelsari minn i bænastund. Hún elsku Árný, vinkona mín, er dáin aðeins 23 ára gömul. Mig langar til að kveðja hana og þakka henni fyrir þessi 5 ár sem við höfum verið vinkonur. Það var svo einkennilegt með Árnýju ef eitt- hvað amaði að þá brást það ekki að Árný hringdi og spurði hvernig gengi. Það var eins og hún fyndi eitthvað á sér, alltaf tilbúin til að hjálpa ef hún mögulega gat. Núna þegar hún er dáin hrúgast allar minningar upp í hugann, allt sem skeð hefur, bæði skemmtilegt og sorglegt. Kvöldið sem mér var tilkynnt andlát hennar spurði ég í sífellu: hvers vegna Árný, hún sem nýbú- in var að stofna heimiii og beið eftir fyrsta barni sínu, hvers vegna Árný? Vonandi líður henni vel þar sem hún dvelur núna. En áður en Árný mín kvaddi þennan heim, skildi hún eftir sig litla dóttur, sem verður huggun í harmi fyrir eftirlifandi eiginmann henn- ar. En Árný giftist Guðmundi Guðjónssyni í nóvember á síðasta ári. Megi almáttugur Guð styrkja Guðmund og litlu dótturina í þessari miklu sorg, einnig föður, systur og Ingibjörgu svo og alla ættingja hennar. Votta ég þeim mína dýpstu samúð. Hvíli hún í friði. Herdís. MEÐ KAUP Á TELEFUNKEN LITSJÓNVARPSTÆKI TRYGGIR ÞÚ ÞÉR BJARTARI OG BETRIMYND Þegar þú velur þér litsjónvarp skaltu velja rétt tæki, tæki frá uppfinningamönnunum sjálfum. Telefunken fann upp Pal kerfið sem sjónvarpsframleiðendur í Evrópu nota. Þú getur að sjálfsögðu fengið ódýrari litsjónvarpstæki en ekki sambærileg að gæðum. I m !* *>, m Ko Telefunken býður upp á alla þá möguleika sem aðrir bjóða eins og til dæmis Inline myndlampa, fullkomið einingakerfi, lága orkunotkun (90-130 Wött), bjartari og betri mynd, sjálfvirkur lita- og birtustiliir, tengimöguleiki fyrir leiktæki og myndsegulbönd. En það sem mestu máli skiptir er að tækin eru betri. BRÆÐURNIR ORMSSON % LAGMULA 9 SIMI 38820

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.