Morgunblaðið - 25.09.1979, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 25.09.1979, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1979 39 Hershöfðingí á Spáni myrtur San Sebastian, 24. sept. AP — Reuter. MIKILLAR gremju gætti í dag á Spáni vegna morðsins á Lorenzo Gonzalez-Valles hershöfðingja er hryðjuverkamenn úr aðskilnað- arsamtökum Baska (Eta) myrtu á baðströnd í San Sebastian í gærdag. Varnarmálaráðherra Spánar, Agustin Rodriguez Sahagun, flaug í dag til San Sebastian til að verða viðstaddur útför hershöfðingjans. Valles var 59 ára. Er árásin á hann var gerð var hann á gangi með konu sinni, en hún slapp ósærð. Hópur unglinga gerði í gær- kvöld árás á stöð hj álparsveita í Navarre héraði á Norður-Spáni og særðu suma varðliða. Lögreglu tókst að hafa hendur á hári margra árásarmannanna. Rokkaramótmæli gegn kjarnorku New York, 24. september. AP. TUGÞÚSUNDIR andstæðinga kjarnorkuvopna söfnuðust sam- an í New York í gær til að hlusta á rokkstjörnur og andófsleiðtoga á borð við Jane Fonda og Ralph Nader og þetta voru taldar ein- hverjar fjölmennustu mótmæla- aðgerðir sem gripið hefur verið til af þessu tagi í sögu Bandaríkj- anna. Lögregla hafði mikinn viðbúnað til að hafa stjórn á mannfjöldan- um sem var um allt að 200.000 á sex tíma fundi sem var haldinn á vegum nefndar tónlistamanna sem hafa sameinazt til að spara orku. Meðal þeirra sem komu fram voru Bella Abzug, fyrrverandi þingmaður frá New York, og skemmtikraftarnir Pete Seeger, Graham Nash, Tom Paxton, Bon- nie Raitt og Jackson Browne. Fundurinn í New York var einn af um tólf fundum sem var haldinn um öll Bandaríkin og með honum lauk viku mikilla tónleika sem náðu hámarki með miklum konsert með frægum rokkstjörn- um sem gáfu vinnu sína og vildu með því hvetja til fjársöfnunar fyrir pólitískum aðgerðum and- stæðinga kjarnorku. Mótmælafólk frá þremur ríkjum Nýja Englands söfnuðust saman í Vernon í suðausturhluta Vermont til að reyna að loka inngangi Vermont Yankee kjarn- orkuversins þar. Þeir sem stóðu fyrir mótmælun- um í New York sögðu að fundur- inn og tónleikarnir væru fyrsti liðurinn í tilraunum til að gera kjarnorku að máli málanna í forkosningunum fyrir forseta- kosningarnar 1980 og í kosninga- baráttunni sem fylgir á eftir. Ludmila Vlasova hélt „frumsýningu“ sína með Bolshoiballettinum í Moskvu eftir að hún ákvað að snúa til Sovétríkjanna en ekki fylgja manni sínum til Bandaríkjanna. I skoðanakönnun meðal íbúa New York kom í ljós, að mikill meirihluti þeirra var á þeirri skoðun að Gudunov hafi sjálfur átt að fá að tala við hana eins og hann óskaði en ekki fulltrúi Bandaríkjastjórnar. Markið hækkað Bokassa fór til Ffla- beinsstrandarinnar Abijan — Bangui — Parls 24. september — AP — Reuter BOKASSA, fyrrum keisara Mið-Afríkukeisaradæmisins var í dag veitt hæli á Filabeinsströnd- inni eftir að þota hans hafði staðið á herflugvelli í Frakklandi frá því á föstudag. í Bangui, höfuðborg Mið-Afríkulýðveldis- ins sem nú heitir, var tilkynnt að Bokassa hefði verið dæmdur til dauða vegna ódæðisverka sinna í landinu. Jafnframt tilkynnti hinn nýi forseti landsins, David Dacko, að landið hygðist taka upp stjórnmálasamband við S-Af- ríku, hvað sem þjóðir Afríku segðu, eins og hann orðaði það. Vera Bokassa í Frakklandi var stjórn