Morgunblaðið - 25.09.1979, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1979
Fer Bakhtiar
brátt til írans?
London, 24. september. AP.
FYRRVERANDI hers-
höíðingi í íransher og
tveir aðrir kunnir borgar-
ar voru teknir af lífi í
morgun í Teheran að
kröfu byltingardómstóls-
ins í höíuðborginni.
Hershöfðinginn hét Iraj Matbui
og með honum voru teknir af lífi
Taí
efstur
Moskvu, 24. september AP.
MIKHAIL Tal íyrrum heims-
meistari haíði forystu á milli-
svæðamótinu í skák í Riga að
loknum 13 umferðum, var með
9,5 vinninga og átti óteflda bið-
skák. Næstur Tal kom landi hans
Polugaevsky með 9,5 vinninga,
þá Ungverjinn Zoltan Ribli með 9
vinninga og fjórði var Rúmeninn
Gheorghiu með 8 vinninga og
óteflda biðskák.
í 13. umferðinni vann Sovét-
maðurinn Kuzmin Bent Larsen
frá Danmörku, Sovétmaðurinn
Romanishin vann ísraelann Griin-
feld, Ribli vann Miles frá Bret-
landi, Ungverjinn Adorjan vann
Trois frá Brazilíu og Sovétmaður-
inn Tseshkovsky vann van Rims-
dyck frá Brazilíu. Skák Polu-
gaevskys og Ljubojevics frá Júg-
óslavíu endaði með jafntefli og
þremur skákum var frestað.
Andófs-
maður í
fangelsi
Varsjá, 24. september AP.
ADAM Wojciechowski, fé-
lagi í Póllandsdeild Amn-
esty International, hefur
verið úrskurðaður í fang-
elsi í tvo mánuði sakaður
um að trufla frið að sögn
andófsmanna í dag.
Andófsmaðurinn er 34 ára gam-
all og var handtekinn á heimili
föður síns snemma í síðustu viku
og dæmdur tveimur dögum síðar
eftir réttarhöld. Fjölskylda hans
frétti um -málið fyrir nokkrum
dögum.
Rétturinn sem dæmdi hann
fjallar um minni mál og hámarks-
refsingar hans eru þriggja mán-
aða fangelsi eða 5.000 zlotya sekt
(um 70 þús. kr.)
Salt vatn
til áveitu
Moskvu, 22.8eptember. AP.
SOVÉSKIR vísindamenn gera
nú tilraunir með að veita söltu
vatni úr Kaspíahafinu á þurr
svæði. Þessar tilraunir hafa
lofað góðu að sögn sovésku
fréttastofunnar Tass. Bændur
hafa tvöfaldað og alit að
þrefaldað uppskeru sina á
hinum þurru steppum í ná-
grenni Kaspíahafsins. Að
sögn Tass auka hin ýmsu efni
í söltu vatninu frjóscmi jarð-
vegsins. Olga Gammatikati,
sovéskur vísindamaður, sagði
að í sumum tiivikum væri
áveita salts vatns eina fjár-
hagslega og tæknilega mögu-
lega aðferðin til að veita vatni
á svæðin i kringum Kaspía-
haf.
skurðlæknirinn Mojtaba Khajeh-
nuri og þingmaðurinn Jamshid
Alam. Ekki var getið í frásögn
útvarpsins í Teheran hvaða sökum
þeir væru bornir.
Shapur Bakhtiar fyrrum for-
sætisráðherra Irans sagði í viðtali
við tímaritið Newsweek, er kom út
í dag, að hann hygðist snúa til
írans hið fyrsta. Hefur Bakhtiar
farið þess á leit að honum verði
tryggt öryggi þar sem hann
hyggst snúa sér að stjórnmálum
og kljást við Khomeini trúarleið-
toga um völd.
Nýtt skólaár hófst í íran í dag
og við það tækifæri hvatti Kho-
meini trúarleiðtogi allt námsfólk
til að njósna um bekkjarfélagana
og skýra viðeigandi yfirvöldum
frá því ef þeir sýndu tilhneigingar
til að brugga eitthvað illt gegn
íslamskri trúarhefð.
Veður
víða um heim
Akurayri 4 aiskyjaö
Amsterdam 17 skyjað
Aþena 31 heiöskírt
Barcelona vantar
Berlín 14 skýjað
Brussel 16 heióskírt
Chicago 23 skýjað
Feneyjar 19 alskýjaö
Frankfurt 13 skýjaö
Genf 14 skýjaö
Helsinkí vantar
Jerúsalem 27 heiöskírt
Jóhannesarb. 27 heiðskírt
Kaupmannahöfn 14 skýjað
Laa Palmas 23 skýjað
Lissabon 23 heiöskírt
London 17 haiöskfrt
Loa Angeles 29 heiðskfrt
Madríd 16 heiðskírt
Malaga vantar
Mallorca vantar
Miami 31 rigning
Moskva 21 skýjaö
New York 21 heiðskírt
Ósló 10 heiöskfrt
Parfs 19 skýjaö
Raykjavik 8 alskýjaö
Rio De Janeiro 32 skýjaö
Rómaborg 23 skýjaö
Stokkhólmur 13 skýjaö
Tsl Aviv 29 heiöskírt
Tókýó 22 skýjaö
Vancouvsr 17 heiðskírt
Vínarþorg 12 rigning
I>etta gerðist
1973 — Þriggja manna áhöfn
Skylab 2 lendir eftir 59 daga á
braut.
