Morgunblaðið - 09.10.1979, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1979
11
Allsekki
brjálaðir
Ort utangarðs
TIL þess að geta ort nægir ekki
að fyrirlíta smáborgara eða raða
saman klúryrðum. Að skáld séu í
uppreisn gegn kerfinu er ekki nýtt.
Þótt gefinn sé skítur í allt eða
hjalað um byltingu er ekki þar með
sagt að menn séu orðnir skáld.
Ekkert er venjulegra en þetta allt
saman. En að geta tjáð hug sinn
með gildum hætti er nokkurs um
vert. Skáldskapurinn spyr ekki um
skoðanir heldur tilfinningu, kunn-
áttu til að gefa öðrum hlutdeild í
hugsunum sínum. Arthur Rimbaud
er dæmigerður fyrir skáld sem í
senn var uppreisnarmaður og sá
þann heim sem hann ýmist hataði
Bðkmenntir
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
eða unni í skáldlegu ljósi. Hann
megnaði að skapa nýja og óvænta
veröld sem aðrir gátu skoðað sig í. í
því lá snilld hans.
Þetta ætti að vera óþarft að rifja
upp svo sjálfsagt er það. En ekki
verður hjá því komist þegar lesin
er ný bók sem nefnist Heima í
héraði. Á kápusíðu eru höfundar
bókarinnar myndaðir fyrir framan
Alþingishúsið og sýnilega í víga-
hug. Einn er með anarkistamerkið
málað á brjóstið. Þetta er táknræn
mynd fyrir afstöðu höfundanna
sem allir iðka ljóðagerð af því tagi
sem kalla má utangarðs.
Að slepptum öllum herhvötum
og stefnuyfirlýsingum höfundanna
eru í Heima í héraði drög að
ljóðum og öðrum skáldskap sem
gera bókina vel þess virði að eftir
henni sé tekið. Það háir að vísu
höfundunum að þá skortir baga-
lega tilfinningu fyrir máli. Ljóð
sumra þeirra geta varla talist á
boðlegri íslensku og auk þess er
stafsetningu ábótavant, þess
verður að krefjast af þeim sem
leggja fyrir sig ljóðagerð að þeir
hafi sæmilegt vald á því máli sem
þeir yrkja á. Auk þess eru í bókinni
ljóð af því tagi sem flokkast ekki
undir annað en leirburð.
Martin Götuskeggi mun ekki
vera af íslenskum uppruna. Ljóð
hans eru full af kynórum, en í
sumum skynjun sem lýsa má með
orðum hans sjálfs:
alls ekld brjáladur
bara sérstaklega næmur i dau
I ljóðum Martins Götuskeggja
örlar á skáldlegri upplifun sem
eflaust á eftir að ná meiri þroska,
einkum ef það gerist sem hann
orðar svo: „finn tré/ sem vex og/
vex inni í mér/ rætur sem/ binda
mig/ við jörðina”. Hann segir að
vísu á öðrum stað: „titlaðu mig ekki
skáld/ í guðanna bænum þá held-
ur/ miðil og fyrirbæri".
Ljóð Arnar Karlssonar eiga lítið
erindi í Heima í héraði þótt segja
megi að í þeim sé einhvers konar
tjáning eða vitnisburður og þau
hafi gildi sem slík.
Bragi Bergsteinsson virðist vera
handgenginn Jónasi Svafár,
kannski er aðeins um skyldleika að
ræða. Hann er vandvirkastur höf-
undanna og ekki svo gaiinn þótt
Listvið-
burður
A öðrum tónleikum Norrænu
menningarvikunnar komu fram
bariton-söngvarinn Jorma
Hynninen og píanóleikarinn Ralf
Gothóni. Efnisskráin var fjórskipt
og fluttu þeir fyrst lagaflokk eftir
Ralp Vaughan Williams, Songs of
Travel, en því næst söngva við
kvæði úr Kanteletar eftir Yrjö
Kilpinen. Ensku söngvarnir voru
vel fluttir og af kunnáttu en það
kvað við annan og voldugri tón í
finnsku lögunum, rétt eins og
söngvarinn heði tekið hamskipt-
um. Á seinni hluta tónleikanna
söng Hynninen ekki aðeins vel
Jorma Hynninen.
heldur blátt áfram sagt
stórkostlega svo til fárra tónleika
verður jafnað hér á landi. Á seinni
hluta efnisskrár voru söngvar
eftir Sibelíus og Hugo Wolf og var
söngur hans þrunginn karlmann-
legum þrótti en jafnframt mýkt.
