Morgunblaðið - 09.10.1979, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER1979
27
Deckarm að
koma til
JOACHIM Deckarm, þýski lands-
IiðsmaAurinn kunni í handknatt-
leik, er nú á örum batavegi, en
sem kunnugt er, lá hann með-
vitundarlaus i fjóra mánuði eftir
slys á leikvelli.
Það var í leik Gummersbach og
Tatabanya, sem Deckarm rakst
harkalega á markvörð Tatabanya
í hraðupphlaupi og rak höfuðið af
slíku afli í gólfið að hann missti
meðvitund og vissi hvorki í
þennan heim né annan í fjóra
mánuði og lengst af var hann í
lífshættu.
Fréttir af kapganum eru nú
hins vegar góðar. I ágúst vaknaði
hann og í dag er hann farinn að
geta svarað spurningum og að
flestu leyti farinn að haga sér
skynsamlega. Þá er hann farinn
að ganga um gólf, sitja í stólum og
fleira, en allt eru þetta hlutir sem
talið var að hann myndi jafnvel
aldrei gera á ný. Hann er og
farinn að braggast líkamlega,
gerir líkamsæfingar þrisvar á dag.
ÍR sigraði
ekki FH
í frétt á iþróttasiðu Mbl. síðast-
liðinn þriðjudag var skýrt frá því
að FH hefði sigrað í fjórþraut
HSÍ. Þessi frétt var ekki rétt; það
var lið ÍR sem sigraði i keppn-
inni og leiðréttist það hér með.
Stafaði þessi ruglingur út af
rangri frétt frá HSI sem sam-
bandið hefur nú leiðrétt. Rétt
niðurstaða í f jórþrautinni fer hér
á eftir.
Dagana 10.—14. ágúst s.l.
gekkst H.S.Í fyrir fjórþraut, sem
haldin var fyrir leikmenn fyrstu
deildar liðanna í handknattleik og
framkvæmd af landsliðsþjálfara,
Jóhanni Inga Gunnarssyni.
Mælt var:
Þol, 3000 metra hlaup.
Hraði/snerpa, 40 m hlaup.
Stökkkraftur með 3ja skrefa
atrennu.
Handboltapróf, sérhæft þol,
hraða og tæknipróf í athöfnum
handknattleiksins.
Próf þetta er eftir erlendri
fyrirmynd, með stigagjöf eftir
ákveðnum reglum.
Í.R. náði bestum árangri 1.
deildar félaganna og er Jjví sigur-
vegari í fjórþraut H.S.I. 1979 og
hreppir því verðlaunin sem H.S.I.
veitir fyir árangurinn.
- Stig Í.R. gagnvart hinum félög-
unum eru sem hér egir:
ÍR 215,25 / FH 209,75
ÍR 219,14 / KR 208,71
ÍR 222,00 / Haukum 211,83
ÍR 222,00 / Víkingi 210,16
ÍR 232,25 / VAl 220,75
ÍR 248,00 / Fram 238,00
HK tók ekki þátt í prófinu.
Bjarni Bessason náði bestum
árangri í prófinu með 248 stig, þá
komu Bjarni H. 229, Ársæll 227 og
Pétur 225. Síðan komu Guðmund-
ur Þ. 210, Brynjólfur M. 203 og
Steinn Ö. 202, en aðrir minna.
Evrópukeppni bikarhafa:
Fátt um stórleiki
ÞAÐ virðist ekki vera margt um
virkiléga stórleiki i 2. umferð
Evrópukeppni bikarhafa, en hún
er oft talin veikasta keppnin af
Evrópukeppnunum þremur. Helst
ber að geta leiks Arsenal og
austurþýska liðisins Magdeburg.
