Morgunblaðið - 09.10.1979, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1979
25
ri röð frá vinstri: Steinar Birgisson, Eysteinn Helgason, Páll
% Eggert Guðmundsson, Sigurður Gunnarsson, ólafur Jónsson,
ur Aðalsteinsson, Árni Indriðason, Kristján Sigmundsson, Jens
on- Ljósm. Guðjón.
ir leikur
neistarar
að jafna, 15—15. Þá misnotaði
Árni Indriðason vítakast, en Vals-
mönnum tókst ekki að skora úr
upphlaupi sínu. Sigurður Gunn-
arsson sem var mjög atkvæðamik-
ill í síðari hálfleiknum kom Vík-
ingum tveimur mörkum yfir,
17-15.
Þrátt fyrir að Valsmenn börðust
vel, tókst þeim ekki að ná að jafna
metin. Áð vísu var mikill
darraðardans í lok leiksins þegar
staðan var 19—18, þá léku Vals-
menn maður á mann. En þeir
Ólafur Jónsson og Sigurður Gunn-
arsson innsigluðu sigur Víkings
með fallegum mörkum og tveggja
marka sigur Víkings var í höfn,
21-19.
Vel leikinn leikur
Af hálfu beggja liða var leikur-
inn mjög vel leikinn. Ljóst er að
liðin eru í mjög góðri líkamlegri
æfingu og búa yfir fleiri leikbrell-
um en oft áður. önnur 1. deildar
lið mega spjara sig ef þau ætla að
standast Val og Víkingi snúning-
inn í vetur, þar sem aðall liðanna í
leiknum var mikill hraði og fastur
varnarleikur sem á köflum jaðraði
við að vera grófur.
Liðin
Bestu menn Víkings í þessum
leik voru hornamennirnir Erlend-
ur og Ólafur Jónsson. Þá átti
Sigurður Gunnarsson góðan leik,
svo og Páll Björgvinsson sem er
primus mótor í spili Víkinga. Þeir
Steinar Birgisson og Árni Indriða-
son léku vel í vörninni og er
hægara sagt en gert að komast
framhjá þeim.
Lið Vals var gott í þessum leik
þó svo að þeim tækist ekki að
sigra. Þorbjörn Guðmundsson átti
góðan leik og skoraði fimm mörk,
öll með miklum þrumuskotum.
Nafni hans Jensson var sterkur í
vörninni. Brynjar varði vel í síðari
hálfleiknum og Steindór er leik-
maður sem berst ávallt vel.
Dómgæslan
Dómgæslan var að þessu sinni í
höndum Einars Sveinssonar og
Jóns Hermannssonar. Dæmdu
þeir leikinn mjög vel. Það gætti
fyllsta samræmis í dómum þeirra,
en þeir leyfðu nokkuð mikið. Það
varð til þess að leikurinn gekk
hratt fyrir sig og bauð upp á mikla
skemmtun. Það er að sjálfsögðu
oft túlkunaratriði hversu mikið á
að leyfa en sé sífellt verið að
flauta á smábrot, er hætt við að
það minnki hraðann í leiknum.
í stuttu máli: Úrslitaleikurinn í
Reykjavíkurmótinu í handknatt-
leik. Laugardalshöll 7. okt. 1979.
Valur—Víkingur: 19—21 (9—9).
Mörk Vals: Þorbjörn
Guðmundsson 5, Stefán Halldórs-
son 5, öll úr vítaköstum, Steindór
Gunnarsson 2, Þorbjörn Jensson 2,
Bjarni Guðmundsson 2, Björn
Björnsson 2, Gunnar Lúðvíksson
1.
Mörk Víkings: Sigurður Gunn-
arsson 6 (2v), Erlendur
Hermannsson 5, Ólafur Jónsson 3,
Páll Björgvinsson 3, Þorbergur
Aðalsteinsson 2, Steinar Birgisson
1.
Brottvísun af leikvelli: Stefán
Gunnarsson, Björn Björnsson,
Þorbjörn Jensson allir í Val, út af
í tvær mínútur. Þorbergur Aðal-
steinsson, Víkingi, í 2 mín.