Píanóleikarinn Ralf Gothóni átti
stórkostleg augnablik og var sam-
spil og túlkun þessara ágætu
listamanna sannkallaður list-
viðburður, sem flestir íslenskir
söngvarar og aðdáendur söngs
hefðu mátt til með að vera við-
staddir.
Jón Ásgeirsson.
Ralf Gothóni.
ilfira ..... K E*!i
lllifl llkJ i#l Bjr
hann láti svo. Sum ljóð Braga eru
vel heppnuð eins og til dæmis í
ástandinu:
á HÓltculum Studebaker vðrubll
ek ég Vetrarbrautina á enda
og reyki Lucky Strike
syngjandl hástöfum Ama Pola
og slyddan er ástkona min
aftan á palllnum leikur englaakarinn
harmljéð á hörpur og lútur
um mann sem getinn var i skafli
austur á f jörðum fyrir strið
i áfangastað situr foratjérinn
uppl i tré á grænni greln
og yddar nokkra verkamenn i matinn
Þetta ljóð er trúverðug þjóðlífs-
lýsing. önnur eru leikur að orðum
og hugsunum, ekki frá því að vera
dálítið fyndin, en eintóna um of.
Framlag Jóns Bergsteinssonar er
ádeilukennt og upp á móti andleg-
um og veraldlegum máttarvöldum.
Jón yrkir á súrrealísku ljóðmáli um
umkomuleysi sitt meðal manna, en
er innst inni móralskur og vill
bæta heiminn (samanber prós-
ann)jafnvel fús til að kasta frá sér
draumi sínum um heróinista inn á
hvert heimili. Ljóð Jóns þurfa að
verða agaðri og markvissari til að
hægt sé að taka mark á þeim. En
honum er ekki alls varnað. Hér er
stutt ljóð sem lýsir dvöl hans í
vertíðarnlássi:
glugginn minn:
kolamoll rafljén
ollubrák lækjaruytra
grasté Meat Loaf its
only rock and roll Bat
out of Hell glugginn minn i
sjébéðunum
Guðrún Edda Káradóttir á ljóð
sem kallast Lífeðlisfræði. Hún
segir í því að ljóð séu „óstýrilátustu
innyfli líkamans", en sleppi þau úr
prísundinni verði þau ófrjáls og
geti litlu ráðið um ferðir sínar.
Gaman hefði verið að sjá meira
eftir hana í Heima í héraði því að
tónninn er ferskur og lofar góðu.
Guðrún Edda hefur myndskreytt
bókina ásamt þeim Erni Karlssyni,
Jóni Bergsteinssyni, Braga Berg-
steinssyni og Sigurði Erlendssyni
sem er höfundur ljósmynda. Þessar
myndir eru yfirleitt í fremur
gáskafullum stíl og setja óhátíðleg-
an blæ á bókina.
Oadge
fyrsti litli lúxusbíllinn frá Ameríku
Nú í fyrsta sinn getum við borðið hinn margfaida verðlaunahafa
DODGE OMNI frá bandarísku CHRYSLER-verksmiðjunum.
DODGE OMNI er fimm manna, fimm hurða, framhjóladrifin fjöl-
sky Idubíll. í DODGE OMNI er 4 cyl. 1,7 lítra vél, sjálfskipting, vökva-
stýri, útvarp og önnur amerísk þægindi.
ísland er eina landið utan Bandaríkjanna sem fengið hefur DODGE
OMNI afgreiddan, vegna metsölu bílsins í framleiðslularidinu.
DODGE OMNI er bíli framtíðarinnar - lítill, spameytinn og dug-
mikill fjölskyldubíll. — Látið ekki happ úr hendi sleppa, tryggið
ykkur DODGE OMNI strax í dag.
CHRYSLER
Rmnmmnmm
in
ðiíl. Í3L1 J1 _
SUÐURLANDSBRAUT 10. SÍMAR: 83330 - 83454
ð Ifökull hf.