landsins verulegt vanda- mál. Bokassa hafði franskt vega- bréf og átti því sjálfkrafa hæli í landinu. En vegna ódæðisverka sinna í Mið-Afríkukeisaradæminu vildi franska stjórnin hann ekki inn í landið. Að sögn heimilda, var leitað ljósum logum að hæli fyrir keisarann fyrrverandi á meðan þota hans stóð á herflugvelli skammt frá París, umkringd her- mönnum og lögregluliði. Síðan var flogið með Bokassa til Fílabeinsstrandarinnar í DU-8 þotu franska flughersins í dag, en Fílabeinsströndin er einn helsti bandamaður Frakka í Afríku. „Vegna kristilegs kærleika getur land okkar ekki neitað honum um hæli, sérstaklega vegna þrábeiðni keisaraynjunnar fyrrverandi, Katrínar," sagði Felix Houphou- et-Boigny, forseti landsins. Brussel, 24. september. AP. — Reuter. VESTUR-Þjóðverjar hækkuðu í dag gengi marksins um tvo af hundr- aði gagnvart gjaldmiðlum Frakklandsv Belgíu, Lux- emborgar, Italíu og Hol- lands og um fimm af hundraði gagnvart dönsku krónunni. Þetta er fyrsta breytingin sem gerð er á gjaldmiðlum innan gjald- eyriskerfis Evrópu (Ems) er myndað var fyrir sex mánuðum. Talið er að náin samráð hafi verið höfð við bandarísk stjórn- völd í sambandi við hækkun marksins, og að eitt af markmið- um hækkunarinnar hafi veriö að styrkja dollarann. Hækkunin var ákveðin eftir 15 klukkustunda fund fjármálaráðherra og seðla- bankastjóra aðildarríkja Efna- hagsbandalagsins (EBE) í gær. I tilkynningu um hækkunina sagði að hún hefði verið ákveðin vegna spennu er myndast hefði á gjaldeyrismörkuðum síðustu daga vegna fjárstreymis utan ríkja Ems. Einnig sagði að hækkunin væri gerð í þeirri von að draga mætti úr spennu á peningamörk- uðum og til að treysta stöðu annarra gjaldmiðla, en talið er víst að þá sé fyrst og fremst átt við dollarann. Otmar Emminger er senn lætur af störfum bankastjóra seðla- banka V-Þýzkalands sagði í dag að senn myndi draga úr verðbólgu í landinu ef ekki kæmu til óvæntir utanaðkomandi atburðir. Verð- bólgan í landinu er nú 4,9 af hundraði og er spáð að hún minnki frá og með desember næstkomandi. Efni í bjór krabbavaldur Washinxton. 24. september. AP. í ÖLLUM nema tveimur af 30 bjórtegundum sem starfsmenn bandariskrar ríkisstofnunar rannsökuðu var að finna merki um nitrosamines, efni sem vitað er að veldur krabbameini í dýrum. bjórneyzluvenjum sínum eða drekka annan bjór. Fyrst var skýrt frá nitrosam- ines í bjór í Þýzkalandi í fyrra. Þær fréttir hafa síðan verið stað- festar og merki um efnið hafa einnig fundizt í sumum tegundum af skozku whisky. Gerðar voru tilraunir á 18 bandarískum og 12 innfluttum bjórtegundum. Efnið fannst ekki í Coors og Guiness Stout. Ekki er vitað hvaða áhrif þetta magn hefur á fólk, en opinber talsmaður kvaðst ekki telja ástæðu til fyrir fólk að breyta „Algert stríd” í Afghanistan París. 24. september. Reuter — AP. ÁTÖKIN í Afghanistan milli ríkisstjórnarinnar sem Rússar styðja og múhameðskra skæruliða hefur snúizt upp í algert stríð að sögn franska blaðamannsins Pierre Blanchet sem hefur fylgzt með bardögum í landinu fyrir vikublaðið La Nouvel Observateaur. Hann segir að víglínan sé tæp- lega 100 km frá höfuðborginni Kabul. Grein Blanchet er fyrsta nákvæma lýsing sjónarvotts að bardögum stjórnarhermanna og uppreisnarmanna. Blanchet segir, að uppreisnin hafi verið hafin