1970 —Vopnahlé í Jórdaníu.
1968 — Marcello Caetano valinn
eftirmaður Salazars í Portúgal.
1963 — Herforingjar í Dómini-
kanska lýðveldinu steypa stjórn
Juan Bosch.
1962 — Castro segir frá ráðagerð
Rússa um bækistöð fyrir fiski-
skipaflota á Kúbu.
1959 — Krúsjeff heimsækir Kína
— Bandaranaike ráðinn af dögum
á Ceylon.
1955 — John Harding skipaður
landstjóri á Kýpur.
1940 — Stjórn Quislings skipuð í
Noregi.
1932 — Katalónía fær sjálfstjórn
og fána.
1915 — Orrustan um Loos hefst.
1908 — Casablanca-málið: þýzkir
liðhlaupar teknir með valdi.
1857 — Tilraunir til að bjarga
Lucknow, Indlandi, úr umsátri
hefjast.
1775 — Bretar og Indíánar taka
stríðshetjuna Ethan Allen til
Björgunarsveitir hafa undanfarið barist við skógarelda í Kaliforníu, sem valdið hafa
miklu tjóni, og gert fjölda manns heimilislausa. Á AP-mynd sést hvar vatni er
varpað úr flugvél yfir elda í Hollywood-hæðum.
Kínverjar ræða
við Kremlverja
Monkvu, 24. september. Reuter.
Aðstoðarutanríkisráðherra
Kina, Want Youping, kom til
Moskvu í gær og lýsti þvi yfir, að
hann mundi vinna að „raunveru-
lega bættum" samskiptum við
Rússa i viðtækum viðræðum við
ráðamenn i Kreml á næstu
vikum.
Wang var sendiherra í Moskvu
þangað til í maí og er í forsæti
fjögurra manna nefndar sem mun
taka þátt í fyrstu ítarlegu samn-
ingaviðræðunum í 14 ár um hin
ýmsu vandamál sem við er að
stríða í sambúð hinna tveggja
stórvelda kommúnista.
Á móti honum tók á flugvellin-
um sovézki aðstoðarutanríkisráð-
Dæmdirí
vinnubúðir
Moskvu, 24. september. AP.
TVEIR háskólastúdentar voru
dæmdir til vinnubúðavistar i dag
fyrir að hrópa slagorð gegn
kommúnistaflokknum i neðan-
jarðarlest i Moskvu að sögn
andófsmanna.
Sergei Yermolayev, 19 ára stú-
dent frá Tartu-háskóla í Eistlandi,
var dæmdur til fjögurra ára vistar
og Igor Polyakov, 24 ára gamall
verkfræðistúdent frá Moskvu, var
dæmdur til 31/2 árs vistar.
Engin varnar-vitni fengu að
koma fram í réttarhöldunum sem
stóðu í einn dag.
fanga er hann stjórnar árás á
Montreal.
1688 — Loðvík XIV gerir innrás í
Pfalz og þýzkir prinsar sameinast
gegn honum.
1663 — Neuhausel, Ungverja-
landi, gefst upp fyrir Tyrkjum
sem síðan hóta innrás í Þýzka-
land.
1604 — Spánverjar taka Ostend
af Hollendingum eftir 3 xk árs
umsátur.
1555 — Ágsborgarfriður: réttar-
bót lútherstrúarmanna og lút-
herskra ríkja.
1523 — Landganga hertogans af
Albany í Dumbarton og upphaf
ófriðar við Englendinga.
1513 — Vasco Balboa fer yfir
Panama-eiðið og finnur Kyrrahaf.
1066 — Orrustan við Stafnfurðu-
bryggju.
Afmæli — Jean-Philippe Rameau,
franskt tónskáld (1683—1764) —
Dmitri Shostakovich, rússneskt
tónskáld (1906-1975).
Andlát — Haraldur harðráði
Noregskonungur féll í orrustu,
herrann Leonid Ilyichev sem hef-
ur tekið þátt í árangurslausum
viðræðum í Peking í nærfellt einn
áratug um spennuna meðfram
landamærum Kína og Sovétríkj-
anna. Hann verður formaður so-
vézku viðræðunefndarinnar.
Vel fór með þeim Wang og
Ilyichev á flugvellinum og rúss-
neskir og kínverskir embættis-
menn ræddust við í bróðerni. En
því er spáð samkvæmt heimildum
í herbúðum beggja aðila, að við-
ræðurnar verði „langar og strang-
ar“. Þær muni líklega hefjast á
þriðjudageða miðvikudag, en und-
irbúningsviðræður fóru fram í
dag, mánudag.
