Morgunblaðið - 25.09.1979, Side 37

Morgunblaðið - 25.09.1979, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1979 37 kr. 85.360, á sama tíma og barns- meðlag er kr. 23.500 með þeim börnum, sem ekki fá inni á dag- heimilum. Þessar greiðslur eru inntar af hendi bæði í Reykjavík, Kópavogi og Garðabæ, en sá er munurinn á Reykjavík og Kópa- vogi, að þessi mikli aukakostnaður einstæðra foreldra spannar yfir- leitt ekki nema nokkra mánuði, eða þar til barn fær inni á dag- heimili, þar sem kostnaður er sá sami og barnsmeðlag. í Garðabæ hins vegar varir þetta ástand þar til barn hefur skólagöngu og það sem verra er, skattstofan tekur ekkert tillit til þessara auka- greiðslna, barnafrádráttur sá Þessir hringdu . . . • Siðspillandi sjónvarps- efni Nokkrar konur höfðu sam- band við Velvakanda í gær vegna nýja framhaldsmyndaflokksins í sjónvarpinu, „Seðlaspils". Fyrsti þáttur þessa flokks var sýndur s.l. sunnudag. Konurnar vildu eindregið mót- mæla sýningu þessara þátta og töldu þá bæði siðspillandi og ógeðslega og sögðu það ekki vera hægt að koma með slíkt inn á heimili fólks. Vildu þær í staðinn fá einhverja fallega þætti eða kvikmyndir, sérstaklega þar sem um sunnudagskvöld væri að ræða. Einnig vildu konurnar mótmæla þessari sífelldu hippatónlist, eins og þær orðuðu það. Vildu þær í staðinn fá klassíska tónlist í sjónvarpið. skaiT Umsjón: Margeir Pétursson Á opnu alþjóðlegu skákmóti í Heidelberg í Þýzkalandi sem lauk um síðustu helgi kom þessi staða upp í skák þeirra Lobrons, V-Þýzkalandi, sem hafði hvítt og átti leik, og Reichers, Rúmeníu. Svartur lék síðast 19.. .Be7—f6? í stað 19.. .g6 sem hefði komið í veg fyrir skemmtilega fléttu: 20. c4!! (Hvítur opnar þriðju reitaröðina fyrir hrókinn og gerir þannig biskupsfórn á h7 mögu- lega) Bxe5 ( Ef 20 — dxc4 þá 21. Bxh7+!Kxh7+, 22. Dh5+—Kg8, 23. Hh3 o.s. frv.) 21. cxd5 (En ekki strax 21. Bxh7+—Kxh7, 22. Dh5+—Kg8, 23. Hh3-f6!). ----Dxd5, 22. Dxd5—cxd5, 23. dxe5 og hvítur vann endataflið. Rúmeninn Ghinda sigraði á mótinu, hlaut 7% vinning af níu mögulegum. Næstir komu Nonenmacher, V-Þýzkal., Dzindsindhashvili, ísrael og Donaldson, Bandaríkjunum með 7 vinninga. sami og einnig persónufrádráttur. Félagsmálaráð í Garðabæ lýsti því yfir við fjölmiðla nú í sumar, að Garðabær myndi vilja taka á móti flóttafólki frá Vietnam, en á sama tíma er fólk á flótta úr Garðabæ vegna þess að félagsleg aðstaða er í algjöru lágmarki. Aðilar félagsmálaráðs, sem hafa með dagvistunarmál að gera, kunna ekki neina lausn á vanda einstæðra foreldra, engrar hjálpar að vænta úr þeirri átt, og er rætt er við meðlimi þess er helzt að vænta svara eins og: „Það er eðlilegt að fólk fari þangað, sem það getur haft það betra,“ og er trúlegt að borgarkassi Reykjavík- ur hafi fengið að kenna á því. Það hefði verið veglegt verkefni fyrir Garðabæ á barnaári að finna þessum börnum stað. Eg, sem þessar línur rita, á þá ósk öllum börnum til handa, að þau mættu alast upp á sínu eigin heimili, en ekki á neinum stofnunum. En þau börn eru til og verða alltaf til, sem þurfa einhverra hluta vegna að vera í burtu frá foreldrum sínum, þó fáir efist um að ungum börnum sé það fyrir beztu að dvelja á heimilum sínum. Sjálfstæð móðir. • Endalausar hækkanir Kæri Velvakandi. Mig langar til að biðja þig að flytja „morgunpóstsfólkinu" mín- ar bestu kveðjur og þakkir fyrir einstaklega skemmtilega og inni- haldsríka þætti. Þetta er að verða besta útvarpsefnið, lifandi og upplýsandi á margan hátt. Svona á útvarpsefni að vera. Sömuleiðis bestu kveðjur til Ragnheiðar Ástu, hún velur skemmtileg lög. Ekki veitir af að fá eitthvað þægilegt og skemmtilegt í útvarp- ið því að á hverjum degi þegar blöðin eru opnuð blasa við frá- sagnir um nýjar hækkanir á lífs- nauðsynjum. Er orðið hægt að bjóða okkur íbúum þessa harðbýla lands endalausar hækkanir? Er ekki kominn tími til að fólk hætti einstaklingshugsunarhættinum og taki sig nú saman og mótmæli kröftuglega, já geri jafnvel upp- reisn gegn núverandi stjórnendum okkar heittelskaða lands? Þetta nær ekki nokkurri átt lengur. Bestu kveðjur. ,Ein sem er búin að fá nóg.“ HÖGNI HREKKVlSI Adrxj/u. myndir a minutunm í ö/I skírteini Minúty, v / myndir _ VD LŒKJARTŒG myndir si'mi 12245 Sjöbergs hefilbekkir Fyrirliggjandi þrjár stæröir af hefilbekkjum fyrir verkstæði, skóla og tómstundavinnu. Verzlunin Laugavegi 29, sími 24320, 24321.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.