Morgunblaðið - 09.10.1979, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1979
21
„Möguleikarnir
eru fyrir hendi“
„VIÐ STEFNUM að sjálfsögðu
að því að sýna góðan leik gegn
Tékkunum og ef vel tekst til,
eru möguleikar á góðri út-
komu,“ sagði Jóhann Ingi
Gunnarsson einvaldur íslenska
handboltalandsliðsins aðspurð-
ur um möguleika íslands gegn
Tékkum.
Ein spurning sem vaknar er
sú hvort íslendingar hafi nokk-
uð í tékkana að gera i byrjun
keppnistímabilsins hérlendis.
Því svaraði Jóhann á þá leið, að
islenskir handboltamenn hefðu
liklega aldrei verið í jafngóðri
æfingu að haustlagi og væri það
þvi að þakka að flest liðanna
hafa æft meira og minna i allt
sumar.
Það er óhætt að taka undir
þau orð landsliðsþjálfarans,
handboltinn hefur sennilega
aldrei verið jafn frískur að
hausti hérlendis og nú, um það
vitna 1200 áhorfendur á úrslita-
leik Reykjavíkurmótsins milli
Víkings og Vals, en það er 100
prósent aukning á ahorfenda-
fjölda miðað við samsvarandi
leik í fyrra. Almenningur er
fljótur að taka við sér þegar
eitthvað er að sjá.
Þá kvaðst Jóhann Ingi hafa
legið yfir mynd-spólum af tékkn-
eska liðinu í leik. Hann sagði að
liðið skipuðu margir góðir leik-
menn, en tékkneskur handknatt-
leikur hefði síður en svo yfir-
burði yfir íslenskan eins og
staðan er í dag. Á það má minna
í þessu sambandi, að leikir
íslands og Tékkóslóvakíu hafa
oft verið hinir eftirminnilegustu,
jöfnunarmörk á lokasekúndum
og fleira í líkum dúr. Er
skemmst að minnast B-keppn-
innar á Spáni þegar liðin skildu
jöfn í hörkuleik, 12—12! Bjarni
Guðmundsson skoraði þá tólfta
mark íslands og jöfnunarmarkið
á síðustu sekúndunum.
ólafur H. Jónsson fyrirliði
hafði þetta að segja um horfurn-
ar: „Þær eru góðar. Ég er
undrandi yfir því hve góður
handknattleikurinn hefur verið í
haust og vona að það speglist í
landsleikjunum. Við getum allt-
af skorað mörk, stóra spurningin
er hvernig til tekst með varnar-
leikinn." KK
Arni hættir
landsliðinu
ÁRNI Indriðason, fyrirliði
islenska landsliðsins i hand-
knattleik, hefur ákveðið að
leika ekki fleiri landsleiki fyrir
íslands hönd.
I
Ákvörðun Árna mun vera
óhagganleg og verður sjónar-
sviptir að þessum baráttuglaða
leikmanni. Árni lék um 60 lands-
leiki og er í dag einn snjallasti
varnarmaður á landinu og
drjúgur línumaður að auki.
Árni verður þó áfram á fleygi-
ferð með liði Víkings og ef að
líkum lætur, mun honum þykja
nóg um það álag sem fylgir því
að æfa með félagsliði, þótt ekki
bætist við hinar rosalegu æf-
ingatarnir og ferðalög með
landsliðinu.
• Árni í kröppum dansi i
landsleik. Hann hefur leikið
sinn siðasta landsleik.
Viggó Sigurðsson stendur sig mjög vel með liði sinu F.C. Barcelona i handknattleik. Á myndinni er
Viggó með tveimur heimsþekktumstjörnum sem einnig eru atvinnumenn hjá sama félagi, þeim Allan
Simonsen og Hans Krankl. Sjá spjall við Viggó á bls. 23. Ljósmynd ÞR.
Fyrstu handfcnattleiks
landsleikir haustsins
FYRSTU landsleikirnir i handknattleik á vetrinum fara fram í
næstu viku, mánudaginn, þriðjudaginn og miðvikudaginn. Mót-
herjarnir eru ekki af lakara taginu, Tékkar. Svo kann að fara, að
f jórði leikurinn bætist við, en á þessu stigi er ekki hægt að fullyrða
um það.
Fyrsti leikurinn fer fram mánudaginn 15. október i Laugar-
dalshöllinni og daginn eftir verður einnig leikið i Höllinni. Á
miðvikudaginn verður hins vegar breytt til og leikið á Selfossi og
mætir þá landslið íslands skipað leikmönnum 21 árs og yngri
hinum sterku Tékkum.
