Morgunblaðið - 25.09.1979, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1979
Þú getur byrjað að telja hann út!
Hann borðar orðalaust allt sem
ég set á borðið
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Spurning, sem varnarspilari
veltir oft fyrir sér er hvenær best
og nauðsynlegt sé að trompa með
hæsta trompi varnarinnar.
Sé hægt að gefa nokkra reglu
um þetta er hún þessu lík: Hafir
þú engan möguleika á að komast
inn er best að trompa við fyrsta
tækifæri. En ef þú sérð möguleika
á innkomu er betra að bíða og fá
tvö tromp í trompið þitt.
Norður gaf, allir utan.
Norður
S g
H. ÁK105
T. K963
L. Á964
COSPER
Hvað hefur orðið af gömiu konunni. Það er svo langt siðan hún
hringdi og sagðist ætla að koma?
Gleymd börn
í Garðabæ
Það er eftirtektarvert að í okkar
þjóðfélagi skuli finnast svo margir
hópar gleymdra barna. í Garðabæ
finnst einn slíkur hópur (eining). í
þeim bæ, sem hefur hvað hæstar
meðaltekjur landsmanna og
stjórnað er af sjálfstæðismönnum,
eru börn, sem ekki er hægt að
segja annað um, en að þau mæti
verulegum fjandskap af bæjar-
stjórnendum, en þessi börn eru
börn einstæðra foreldra, það er
hreinlega ekki gert ráð fyrir þeim
neins staðar.
Þetta er á sama tíma og sjálf-
stæðismaður leggur fram þá til-
lögu á Alþingi að bannaðar verði
fóstureyðingar, sem gerðar eru af
félagslegum ástæðum. Þessi þing-
maður ætti að leggja leið sína
suður í Garðabæ og fá ofurlitla
innsýn í þá opinberu þjónustu, er
þessi bær veitir.
Einstætt foreldri í Garðabæ
stendur ekki vel að vígi. Þeir sem
ekki hreinlega hafa tekjur til að
ráða ráðskonu eða vinnukonu á
heimilið (ef hún þá fæst), hafa
enga kosti, þeim er hreinlega ekki
gert kleift að sjá fjölskyldu sinni
farborða. í Garðabæ er hvorki til
dagheimili né skóladagheimili.
Leikskóli er hins vegar til, mikið
og veglegt hús, reist fyrir heima-
vinnandi húsmæður, sem er ofviða
að hafa ofan af fyrir börnum
sínum, og merkilegt nokk, slagorði
sósíalista: „réttur hvers barns er
að vera á leikskóla", er óspart
veifað í þessum bæ sjálfstæðis-
manna. Börn þeirra foreldra, sem
af illri nauðsyn þurfa að koma
þeim fyrir á uppeldisstofnunum,
hafa þó engan rétt.
Einkagæzla barna í dag kostar
hjá svokölluðum „dagmömmum"
L^Lausnargjald 1 Persíu
Eftir Evelyn Anthony
Jóhanna Kristjónsdóttir
sneri á islenzku
Austur
S. Á10942
H. G63
T. 2
L. K875
Suður
S. D83
H. D97
T. ÁG876
L. D2
Suður varð sagnhafi í 5 tíglum
og vestur fann besta útspilið —
laufgosa. Sagnhafi varð að taka
með ásnum því hann sá fram á, að
ef trompin féllu ekki 2—2 og
austur ætti laufkóng yrði spilið
óvinnandi. Betra væri að taka
tvisvar tromp og vona, að hægt
yrði að láta lauf í fjórða hjarta.
Eftir fyrsta slaginn tók hann
því á trompkóng og ás og tók
hjartaslagina. Vestur átti kost á
að trompa fjórða hjartað en sá að
sér og lét í þess stað háan spaða.
Og þegar spaða var spilað næst
frá borðinu lét austur lágt, vestur
fékk slaginn og gat þá tekið á
trompdrottninguna. Og eitt tromp
í borði nægði ekki til að trompa
spaðaspilin tvö á hendi sagnhafa
— einn niður.
69
Hún yrði líflátin eins og það hét
á þeirra máli. Hann minntist
með hryllingi myndar af
þýzkum diplómata sem hafði
verið skotinn ú höfuðið eftir
mannrán sem hafði ekki skilað
ræningjunum þvf sem þeir
heimtuðu.