Skagabanarnir frá Barcelona
geta þegar í stað farið að velta
fyrir sér væntanlegum mótherj-
um i 3. umferð, en Barcelona
dróst nú gegn Aris Bonneveg frá
Lúxemburg og eru Lúxararnir
enn ólíklegri til að gera spænska
liðinu skráveifu heldur en islensk
lið. Drátturinn í Evrópukeppni
bikarhafa er þannig:
Arsenal — Magdeburg
Aris Bonneveg — Barcelona
Panionios — IFK Gautaborg
Loko Kosice — NK Rijeka
Nantes — Steua Búkarest
Dinamó Moskva — Boavista
Zagorra — Juventus
Valencia — Glasgow Rangers
Labbi oq Kalli dæma
á HM unglinga
Þeir Karl Jóhannsson og Gunnlaugur Hjálmarsson
munu dæma á heimsmeistarakeppni unglinga í hand-
knattleik sem fram fer í Danmörku og Svíþjóð síðar í
þessum mánuði._______________
Dresdení
forystu
DYNAMO Dresden hefur nú for- knattspyrnunni urðu sem hér
ystuna i austur-þýsku deildar- segir:
keppninni i knattspyrnu með 12
stig eftir 17 umferðir. Dynamo Carl Z. Jena — Dynamo Berl. 2—0
hefur þó aðeins leikið sex leiki, Chemie Halle — Magdeburg 5—1
en unnið þá alla. Dynamo Berlin FC Vorwerts — Wismut Aue 2—0
og Cheme Halle hafa bæði hlotið Erfurt — Stahl Reisa 3—1
11 stig, en úrslit í austur-þýsku Zwickau — Chemie Leipzig 0—3
Á myndinni hér að ofan sem tekin er af sjónvarpsfilmu, má sjá aðdragandan að slysinu. Deckarm er i
dökkri skyrtu no. 11, fellur i gólfið eftir að hafa lent i harkalegu samstuði og höfuð hans skellur i gólfið.
• Langstökkvarinn Larry Myricks stekkur 8,52 metra
og sigrar í heimsbikarkeppninni í frjálsum iþróttum
sem fram fór í Kanada fyrir skömmu. Stökk Larry er
annað lengsta stökk i heiminum frá upphafi. Lengsta
stökkið er 8,90 metrar sett af Bob Beamon Bandaríkjun-
um á Olympíuleikunum í Mexico árið 1968. Stökk
Beamons þótti hreint ótrúlegur árangur. Nú telja fróðir
menn að Larry Myrick hafi góða möguleika á að bæta
stökk hans, en hann þykir búa yfir miklum hæfileikum.
Larry er nemandi við Háskólann i Missisippi.
Ótrúleg
heppni
íþróttamður nokkur i Sviþjóð,
Magnus Johnson að nafni, kom
mjög við sögu i siðustu viku.
íþróttir hans eru golf og keilu-
spil.
Eins og kunnugt er, gerist það
ekki á hverjum degi að kylfingar
slá holu í höggi. í keiluspili er það
ennig sjaldgæft að iðkendur hæfi
allar keilurnar í hverju skotinu af
öðru, en jafnan varpa keiluspilar-
ar svörtu kúlunni tólf sinnum að
keilunum í hverri keppni.
Og þá er komið að Magnúsi.
Hann gerði sér lítið fyrir og sló
holu í höggi, auk þess sem hann
skaut niður hverja einustu keilu í
skotum sínum tólf. Er nú Magnus
Johnson orðaður við heimsmeta-
doðrant Guinness.
Mullery
kærir
ekki
EINS og lesa má i greininni um
ensku knattspyrnuna, gerðist sá
fáheyrði hlutur i leik Manchester
Utd. og Brighton, að sam-
herjarnir Eric Steele og Garry
Williams hófu grimmileg áflog,
sem lauk ekki fyrr en að margir
höfðu gengið á milli og dómarinn
bókað striðsmennina.
Framkvæmdastjórinn Alan
Mullery lýsi því yfir, að hann
myndi ekki sekta eða straffa
leikmenn sina á nokkurn hátt.
Mullery á ekki gott með að gera
slika hluti, því sjálfur verður
hann að sitja viðs fjarri hliðar-
linunni meðan á leikjum stendur,
en hann atyrti linuvörð er
Brighton lék vináttuleik i sumar
og var dæmdur til að sitja uppi i
stúku í 8 mánuði. Það væri þvi
synd að segja að framkvæmda-
stjórinn hafi sýnt gott fordæmi.