Wang sagði að hann væri
ánægður að vera kominn aftur til
Moskvu og afhenti blaðamönnum
yfirlýsingu þar sem segir að Kín-
verjar séu vinsamlegir í garð
Rússa og vilji bæta samskiptin við
þá. Hann minnti á að Kínverjar
hefðu sjálfir stungið upp á viðræð-
um í apríl og kvað það sýna vilja
til að færa samskiptin í eðlilegt
horf, en Rússar halda því fram að
þetta hafi verið áróðursbragð.
Wang kvað stjórn sína hafa
alltaf verið þeirrar skoðunar að
ágreiningur um grundvallaratriði,
það er hugsjónaágreiningur, ætti
ekki að standa í vegi fyrir eðlileg-
um samskiptum. Þau, segir í
yfirlýsingunni, verða að byggja á
fimm meginreglum um gagn-
kvæma virðingu fyrir fullveldi og
sjálfstæði, afskiptaleysi um inn-
anlandsmál, loforði um að grípa
ekki til árásar, jafnrétti og um
gagnkvæman hag og friðsamlega
sambúð.
25. sept.
1066 — Samuel Butler, skáld, 1680
— Jóhann Strauss eldri, tónskáld,
1849.
Innlent — Orrusta við Stafn-
furðubryggju 1066 (d. Haraldur
harðráði) — Filippus og Haraldur
Sæmundarsynir drukkna á útleið
1251 — íslandsbanki settur á
stofn 1903 — f. Björn Gunnlaugs-
son 1778 — Gestur Pálsson 1852 —
Helgi Thordarsen skipaður biskup
1845 — Húsrannsókn í bækistöðv-
um þjóðernissinna 1936 — Brezk
njósnaflugvél nauðlendir á Rauf-
arhöfn 1939 — Fyrsti brezki tog-
arinn tekinn innan 12 mílna (en
sleppt) 1958 — Eiríkur Kristófers-
son skipherra lætur af störfum
1962 — f. Guðmundur Magnússon
læknir 1863 — Helgi Tómasson
1896 — Álverið tekur til starfa
1969.
Orð dagsins — Það sem stjórnin
gefur getur stjórnin tekið. Og
þegar hún byrjar að taka getur
hún tekið meira en hún gefur —
Samuel Gompers, bandarískur
verkalýðsforingi (1850—1924).
Krabba-
mein arf-
gegnt?
LÆKNAR við Beth Israel sjúkra-
húsið i Boston hafa i fyrsta skipti
uppgötvað meðfæddan litninga-
galla sem virðist vera til marks
um það að krabbamein sé i viss-
um fjölskyldum, að sögn vikurits-
ins Time.
Upphaflega var skýrt frá rann-
sókninni i „New England Journal
of Medicine“. Hún hófst fyrir
þremur árum þegar John nokkur
Q. mætti i uppskurð i sjúkrahúsi i
Boston. Hann var með illkynjuð
æxli i báðum nýrum þótt aðeins
1 — 2% alla Bandaríkjamanna
sem þjást af krabbameini i nýr-
um hafi æxli i báðum nýrunum.
Auk þess kemur þetta nánast
sldrei fyrir fóik fyrr en það er
orðið fimmtugt, en John Q. er
innan við fertugt.
Vísindamenn undir stjórn dr.
Robert S. Brown rannsökuðu 40
fjölskyldumeðlimi af þremur kyn-
slóðum. Rannsóknin leiddi í ljós að
af þessum 40 höfðu tíu krabba-
mein í nýrum, sex þeirra í þeim
báðum.
Sjúklingarnir höfðu sama litn-
ingagalla og vísindamennirnir
geta sér þess til að hann hafi fyrst
komið fram í einhverjum forföður.
Gallinn virðist viðvðrun um að sá
sem þjáist af honum geti fengið
krabbamein.
Þeir fjölskyldumeðlimir sem
hafa gallaða litninga en þjást ekki
af krabba verða skoðaðir reglulega
í von um að stemma megi stigu við
sjúkdóminum. Athugun á fóstri
getur leitt í ljós hvort gallinn hafi
erfzt þannig að foreldrar geta
ráðið því hvort þeir ákveði fóstur-
eyðingu.
Fólk með nýrnakrabbamein
þarf ekki að hafa umræddan litn-
ingagalla og þeir sem hafa hann
þurfa ekki endilega að fá krabba-
mein. Frumur hafa verið teknar úr
fjölskyldumeðlimum og þær hafa
verið settar í frysti svo að hægt
verði að athuga þær síðar þegar
fullkomnari vísindaaðferðir hafa
verið fundnar.
Engin skýring er enn til á því
hvers vegna litningagallinn gerir
það að verkum að vissri fjölskyldu
er hætt við krabbameini. Mikill
árangur hefur náðst með tilraun-
inni, en vísindamennirnir vita ekki
hvernig þeir eiga að notfæra sér
vitneskjuna.