með úreltum vopnum sem voru keypt í pakist- anska landamærabænum Dara, en síðan hafi skæruliðar komizt yfir mikið safn sovézkra hergagna, allt frá vörubílum til loftvarnaeld- flauga. „Þeir nota rifflana til að skjóta á sovézksmíðaðar MIG-þotur af fjallatindum," segir Blanchet. „Átökin ná til allra landsmanna sem skiptast í ólíka ættflokka og Rússar vilja fá aó veiða 1,500 búrhvali er verndaóir haf a verió Eftirfarandi fréttatilkynninK barttt i *ær frá skrifstofu Greenpeaco-samtakanna 1 Lundúnum: ÞRÁTT FYRIR þá ákvörðun Alþjóðahvalveiðiráðsins í sumar að banna að hluta hvalveiðar á úthöfum, sem i raun hefði þýtt að Rússar hefðu orðið að hætta hvalveiðum frá verksmiðjuskipum, hafa Rússar nú fariö þess á leit að fá að veiða 1,500 búhveli frá verksmiðjuskipum á árunum 1979—1980. Rússar hafa farið þess á leit við framkvæmdastjóra Alþjóðahval- veiðiráðsins, að hann láti fara fram bréflega atkvæðagreiðslu meðal aðildarþjóðanna um það hvort taka skuli beiðnina til athugunar. Til að svo verði þurfa 12 af 23 þjóðum ráðsins að veita samþykki sitt, en tveir þriðju aðildarþjóðanna þurfa síðan að samþykkja þennan kvóta til að af veiðunum geti orðið. Ef málaleit- un Rússa nær fram að ganga hefur það í för með sér, að búrhvalir verða á ný veiddir í suðurhöfum. Og ef kvótinn verður samþykktur óttast grænfriðungar að samþykktinni um bannið við hvalveiðum á úthöfum verði koll- varpað og að Rússar veiði þúsund- ir hvala til viðbótar kvóta sínum, eins og álitið er að þeir hafi gert að undanförnu. Grænfriðungar hyggjast efna til herferðar og leggja sitt af mörkum til þess að málaleitan Rússa nái ekki fram að ganga. Alan Thornton, framkvæmda- stjóri Greenpeace í Lundúnum, sagði í dag að málaleitan Rússa væri viðurstyggileg þegar haft væri í huga, að samþykkt var að vernda umrædda hvalategund fyr- ir aðeins fáeinum mánuðum. „Við munum hvetja aðildarþjóðirnar til að synja málaleitan Rússa. Við gerum ráð fyrir að svo verði og munum halda til streitu baráttu okkar fyrir því að hvalveiðar verði með öllu bannaðar frá og með 1980. Það væri skelfilegt ef 1,500 hvalir til viðbótar yrðu dæmdir til dauða einvörðungu til að halda lífi í hvalveiðum Rússa eitt ár til viðbótar," sagði Thornton. þjóðir og hata hver annan inni- lega,“ segir hann. Hann kallar átökin hræðilegustu tegund allra átaka: „heilagt stríð.“ Fulltrúar stjórnarflokksins sem eru teknir til fanga eru höggnir í spað. Blanchet spurði að því hvort sovézkum föngum væri haldið á lífi og svarið sem hann fékk var: „aldrei." Bardagarnir eru óvenjulega kyrrstæðir vegna lítillar samræm- ingar. Uppreisnarmenn eru ekki undir það búnir að taka bæi og halda þeim. Þeir hafa ekki síma þannig að herflokkar sitt hvoru megin við dal geta ekki haft samband sín á milli. Útvarpið í Kabul sagði um helgina, að 60 manns hefði verið sleppt úr afghönskum fangelsum og að nýi forsetinn, Hafizullah Amin, hefði skipað sérstaka nefnd til þess að kanna mál fanga. Sovézka fréttastofan Tass skýrði frá því, að komið hefði verið á fót sérstökum byltingardómstóli til þess að efla lög og reglu. í Nýju Delhi var haft eftir áreiðanlegum heimildum að Nur Mohammed Taraki, fyrrverandi forseti, væri heill á húfi og dveldist einhvers staðar í Kabul. ERLENT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.