Morgunblaðið - 09.10.1979, Side 26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1979
34
Hvers má
ég vænta?
Ar barnsin8
1979
UMSJÓN:
AWr*é Haróaraon kannarí.
GuAmundur Ingi Laltsaon ikóla-
atjórt.
Halldór Ámaaon vióakíptafriaó-
ingur.
Karl Hajgaaon Wgfcraaóingur.
Sigurgair Uorgrimaaon
sambönd sem eru 18 talsins. Alls
voru skráðir félagar um síðustu
áramót 21.804 og þar af 8.598 15
ára og yngri. Þessar tölur segja
þó lítið þar sem venjulega starf-
ar fjöldi barna og unglinga í
félögunum þótt þau aldursins
vegna teljist ekki félagar og
greiði ekki félagsgjöld. Aldurs-
mörkin eru svo mismunandi t.d.
12, 14 eða 16 ár.
Hvar starfa svo ungmennafé-
lögin?
Því er best að svara með því að
segja að þau starfi nánast alls
staðar í dreifbýlinu og í öllum
kaupstöðum landsins nema
Siglufirði, ísafirði, Vestmanna-
eyjum og Hafnarfirði, enda sést
það af tölunni 196 félög að þau
koma víða við og hafa gert síðan
hið fyrsta þeirra var stofnað á
Akureyri árið 1906. Það á því
ekki að vera vandi að finna þau.
Hvað starfa þau?
Ungmennafélögin eru oftast í
hinum dreifðari byggðum þar
sem þau starfa langflest sem
eina æskulýðsfélagið í sínu sveit-
arfélagi og er starfsvettvang-
urinn því afar breiður.
Hópurinn af seinna námskeiðinu 11 — 14 ára úr sumarbúðum HVÍ 1979.
öll ár að meira eða
minna leyti bamaár
Undir þessu kjörorði var ég
beðinn að taka saman nokkra
punkta um starfsemi ungmenna-
félaganna með börnum og ungl-
ingum og skal fúslega við því
orðið, en varðandi margnefnt
barnaár skal það tekið fram að á
því er ekki svo mikill munur og
öðrum árum hjá okkur enda öll
ár að meira eða minna leyti
barnaár.
Fyrst nokkur orð um ung-
mennafélagshreyfinguna í dag.
Starfandi ungmennafélög í
landinu eru nú 196 talsins og er
skemmst frá því að segja að þau
starfa öll meira eða minna með
börnum og unglingum. Ung-
mennafélögin mynda síðan
Landssamtök sín, Ungmennafé-
lag íslands, í gegn um svokölluð
héraðssambönd eða ungmenna-
Hér má telja til dæmis leik-
list, íþróttir og útilíf, þjóðdansa,
námskeið og fræðslustarfsemi
margskonar, skák, spil og alls
konar skemmtanir og skógrækt
og náttúruvernd svo eitthvað sé
nefnt. Raunar má segja að þetta
fari eftir aðstæðum og áhuga á
hverjum stað.
Við höfum yfirleitt ekki þann
háttinn á að segja, þetta er
starfsemin i dag og þú mátt taka
þátt í henni eins og hún er,
heldur bjóðum við unglingana að
sjálfsögðu velkomna til að taka
þátt í því starfi sem fyrir er, en
leggjum áherslu á að þeir eigi
sjálfir að móta starfið, og eru
velkomnir með öll sín áhugamál
ef þeir vilja vinna að þeim á
félagslegum grundvelli. Þetta
hefur skapað síaukna fjölbreytni
í félagsstarfinu, öllum aldurs-
skeiðum til mikillar ánægju,
enda erum við ungmennafélagar
lítt hrifnir af að skipa félögum
okkar í sér deildir eftir aldri og
forðumst það. Bæði ný og gömul
reynsla sýna og okkur að félags-
starfið gengur best þar sem allir
aldurshópar vinna saman.
Við reynum að fylgja þeirri
stefnu að tala sem minnst um
það sem við gerum „fyrir" börn
og unglinga en viljum stefna að
því að gera sem mest „með“
þeim, e.t.v. sem mótvægi við
hina vafasömu mötun sem víða
er að verða allsráðandi.
Varðandi umfang starfsem-
innar get ég látið nokkrar tölur
fljóta með til glöggvunar.
Samkvæmt starfsskýrslum fé-
laganna fyrir árið 1977 tóku alls
17.317 unglingar og börn þátt í
íþróttaæfingum á vegum ung-
mennafélaganna þar af 11.417
piltar og 5.900 stúlkur. Af þess-
um hópi voru 7.522 félagsbundn-
ir, en hinir hafa eflaust verið of
ungir til að teljast formlegir
félagar. í öllum þessum tölum
miða ég við 15 ára og yngri. I
stjórnum og nefndum störfuðu
alls 379 unglingar, þátttakendur
í leiklist á þessum aldri voru 59,
og 24 í þjóðdönsum. Þátttakend-
ur í félagsmálanámskeiðum
þetta ár voru um 900.
Þá ber að nefna Sumarbúða-
starfsemi ungmennafélaganna
sem er mjög vinsæl og rekin á
nokkrum stöðum, t.d. 6 stöðum
nú í sumar.
Ég hef ekki tölur frá þessu
sumri en í fyrrasumar dvöldu í
ungmennabúðum okkar 243
börn.
Þá mætti nefna erlend sam-
skipti fyrir þessa aldurshópa,
mikið samstarf við skóla, útgáfu
leikþátta og kvöldvökuefnis,
unglingamót í íþróttum, útgáfu
tímaritsins Skinfaxa o.m.fl.
Ungmennafélögin öll mynda
landssamtökin, Ungmennafélag
ísland eða UMFÍ eins og það er
skammstafað. UMFI hefur
skrifstofu og rekur þjónustu-
miðstöð fyrir aðildarfélögin að
Mjölnishoiti 14 í Reykjavík.
Þangað eru allir velkomnir sem
vilja kynna sér þessa umfangs-
miklu starfsemi nánar eða kom-
ast í samband við einstök félög
eða héraðssambönd.
Að lokum má svo geta þess að
bæði einstök félög og héraðs-
sambönd hafa mikið samband og
samstarf sín á milli og stuðla
þannig að kynnum félaganna á
milli byggðarlaga og landshluta.
Við höfum í rúm 70 ár starfað
undir kjörorðinu „Ræktun lands
og lýðs“ og teljum gömiu dyggð-
irnar enn í fullu gildi, og teljum
að svo sé einnig um allan þorra
æsku þessa lands.
íslandi allt.
Sig. Geirdal,
framkvæmdastjóri UMFÍ.
Gömul sumarbúðamynd frá UMSK
Þátttakendur i knattspyrnumóti fyrir 6. flokk i Þrastarskógi í sumar.
Musica Quatro
á kreik
JAZZFLOKKURINN Musica
Quatro hefur byrjað vetrarstarf-
semina. Fyrstu tónleikar vetrar-
ins verða í kvöld fyrir nemendur
Verzlunarskólans og Mennta-
skólans í Reykjavík.
Flokkurinn var stofnaður í
fyrravetur en hann skipa Gunnar
Ormslev, Reynir Sigurðsson, Helgi
áný
E. Kristjánsson og Alfreð Al-
freðsson. S.l. vor lék flokkurinn í
Færeyjum við góðar undirtektir.
Ennfremur hefur hann hljóðritað
fyrir útvarp og leikið á tónleikum
í Norræna húsinu. Ætlunin er að
flokkurinn leiki í vetur á tónlist-
arkvöldum í skólum og fyrir aðra
aðila, sem þess kunna að óska.