Landsliðsþjálfarinn og einvaidurinn Jóhann Ingi Gunnarsson
hefur valið 14 manna hóp fyrir A-landsleikina. Hópinn skipa
eftirfarandi leikmenn (landsleikjafjöldi og mörk innan sviga):
Markverðir:
Jens Einarsson Víkingi (14)
Kristján Sigmundsson Vík. (25)
Aðrir leikmenn:
Bjarni Guðmundsson Val
(48-48)
Erlendur Hermannsson Vík.
(2-7)
Þorbjörn Guðmundsson Val
(52-104)
Steinar Birgisson Vík. (0—0)
Hörður Harðarson Haukum
(6-10)
Ólafur H. Jónsson Þrótti
(116-290)
Steindór Gunnarsson Val
(28-26)
Ölafur Jónsson Vík. (32—39)
Bjarni Bessason ÍR (0—0)
Stefán Gunnarsson Val (55—29)
Þorbergur Aðalsteinsson Vík.
(23-29)
Páll Björgvinsson Vík. (44—114)
Svo sem sjá má, eru í hópnum
tveir nýliðar, þeir Bjarni Bessa-
son og Steinar Birgisson. Báðir
eru þeir skyttur, en líklega eru
skiptar skoðanir um það, hvort
val þeirra megi kallast óvænt.
Vafalaust leggja þeir þó allt af
mörkunum.
Margir sakna eflaust Árna
Indriðasonar af listanum, en
hann gefur ekki kost á sér í
landsliðið. Ákvörðun hans mun
vera óhagganleg og því hefur
Jóhann Ingi skipað Ólaf H.
Jónsson fyrirliða, en hann er
ekki ókunnugur þeim starfa.
Þá er eftirtektarvert, að í
hópnum eru aðeins 14 leikmenn,
en ekki 16 eins og að öllu jöfnu.
Skýringuna á þessu kvað Jóhann
vera þá, að með svo litlum
undirbúningi sem landsliðið fær
fyrir leiki þessa, væri betra að
byggja upp samstilltan hóp með
fáum mönnum.
Landsleikir þessir gegn Tékk-
um eru fyrsta viðfangsefni nýs
landsliðskjarna, þess kjarna sem
á að keppa á undankeppni HM
1981. Kjarnann munu skipa þeir,
sem koma vel út úr leikjunum
svo og efnilegustu unglingarnir
á HM unglinga í Danmörku í lok
þessa mánaðar. Síðan er Baltic-
keppnin svokallaða á dagskrá í
janúar næstkomandi og mætir
Island þar firnasterkum mót-
herjum.
Annað, sem menn reka augun
í varðandi landsliðshópinn, er
fjarvera þeirra leikmanna sem
leika erlendis og má þar nefna
Axel Axelsson, Jón Pétur Jóns-
son og Viggó Sigurðsson. Það er
skoðun Jóhanns Inga, að ekki sé
rétt að sækja menn út fyrir
landsteinana fyrir leiki sem
þessa. Það kæmi aðeins til
greina fyrir meiri háttar mót,
þannig að viðkomandi leikmenn
gætu æft með hópnum. Og þá
aðeins að ljóst væri að ekki væru
til jafngóðir leikmenn í viðkom-
andi stöður hér heima.
Þess má að lokum geta, að
Ólafur H. Jónsson mun jafna
landsleikjamet Geirs Hall-
steinssonar. Geir hefur leikið
118 landsleiki og mun vera
hættur þeirri iðju. Ólafur hefur
hins vegar leikið 116 og honum
því allir vegir færir að setja nýtt
íslenskt landsleikjamet.
Ný stjarna
til KR-inga
• Kapparnir þrír fyrir miðri
mynd koma allir mikið við sögu
í herbúðum KR-inga þessa dag-
ana. Svertinginn vinstra megin
er Dakarsta Webster, eða
spóinn eins og hann hefur verið
nefndur. Við hlið hans er Marw-
in Jackson, nýjasti svertinginn.
Hann mun taka stöðu spóans,
sem mun vera á förum héðan
áður en langt um líður.
KR-ingar munu þó hafa i
hyggju að tefla báðum fram í
Evrópukeppninni. Spóinn hefur
ekki staðið undir vonum
KR-inga. Hann er víst ágætur
varnarmaður. en ekki eins
sprækur sóknarmaður. Jackson
mun vera af öðru sauðahúsi.
Hann kann vist svo mikið fyrir
sér, að Hariem Globetrotters,
sýningarliðið fræga, bauð hon-
um að ganga til liðs við sig.
Verður spennandi að sjá til
kappans i vetur.
Til hægri við Jackson situr
Jón Sigurðsson, sem hefur ekki
getað leikið síðustu vikurnar
vegna meiðsla.