Misnotað vítakast: Brynjar
Jensson varði skot Árna Indriða-
sonar á 49. mínútu. — ÞR.
„Vió tökum þá
örugglega í
næsta leik okkar
u
segir Hilmar Björnsson þjáifari Valsmanna
— ÞETTA var hörku-
leikur. En það var grát-
legt að tapa honum, það er
svona þegar leikmenn
gera ekki eins og fyrir þá
er lagt, sagði Hilmar
Björnsson þjálfari Vals,
eftir leikinn.
í raun og veru er enginn
munur á þessum liðum. og
því getur sigurinn hafnað
hvoru megin sem er. Við
gátum stöðvað öll leik-
kerfi þeirra, en horna-
mennirnir okkar ná ekki
að stöðva þeirra menn í
hornunum þegar leikið er
maður á móti manni. Það
var dýrkeypt.
Nú, við átt-
um sex dauðafæri í leikn-
um sem ekki nýtast. — Við
tökum þá örugglega í
gegn þegar liðin mætast
næst, sagði Hilmar að lok-
um.
- Þr.
• Hornamaðurinn sterki Ólafur Jónsson kominn í gegn og skorar framhjá Bryr.jari Kvaran markverði
Vals, sem virðist leggja sig allan fram.
Auðveldur sigur IR
Fylkir 23 >19
ÍR þurfti ekki mikið að hafa
fyrir þriðja sætinu i Reykjavik-
urmótinu i handbolta, Fylkir
reyndist furðuléttur mótherji.
Sigur ÍR var öruggur, 23—19,
eftir að ÍR hafði haft sjö mörk
yfir í leikhléi, 15-8.
ÍR-ingar voru mjög áberandi
sterkari í leiknum og sigurinn þar
af leiðandi meira en sanngjarn.
En handknattleikurinn sem á
boðstólum var, var ekki upp á
marga fiska, einkum af hálfu
Fylkis. Ótímabær skot voru mörg
auk þess sem niðurstungur og
feilsendingar tröllriðu leiknum.
Jafnt var framan af, Fylkir
hafði meira að segja forystu þegar
staðan var 5—4 fyrir liðið, eftir að
ÍR hafði komist í 3—1. Síðan fór
að halla undan fæti hjá Fylki og
þegar hálfleikur rann upp voru
engar horfur á spennandi síðari
hálfleik enda staðan þá 15—8 fyrir
ÍR.
Fylkismenn hleyptu pínulitlu
lífi í leikinn með því að skora
fjögur fyrstu mörk síðari hálf-
leiks, en lengra náði það ekki hjá
þeim og hélst 3—4 marka munur
út leikinn. Brons til ÍR.
Lítið er um liðin að segja,
skipulagt samspil fyrirfannst
vart, varnarleikurinn, einkum hjá
Fylki, var slakur. Markvarsla
beggja liða var fyrir neðan meðal-
lag. Hjá Fylki bar einna mest á
þeim Ragnari Hermannssyni og
Sigurði Símonarsyni. Hjá ÍR fór
Bjarni Bessason hamförum í fyrri
hálfleik og skoraði þá eins og hann
lysti. í síðari hálfleik hugðist
hann síðan halda áfram upptekn-
um hætti, en þá brá svo við að
ekkert gekk upp. Auk Bjarna
skoruðu mikið nafni hans Hákon-
arson og Guðjón Marteinsson, en
allir þrír áttu samanlagt urmul
skota sem rötuðu ekki á leiðar-
enda.
Mörk ÍR: Bjarni B. 6, Guðjón
Marteinsson 6, Bjarni Hákonarson
5 (2 víti), Ársæll Hafsteinsson 3,
Hörður Hákonarson 2, Sigurður
Svavarsson 1 (víti).
Mörk Fylkis: Magnús Sigurðs-
son 5 (2 víti), Ragnar Hermanns-
son og Sigurður Símonarson 3
hvor, Guðni Hauksson, Gunnar
Baldursson og Ásmundur
Kristinsson 2 hver, Stefán
Hjálmarsson og óskar Ásgeirsson
eitt hvor.
gg.