Hann var niðurbrotinn og
hugsjúkur. Hræðilegar hugsan-
ir leituðu á hann. Logan var að
vfsu brugðið. En ef þeir krefð-
ust nú lausnargjalds sem hann
væri ekki reiðubúinn til að iáta
af hendi. Hann gekk út f garð-
inn að finna Ardalan hershöfð-
ingja. Hann hafði reynt að
finna skýringu á heimsókn
Homsa. Engan mátti gruna
hvað var á döfinni.
Ardalan hafði skemmt sér
konunglega í samkvæminu.
Hann var hress og glaðsinna
félagsvera sem hafði unun af
þvf að hitta fólk, flugelda-
sýningin hafði tekizt mætavel.
Hann ók heim ásamt eiginkonu
sinni og þegar heim kom settust
þau út á veröndina og hann
fékk sér viskfiögg fyrir svefn-
inn. Hann trúði ekki einu orði
af þvf sem Kelly hafði sagt til
skýringar. Það var hreinasta
snakk. Sýrlendingurinn hafði f
fórum sfnum sjaldgæf koptisk
handrit sem hann hélt að Logan
Fieid kynni að hafa áhuga á að
kaupa. Hann hafði heyrt að
Field safnaði sjaldgæfum hlut-
um af ýmsu tagi og Logan hafði
fengið á tilfinninguna að bann-
að væri að taka slfk skjöl úr
landi. Hann hafði sagt honum
að hann hefði engan áhuga á að
taka þátt í þessu fyrst vafi léki
á um lögmæti þess og sagt
honum að snúa sér annað.
Þetta var ijómandi sannfær-
andi saga og undir öðrum
kringumstæðum hefði hershöfð-
inginn trúað henni. ólögleg
viðskipti af þessu tagi stóðu
með mesta blóma, og þess vegna
hefði þetta vel getað staðizt.
Hann hafði hlustað kurteislega
og þakkað KelJy fyrir að segja
sér frá þessu. Hann hafði meira
að segja bætt því varfærnislega
við að svo gæti farið að Homsi
ætti sfðar eftir að bjóða eitt-
hvað annað. Hann hafði veitt
því athygli að eftir að Logan
ræddi við Homsi höfðu hvorki
Kelly né Field sézt í langan
tíma. Þegar Logan slóst aftur í
hópinn hafði yfirbragð hans
ekki borið með sér að honum
hefði verið boðið merkilegt
handrit til kaups. Og hönd
James Kelly hafði skolfið þegar
þeir kvöddust.
Ardalan var snillingur f að
greina hræðslu. Og hann sá
hræðslu í augum þeirra beggja
Logan Fields og James Kelly. |
Hann lauk úr glasinu sfnu.
Stykkin f púsluspilinu voru að
byrja að skila sér. Ekki vafi á
því að stærsta stykkið var í
höndum Sýrlendingsins. Og
önnur mjög mikilvæg voru án
efa hjá Logan Field sjálfum.
— Ástin mín, sagði Janet —
kemurðu ekki með inn. Logan
hafði ekið henni til hótelsins og
farið með henni að lyftunni og
hún varð mjög hissa þegar
hann kyssti hana eins og
annars hugar á kinnina. Hann
hafði ekki virzt f neinu sólskins-
skapi seinni hluta kvöldsins og
þar sem hún þekkti hann vel
hafði hún tekið eftir því að
hann hafði verið þvingaður í
framkomu þótt hann reyndi að
láta ekki á neinu bera.
— Nei, ekki í kvöld, sagði
hann. — Ég er slituppgefinn.
Lyftan var að koma niður.
— Er nokkuð að? Þú virðist
ekki alveg eins og þú átt að þér.
Hún lagði höndina á handlegg
hans.
— Nei, það er ekkert að,
sagði Logan. — Ég hringi tií
þín í fyrramálið áður en við
förum á skrifstofuna.
Lyftudyrnar opnuðust og hún
sté inn. Hann hafði snúizt á
hæli og var að ganga á braut
þegar hún lagði af stað.
Eileen hafði aldrei komið til
Meath House. Faðir hennar
hafði verið stuttur í spuna og
lítt vinsamlegur í sfmanum.
Vestur
S. KG75
H. 842
T. D104
L. G103