Morgunblaðið - 09.10.1979, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1979
Alþýðuflokkurinn slítur stjórnarsamstarfinu... Alþýðuflokkurinn slítur stjórnai
Lúðvik Jósepsson um stjórnarslitin:
„Það furðulegasta
sem ég hef heyrt frá
stj órnarsamstarfi’ ’
MORGUNBLAÐIÐ ræddi við
Lúðvik Jósepsson formann Al-
þýðubandalagsins i gærkvöldi
þegar endanleg niðurstaða Al-
þýuðflokksmanna um stjórnar-
slit lá fyrir, en Lúðvik hefur
ekkert viljað tjá sig um málið
fyrr en sú niðurstaða lægi fyrir.
„Ákvörðun Alþýðuflokksins,"
sagði Lúðvík, „er sú furðulegasta
•sem ég hef heyrt frá stjórnarsam-
starfi um langa hríð. Alþýðuflokk-
urinn sprengir ríkisstjórnina án
þess að geta tilgreint neinn sér-
stakan árekstur í samstarfinu. Sá
ágreiningur sem oftast hefur kom-
ið upp er afstaða til stefnunnar í
efnahagsmálum og sú stefna lá
fyrir s.l. vetur.
Skynditiífelli
Alþýðuflokksins
Ef stefnan í efnahagsmálum
hefði verið ástæðan átti þing-
flokkurinn að taka slíka ákvörðun,
sem hann hefur gert nú, á s.l. vetri
eða í vor þannig að unnt hefði
verið að bjóða fólki upp á vor- eða
sumarkosningar. En flokkurinn
fær þetta tilfelli rétt áður en þing
kemur saman og sýnir af sér
einstakt ábyrgðarleysi um leið og
hann fer fram á vetrarkosningar á
ákaflega óhentugum tíma.
Ekki dæmi um
önnur eins ólíkindi
Ef þingrof verður samþykkt
verður landið fjárlagalaust fram á
næsta ár. Þá hleypur Alþýðuflokk-
urinn frá yfirlýsingu sinni sem
hann gaf ásamt öðrum flokkum
um breytingu á kosningalögum og
kjördæmaskipan, en þá breytingu
átti samkvæmt gefnum loforðum
að framkvæma áður en gengið
yrði til kosninga á ný.
Allt er þetta mál með slíkum
ólíkindum að ekki eru dæmi um
annað eins fyrr. Þetta er þó aðeins
sönnun á því sem við höfum fengið
að reyna á s.l. ári, að margir
Alþýðuflokksmenn voru andvígir
þessari ríkisstjórn frá upphafi.
Fögnuður á fögnuð ofan
Það er því hlægilegt að Alþýðu-
flokksmenn skuli bera því við að
þeir hafi ekki fengið sitt fram í
stjórnarsamstarfinu. Alþýðu-
flokkurinn fagnaði frumvarpi Ól-
afs sem lagt var fram í marz s.l. og
lýsti því yfir að hann gæti sam-
þykkt það óbreytt. Síðar þegar
efnahagslögin voru samþykkt,
fagnaði Alþýðuflokkurinn því og
taldi þau marka tímamót.
Þegar þeir hins vegar sáu að
þær tillögur sem þeir höfðu komið
í gegn í efnahagsmálunum urðu
aðeins til þess að magna verðbólg-
una til muna, þá hlaupa þeir til og
reyna að kenna öðrum um. Má
þarna nefna t.d. vaxtahækkunina
og stefnu þeirra í fjármálum.
Lúðvik Jósepsson
4 beinar kauplækkunar-
tillögur á ári
Ágreiningurinn á milli Alþýðu-
flokksins og Alþýðubandalagsins í
ríkisstjórninni var ítrekaður
vegna tillagna Alþýðuflokksins
um bindingu kaupgjalds án tillits
til verðlagsbreytinga og þannig
reyndu þeir að knýja fram beina
kauplækkun. Fjórum sinnum á
árinu hafa þeir lagt fram beinar
tillögur þar að lútandi.
Alþýðuflokkurinn verður að
bera ábyrgð á tillögum sínum.
Hafi hann meirihluta á Alþingi
fyrir nýjum kosningum þá verður
sá meirihluti að koma fram til
þess að knýja þær fram og sá
meirihluti tekur þá á sig ábyrgð á
stjórn landsins meðan þær kosn-
ingar fara fram.“
Mbl. spurði Lúðvík hvort Al-
þýðubandalagið hefði tekið af-
stöðu til þingrofs? „Það verður
miðstjórnarfundur hjá okkur ann-
að kvöld (þriðjudag)," svaraði
Lúðvík, „og hann mun taka form-
lega afstöðu til þingrofs."
Stilltu flokksstjórn-
inni upp við vegg
„Maður gat búizt við að flokks-
stjórn Alþýðuflokksins staðfesti
ákvörðun þingflokksins," hélt
Lúðvík áfram, „það hefði verið
erfitt að reka þingflokkinn aftur,
en eðlilegra hefði ég talið að
þingflokkurinn hefði komið með
tillögu sína beint á flokksstjórn-
arfund í stað þess að stiila flokks-
stjórninni upp við vegg eins og
gert var. Allt er þetta mál furðu-
legt fljótræði af hálfu Alþýðu-
flokksins og ábyrgðarleysi að fara
fram á kosningar eins og nú er
ástatt."
Steingrímur Hermannsson:
„Annað hef ði lýst herfilegri
fljótfærni þingflokks krata”
„ÉG get ekki séð að flokksstjórn-
arfundur Alþýðuflokksins hafi
átt um annað að velja en stað-
festa ákvörðun þingflokksins um
stjórnarslit, önnur niðurstaða
hjá flokksstjórn hefði upplýst svo
herfilega fljótfærni þingflokks
krata,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson formaður Framsókn-
arflokksins í samtali við Mbl. í
gærkvöldi þegar forystumenn
flokksins komu saman til fundar
til þess að ræða málin fyrir
þingflokksfund sem verður kl. 4 í
dag og taka mun formlega af-
stöðu til þingrofs.
Ólafur Jóhannesson forsætis-
ráðherra var ekki á umræddum
fundi framsóknarmanna í gær-
kvöldi þar sem hann hafði boðað
forföll og var ekki hægt að ná
sambandi við hann.
Steingrímur sagði að ef Alþýðu-
flokkurinn drægi ráðherra út úr
ríkisstjórninni hefði flokkurinn
engan tillögurétt um þingrof og
þar með væri ríkisstjórnin orðin
minnihlutastjórn og það væri for-
sætisráðherra að ákveða framhald
málsins.
Frá fundi Framsóknarmanna í gaarkvöldi. Frá vinatri: Jón Halgaaon (anýr baki), Jónaa Jónaaon, Eyateinn
Jónaaon, Kriatján Banadiktaaon, Jón Siguröaaon ritatjóri, Ingvar Gíalaaon, Staingrímur Harmannaaon og
Eiríkur Tómaaaon. Ljóamynd Mbl. ÓI.K.M.
Karl Steinar Guðnason alþm.;
Björn Jónason og Bjarni Guönason flytja sig milli hœöa í lönó
ásamt öörum flokksstjórnarmönnum. Ljósm. Mbl. Ól. K.M.
Fluttu sig í leikhúsið
FLOKKSSTJÓRNARFUNDUR Alþýðuflokksins var vegna fjöl-
mennis fluttur af efri hæð í Iðnó niður í leikhúsið. Fundinn í
gærkvöldi sóttu 76 flokksstjórnarmenn, en í flokksstjórn eru 102; 31
aðalmaður í kjördæmum og 31, sem kosinn er án tillits til búsetu,
16 varamenn þeirra fyrrtöldu og 10 varamenn hinna síðartöldu, og
þingmennirnir 14 talsins. Á sviðinu í Iðnó unnu leiksviðsmenn við
leikmynd Ofvitans, en þeir viku fyrir flokksstjórnarmönnum en
engar leiksýningar eru á mánudagskvöldum.
Engar sviptingar,
en deilt í bróðerni
„ÞESSI flokksstjórnarfundur var
jákvæður og ég er ánægður með
hann,“ sagði Karl Steinar Guðna-
son, alþingismaður og formaður
verkalýðsmálanefndar Alþýðu-
flokksins eftir flokksfundinn i
gærkveldi. „I umræðum á fundin-
um kom mjög greinilega fram, að
menn töldu nauðsyn einingar inn-
an flokksins. Þeir, sem töldu að
reyna hefði átt meir að ná sam-
stöðu innan ríkisstjórnarinnar,
lýstu og vonbrigðum sínum. Þeir
töldu þó ljóst, að ckki væri unnt að
vera í samstarfi, þar sem hver
höndin væri uppi á móti annarri.“
Morgunblaðið spurði, hvort mikl-
ar sviptingar hefðu verið innan
verkalýðshreyfingarinnar um helg-
ina, en spurzt hafði, að áhrifamenn
innan verkalýðsarms Alþýðubanda-
lagsins hefðu reynt að hafa áhrif á
verkalýðsarm Alþýðuflokksins
vegna stjórnarslitamálsins. Karl
Steinar kvað engar sviptingar hafa
Karl Steinar
orðið og hann kvaðst ekki hafa orðið
var neins þrýstings vegna þessa. Um
flokksfundinn sagði hann einnig, að
þar hefðu heldur ekki verið svipt-
ingar, en deilt hefði verið í bróðerni.
Hvað varð
um skeytíð?
PÉTUR Sigurðsson, formaður Al-
þýðusambands Vestfjarða gat
ekki komið því við að sækja
flokksstjórnarfund Alþýðuflokks-
ins, sem haldinn var i gærkveldi. í
samtali við Morgunblaðið í gær
sagðist Pétur hins vegar hafa sent
fundinum skeyti. Að sögn Péturs
var efni skeytisins svohljóðandi:
„Ég skora á flokksstjórnarfund-
inn að samþykkja að óska eftir því,
að þingflokkurinn reyni ennþá
einu sinni í ríkisstjórn að ná
samkomulagi og brotthlaup á þess-
um forsendum, án úrslitatilraunar,
eru svik við verkalýðshreyfing-
una.“ Er Pétur hafði skýrt Morg-
unblaðinu frá efni skeytisins, sagði
blaðamaður: „Þetta eru stór orð.“
„Já,“ svaraði Pétur, „en ég stend
við þau.“
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins af fundinum í gærkveldi,
var skeyti Péturs Sigurðssonar
ekki lesið upp á fundinum. Fundar-
stjóri var Kjartan Jóhannsson
varaformaður Alþýðuflokksins.
Morgunblaðinu er ekki kunnugt
hvað varð um skeytið.